Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 23

Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 B 23 Evans (í forgrunni) kemur í mark á heimsmeti í 400 m hlaupinu. hvítra við að við myndum snið- ganga leikana voru áhrif sem við áttum þó að nota. Á fundi í júni ákváðum við að hlaupa, en e.t.v. vera með svört armbönd eða eitt- hvað slíkt. Síðan, tveim vikum fyrir leikana, urðum við fyrir árás Avery Brundage (þáverandi forseta Al- þjóðaólympíunefndarinnar). Hann sagði okkur heppna að vera í Ameríku, heppna að vera leyft að vera í liðinu." Þetta, ásamt ákefð Brundage að heimila Suður-Afríku þátttöku í leik- unum að nýju eftir bannið 1964 vegna apartheid-stefnunnar, þótti mikil ögrun. „Ef hann hefði ekki komið þannig fram,“ segir Evans, „held ég að ekkert hefði gerst.“ Umræðan meðal svörtu Ólympíu- keppendanna náði hámarki á fundi í Denver áður en liðið hólt til Mex- íkó. „Þetta hafði haft þau áhrif að herða okkur hvern og einn,“ segir James. „Við ætluðum okkur að hlaupa." „Og við ætluðum að vinna," segir Evans vinnur nú að þjálfun frjálsfþróttamanna í Kamerún. Hér er hann á æfingu með þarlendum. hættu. Carl Lewis byrjaði að nálg- ast metið 1982 og hans besta stökk er nú 8,75. í maí sl., á móti í Takhkadzor í Sovétríkjunum, var hinn 22 ára Sovétmaður, Robert Emmiyan, annar að stökkva yfir 8,65 metra markið. Tom Tellez, þjálfara Carl Lewis, kemur þetta ekki á óvart. „I lang- stökki er allt mögulegt. Miðað við hraða og styrk íþróttamanna í dag er hægt að ímynda sér vel yfir 9 metra stökk. Lykillinn er rétt tíma- setning og samhæfing. Slíkt getur gerst einu sinni, eða verið full- komnuð, eins og Lewis er að gera.“ Tellez og Lewis hafa trú á því að Emmiyan hafi verið ótrúlega hepp- inn og ekki líklegur til að bæta heimsmetið. „En í mikilli hæð yfir sjávarmáli (eins og var þar sem Emmiyan stökk), með réttu stökki, er allt mögulegt," segir Tellez. Lewis sjálfur hefur sýnt að svo sé. Á móti i Indianapolis árið 1982 var eitt stökk hans dæmt ógilt af dómara, sem sagði tá Lewis hafa sýnst fara yfir plankann, þó svo engin merki sæust á jarðveginum handan hans. En ólíkt stökki Beam- ons, var stökk Lewis dæmt ógilt. Réttilega hefði stökk Lewis átt að vera gilt, eða a.m.k. mælt, en hann mótmælti ekki og sandurinn var sléttur út á ný. Einn keppenda sagði eftir á að stökkið hefði verið vel yfir 9 metra. Enn hefur enginn komist nálægt því að hnekkja meti Evans. Tímar síðustu Ólympíumeistara hafa ver- ið langt yfir 44 sekúndum. í maí sl. hljóp Harry Reynolds frá Ohio State-háskólanum mjög óvænt á 44,10 í Columbus, Ohio. Fimm vik- um seinna hljóp hann á 44,13. Þetta eru tveir bestu tímarnir sem náðst hafa í lítilli hæð yfir sjávar- máli. Já, hæð yfir sjávarmáli; það er heila málið. Þegar maður leiðir hugann að því af hverju met Beamons og Evans hafa staðið svo lengi, kemur maður alltaf að einum mikilvægum þætti. Loftið í Mexíkóborg (2.000 m yfir sjávarmáli) er aðeins 76% að þéttleika miðað við sjávarmál. Mótstaðan verður þvi minni fyrir hlaupara og langstökkvara, þó að þunna loftiö sé vissulega vafasam- ur ávinningur fyrir 400 metra hlaupara., lut0fJ ðiiev rnea anomef „Á meðan á hlaupinu stóð var ein- kennilega létt yfir manni," segir Evans. „Maður var fljótur af stað, eins og neistar væru undir fótun- um. En lungum brunnu að innan, og það tók miklu lengri tíma að jafna sig. í fyrsta sinn sem ég hljóp í mikilli hæð fékk ég svo heiftarlega dauðastirðnun að ég átti í fullu fangi með að halda mér á minni braut." Dauðastirðnun (rigor mortis) er vel þekkt fyrirbæri hjá 400 metra hlaupurum. Þegar súrefnisskortur gerir vart við sig getur dauðastirðn- unin virkað sem ísskápur eða konsertflygill á herðum hlaupara í síðari beygjunni. 400 metra hlaup- arar berjast síðan síðustu metrana með, að því virðist, hin ýmsu dýr á herðunum, s.s. birni, flóðhesta eða fíla. Besta ágiskun vísindanna er að hæð Mexíkóborgar yfir sjávarmáli gefi mönnum einungis innan við 1% ábót á hraöa. „íþróttasálfræð- ingar segja u.þ.b. þrjá tíundu úr sekúndu í 400 metrunum," segir Evans. „Ég er sammála að þetta sé allt og sumt.“ Þar af leiðandi ætti tími Reynolds, 44,10 að vera betri en met Evans í þunnu lofts- lagi. „En hefði hann verið þarna, hefði ég gefið í,“ fullyrðir Evans glaðlyndur. „Ég hljóp alltaf í sam- ræmi við samkeppnina." Samherjar Evans í bandaríska Ólympíuliðinu taka í sama streng. „Evans hafði ótrúlega líkamsburði og keppnisskap," sagði Tommie Smith, Ólympíumeistarinn í 200 metra hlaupinu í Mexíkó. Smith, sem nú er íþróttakennari við há- skólann í Santa Monica, heldur því fram, ásamt öðrum meðlimum ’68-liðsins, aö það hafi verið mun meira að baki metrunum í Mexi- kóborg en þunna loftið. „Það voru hörku- íþróttamenn sem settu þau," segir Smith. „Ég hafði Evans alltaf í hávegum," segir Larry James. „Hann hafði mesta sigurviljann. Ég setti mér alltaf timamörk. Allt árið bjó ég líkama og sál undir að hlaupa á 43,9 í úrslitunum á Ólympíuleikun- um. Evans setti huganum aðeins mörk, hafði óbilandi keppnisskap. Ég hljóp mínar 43,9. Svo hann hljóp þá bara á 43,8.“ Ólympíulandsliðið 1SI63, fákk það 'ft*í Beamon starfar nú meðal annars sem stjórnandi hjá tómstundanefnd bæjarfólags eins f Flórída. Hér leiðbeinir hann ungum langstökkvurum. sem ekkert annað bandarískt lið hefur fengið fyrr eða síðar, sex vik- ur i æfingabúðum fyrir úrtökumótið í mikilli hæð yfir sjávarmáli. Æfinga- búðirnar og úrtökumótið voru í Sierra-fjöllunum í Kaliforníu. Allir 400 metra hlaupararnir, and- stæðingar í úrtökumótinu og á leikunum sjálfum, sýndu einmuna samheldni. „Við skiptumst á upp- lýsingum á æfingum," segir Ron Freeman. „Við æfðum mjög stíft. Við laumuðumst út í dögun og æfðum á laun, en það var ekki vegna einhverra væntanlegra sjón- varpssamninga eða starfsframa. Aðalatriðið var að gera sitt besta." Þeir erfiðleikar sem voru því sam- fara að hlaupa 400 metra hlaup í svo mikilli hæð, gerðu það að verk- um að þeir gátu ekki verið stórorðir fyrir leikana. Alltaf var hætta á að dauðastirðnunin myndi endur- gjalda þeim. „Það þýddi ekkert að vera að monta sig og keyra fyrstu 300 metrana á fullu. Þá var alltaf hætta á að maður yrði að borga brúsann á síðustu 100 metrunum," segir Evans. En það sem sameinaði þá þó mest var að þeir voru svartir, banda- rískir íþróttamenn árið 1968. Siðferðisbarátta þessarar kynslóð- ar fyrir lýðréttindum og baráttan gegn Víetnam-stríðinu var í há- marki. Martin Luther King hafði verið myrtur í apríl, og Robert Kennedy í júní. Um haustiö 1967, í San Jose- háskólanum, þar sem Evans, Smith, John Carlos, 200 metra hlaupari, og boðhlaupsmaðurinn Ronnie Ray Smith sóttu skóla, voru haldnir fundir undir forystu félags- fræðiprófessorsins Harry Edwards til að ræða húsnæðismisrétti gegn svörtum iþróttamönnum. Þar komu fram kröfur um að nota frammi- stöðu svartra í íþróttum til að þerskjalda kynþáttamisrótti og krefjast úrbóta. „Ef þeir leigja okk- ur ekki," sagði Edwards, „af hverju ættum við þá að hlaupa fyrir þá?“ Niðurstöður þessarar umræðu urðu þær að sniðganga skyldi Ólympíuleikana. Hreyfing þessi var kölluð „Ólympíuverkefni fyrir mannréttindi". „Mér fannst alltaf að við myndum Tommie Smith. „Og þá kannski láta vita af okkur og gera það sem við vildum, en vera öruggir um að geta útskýrt það fyrir fréttamönn- um.“ Ólympíuliðið setti fleiri heimsmet en nokkurt annað bandarískt lið síðan 1932. „Ég tengdi sigur á leik- unum öðrum hlutum sem mér voru mikilvægir," segir Evans nú. „Stolt okkar svartra og málstaður félags- legs réttlætis var okkur öllum mikilvægur. Við stóðum betur að vígi en krakkar í dag. Þeir hafa ekki þetta pólitíska afl sem þrýstir á þá.“ Þegar Smith vann 200 metrana á nýju heimsmeti, 19,83 sekúndum (sem hefði orðið 19,70 hefði hann ekki lyft höndunum til sigurs sex metrum frá endamarki) og Carlos varð þriðji, fóru þeir á verðlauna- pallinn í svörtum sokkum. Þegar þjóðsöngurinn var leikinn, hneigðu þeir höfuð sín og teygðu hnefana, klædda svörtum hönskum, til lofts. Sokkarnir táknuðu fátækt svartra, sagði Smith blaðamönnum eftir á, og hnefarnir afl svartra og einingu. „Þetta var ekki merki haturs,” sagði Smith þá, og í dag segir hann: „Þetta var merki um von- brigði. Ég elskaði land mitt. Ég vildi að það yrði betra." Áður en dagur leið höfðu Smith og Carlos verið reknir úr Ólympíu- þorpinu. Spurningin var einungis hvort einhver annar myndi leika þetta eftir. „Eftir merki Johns og Tommies," segir Evans, „ákvað ég að hlaupa ekki. Hvernig gat ég það? Ég var vinur þeirra. Við vorum saman í skóla. Allir myndu halda að ég væri svikari við samfélag svartra.” Hann fékk heimsókn frá þjálfara sínum, Winter, sem var sérfræð- ingur í slökunaraðferðum. Winter sagði honum aldrei hvað ætti að gera: fékk hann aðeins til að sofna. Þegar Evans vaknaði, var Carlos staddur þar. „Heyrðu, Lee,“ sagði hann reiður. „Ég heyrði að þú ætl- aðir ekki að hlaupa. Þú hleypur og þú vinnur.” Smith vildi líka að hann hlypi. „Og ég hugsa að hann hafi notað alla þessa orku í síðari beygjuna," seg ir Smith. „Hann brenndi upp alla hræðslu og áhyggjur í hlaupinu. I QO nQtaoa íIqIbh po„ íusfd .\ Evans setti met sem staðið hefur 19 ár. Það sem 400 metra hlaup- ararnir gerðu í Mexíkó var einfald- lega að klæðast svörtum sokkum og alpahúfum, sem þeir síðan tóku niður þegar þjóðsöngurinn var leik- inn. Þeir gengu að verðlaunapallin- um og vissu um morðhótanir í sinn garð. „Við ákváðum a brosa breitt og sýna hlýju þarna á pallinum," segir Evans. „Það er erfiðara að skjóta náunga sem brosir." Það voru ekki margir sem brostu þegar heimsmethafarnir komu heim frá Mexíkóborg. Eins og Evans hafði óttast, var hann gerður útlægur úrfylkingum hinna rótta?k- ari afla svertingja í San Franciscó- borg, þar sem þráin um táknrænar aðgerðir var óseðjandi. Hann hélt áfram að hlaupa og komst í 4x400 metra boðhlaupssveit Banda- ríkjanna á Ólympíuleikunum 1972, en samt fékk hann ekki að keppa. Samherjarnir Matthews og Collett, sem urðu númer eitt og tvö í 400 metra hlaupinu í Munchen (1972), var vísað heim fyrir að tala saman á verðlaunapallinum meðan þjóð- söngurinn var leikinn, og John Smith var meiddur, þannig að Bandaríkin gátu ekki sent lið í 4x400 metra boðhlaupið. Árið 1975 var svo Evans farinn að þjálfa í Nígeríu. „Ég var miður mín yfir frammistöðu afrísku sprett- hlauparanna sem duttu strax út i undanrásunum í Mexíkó,” segir hann. „Við vorum með læti til að undirstrika samheldni svartra, og hérna voru þessir náungar, svart- ari en við, langt á eftir okkur vegna lélegrar tækni.“ Svo Evans reyndi að bæta úr þvi. Hann þjálfar nú í Kamerún og er eini Fulbright-styrkþeginn sem vinnur að íþróttum. Á síðustu 10 árum hefur hann þjálfað og seht um 50 vestur-afríska spretthlaup- ara til háskóla í Bandaríkjunum, þar á meðal Innocent Egbunike (Azusa Pacific-háskólanum, 400 m) og Chidi Imoh (Missouri-háskóla, 100 m), en þeir voru báðir taldir næst bestir í heiminum í sínum greinum árið 1986. Árið eftir Mexíkóleikana ríkti ringul- reið í lifi Beamons. Hann var í hávegum hafður í Evrópu, þar sem hann ritaði einfaldlega „8,90“ sem eiginhandaráritun, en tilraunir hans til lýsinga á íþróttamótum í sjón- varpi runnu út í sandinn, þar sem hann er orðspar og alvarlegur í bragði opinberlega. Hann útskrifaðist frá Adelphi- háskólanum árið 1972 og stundaði mastersnám í San Diego State- háskólanum. Frá 1982 hefur hann verið stjórnandi hjá tómstunda- nefnd bæjarfélags eins í Flórída. Hann vinnur einnig með fötluðu íþróttafólki og með samtökum sem berjast gegn fátækt. Hvað varðar opinbera umræðu, hefur Beamon hagnast meira af tilraunum Carls Lewis við að slá met hans en hann gerði þegar hann setti metið sjálf- ur. Með hverju ári sem líður verða met Beamons og Evans enn áhrifameiri minningar um umbrotatíma á Vest- urlöndum. Frammistaða Beamons virtist jafnvel vera í andstöðu við eðlisfræðileg lögmál. Allir þessir stóru, svörtu, hreyknu náungar virtust geta bætt heimsmet að vild. Eðlilegustu viðbrögðin voru ein- faldlega aðdáun. En það hrikti í stoðum bandarísks þjóðfélags vegna breytinga á hugsun og hegð- un, og því var fólk lítið gefið fyrir að dást að þessum blökkumönn- um. Aðdáun er ekki hugarástand sem Bandaríkjamönnum líkar að láta vará hvort sem er. Og svo aflmiklir voru upphafðir hnefar Smiths og Carlos, að þjóð þeirra túlkaði þessa aðdáun sem ótta og forsmán. Þennan stimpil fengu allir svörtu meistararnir frá Mexíkó á sig, einnig Evans og Beamon. „Það er eins og Ólympíuleikarnir frá '68 hafi verið þurrkaðir út úr sögubókunum," segir James. „Þeir eru til í hugum manna, en ekki í rituðu máli." Þetta er athyglisverður hlutur: Þessir menn voru risar á jörðu. Verður það ekki fyrr en að þessi ótrúlegu met verða slegin að við munum loks kunna að meta þau? GUNNAR VALGEIRSSON ÞÝDDI OG ENDURSAGÐI H9 ,n6rnöeil iósaourl “,ídö!dÖÍ!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.