Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 32
32 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
IJC UEIMI EVIEMyNEANN/1
Nýjar myndir vestra:
Fjölbreytnin
í fyrirrúmi
ÞaA er alltaf gaman aA geta
nýrra mynda vestan úr Amerík-
unni meA reglulegu millibili og
hór er listi yfir helstu myndir sem
frumsýndar hafa veriA síAustu
tvo mánuAi eAa svo.
Breski stórleikarinn Aibert Finn-
ey og leikstjórinn Alan J. Pakula
hafa leitt saman hesta sína í nýrri
mynd sem heitir Orphans eða
Munaðarleysingjar en Pakula
framleiðir hana og leikstýrir.
Myndin er byggð á samnefndu
leikriti Lyle Kessler og það er
Kessler sem skrifar kvikmynda-
handritið. Matthew Modine leikur
m.a. á móti Finney í Munaðarleys-
ingjum en þaö síðasta (og kannski
eina) sem hann hefur unnið sér til
frægðar er að leika í nýju mynd-
inni hans Stanley Kubricks, Full
Metal Jacket.
The Big Easy er harðsoðin leyni-
lögreglumynd um spillingu í New
Orleans með Dennis Quaid og El-
len Barkin í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Jim McBride en mynd-
in hefur hlotið góða dóma. Hún
hét áður Nothing But the Truth
og það var lítið, óháð framleiðslu-
fyrirtæki sem framleiddi hana en
David Puttnam, sem stjórnar Col-
umbia Pictures þessa dagana, sá
hana fyrir eitthvaö um ári og keypti
hana til dreifingar samdægurs.
Gamli smellurinn La Bamba
hljómar mikið í útvarpinu þessa
dagana, líkiega í tengslum við nýju
myndina, sem einfaldlega heitir La
Bamba eins og lagið og er um
höfund þess, Ritchie Valens, sem
aðeins var 17 ára þegar hann fórst
í flugslysi með Buddy Holly og J.
P. Richardson árið 1959. Handrits-
höfundur og leikstjóri er Luis
Valdez.
Bráðlega verður frumsýnd
vestra hasarmyndin The Principal
eða Kennarinn með þeim James
Belushi og Louis Gossett, jr. í aðal-
hlutverkunum. Myndin gerist í
amerískum menntaskóla þar sem
nemendurnir útskrifast í ránum,
árásum og ótuktarskap öðrum.
Belushi og Gossett leika nýja kenn-
arann og öryggisvörðinn sem taka
að sér að koma svolítilli reglu á
mannskapinn. Leikstjóri er
Christopher Cain en Frank Deese
skrifar handritið.
Mickey Rourke var einu sinni
kallaður Marlon Brando níunda
áratugarins. Nýjasta myndin sem
hann leikur í heitir A Pryer for the
Dying og gerist á írlandi og Rourke
leikur rauðhærðan (ra. Mótleikar-
arnir eru ekki af verri endanum,
Alan Bates og Bob Hoskins. Leik-
stjóri er Mike Hodges (Flash
Gordon) en Edmund Ward og
Martin Lynch skrifa handritið upp-
úr bók Jack Higgins.
Kevin Costner er nýja róm-
antíska stjarnam' Hollywood. Hann
er kominn í hóp hinna eftirsóttu
eftir aðeins tvær myndir í sumar.
Fyrstvarhann Eliot Ness i Hinum
vammlausu og svo kom No Way
Out rétt á eftir og tryggði Costner
enn í sessi. Roger Donaldson leik-
stýrir en mótleikararnir eru Gene
Hackman og Sean Young. No Way
Out er endurgerð myndarinnar
The Big Clock frá 1948 og segir
frá flotaforingja (Kostner) sem
fenginn er til að rannsaka morð
sem varnarmálaráðherrann (Hack-
man) hefur framið, en látið er líta
svo út sem flotaforinginn hafi unn-
ið glæpinn.
Nýjasta mynd John Sayles, eins
athyglisverðasta óháða kvik-
myndagerðarmanns Banda-
ríkjanna, heitir Matewan og segir
frá ofbeldisfullri kjarabaráttu kola-
námumanna við yfirboðara sína.
Sayles skrifar handritið og leikstýr-
ir og fer sjálfur með lítið hlutverk
í myndinni. Með aðalhlutverkin
fara Chris Cooper, James Earl Jon-
Mickey Rourke leikur (ra.
es og Mary McDonnell (sjá
annarsstaöar á síðunni).
Nýjasta myndin hans Costa-
Gavras er ekki pólitískur þriller
heldur svört kómedía sem heitir
Family Business og er með Johnny
Hallyday, Fanny Ardant og Guy
Marchand í aðalhlutverkum.
Deadline heitir nýjasta myndin
sem Christopher Walken leikur í
en henni er leikstýrt af Nathaniel
Gutman. Breski leikarinn Hywel
Bennett, sem einu sinni var svo
Albert Finney vandlega keflaður
í mynd Alan J. Pakula, Munaðar-
leysingjar.
efnilegur en aldrei varð neitt úr,
leikur á móti Walken, sem er frétta-
maðurinn Don Stevens í einhverj-
um styrjaldarátökunum.
Enn ein Víetnam-myndin (gert
er ráð fyrir a.m.k. fjórum frá Holly-
wood á næsta ári) heitir Hamburg-
er Hill og er leikstýrt af Bretanum
John Irvin en handritið er eftir Jim
Carabatsos. Leikararnir eru flestir
óþekktir en myndin segir frá átök-
um um Hamborgarahæðina sem
kostaði marga Bandaríkjamenn
lífið en hafði svo fjarska lítinn til-
gang þegar allt kom til alls. John
Irvin leikstýrði eins ólíkum mynd-
um og DogsofWarog Turtle Diary
áður en hann gerði þessa og ætlar
næst að gera mynd eftir ókláraðri
Raymond Chandler-sögu sem
heitir The Springs og Philip
Marlowe kvænist í. Á sínum tíma
gerði hann heimildarmyndir um
Víetnam-stríðið en ofbauð svo
hryllingurinn að hann hætti því.
John
Sayles
og kola-
stríðin
Matewan heitir nýjasta mynd
John Sayles en sögusvið hennar
er kolastríðin svokölluðu í Virginíu
í Bandaríkjunum árið 1920 og ’21.
Sayles skapaði verkalýðsmanninn
Joe Kenehan sem reynir að sam-
eina mislitan hóp kolanámuverka-
manna í Virginíu í eitt félag en
kolanámufyrirtækið ræður til sín
sadískan hermann úr fyrri heims-
styrjöldinni og liðsmenn hans til
að koma í veg fyrir að félagið verði
stofnað.
Myndir um verkalýðsbaráttu eru
ekki í tísku í Hollywood þessa dag-
ana. „Mig langar alltaf til að fólk
fari af bíómyndunum hugsandi um
sitt eigið líf," segir Sayles og á við
myndirnar sem hann bæði skrifar
handrit að og leikstýrir. Hann býst
ekki við alltof mörgum áhorfendum
á Matewan vegna verkalýðs-
þemans þótt hann segi að myndin
sé í rauninni um „samtök" með litlu
„s", ekki bara verkalýðssamtök.
„Hvernig hópar fólk sig saman?
Það gerir það sjaldan nema það
eigi sér sameiginlegan óvin. Mynd-
in er mikið um Bandaríkin og það
sem þau áttu að vera og verkalýðs-
hreyfinguna og það sem hún ekki
varð.
Matewan hefur í sér marga
þætti vestrans," segir Sayles svo.
„Hver verður drepinn og hver ekki?
í vestrunum mundi Joe Kenehan
taka upp byssuna sína og ganga
frá vonda gæjanum — hinn
klassíski Gary Cooper, maður-
verður-að-gera-það-sem-maður-
verður-að-gera. Ég nota svolítið
vestraformið en Joe er friðarsinni
og Joe tapar og það fær fólk til
að hugsa um friðarsinna. Kannski
hefði verið mikilvægara fyrir námu-
mennina að skjóta á móti eða
svertingjana að brenna borgirnar
sínar á sjöunda áratugnum. Ég
Bandaríkin:
Metsölumyndirnar
í sumar
Lou Diamond Phillips og Elizabeth Pena í La Bamba, einni af 12
myndum sumarsins sem náði inn meira en 40 milljónum.
Sumarið 1987 er metsumar í
Hollywoodsögunni. Aldrei hafa
komið eins miklir peningar í miða-
sölukassana og núna eða alls um
1,6 milljaröur dollara. Það kom
mönnum þó ekkert sérstaklega á
óvart. ÞaA undarlega var hversu
margar myndir höfðuðu til áhorf-
enda. Sfðasta metár var 1984 en
það voru aðeins fjórar myndir
sem skutu þvf á toppinn: Ghost-
busters, Indiana Jones and the
Temple of Doom, The Karate Kid
og Gremlins. „Þessar myndir
voru eins og ryksugur,1* segir
aðsóknarfræðingur Variey, Art
Murphy. En þetta sumar voru
unglingarnir ævintýragjarnari og,
ef frá er talin Löggan f Beveriy
Hills II, fóru ekki á sömu myndina
aftur og aftur. Þeir sóttu frekar
fleiri myndir svo núna munu eitt-
hvað um 12 sumarmyndir taka
inn 40 milljónir dollara eða meira.
Löggan í Beverly Hills II er í
fyrsta sæti með 150 milljónir það
sem af er (hún hefði lent í þriðja
sæti árið 1984). Þá koma Hinir
vammlausu, einnig frá Paramount.
Nornirnar í Eastwick eru í þriðja
sæti en þá koma Predator, Drag-
net, Robocop, The Living Day-
lights, . Full Metai Jacket, La
Bamba, Mjallhvít og dvergarnir sjö,
Stakeout og Roxanne. (Stakeout
var frumsýnd seint á sumrinu og
ætti að ná þriðja sæti áður en yfir
lýkur. Summer School, No Way
Out og Dirty Dancing hafa nokkra
möguleika á að ná yfir 40 milljóna
markið.)
Meira en helmingur myndanna
þ.m.t. Hinir vammlausu, Nornirnar
í Eastwick, Full Metal Jacket, La
Bamba, Stakeout, Roxanne og No
Way Out eru fyrir fulloröna eftir
því sem þeir í Hollywood segja.
Vinsældir þeirra benda því til þess
að hægt sé að draga eldri áhorf-
endur í bíó meira en áður en eldri
áhorfendur samkvæmt Holly-
woodkvarðanum er fólk yfir 25 ára.
( haust eru væntanlegar margar
spennumyndir og melódrama fyrir
fullorðna.
Aðal unglingamvndin í ár var
Innerspace sem Joe Dante leik-
stýrir og segir frá ferðalögum
Dennis Quaids í líkama Martin
Shorts. Myndin sú hlaut góða
dóma en tók þó aðeins 26 milljón-
ir inn. Hún kostaði 27. Harry and
the Hendersons, saga um Stórfót
í úthverfafjölskyldu, tók inn 26
milljónir og fjórða myndin um
mannætuhákarlinn, Jaws the Re-
venge, náði inn 19 milljónum. Það
var Amblinfyrirtæki Steven Spiel-
bergs sem framleiddi Innerspace
og „Harry" en svo virðist sem
Spielbergtöfrarnir hafi dvínað lítil-
lega.
Menn höfðu nefnilega ætlað að
Innerspace yrði í öðru sæti á eftir
Löggunni að sumri loknu. Það
gerði enginn ráð fyrir því að mynd-
ir eins og Roxanne og Full Metal
Jacket tækju framúr henni.
Og þá eru það mistökin. Stærsti
skellurinn var auðvitað gaman-
myndin Ishtar frá Columbia, sem
kostaði 50 milijónir og er með
Dustin Hoffman og Warren Beatty
í aðalhlutverkum. Myndin hrundi
næstum strax og hún var sett í
dreifingu. Madonnumyndin, Who’s
That Girl, sýndi að vinsældir í ein-
um miðli þurfa ekki að ná yfir í
annan. Troðfullt var á tónleikum
Madonnu í sumar en bíóhúsin með
myndinni hennar voru mannlaus.
Endursýning í sex borgum á Copp-
olamyndinni, Heimsendir nú, var
til lítils og þykir sýna að þegar
mynd er komin á myndband á hún
fáa lífdaga í bíói.
Tri-Star átti hvern skellinn á
fætur öðrum (The Squeeze,
Monster Squad, Nadine og Amaz-
ing Grace and Chuck). Sniðugasta
leikinn lék Orion þegar það geymdi
þrillerinn No Way Out með Kevin
Costner í aðalhlutverki þar til eftir
frumsýningu á Hinum vammlausu
sem Costner fer einnig með aðal-
hlutverkið í. Þegar Ijóst var að
Costner hafði slegið í gegn sem
Eliot Ness setti Orion sína mynd
í dreifingu og uppskar ríkulega.
Þá kom einnig í Ijós við uppgjör
metsumarsins 1987 að Disneyfé-
lagið stendur sig mjög vel í
samkeppninni og setti fleiri myndir
í dreifingu í sumar en nokkurt ann-
að kvikmyndafyrirtæki eða sex,
þ.m.t. Stakeout.
H