Morgunblaðið - 20.09.1987, Qupperneq 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
Texti og myndir: SIGRIÐUR HEIÐA BRAGADOTTIR
Adelaide er höfuðborg Suður-Ástralíu og
á borgin ekki langa sögu því hún var skipu-
lögð árið 1837 af William Light hersöfð-
ingja og sama ár settust fyrstu íbúanir
að. I dag býr 1 milljón manns í Adelaide
og borgin ber þennan fjölda vel því hún
nær yfir alveg ótrúlega stórt svæði og
stórir garðar skipta henni í borgarhluta.
Þessir garðar eru sannkölluð útivistar
paradís fyrir alla fjölskylduna og íþrótta-
menn. Þar sem krikket er ein af þjóðarí-
þróttum Ástrala ber mest á krikketvöllun-
um enda eru þeir um 47 og þegar
landsleikir eru mæta þeir áhugasömustu
klukkan 7 um morguninn til að fá bestu
sætin og svo er setið allan daginn því
þessir leikir eru yfirleitt frá 9—6 og með
þessu öllu saman er drukkið alveg ótrú-
legt magn af bjór.
Ein af mörgum kirkjum Adelaide.
Adelaide er þekkt
fyrir að hafa
flestar kirkjur
og veitingahús
miðað við íbúa-
fjölda enda sér
maður mikið af
fólki sem þjáist
af offítu. Borgin er líka þekkt fyrir
annað, en sú frægð er ekki til sóma.
Adelaide hefur eitt versta vatn í
heiminum og er önnur tveggja
borga þar sem skip taka ekki vatn.
Það er sagt að drekka eitt vatns-
glas sé eins og að borða heila
máltíð enda sé það „fullt af næring-
arefnum" og það er svo gult að
allan hvítan þvott verður að klóra
rækilega. Suður-Ástralía hefur ver-
ið nefnd „Festival State“ enda er
alltaf eitthvað að gerast og hæst
ber listahá- tíðin sem haldin er
annað hvert ár og koma þar heims-
frægir listamenn og skemmta. í
nóvember hvert ár er haldinn Austr-
alian Grand Prix Formuala One
kappakstur og fyllist borgin af
kappaksturshetjum og fylgifískum
þeirra. Kappaksturinn er haldinn
um götur borgarinnar og færustu
kappakstursmenn í heiminum koma
og keppa.
Eins dauði er annars brauð á vel
við aukna um eftirspum í Evrópu
eftir áströlskum vínum. Árlega
framleiða Ástralir um 10 milljónir
lítra af víni og voru byrjaðir að
skapa sér nafn í Evropu vegna
bættra gæða, en eftir kjamorku-
slysið í Chemobyl hafa þeir varla
undan að sinna eftirspum.
Það fyrsta sem ferðamenn taka
eftir er þeir koma til Adelaide er
hve vinalegt fólkið er og laust við
allt stress sem einkennir flestar
stórborgir, enda minnir Adelaide
mann frekar á stórt sveitaþorp en
stórborg. Það er skrýtið fyrir Is-
lendinga sem eru vanir að troða sér
inn í strætisvagnana að sjá alla
standa rólega í löngum röðum á
strætisvagnastöðvum og allt geng-
ur snurðulaust fyrir sig. Næturlífíð
er frekar dauflegt og lítið um
Indah og fóstra hennar og í
baksýn má sjá hinn feimna föð-
ur.
flóða og fólk lokast inni í úthverfum
og kemst ekki til vinnu. Það er ein
starfsstétt sem hefur átt virkilega
erfítt síðustu mánuði en það eru
bankamenn. Ástæðan eru tíð
bankarán og það liggur við að þau
séu vikulegur viðburður og eins og
gefur að skilja hafa bankamir orðið
að endurskoða öryggisreglur sínar.
Að vissu leyti endurspeglar þetta
ástandið í atvinnumálum og þá
staðreynd að ungt fólk á mjög erf-
itt að fá vinnu við sitt hæfí. Stjórn-
völd hafa verið með áróður í gangi
til að hvetja ungt fólk að vera leng-
ur í skólum því það auki líkurnar
á góðri vinnu. Því hefur það farið
fyrir bijóstið á mörgum það gífur-
lega fjármagn sem ástralska ríkið
Litla íslendingafélagið. Aftari röð: Dagbjört Ingólfsdóttir, Bima
Jóna Jóhannsdóttir, Ragnheiður Harðardóttir, Albert Jónsson, Ágúst
Jörgensson, Malcom. Fremri röð: Sigríður Heiða Bragadóttir, Hörð-
ur Jónsson, Drífa Harðardóttir, Ragnheiður Hjáimarsdóttir og Stella
Guðmundsdóttir.
skemmtistaði miðað við íbúafjölda
enda fer fólk frekar út að borða
eða skellir sér í spilavítið og gerir
hvom tveggja. Ástralir em mikið
fyrir veðmál sem sést best á því að
í hverri stórborg em risastór
spilavíti og í Adelaide er almennur
frídagur er hestaveðhlap borgarinn-
ar fer fram. Adelaide-búar hafa líka
sitt Hallærisplan þar sem unglingar
hópast saman um helgar og hrella
verslunar- og veitingahúsaeigendur
sem hafa krafíst þess að lögreglan
geri eitthvað í máiinu því þeir tapi
viðskiptum þar sem hinn almenni
borgari hugsi sig tvisvar um áður
en hann versli við þá. Ástralskir
unglingar myndu taka opnum örm-
um þeirri aðstöðu sem íslenskir
jafnaldrar búa við enda em félag-
smiðstöðvar lítt þekkt fyrirbæri á
þessum slóðum.
Þessa stundina er vetur í Ástr-
alíu og veturinn í Suður-Ástralíu
líkist helst íslensku sumri og er því
skrýtið að sjá laufin falla af tijánum
í 15°C hita. Á vetuma verður gras-
ið grænt því þá rignir ansi mikið
en á sumrin er grasið brúnt, enda
fellur varla dropi úr lofti á þeim
árstíma. Það getur rignt svo mikið
að hús og innbú eyðileggjast vegna