Morgunblaðið - 25.10.1987, Blaðsíða 3
C 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1987
neytisstjóri en það varð síður en svo
þannig. Þá loks fóru augu mín að
opnast fyrir þessu en það kostaði
mig töiuvert sálarstríð.
Þetta gerðist þannig að það voru
tímabil sem mér fannst ég vera
alveg laus við þetta stríð en svo
komu önnur^ tímabil þar sem það
ásótti mig. Ég verð líka að segja
frá því að ég glímdi við fleiri sál-
fræðileg vandamál á þessum tíma,
en þetta var samt einhver stærsti
draugurinn. Það eru óskapleg átök
að slást við þessa áráttu og mikill
léttir að losna undan henni. í slíkri
baráttu verða menn að láta af sínu
stolti og átta sig á því að þeir eru
bara venjulegir menn eins og allir
aðrir.
Yfirleitt eru þeir menn sem eru
á toppnum í þjóðfélaginu fullir af
framagimi þó ég sé ekki að segja
að það ráði þeim eingöngu. Eftir-
sóknin eftir virðingu og völdum er
mikil áþján samt er það svo að
margir eyða öllu sínu lífi í það eitt
að fá sem allra mestan orðstír og
virðingu frá öðrum og vinna að því
baki brotnu frá morgni til kvölds
allt sitt líf. En framagimin er rík
í fólki hér og oft er þetta dulbúið,
Með þessu háttalagi missa menn
algerlega áhugann á því sem þeir^
em að gera og lifa alltaf í öðmm
en ekki í sjálfum sér.
Því meira sem ég hef losnað
undan þessarí áþján því fijálsari
finnst mér ég hafa orðið, þó því
fari flarri að mér hafi tekist að losna
algerlega undan þessu. En þroskinn
er það að losna undan ýmsum bá-
byljum sem maður er haldinn, en
það er vissulega ekki einfalt. Ég
held að allur þroski sé fólginn í því
að leita að sannleikanum um sig
og heiminn, það er sá sannleikur
sem Kristur sagði að gerði okkur
fijáls. Ég ber mikla virðingu fyrir
kenningum Jesú Krists.
Ég er leitandi eins og margir
aðrir, hef lengi haft mikinn áhuga
_á heimspeki og trúmálum og hef
'því lesið mikið um þau efni. Sum
trúarbrögð em hrein heimspeki t.d.
Búddisminn. Sú gamla mynd að guð
skapi í sífellu nýjar sálir og sanki
þeim svo saman á himnum til að
segja halelúja honum til dýrðar, sú
mynd finnst mér hafa sínar tak-
markanir. Ég er eindregið þeirrar
skoðunar að ef að sálin er á annað
borð til hafi hún alltaf verið til,
mér finnst ekki heil brú í annarri
hugsun. Þannig gæti líka ein
mannsæfi haft einhveiju hlutverki
að gegna, þó hún sé stutt, aukið
sem sagt á þroska einhverrar
ákveðinnar sálar. Það er mín mein-
ing að ef tala á um einhvem tilgang
með lífinu þá sé það að þroska sig
og átta sig á vemleikanum. þama
virðist þó skipta töluvert í tvö hom.
Sumir fá svo mikið mótlæti að stríða
við að það verður þeim ofviða og
biýtur þá niður en aðrir aftur virð-
ast geta notfært sér erfíðleikana
sér til þroska. Mér fínnst að þeir
erfíðleikar sem ég hef mætt í lífinu
séu í efri kantinum að því leyti að
það er rétt að með naumindum að
þeir hafi ekki orðið mér ofviða. Ef
maður lítur hins vegar á erfiðleik-
ana þannig að þeir þroski menn og
geri þá frjálsari þá em þeir mönnum
happ. Þannig má segja að öll þján-
ing sé jákvæð þó allir séu að reyna
að losna við hana. En hins vegar
held ég að því sé þannig varið að
fólk horfi ekki framan í meiri sann-
leika en það þolir í hvert skipti. Það
gætir þess sjálft að minnka
skammtinn með einhveijum hætti.
Eftir að ég hætti í ráðuneytinu
fór ég að starfa sjálfstætt sem lög-
fræðingur og jafnframt að kenna
sem dósent við lagadeild háskólans.
Þessi kennsla var mjög mikið nám
fyrir mig því ég var farinn að ryðga
í fræðunum. Einnig keypti ég heild-
verslun og rak hana í hálft annað
ár. Ég hafði dálítið gaman af heild-
sölurekstrinum og hann gekk vel.
Velta fyrirtækisins varð ríflega
helmingi meiri á þessum tíma sem
ég var með það en hún hafði verið
áður. Ég verslaði með byggingavör-
ur. En nú er ég orðinn borgardómari
og þá þýðir ekki að vera með svona
fyrirtæki.
Ég er aftur kominn til ríkisins
og það er það einkennilega í þessu
máli. Þetta er hins vegar dálítið
öðruvísi starf en ég hafði áður með
höndum og tekur öðruvísi á, en ég
get nýtt töluvert þá reynslu sem
ég fékk í ráðuneytinu í dómara-
starfinu og ég verð að segja það
að ég hef virkilega gaman af þessu
nýja starfi. Öll lífsreynsla nýtist vel
í starfi dómara ekki síst þegar ver-
ið er að reyna að sætta fólk. Það
er mikið atriði að reyna að sætta
fólk þarna í borgardómi, þá þarf
minna að dæma. Mér hefur fundist
ganga furðu vel að sætta fólk þó
málin séu oft flókin. Borgardómarar
dæma aðeins hin flóknari mál sem
eru munnlega flutt. Þar er mikið
atriði að setja sig afar vel inn í
hvert mál, má segja að það sé frum-
atriði. Lögin eru teygjanleg og
túlkunaratriði enda skapast mála-
ferlin oft af því að lögin eru ekki
skýr og kannski engin skráð lög
fyrir hendi um tilvikið og heldur
ekki í fræðibókum nein augljós nið-
urstaða á málinu. Lífið býður uppá
svo mikla flölbreytni að bækurnar
duga ekki til, en dómari verður eigi
að síður að dæma málið. Ég hef
ekki verið lengi dómari en held eigi
að síður að ég muni ekki eiga mjög
erfitt með að komast að niðurstöðu
í málum. Þetta er starf sem mér
fellur því vel við og ég hef hugsað
mér að vera í þar til ég kemst á
eftirlaun."
TEXTI:
GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR.
SRJOTT SKIPAST
VEÐURI LOFTI
1*
Mú er vetur genginn í garð og viljum
við beina því til viðskiptavina okkar, að
ganga vel frá vörum sínum til flutnings
til að fyrirbyggja skemmdir.
Þótt hitastig í vörugeymslum okkar
fari ekki niður fyrir frostmarK eru oft
vörusendingar sem ekki þola mikla hita-
breytingu. Þess vegna er nauðsynlegt að
nálgast þær sem fyrst éftir komu skips,
því sumar vörur eru geymdar úti og/eða
í gámum.
Frostlög skyldi að sjálfsögðu setja í
kælivatn véla og tækja sem geymd eru
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A-SlMI 698100/28200
Ð
Myndþerapía
Verklegt námskeið hefst í byrjun nóvember.
Myndlistarkunnátta óþörf.
Með myndsköpun, myndskoðun og um-
ræðum fær þátttakandi æfingu í:
• Skapandi hugmyndaflugi
t Frumkvæði
• Innlifun
t Sjálfstjáningu
t Mannlegumsamskiptum
t Sjálfskoðun (tilfinningar, viðhorf og hegðun)
t Skoðun á ríkjandi ástandi
t Úrvinnslu
Leiðbeinandi vérður Sigríður Björnsdóttir
(löglegur aðill að The Britlsh Association of Art Therapists).
Innritun og nánari upplýsingar í
síma 17114 flest kvöld og morgna.
N A M S K E I
HEMIAHWTIR í VÖRUBÍLi
• Hemlaboröar í alla
vörubíla.
• Hagstætt verð.
• Betri ending.
®] Stilling
Skeifunni 11,108 Reykjavík
Símar 31340 & 689340