Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 49

Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987 B 49 Amorgun, mánudag, verða liðin 30 ár síðan Ólafur Noregskon- ungur tók við norsku krún- unni, og verður mikið um dýrð- ir hjá frændum vorum af því tilefni, eins og nærri má geta. Ólafur er orð- inn 84 ára gamall, en er ótrúlega em; og lætur hann sér ekki nægja að rækja emb- ættisverk sín með sóma, Hér er kónginum færður blómvöndur út í skútu sina á 84 ára afmælinu hans nú fyrr i sumar. Þrjátíu ára valdaafmæli heldur stundar líka íþróttir af kappi. Ólafur er einstaklega ástsæll meðal þegna sinna, sem kalla hann „al- þýðukonunginn“, enda hefur hann gert sér far um að heimsækja hvem krók og kima í Noregi til að kynn- ast sem best landi sínu og þjóð. Ólafur er þó ekki fæddur Norð- maður; hann er sonur danska prinsins Karls - sem var dubbaður upp sem Hákon Noregskonungur árið 1905 - og ensku prinsessunnar Maud, sem var dóttir Játvarðar VTI Englandskonungs. Hann er fæddur í Englandi, en fluttist með foreld- mm sínum til Noregs, aðeins tveggja ára gamall, og var allt gert til þess að Ólafur litli yrði sem „norskastur"; hann var settur á gönguskíði á unga aldri, og mamma hans vandi sig af því að kalla strák- inn Alexander til að hann sætti sig við hið þjóðlega nafn Ólafur, sem honum var gefíð þegar ljóst varð að þann yrði ríkisarfí. Ólafur krónprins kvæntist frænku sinni, sænsku prinsessunni Mörthu, og átti með henni þijú böm; Ragnhildi, sem er fædd 1930, Ástríði, fædd 1932, og krónprinsinn Harald, sem kom í heiminn árið 1937. Martha lifði það aldrei að verða drottning, því hún lést úr lifr- arsjúkdómi árið 1954, aðeins 53 ára að aldri. Ólafur varð konungur þann 21. september 1957, þegar Hákon faðir hans lést. Eins og áður sagði hefur Ólafi þótt famast einstaklega vel á valdastóli, og hann verið elskaður, virtur og dáður af allri alþýðu manna. Hann hefur verið einstak- lega duglegur við að ferðast, bæði um sitt eigið land, og út fyrir land- steinana, enda kalla Norðmenn konunginn „besta sendiherra Nor- egs“. Hann hefur margoft sótt heim ættingja sína meðal evrópsks kóngafólks, og hann hefur farið fjóram sinnum vestur um haf og heimsótt slóðir norskra innflytjenda í Ameríku. Það er ekki hægt að minnast á Ólaf án þess að geta íþróttaáhuga hans, en hann er mikill göngumað- ur og skíðamaður. Einkum á þó siglingaíþróttin hug hans allan, en kóngurinn hélt upp á 84 ára af- mælið sitt nýlega með því að að sigla skútu sinni um Oslóarfjörð. Slíkt leika ekki margir jafnaldrar hans eftir, og sýnir það kannski betur en annað hve sprækur Ólafur er; og það er allt eins líklegt að hann haldi áfram að ríkja um mörg ókomin ár. Síðasta op- inbera myndin sem tekin var af Ólafi krón- prins og Mörthu krónprins- Ólafur konungur sést hér með náfrænku sinni, Elisa- essu saman.—betu Englandsdrottuingu;-------------:------:----- Verkfræðideild Háskóla íslands: TÍU ERINDIUM UMHVERFISMÁL í VERKFRÆÐIDEILD Háskóla ís- lands verða á næstu vikum flutt tiu erindi um umhverfismál. Erindin eru fyrir nemendur í deildinni, en aðgangur er öllum fijáls, einnig þeim sem ekki eru nemendur í Háskólanum. Umsjón með nám- skeiðinu hefur Einar B. Pálsson prófessor. Erindin verða flutt á mánudögum kl. 17.15 I stofú 158 í húsi verk- fræðideildar Hjarðarhaga 6. Þau eru fyrirhuguð: 21. septemben Unnsteinn Stefáns- son prófessor í haffræði: Sjórinn sem umhverfí. 28. september: Ingvi Þorsteinsson MS, Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins: Eyðing gróðurs og endurheimt landgæða. 5. október: Þorleifur Einarsson pró- fessor í jarðfræði: Jarðrask við mannvirkj agerð. 12. októben Agnar Ingólfsson pró- fessor í vistfræði: Ýmis undirstöðuat- riði í vistfræði. 19. október: Amþór Garðarsson prófessor í líffræði: Rannsóknir á röskun lífríkis. 26. október: Ólafur K. Pálsson fiskifræðingur, Hafrannsóknastofn- un: Auðlindir sjávar og nýting þeirra. 2. nóvember: Jakob Bjömsson verkfræðingur, orkumálastjóri: Orku- mál og umhverfí. 9. nóvemben Eyþór Einarsson grasafræðingur, formaður Náttúru- vemdarráðs: Náttúruvemd í fram- kvæmd 16. nóvember: Vilhjálmur Lúðvíks- son verkfræðingur, framkvæmda- stjóri Rannsóknarráðs rfkisins: Verkfræðilegaráætlanirogvalkostir. . 23. nóvemben Einar B. Pálsson verkfræðingun Matsatriði, m.a. nátt- úrufegurð. í hina veglegu sýningarstúku okkar ’/V-l Stýribúnaöur fyrir kælikerfi Drif- og stjórnbúnaður fyrir vökvakerfi Dælur Stord Bartz a- Fiskimjölsverksmiðjur § HVDRHUIIK Lágþrýstispilkerfi og stjórnbúnaður Vélsmiðjan HÉÐINN Nýsmíði og viðgerðaþjónusta m. S0NDERGAARD Drif- og stjórnbúnaður fyrir vökvakerfi Rartek Höganas Gólf- og veggflísar fyrir fiskiðnað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.