Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
In'i3
í i - t
i*t «of*rt ÍlnauBUllexu
«cu*
uiivi
O'i.xpuajr't Œ
l/lUt ^UááJM/Í'
v. , „U*. Ú. í»t*rt*
«, <w cis
Þrettánda líkið
Bretar hreinsaðir af ásökunum um að hafa myrt manninn sem frelsaði París
BREZKA leyniþjónustan hefur
verið hreinsuð af ásökunum um
að hafa verið völd að dauða eins
vinsælasta herforingja Frakka,
Philippe Leclerc, sem frelsaði
París 1944. Þar með hefur hul-
nnni verið svipt af svokölluðum
„leyndardómi þrettánda líksins",
sem fannst þegar flugvél hers-
höfðingjans hvarf í eyðimerkur-
stormL
Leclerc hershöfðingi beið bana
þegar flugvél hans af gerðinni B-26
brotlenti í sandbyl í Sahara-eyði-
mörkinni fyrir 40 árum. Alls fórust
12 skráðir flugliðar og farþegar.
eitt lík, sem fannst til viðbótar, olli
heilabrotum. Niðurstaða þeirra varð
sú að „þrettándi maðurinn" hefði
verið þátttakandi í brezku samsæri
um að ráða Leclerc hershöfðingja
af dögum.
Franskir stjómmálaleiðtogar
héldu því fram að starfsmenn
brezku leyniþjónustunnar hefðu
myrt Leclerc hershöfðingja vegna
þess að Bretar hefðu grunað hann
um að undirbúa baráttu fyrir því
að viðhalda frönskum yfirráðum
yfir eyðimerkursvæðum í Suður-
Líbýu, sem hann hafði tekið
herskildi í stríðinu. Bretar gerðu
einnig tilkall til þessara svæða, en
talið var hugsanlegt að málmar og
önnur verðmæti leyndust þar í
jörðu.
Nýlega hrakti einni vinsælasti
sagnfræðingur Frakka, Alain Dec-
aux, þessa samsæriskenningu og
einnig þá kenningu að franskir
kommúnistar hefðu myrt Leclerc til
að gera að engu meinta drauma
hans um að komast til áhrifa í
frönskum stjómmálum.
„A legstein „þrettánda manns-
ins“ var letrað “lautinant X“.
Enginn veit hver hann var. Decaux
kemur fram með þá skýringu að
hann hafí að öllum líkindum verið
starfsmaður frönsku leyniþjón-
ustunnar og verið f sérstökum
erindagerðum í Afríku með vitund
og vilja Leclercs. Decaux greindi
nýlega frá niðurstöðum athugana
sinna á málinu í frönskum sjón-
varpsþætti, þar sem rakinn var
merkilegur ferill Leclercs frá því
hann var höfuðsmaður þegar
Frakkland féll 1940 og þar til hann
var orðinn fimm stjömu hershöfð-
ingi í stríðslok.
Löngf sigurg-ang-a
Leclerc var af gamalli ætt kaþól-
skra og íhaldssamra aðslsmanna
og hermanna sem fyrirlitu Þjóð-
veija. Hann var greifí að nafnbót
og hét réttu nafni Philippe Franco-
is Marie Leclerc de Hautecloque,
en tók sér nafnið Jacques Philippe
Leclerc þegar hann gekk í lið með
hreyfingu „Fijálsra Frakka" Char-
les de Gaulles hershöfðingja í
L3ndúnum 1940. Dulnefnið bjarg-
aði konu hans og sex bömum frá
hefndum nazista.
Hann var fæddur 22.nóvember
1902 á stóru sveitasetri í Picardy
í Norður- Frakklandi. Faðir hans
sendi hann í svartmunkaskóla í
París, sem faðir de Gaulles veitti
forstöðu, og að loknu námi í her-
skólanum í St.Cyr gekk hann í
riddaraliðið, sem ætt hans hafði í
hávegum.
Þegar hmn Frakklands blasti við
í júní 1940 fékk Leclerc höfuðsmað-
ur leyfi til að hverfa af vígvellinum
og rejma að flýja land. Þjóðveijar
höfðu tvfvegis hendur í hári hans,
en hann slapp í bæði skiptin og kom
fjölskyldunni fyrir á ömggum stað
á vínekmnum nálægt Bordeaux.
Þaðan hjólaði hann til Spánar 3.júlí
og flaug síðan til Lundúna til að
ganga í lið með de Gaulle.
De Gaulle fékk mikið traust á
Leclerc, sem var frá svipuðum slóð-
um og hann, og uppmni þeirra var
svipaður. Leclerc var þannig lýst
að hann væri hugrakkur og skeytti
engu um hættur, stoltur en ekki
hrokafullur, tilfinningaríkur en ekki
einstrengingslegur, og miskunnar-
laus. Seinna kölluðu bandarískir
herforingjar hann „ljónið óþolin-
móða.“
De Gaulle ákvað að senda Lecl-
erc til Nígeríu til að treysta yfirráð
Frjálsra Frakka yfir nýlendunum í
Mið- og Vestur-Afríku, sem flestar
létu í ljós andúð á þýzkvinveittri
stjóm Philippe Pétains marskálks í
Vichy. Leclerc kom sér fyrir í Ka-
merún og síðdegis 25.ágúst 1940