Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 B 31 Ameríski draumurinn Plata frá banda- HHHPBI rísku sveitinni REM Mr3M er yfirleitt alltaf við- I burður, þó síðasta | plata hefði aðeins 1 verið ætluð til að slá 1 aðeins á eftirvænt- I inguna eftir nýrri 1 hljóðversplötu. Þarsíðasta plata S sveitarinnar, Life's I Rich Paegeant, var | tónlistarlegur við- | burður og sama má | segja um nýjustu HH plötu REM, plötuna II Document. Ekki er I hún samt jafn heil- HH steypt og Life's Rich Paegeant, enda virðist sem þeim REM- mönnum liggi meira á hjarta og leggi því meiar á sig við að koma því á framfæri. Gítarleikur Peter Buck er framar í hljóðblöndun- inni en oftast áður og það gefur tónlistinni harðari blæ. Textar REM verða seint taldir auðskildir og ekki breytir þessi plata þar miklu um. Gott dæmi eru textar eins og við lagið Ligh- tnin’ Hopkins, sem ekki er þó hægt að heyra að fjalli um blús- manninn Lightnin' Hopkins. Textinn við Exhuming McCarthy er þó aðgengilegri og þær líking- ar sem þar eru notaðar eru ekki eins langsóttar og víðast ann- arsstaðar. Önnur lög sem áhugaverð eru á plötunni eru Strange og It’s the End of the World as We Know it (and I Feel Fine) sem er einkar skemmtilegt heimsendalag. Reyndar gætu menn haldið þá fyrst þeir heyra lagið að það sé ósköp venjulegt u2popp, en textinn lyftir laginu úr þeirri lág- kúru. Þeir félagar í REM hafa sagt í um þessa plötu í viðtölum að á plötunni séu þeir að segja sína skoðun á ameríska drauminum, sem sé reyndar orðinn að mar- tröð að þeirra mati. Hvað um það þé er þessi plata enn ein sönnun þess að REM er ein besta sveit rokksins í dag (og hefur verið lengi). tillslands Ekki er hægt að reikna með TSOL (True Sounds of Liberty) því að bandaríska rokksveitin sé mikið þekkt hér á landi. Það á þó sjálfsagt eftir að breytast enda er sveitin væntanleg hingað til lands og heldur hér tvenna tónleika, 2. og 3. október nk. TSOL var stofnuð af Ron Emory gítarleikara, Jack De Lauge söngv- ara, Greg Huehn hljómborðsleik- ara og Mike Roche bassaleikara seinni hluta árs 1979, og fyrsta plata sveitarinnar, T.S.O.L., kom út 1980. Tónlistin í upphafi var hröð pönktónlist eins og hjá flest- um þeirra sveita sem stigu sín fyrstu skref í rokkinu á þeim árum. A næstu plötum sveitarinnar, Dance With Me, Weathered Statu- es og Beneath the Shadows, mátti heyra að sveitarmenn voru ekki alskostar ánægðir með takmarkað svigrúm innan pönksins og því ákváðu þeir að breyta til tónlistar- lega. Breytt tónlistarstefna kallaði á breytta mannaskipan og þeir Jack De Lauge og Greg Huehn sögðu skilið við hljómsveitina. í þeirra stað komu Mitch Dean trommuleikari og Joe Wood söngv- ari. Dean og Wood komu með ýmsar hugmyndir með sér og tón- listin tók að færast úr pönkinu í einfalt rokk með eilitlum blúsáhrif- um. Fyrsta plata sveitarinnar eftir mannabreytingarnar, Change Today, sýndi að það var margt að breytast og plata sveitarinnar Re- venge, sem út kom á síðasta ári sýndi líka fram á breyttar áherslur. Tónlistin var tilgerðarlaust rokk með beinskeyttum textum og gagnrýnendur lýstu flestir hrifn- ingu sinni. Söngvarinn Joe Wood þótti minna ótæpilega á Jim Morri- son og því var haldið fram að væru Doors starfandi í dag, þá léku þeir eins tónlist og TSOL. Á Hit and Run, nýjustu og jafn- framt bestu plötu sveitarinnar, er rokkið á sínum stað, en við hefur bæst einn blús, Good Morning Blues eftir Huddy Leadbetter (Le- adbelly). Útsetningin á blúsnum er vel rokkuð og fellur vel saman við aðra tónlist á plötunni. Terence Trent D’arby Stay og Wishing Well sem náð hafa hátt á vinsældalistum í Bret- landi sem og á íslandi. Þó margir hafi líkt Terence við Prince þá er ekki hægt að segja að tóniist þeirra svipi svo mjög saman. Tónlist Terence er mun nær soul tónlist sjötta áratugarins en tónlist Prince. Textarnir eru einnig persónulegri og í þeim er aö finna meiri bjartsýni en í textum Prince. Erfitt er að segja hve Terence á eftir að ná langt í Bandaríkjunum, en plata hans var nýlega gefin út vestan hafs. Það er meira spunnið í Terence en í flesta þá sem top- plögin flytja þessa dagana a.m.k. og kannski fellur bandarískum áheyrendum þaö í geö. Ámi Matthíasson Það vakti mikla athygli þegar fyrsta plata bandarfska tónlistar- mannsins Terence Trent D’arby skaust beint f efsta sæti breska vinsældalistans þegar og hún var gefin út, enda hafði nafn Terence ekki verið svo mjög í hámæli fram að því. Terence fæddist í New Vork 1962, kominn af gospel- söngfólki og prestum. Hann hefur víða kom- ið við um ævina, meðal annars verið hnefaleikameistari og numið fjölmiðlafræði. Síðust fimm ár eða svo hefur Terence dvalið í Evrópu og hann hefur gert London að heimaborg sinni hvað sem síðar verður. Fyrsta plata Terence ber heitið The Hardline According to Ter- ence Trent D’arby og margir kannast við lögin If You Let Me Muniðtilboð vikunnar DA DA — DA DA venjul. verðTíSkg,- Tilboðsverð 474, Eins og sagði í upphafi er TSOL væntanleg hingað til lands í byrjun næsta mánaðar. 2. október leikur sveitin með Bleiku böstunum og E-X, en 3. leikur hún með Sykur- molunum. Rokkáhugamenn ættu ekki að verða sviknir af TSOL. Austurstræti, Glæsibæ, Rauðarárstíg, Strandgötu Hagkaup Póstkröfusími 11620 og 28316 (símsvari). Kringlunni f W°nusta a"a"s°'arhon9,nni os,;,a^í6.Hr,ngið °9 lesið ,'nn á s,msvara °Skallstannykkar__ J Nr. Flytjandi—titill venjul. verð afslverð 1. MichaelJackson-Bad T99, 719 2. Terence T rent D'Arby - Intro. 749^ 674 3. Echo And The Bunnymen 749, 674 4. Cock Robin - After Here Through Midland 674 5. Madonna - Who’s That Girl ■749- 674 6. Deacon Blue—Raintown 749«. 674 7. Suzanne Vega - Solitude Standing "749. 674 8. Hooters - One Way Home 749, 674 9. Úrmynd-LaBamba 749, 674 10. REM-Documents *749> 674 11. Pet Shop Boys - Actually *749, 674 12. Jethro Tull - Crest For A Knave 749, 674 13. Loverboy-Wildside 749. 674 14. Stuömenn - Á gæsaveiðum 799- 719 15. Pink Floyd - A Momentary Lapse of Reason 749- 674 16. Bananarama-WOW ■749- 674 17. Pat Metheney - Still Life (Talking) 749« 674 18. Fleetwood Mac - T ango in the night 749- 674 19. Simple Minds—Live 7099- 989 20. Greifarnir—Sviðsmynd 539 R.E.M. NO. SJdocument l yp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.