Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
Háhymingurinn lyftir allt að sex tonna þungum búk sínum yfir sjávarflötinn. Hann lifir ekki einungis á fiski, heldur einnig á öðrum hvalategundum. Viðumefnið „dráps-
hvalur" á þó ekki rétt á sér; eins og aðrir höfrungar er hann vinalegur í umgengni við manninn.
Hvalveiðar heyra
brátt sögnnni til
— eftirDr. Wolfgang
Gewa.lt
rárþúsundir hefur
maðurinn veitt hvali.
í fyrstu var um
lífsnauðsynlegar veið-
ar frumstæðra þjóðflokka
að ræða en síðar varð sókn-
in að miklum útvegi með
flota og þyrlum. Nokkrar
tegundir voru í útrýmingar-
hættu. Nú hillir loks undir
lok hvalveiða í gróðaskyni.
Á tímabili líktist ásóknin í
þessi stærstu spendýr jarð-
arinnar útrýmingarherferð:
Miklir flotar veiðiskipa und-
ir leiðsögn þyrluflugmanna
réðust gegn hvölunum hvar
sem þeir komu upp úr djúpi
hafsins. Veiðikvótar sem
settir voru fyrir áratugum
hafa ekki megnað að koma
í veg fyrir að sumar tegund-
ir kæmust í útrýmingar-
hættu.
Sókninni í stóru hvalategundimar
virðist nú loks vera að ljúka. Al-
þjóðahvalveiðiráðið með aðsetur í
Cambridge hefur nú fengið loforð frá
síðustu hvalveiðiþjóðunum um að
veiðum verði hætt að lokinni yfir-
standandi vertíð. Ennþá á eftir að
ákveða hvort undanbrögð í vísinda-
skyni — eins og það er kallað —
verði liðin eða hvort hóta verði skert-
um fiskveiðiréttindum til handa þeim
sem ekki láta segjast. Tími skutul-
báta er að minnsta kosti liðinn.
Sá sem sér hvalveiðar einungis
fyrir sér sem útrýmingariðnað þess-
arar aldar, gleymir því að veiði
sjávarrisanna er jafn gömul menn-
ingunni. Hún hélt lífi í eskimóunum
og var einnig daglegt brauð hjá Suð-
urhafseyjaskeggjum. Víkingamir,
samuraiamir, Baskar og indíánar
stunduðu einnig hvalveiðar. Kjötið,
lýsið og beinin komu í góðar þarfír.
Allt frá forsögulegum tímum hafa
hvalimir gefíð tilefni til goðsagna
og ævintýra. Steinaldarmenn allt frá
Alaska til Hvíta hafsins, frá Norður-
höfða til Eyjahafs, ristu myndir hvala
og höfrunga í stein. Meira að segja
hjá búskmönnum í Botswana má
finna hvalamyndir. Og sjávamautið
í myndletri Egypta vilja sumir
vísindamenn túlka sem búrhveli. Það
þykir nú fullsannað að frummaðurinn
sem lagði í viðureign við mammúta
og hellisbimi hafi einnig fengist við
hvali.
Líklegast fangaðist hvalur upphaf-
lega af tilviljun. Hann hefur þá rekið
á land eða orðið eftir í grunnum fló-
um við útfíri. Allt fram til ársins
1933 ólu innfseddir á Yalmal-skaga
í Síberíu hunda sína á frosnum hval-
hræjum sem geymst höfðu öldum ef
ekki árþúsundum saman langt fyrir
ofan núverandi sjávarmál.
Baskar voru fræknir
veiðimenn
Þar sem láður og lögur mætast
og klöpp og öldur eigast við, þar sem
dýrin söfnuðust saman skammt und-
an ströndu, í fæðuleit, eða til æxlunar
hlýtur veiðin að hafa byijað eins og
af sjálfu sér. Líkt og við selveiðar
voru hundar gjama notaðir til að
finna vakir sem hvalimir koma upp
um til að blása.
í Evrópu á 9. öld sköruðu Bask-
amir fram úr við hvalveiðar. Þeim
reyndist auðvelt að fanga meinlausan
og hægfara sléttbakinn. Úr háum
útsýnistumi — sem þeir kölluðu Vig-
ias — leituðu Biskaya-búar að
bráðinni.
Sæist hvalur undan landi gaf eftir-
litsmaðurinn merki með trumbu-
slætti og reykjarmekki. Veiðimenn-
imir stukku um borð í báta sína sem
ávallt voru til reiðu og fonguðu dýrið
í sameiningu. Síðan var bráðin dreg-
in á land og henni skipt meðal
veiðimannanna og Qölskyldna þeirra.
Orðið „harpúnn" yfír skutul veiði-
mannanna minnir á hvalveiðar
Baskanna því það er dregið af orðinu
„arpoi“ í basknesku sem þýðir „að
fanga lifandi". Blómaskeið bask-
nesku hvalveiðanna stóð í þtjár aldir,
milli áranna 1100 og 1400 e.K. Síðan
virðast hvalimir annað hvort hafa
hrakist á braut eða þeim verið útrýmt
af svæðinu.
Eftir að áttavitinn hafði verið
fundinn upp voru hvalimir ekki leng-
ur óhultir á hafi úti. Basknesku
veiðimennimir gátu nú róið á Ermar-
sunds- og írlandsmið. Bretónar og
Normannar bættust einnig í þeirra
hóp.
I leit sinni að hvölunum sigruðust
Baskamir á Atlantshafinu tveimur
öldum á undan Kólumbusi. Veiði-
svæði þeirra náði frá Grænlandi til
Antillaeyja, frá Labrador til Flórída.
Bretóninn Matias de Echeveste fór
á árunum 1545 til 1599 ekki sjaldn-
ar en 28 sinnum yfir Atlantshafíð.
Landi hans Sopite tók upp á því að
vinna lýsið um borð og fann því upp
„verksmiðjuskipið".
Hvar sem hvalir hafa verið nýttir
má greina þrjú þróunarstig: Nýting
hvalreka, veiði á grunnsævi skammt
undan ströndu og úthafsveiðar.
Frumstæðir þjóðflokkar stunduðu
eingöngu fyrsta og annars stigs veið-
ar en íbúar Norður-Evrópu urðu
fyrstir til að stunda veiðar á hafí úti
og þá af miklum krafti og með af-
drifaríkum afleiðingum.
Hvalrekinn var frummanninum
mikið nægtárhom. Spikið og kjötið
tryggðu afkomu ættbálksins. Að
minnsta kosti var hægt að þreyja
þorrann. En svo kom að hvalveiðar
sjómanna urðu að nokkurs konar
gullæði.
Eskimóar nýttu sér bókstaflega
alla hluta hvalsins: Bein, skíði, sinar
og trefjar voru notaðar til smíði húsa,
sleða, báta og verkfæra. Húðin og
innyflin (ef ekki var búið að éta þau)
nýttust sem klæðning og umbúðir.
Kjötið og spikið eða lýsið voru grun-
dvöllur fæðunnar og mikilvægustu
orkugjafamir.
Lampinn með hvalspiki var ekki
einungis uppspretta ljóss í snjóhúsinu
heldur einnig hitagjafi. Hinn hitaein-
ingaríki kostur hélt lífínu í fólkinu
og húsdýrum þess.
Lýsið var mikil-
vægasta afurðin
Rengið hefur ætið verið mikilvæg-
asta afurðin. Niðursneitt spikið var
soðið eða hitað með gufu. Fram til
1859 er fyrsta olíulindin var opnuð
í Pennsylvaníu var lýsið aðallega
notað á lampa. Þegar Wilhelm Nor-
mann tókst árið 1905 að breyta
ómettuðum fítusýrum í mettaðar,
varð lýsið mikilvægt hráefni við
smjörlíkisgerð.
Síðan hefur lýsið verið notað við
sápugerð og í leðurvinnslu. Fram á
okkar daga gegndi hið vaxkennda
búrhvalslýsi sérstöku hlutverki í
lyflaframleiðslu og listiðnaði.
Mönnum kann að þykja broslegt
að áður fyrr voru skíðin notuð til að
spenna út regnhlífar og krinólínur
hefðarkvenna. Verðmæti skíðisins í
heimi án gúmmís, stáls og gerviefna
sést best á verðinu i upphafí aldarinn-
ar en þá kostaði hver vætt (50 kg)
60 þúsund krónur.
Bein hvalanna voru möluð og not-
uð sem matarlím, venjulegt lím eða
jafnvel áburður. Innyflin voru mikil-
væg uppspretta ýmissa hormóna og
vítamína.
Þegar enskir og hollenskir sæfarar
á 16. öld leituðu siglingaleiðar til
Austurlanda gegnum íshafið fundu
þeir þess í stað mikla hvalastofna.
Fréttin af þessum fundi dró hval-
veiðimenn frá Hamborg, Bremen,
Lubeck og Danmörku og fleiri lönd-
um norður á bóginn. Þá var íslands-
Á myndinni sem tekin er í hvalstöðinni i Hvalfirði sést hvalurinn unninn á hefðbundinn máta
með hjálp flensihnifsins.