Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
Borgaraflokk-
urinn og NATO
eftir Júlíus Sólnes
í Morgunblaðinu 17. desember
er fjallað um Borgaraflokkinn og
NATO í fréttaskýringardálknum
Staksteinum. Þar er reynt að læða
þeirri hugsun inn hjá lesendum
blaðsins, að Borgaraflokkurinn sé
í raun andvígur þátttöku íslendinga
í NATO þrátt fyrir yfirlýsta stefnu
Borgaraflokksins um hið gagn-
stæða. Að mati Morgunblaðsins er
Borgaraflokkurinn sem úlfur í sauð-
argæru. Flokkurinn sé á móti
NATO, en reyni að fela þá afstöðu.
Blaðamanni Morgunblaðsins þótti
því sem hann hefði dottið í lukku-
pottinn, komizt í feitt, þegar hann
tók eftir því, að þingmenn Borgara-
flokksins sátu hjá við atkvæða-
greiðslu um tillögu frá Steingrími
J. Sigfússyni, þingmanni Alþýðu-
bandalagsins, um að lækka flárveit-
ingar vegna þátttöku íslands í
NATO frá tillögu meirihluta fjár-
veitinganefndar.
Þessir tilburðir Morgunblaðsins
til að gera stefnu Borgaraflokksins
Júlíus Sólnes
„Greiddum við því
ýmist atkvæði með til-
lögunum eða sátum hjá.
Varðandi tillöguna um
lækkun fjárveitingar
vegna þátttöku okkar í
NATO sátum við hjá,
þar sem við studdum
hana ekki.“
í vamarmálum tortryggilega virka
hjákátlegir. Rétt er samt að rejma
að skýra út fyrir ritstjóm blaðsins
hvers vegna þingmenn Borgara-
flokksins sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna, án þess að það hafi hið
minnsta með afstöðu flokksins í
vamarmálum að gera. Það þarf
vart að skýra þetta út fyrir lesend-
rðss°n
Skjaldborg,
HOLMGARÐI 34, REYKJAVÍK Simar: 672400 - 672401 - 31599
um blaðsins, en til vonar og vara
er óskað eftir birtingu á þessu
greinarkomi.
Við atkvæðagreiðslu um fjöldann
allan af breytingartillögum við
frumvarp til fjárlaga, sem fór fram
í Sameinuðu þingi mánudaginn 12.
desember sl., greiddum við þing-
menn Borgaraflokksins atkvæði
með ýmsum tillögum, sem við vild-
um styðja, bæði frá stjóm og
stjómarandstöðu. Hér var um að
ræða ýmis framlög til menningar-
mála, líknarmála og íþrótta- og
æskulýðsstarfs. Einkum var um að
ræða tillögur frá stjómarandstöðu-
flokkunum, því fjárlagafrumvarpið,
fyrir utan það að vera eitt mesta
skattlagningarfrumvarp, sem séð
hefur dagsins ljós á Alþingi, fyrr
eða síðar, ber þess merki, að stjóm-
arflokkamir hafa lítinn áhuga fyrir
menningu og íþróttastarfi. Hvað
varðaði tillögur meirihluta flárveit-
inganefndar tókum við þá afstöðu
að sitja hjá við atkvæðagreiðslu
vegna þeirra. Við viijum ekki bera
ábyrgð á íjárlagafrumvarpi ríkis-
stjómarinnar, enda eiga mörg kurl
eftir að koma til grafar, þegar verð-
bólgan kemst í gang á næsta ári,
við óheyrilegar nýjar skattaálögur
á almenning og fyrirtækin í landinu.
Við sáum ekki ástæðu til þess
að greiða atkvæði gegn hinum
ýmsu tillögum, þar sem við áttum
erfítt með að meta hvað væm sann-
gjamar fjárveitingar til hinna ýmsu
liða. Greiddum við því ýmist at-
kvæði með tillögunum eða sátum
hjá. Varðandi tillöguna um lækkun
fjárveitingar vegna þátttöku okkar
í NATO sátum við hjá, þar sem við
studdum hana ekki.
Miðað við það, að þingmenn
Borgaraflokksins hafa oft á tíðum
lýst yfír eindregnum stuðningi
sínum við vamarbandalag vest-
rænna þjóða og þátttökuna í NATO,
virka þessar tilraunir Morgunblaðs-
ins til að rýra Borgaraflokkinn
hálfmáttlitlar. Einkum ef það er
rifjað upp, að fulltrúi Borgara-
flokksins í utanríkismálanefnd
Alþingis var á sínum tíma fram-
kvæmdastjóri undirskriftasöfnun-
arinnar „Varið land“. Hins vegar
kann að vera, að það fari í taugam-
ar á Morgunblaðinu, að Borgara-
flokkurinn hefur sjálfstæða stefnu
í vamarmálum. Borgaraflokkurinn
telur m.a., að það sé hægt að tala
við Bandaríkjamenn á jafnréttis-
grundvelli og semja við þá um
ýmis atriði varðandi framkvæmd
vamarsamningsins, sem betur
mætti fara. Borgaraflokkurinn tek-
ur ekki undir þá vamarmálastefnu
Morgunblaðsins, sem oft birtist í
blaðinu með þeim hætti, að menn
em ávítaðir fyrir það að dirfast að
ætla sér að tala við Bandaríkjamenn
og vilja_ semja við þá um eitt eða
annað. íslendingar eiga að hneigja
sig í hvert sinn, sem Bandaríkja-
mönnum þóknast að tala við okkur
um vamarmál og vera ekki að ybba
okkur eins og óþægir krakkar.
Sannleikurinn er hins vegar sá, að
fáir em eins sanngjamir og réttsýn-
ir í öllum samskiptum og Banda-
ríkjamenn. Þeir eiga erfltt með að
skilja þá sem ekki þora að tala við
þá.
Ég leyfi mér að vona, að Morgun-
blaðið hafí nú endanlega skilið
stefnu Borgaraflokksins í vamar-
1 málum, en hún er í stuttu máli sú,
að ísland er í NATO. Þeirri stað-
rejmd hefur Borgaraflokkurinn ekki
í hyggju að brejita. Morgunblaðinu
væri nær að hafa áhyggjur af þátt-
töku Sjálfstæðisflokksins í ríkis-
stjóm, sem lætur fastafulltrúa sinn
hjá Sameinuðu þjóðunum greiða
atkvæði með afvopnunartillögu
Tékka og Úkraínumanna, sem allir
aðrir fulltrúar vestrænna þjóða
greiddu atkvæði gegn.
Höfundur er formaður þmgflokke
Borgaraflokksins.
Cterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiðili!
Jltarguttto<iM&