Morgunblaðið - 20.09.1987, Síða 48

Morgunblaðið - 20.09.1987, Síða 48
48 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 fÓIR í fréttum Jónas galdur og gúmmístúlkan Systkinin Jónas Gunnhallsson og Guðrón Gunnhallsdóttir gera það gott úti í Svíþjóð þessa dag- ana, þar sem þau sýna galdrabrögð og akróbatik. Þau fóru í námskeið fyrir tveimur árum í sirkusskóla í Malmö, þar sem Jónas lærði töfra- brögð, en Guðrún lærði akróbatik, eða það sem sænskir kalla „gúmmí- manneskju". Þau hafa síðan sýnt listir sínar í tvö ár með ferðasirkus Lillebil Rhodin, en auk þess hafa þau sýnt í almenningsgörðum og á hátíðarsamkomum. Þau komu m.a. fram á jólahátíð íslendingafélagsins í Malmö. Þau systkinin hafa tekið upp listamannsnöfnin „Jónas Galdur" og „Ungfrú Júlíana", og hefur þeirra verið getið í sænskum blöð- um, og þeim verið hrósað. Stóra- systir þeirra, Unnur Lóa, aðstoðar þau „Jónas Galdur" og „Ungfrú Júlíönu" á sýningum, og sér um fjármálin, þannig að þarna er kom- inn vísir að íslenskum fjölskyldus- irkus; en Jónas er aðeins 15 ára, og Guðrún 14 ára, þannig að þau eru til alls vís í framtíðinni. Við hér Prestar á páfamessu í New Orleans draga plastdúk yfir höfuð sér. Þeim hefði verið nær að trúa að- eins meira. Stöðvaði páfinn rigningnna? Jóhannes Páll páfí II er nú á ferð um Bandaríkin, eins og varla hefur farið fram hjá neinum. Hann kom m.a. við í borginni New Orleans, þar sem hann hélt ræður og tók þátt í hátíðarhöldum. Það bar til tíðinda á útimessu sem páfí hélt, að það var ausandi rigning, og klerkar og aðrir sem á páfann vildu hlýða tóku það til bragðs að draga plastdúk yfír sig. En viti menn, um leið og páfí steig í pontu lokuðust flóðgáttir himinsins, og réttlátir sem ranglátir gátu hlustað á boðskap hans heilagleika án þess að vökna. Erkibiskupinn í New Orleans setur fjaðraskúf á höfuð páfa, áður en hann ávarpar ungmennasamkomu þar í borg. „Gúmmístúlkan" Guðrún beygir sig og nær í blóm með tönnunum. á Fólki í fréttum vonum að þessi hvemtíma við héma á íslandi, og hæfíleikaríku systkini komi ein- sýni þá landanum listir sýnar. Sean gefur Ijósmyndurum bendingar um að hann kæri sig ekki um návist þeirra, rétt eftir að hann kvæntist Madonnu í fyrra. Sean Penn lausúrfangelsi Honum Sean Penn var sleppt úr fangelsi í Los Angeles nú á fímmtudaginn, en þar hafði hann fengið að dúsa í 32 daga. Sean, sem er frægur leikari - en ennþá frægari samt fyrir að vera maðurinn hennar Madonnu - var dæmdur í tveggja mánaða fang- elsi fyrir að lemja samleikara sinn, sem hafði gerst svo djarfur að ætla að taka ljósmynd af honum í vinnunni. En þó að Sean sé hinn mesti skaphundur, þá lamdi hann engan í fangelsinu, og fékk því að sleppa út fyrir góða hegðun á undan áætlun. Það var svo sem kannski eins gott fyrir hann að vera ekkert að abbast upp á sam- fanga sína, því í sýslufangelsinu í Los Angeles munu vera fleiri fangar dæmdir fyrir ofbeldisbrot en í nokkru öðru fangelsi í Banda- ríkjunum. Sean hefur löngum verið illa við ljósmyndara, og hann hefur oft látið skapið hlaupa með sig í gönur þegar honum hefur þótt aðsúgur þeirra stefna úr hófí fram. Það er þó vonandi að Sean láti af þeim ósið að lemja ljós- myndara fljótlega, því þetta getur farið að standa honum fyrir þrif- um í starfí. Sean þurfti að taka sér hlé frá töku nýjustu myndar- innar sinnar, sem á að heita „Colours", til að fullnægja kröfum réttvísinnar, en í þeirri mynd leik- ur Sean, af öllum hlutverkum, lögregluþjón.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.