Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 30
30 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 Tónleikar og enn tónleikar Ljósmynd/BS Bjöm Baldvlnsson, góöur söngv- ari Bleiku bastanna. Síöastliöiö fimmtudagskvöld var boöið upp á tvenna tónleika í Reykjavík. í Abracadabra var söngvarinn snjalli David Thomas og á Hótel Borg láku sveitirnar Sogblettir, Bleiku bastarnir og Hyskið. David Thomas sýndi á sér allar sínar bestu hliðar framanaf í Abracadabra, en þegar á leið mátti sjá að fylleríslæti landans voru far- in að fara í taugarnar á honum og urðu því tónleikarnir því styttri en annars hefði mátt vænta. Læt ég lesendum eftir að dæma þá sem keyptu sig inn til þess eins að spilla ánægju þeirra sem komu til að hlusta. David byrjaði kannski að syngja lag, á sinn sérstaka hátt, en í sömu andrá var hann farinn að segja furðusögu sem samantvinnuð var úr frumspekilegum vangaveltum og meinfyndnum athugasemdum um lífið og tilveruna. Einna best tókst honum upp þegar hann sneiddi að þeim áheyrendum sem voru að spilla dagskránni með því að benda þeim á að þeir væru eins og áhorfendur að ítalskri kvikmynd sem ekkert skildu en færu ekki út samt af ótta við að verða álitnir heimskir. Á Borginni léku þrjár sveitir eins og áður sagði, Sogblettir, Bleiku bastarnir og Hyskið. . Sogblettir voru fyrstir þetta kvöld og hafa ekki verið betri í aðra tíð. Efnisskrá sveitarinnar er orðin löng og hvergi veikur punkt- ur. Einna mesta hrifningu vakti þegar Sogblettir tóku gamla sveitaslagarann Anarchy in the U.K. á hálfum hraða til að byrja með. Þeir skiptu síðan í fulla keyrslu og enduðu lagið með lát- um. Bleiku bastarnir hafa verið iðnir við kolann undanfarið og verða alltaf betri með hverjum tónleikum. Þeir gerðu enda allt vitlaust þetta kvöldið með góðri keyrslu og féll rockabilly/pönk/blús blandan sem þeir leika vel í kramið. Ekki skemmdi síðan lífleg framkoma söngvara sveitarinnar sem bætti nokkuð það hve aðrir bastar eru stirðir á sviðinu. Þeir lentu í nokkr- um vandræðum þegar þeir voru klappaðir upp; búnir að leika öll lög sem þeir áttu æfð. Ekki létu áheyr- endu það á sig fá og heimtuðu bara efnisskrána aftur. Hyskið var síðasta hljómsveit kvöldsins, en sveitin leikur nokkuð léttari tónlist en þær tvær sem á undan voru. Gaman var að heyra að einhver man eftir Doors. Síðasta fimmtudagskvöld léku síðan Bieiku bastarnir með Sykur- molunum og „thrash" pönksveit- inni Bootlegs fyrir fullu húsi í Casablanca. Þeir hyggjast nú taka sér hvíld til að bæta lögum á dag- skrána, en þeir munu leika með hafnfirsku sveitinni E-X í Casa- blanca 2. október til að hita upp fyrir bandarísku rokksveitina T.S.O.L. Sogblettir Ljó.mynd/BS Morgunblaðið/Sverrir David Thomas Hyskiö Ljósmynd/BS Listin er barátta Rætt við Hörð Torfason Ljósmynd/BS Hörður Torfason hefur lengi veriö einskonar „enfant terrible" í íslenska tónlistar- heiminum. Bæði er aö hann hefur gagnrýnt óvægilega í textum það sem honum hefur fundist miður fara í eigin fari og annarra og svo hitt að hann hefur ekki lagað sig að því markaðskerfi tónlistar sem gengur út á að steypa allt i sama mót. 1984 gaf Hörður út rokkplötuna Tabú, en í ár er hann á ferðinni með plötuna Hugflæði sem hljóm- plötuútgáfan Steinar gefur út, Nú er það ekki svo að Hörð- ur hafi ekki gefið út plötu áður, þetta verður fimmta plata hans. Þessi plata er þó frá- brugðin öðrum plötum Harðar að því leyti að hann gerir plöt- una í samvinnu við aðra. Hörður semur lög og texta eft- ir sem áður, en síðan hefur hann fengið til liðs við sig upp- tökustjórann P.H. Juul, einn fremsta upptökustjóra Dana í gegn um tíðina. Því til viðbótar er síðan bassaleikarinn Jörgen Johnbeck, sem leikur á bassa í öllum lögum og sér þar að auki um útsetningaraukahljóð- færa. Aukahljóðfæri hafa lítið verið til staðar á plötum Harð- ar til þessa og liggur því beinast að spyrja hann að því hvort hann sé að breyta til tónlistarlega, hvort platan sem væntanleg sé eitthvað annað er trúbadúrplata. Víst er hún trúbadúrplata, enda hef ég alltaf verið á þeirri línu. Þetta er trúbadúrplata með tólf sögum, tólf sögum um gleði. Að vísu var Tabú rokkplata, söngleikur sem ger- ist á diskóteki, en hún var einskonar hliðarspor, á henni var efni sem ég varð að losa mig við, efni sem lá mér á hjarta. Það átti síðan best heima sem rokk. Nú fékkst þú á þig nokkuð neikvæða gagnrýni vegna Tabú. Ég er alltaf ánægður með að fá gagnrýni og ég er sátt- ari við neikvæða gagnrýni en það þegar ég er að segja eitt- hvað og fólk tekur ekki eftir því. Það er alltaf gott að fá gagnrýni, það er nauðsynlegt að fá svörun, nauðsynlegt að vita hvar maður stendur. Enda er ég alltaf að leita eftir svörun. Nú þegar Hugflæði er vænt- anleg á markaðinn er ég einmitt spenntur fyrir viðtök- um, enda er þetta efni sem ég hef verið 7 mánuði að taka upp orðið svo snar þáttur af mér að ég á erfitt með að taka til þess gagnrýna afstöðu. Þó veit ég það að það er það besta sem ég hef gert hingað til, en það er ekki nóg, ég verð að fá svörun. Hvað með innihald texta? Er það í átt við Tabú? A Tabú var nóttin, ruglið, dópið og brennivínið, enda gerist hún á diskóteki eins og áður sagði. Hugflæði er dagur, birta, gleði, kæti. Hugflæði mitt er hugflæði þitt, hlustaðu grannt á texta og tóna og upp- lifðu þitt andlega leikhús þar sem þú sviðsetur áhrifin sem eru einlæg og sönn. Ég er ekki ádeiluskáld, en vissulega verða textarnir oft ádeila. Listin er barátta, og mín list er barátta mín við að þora að segja það sem mér býr í brjósti. Málið snýst um það að þora að horfa í augu við sjálfan sig. Það er ekki nóg að horfa bara á aðra og segja þú ert svona og svona, heldur verður maður að geta sagt ég er svona líka. Maður verður að vera opinn fyrir eigin kost- um og göllum til þess að geta gert sér grein fyrir hvað og hvar betur má fara. Hvað með Hörð Torfason í dag samanborið við þann Hörð sem var? Það hefur heilmikið breyst, hvernig má annað vera. Ég hef elst og þroskast sem listamað- ur, gert mörg mistök og lært mikið af þeim. Nú er það aftur á móti í fyrsta sinn sem ég mæti skilningi sem tónlistar- maður á við þann skilning sem ég hef mætt hjá Juul. Juul þekk- ir sögu mína, hann þekkir fjöll og dali í minni tilveru og hann hefur beitt mig listrænu að- haldi og gagnrýni. Hann segir mér afdráttarlaust ef honum finnst eitthvað gott eða slæmt og yfirleitt erum við sammála. Þegar svo er ekki, þá rökstyður hann mál sitt og oftar en ekki fellst ég á það sem hann hefur fram að færa. Mér finnst það hafa skipt sköpum fyrir mig að hafa fengið að vinna með slíkum atvinnumönnum sem Juul og Johnbeck eru. Það hef- ur verið mikil skólun fyrir mig. Hefur þú eitthvað fylgst með því sem er að gerast í íslenskum tónlistarheimi? Nei, ekkert. Ég get ekki fylgst með tónlist nema þeirri sem ég er að semja sjálfur. Það er enga tónlist að finna á mínu heimili aðra en þá sem ég er að vinna að sjálfur og fólki finnst það oft undarlegt. Aftur á móti er þar mikið af bókum því ég hef mikið gaman af bókum, af orðum. Ertu farinn að hugsa að næstu plötu? Ég byrjaði á næstu plötu um leið og þessi var búin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.