Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 Spike Lee. Fyrsta mynd hans, Hún verður að fá’ða, er sýnd á kvikmyndahátíð. háa markmið er að gefa fjöldanum nýja innsýn í líf litaðs fólks. En á upptökustað gefur annan Lee að líta. Sá fælir engan frá með þótta eða rembingi. Hinsveg- ar hugsandi, skipulagður og persónan er þögul, einbeitir sér að vandamáli líðandi stundar. Gef- ur af og til fyrirskipanir og kann því vel að vera ekki truflaður. Einn vinur hans kallar hann „pott sem er sífellt á suðumarki". Sú samlík- ing virðist vel til fundin. Á fyrsta tökudegi í Atlanta var kvikmyndað í Spelman College, kvennaskóla fyrir þeldökka, gegnt Morehouse. Lee reytir af sér brandara og drepur tímann á milli þess sem hann prófar leikendur, með háværri tónlist úr segul- bandstæki. Hann kannast við stúlku sem sækist eftir einu því hlutverka sem Lee hefur geymt efnilegum námsmönnum. „Fröken Wannabe, fyrirmyndin," segir hann stríðnislega. Orðið er stytt- ing fyrir „wannabe white" og lýsir öðrum hóp námsmanna í mynd- inni, en söguþráðurinn snýst um árekstrana á milli hinna velstæðu, ljósleitu blökkumanna — wannabees — og hinna fátækari, dökklituðu, sem í handritinu eru nefndir Jigaboos". Morehouse og Spelman eru tveir af hornsteinunum sem skapa svörtu millistéttina sem aðrir Bandaríkjamenn vita sáralítið um. Þeldökkir sem vilja finna rétta samlíkingu, kalla þá svarta Har- vard og Radcliffe. Meðal náms- manna sem útskrifast hafa má nefna Martin Luther King jr., rit- höfundinn Alice Walker og ekki aðeins Spike Lee, heldur föður hans og afa að auki. Shelton Jackson Lee, uppnefnd- ur Spike af móður sinni, fæddist í Atlanta skömmu áður en fjöl- skyldan fluttist til Brooklyn. Móðir hans, sem dó 1977, kenndi list- fræði og svarta bókmenntasögu, faðir hans, Bill Lee, er jass-hljóm- listarmaður og lagasmiður. Spike hafði stundað illa gítar- og píanó- tíma, en á öðru ári í Morehouse kynntist hann öðru tóli — 8 mm kvikmyndatökuvél. „Við Morehouse," segir Lee, „sem annars staðar í menningu svartra, voru merki þess að svart- ir fóru í manngreinarálit eftir litarhætti þeirra. Ljósir á hörund áttu mun auðveldar með að kom- ast upp metorðastigann." Jafnvel hugleiðingar um slíka litarháttarmismunun er þrætuefni og nýja myndin hans Lee er þegar orðin tilefni kvartana. „Þetta er einfaldlega ekki satt og hefur aldr- ei verið satt,“ segir Hugh Gloster, forseti Morehouse. „Ég sé engan hér sem hefur áhuga á að vera hvítur." Lee telur að þrátt fyrir að mynd- in hans ýki hlutina dálítið, þá sé hún í höfuðatriðum sönn. Peninga- fólkið er yfirleitt hörundsljóst. Það á Porsche-ana, BMW-ana, svo ekki sé minnst á fína hárið,“ segir hann til útskýringar. „Hinir krakkarnir Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Ein af forvitnilegri myndum Kvikmyndahátíðar í ár er tvímælalaust frumraun Spikes Lee, ungs bandarísks blökku- manns. Nefnist hún She’s gotta have It og var gerð fyrir smá- aura en hefur engu að síður tekið inn röskar sjö milljónir dala. Og þar með var Lee orðinn „heitur“ og er þessa dagana að vinna að sinni annarri mynd, munurinn er sá að nú er enginn hörgull á þeim grænu og at- vinnuveitandinn nú er Columbia Pictures, Hollywood. Sviðið er gömul sýningarhöll í Atlanta sem búið er að breyta í snyrtistofu Re Re með krossvið, málningu og múr. Það er troðið af dönsurum, kvikmyndagerðar- fólki og leikstjóranum Lee, hitinn af 140.000 watta lýsingu er að kæfa þau þar sem þau eru að koma saman upptökuatriði. Nú kemur stutt pása og dansararnir þyrpast út fyrir í svalara loft. Lee gengur út líka, lágvaxinn og renglulegur, svartklæddur með Mets-húfu á höfði. Hann lítur í kringum sig eftir áheyrendum, finnur einn, gestkomandi. „Viss- irðu að við vorum rekin af háskóla- lóðinni?" segir hann, en skólinn sem við er átt er Morehouse Coll- ege, þaðan sem Lee útskrifaðist og er aðaltökustaður annarrar myndar hans sem fjallar um líf nemenda við skóla sem einungis telur litaða nemendur. Hlutinir hafa ekki gengið nógu vel fyrir sig, skólastjórinn frétti af ljótum munnsöfnuði í myndinni og sökum hræðslu við foreldra nemendanna lét hann vísa kvik- myndatökufólkinu af svæðinu. Þetta neikvæða viðmót gerði það að verkum að Lee hefur ákveðið að frumsýna myndina í hinni fijálslyndu New York-borg, frekar en Atlanta, eins og upphaflega stóð til. — „Hér er valdamikið fólk sem óskar þess að við hefðum aldr- ei komið." Það er Spike Lee sem talar, með andúð á yfirvöldum, haldinn du- litlu ofsóknarbrjálæði, sólginn. Er hann útskrifaðist úr fyrsta bekk gerði hann skopstælingu af því sígilda meistaraverki The Birth of a Nation. Og með fyrstu mynd sinni, She’s gotta have It, sem hann leikstýrði, skrifaði, fram- leiddi og lék í, varð hann sannkall- að undur og stórmerki. Myndin var saga negrastúlku sem finnur enga þörf hjá sér að gera upp á milli elskhuga sinna þriggja. „Hún,“ segir Lee, „lifði lífi sínu eins og karlmaður." Lee lék Mars Black- mon, götustrák sem kjaftaði sig uppí til hennar og stal hverju atrið- inu á fætur öðru. Myndin, sem var gerð 1985 fyrir minna en 175 þúsund dali tók inn röskar 7 millj- ónir! Fyrir sjálfstæðan smámynda- framleiðanda var þetta merkilegur árangur, fyrir svartan sjálfstæðan smámyndaframleiðanda myndar um svart fólk eingöngu, var þetta undraverður viðburður. Allar götur síðan hefur Lee ver- ið tengiliður svartrar menningar. Stevie Wonder samdi lag fyrir nýjustu mynd hans, Jesse Jackson bað fyrir velgengni hennar á töku- staðnum. Hinir snyrtilegu nem- endur við Morehouse-skólann tóku hann í hetjutölu og grátbændu um eiginhandaráritun. Þrátt fyrir aðeins 30 aldursár nýtur Lee meiri virðingar og frels- is en velflestir kvikmyndagerðar- menn á hans aldri. „Ég álít hann, gleymdu svörtu og hvítu, einn frumlegastan kvikmyndagerðar- manna í dag,“ segir David Picker, forstjóri Columbia Pictures. Nú- verandi viðfangsefni Lees, sem Columbia hyggst dreifa í febrúar að ári, er tónlistarmynd sem heitir School Daze, orðaleikjarlegu nafni. Fjármagnskostnaður henn- ar eru 6 milljónir dala, lítið á Hollywood-mælikvarða, en þijátíu og sexfalt meira en Lee hafði áður úr að moða. Gagnvart áheyrendum og fréttaspyrlum er Lee kreddufast- ur, líflegur, dýrlega orðheppinn. Hann skammast yfir þeldökkum dægurhetjum sem „hafa siðspill- andi litblöndunar viðhorf. Sam- kvæmt Lee „gera þær allt til að komast á forsíðu Rolling Stone: það er þá sem þú byrjar að sjá einkennin — nefaðgerðirnar, pét- urssporin, bláu og grænu augn- linsurnar." Hann segir kvikmyndastofnun- um til syndanna, ásakar þær fyrir að gera innantómar, villandi myndir um svart þjóðfélag. „Ég er leiður á skilgreiningum fólks sem ekkert veit um okkur." Hans Atriði úr nýjustu mynd Lee, School Daze. SPIKE LEE ER AÐ NÁ’ÐÍ fiskútflutningur: ÞJÓNUSTU MIDSTOD SJÁVARÚTVEGSINS. Gódan daginn! TJöfðar til X X fólks í öllum starfsgreinum! Ekki HENDA hundrað þúsund krónum Sól gos - meiriháttar gos KVENSKOR m.a. í no. 42 til 44 í ótrúlegu úrvali Kuldaskór, spariskór, götuskór, töflur og leð- urstígvél. T.d. eru 150 gerðir til í no. 42. Domus Medica. s: 18519.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.