Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
B 9
Fjögurra landa keppni
unglingalandsliða í skák
SKÁK
Karl Þorsteins
Aðeins hársbreidd
skorti í sigursætið
Einungis einskær óheppni
ásamt reynsluleysi kom í veg fyr-
ir íslenskan sigur á móti unglinga-
landsliða íslands, Danmerkur,
Noregs og Svíþjóðar í skák, sem
haldið var í Sandnesi í Noregi
dagana 11. til 13. desember sL
Þegar lokaumferðin hófet hafði
íslenska sveitin V2 vinning í for-
skot á undan sænsku sveitinni og
þeirri norsku. Baráttan var því
æsispennandi þegar síðasta um-
ferðin gekk í garð og sest var
andspænis hinum sænsku kepp-
endum. Þegar átta skákum af tíu
var lokið hafði sigur hlotist í
tveimur skákum, hjá Amari Þor-
steinssyni og Hannesi Hlífari, en
ósigramir vom þrír. í hinum
tveimur óloknu skákum stóðu þeir
Andri Áss og Héðinn, á hinn bóg-
inn báðir betur að vígi. Sigur hjá
öðmm þeirra hefði nægt til að
tryggja sigursætið, en því miður
tókst þeim ekki að viðhalda frum-
kvæðinu og jafntefli varð niður-
staðan, eftir harðvítuga baráttu.
Sænska sveitin stóð þvf upp,
sem sigurvegari hlaut 16 vinninga
í skákunum 30. Lokastaðan í
keppninni varð annars þessi:
1. Svíþjóð 16 vinningar.
2. ísland 15V2 v.
3. Danmörk 14V2 v.
4. Noregur 14 v.
Keppnin kom upp með stuttum
fyrirvara, og var haldin í tilefni
10 ára afmælis Norska æskulýðs-
sambandsins. Keppendur vom á
aldrinum 20 ára og yngri og var
skiptingunni þannig hagað, að á
sex efetu borðunum glímdu kepp-
endur fæddir 1967 og síðar, en
keppendur fæddir 1971 og síðar
sátu við stjómvölinn á neðstu fjór-
um borðunum. íslenska sveitin var
skipuð eftirfarandi: Þröstur Þór-
hallsson, Andri Áss Grétarsson,
Davíð Ólafeson, Tómas Bjömsson,
Amar Þorsteinsson, Snorri G.
Bergsson^ Hannes Stefánsson,
Þröstur Ámason, Sigurður Daði
Sigfússon og Héðinn Steingríms-
son.
í heild var árangurinn mjög
góður, ekki síst þegar tekið er
tillit til að allir sterkustu ungling-
ar hinna skandinavisku þjóða vom
mættir í slaginn. Norska sveitin
skartaði þannig stórmeistaranum
Simen Agderstein og alþjóðlegu
meistaramir Ferdinand Hellers
frá Svíþjóð og Lars Bo Hansen
frá Danmörku vom einnig meðal
þátttakenda. Keppnin var í heild
mjög jöfh eins og sjá má í töflu.
Hannes H. Stefánsson og
Þröstur Ámason vom fengsælast-
ir íslensku keppendanna, hlutu
báðir 2V2 vinning í skákunum
þremur. Vitaskuld hefðu þeir báð-
ir átt tilkall til hærri borðaröðunar
hefðu alþjóða eloskákstigin verið
látin ráða, en sökum hinna sér-
stæðu reglna sátu þeir á 7. og
8. borði. Andri Áss, Davíð og
Amar Þorsteinsson hlutu allir 2
vinninga, en hinir færri.
Aðstæður vom að sögn gest-
gjöfunum tíl sóma í hvívetna.
Keppnin tókst líka vel tíl,
skemmtilegar baráttuskákir litu
dagsins ljós, og er vonandi að
áframhald verði á keppninni á
komandi árum. Nægur efniviður
er líka tíl staðar, hér á landi, til
að standa a.m.k. jafnfætis sterk-
ustu keppendum grannþjóðanna.
Liðsstjórar í ferðinni vom þeir
Ólafur H. Ólafeson og Jón G.
Briem.
Það er einkennandi fyrir dreng-
ina í skáksveitinni að tefla af
mikilli djörfung og sjaidan hvikað
frá áætluninni og peðsútlát eða
aðrar fómir því daglegt brauð.
Við sjáum hér tvö dæmi úr skák-
um þeirra, 0g svo skemmtilega
vill til að í báðum skákunum em
örlög andstæðinganna ráðin í 17.
leik.
Hvítt: Davíð Ólafsson.
Svart: R. Djurhuus (Noregi).
Frönsk vörn.
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. e5 —
c5, 4. c3 - Rc6, 5. Rf3 - Bd7,
6. Be2 - f6, 7. 0-0 - fxe5, 8.
Rxe5 — Rxe5, 9. dxe5 — Dc7,
10. c4 — d4?!. (Vafasamt er að
gefa eftir spennuna á miðborðinu.
I mótsblaðinu er stungið upp á
10. 0-0-0) 11. f4 - 0-0-0, 12. a3
- Kb8, 13. Bd3 - Rh6,14. Rd2
- Be7, 15. Re4 - ka8, 16. Del
- Bc6?!, 17. b4!
(Með hnitmiðuðum leikjum hefur
hvítur öðlast yfirburðastöðu.) 17.
- cxb4, 18. axb4 — Bxe4, 19.
Dxe4 — Bxb4? (Ekki getur það
talist gæfulegt að opna allar línur
fyrir hvitu hrókana í átt að svarta
kónginum, enda hlýtur eitthvað
að láta undan síga.) 20. Hf2! —
Dc6, 21. Hfa2 - Bc5, 22. Ba3
- Bb6, 23. c5 - Bc7, 24. Bb4
- Bb8, 25. Ba5 - Dx5, 26. Bxd8
- Hxd8, 27. Hb2 - Hd5, 28.
Habl - b6, 29. Hc2 - Da5, 30.
Bb5 ög svartur gafst upp, enda
er meira liðstap framundan.
Hvitt: Petter Fossan (Noregi).
Svart: Tómas Björnsson.
ítalskur leikur.
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3.
Bc4 - Rf6, 4. d4 - exd4, 5. 0-0
- Rxe4, 6. Hel - d5, 7. Bxd5
- Dxd5, 8. Rc3 — Da5, 9. Rxe4
- Be6, 10. Reg5 - 0-0-0, 11.
Rxe6 — fxe6, 12. Hxe6 — Bd6,
13. Bg5 - Hdf8, 14. Bh4 -
Dd5, (14. - Dh5!?) 15. De2 -
g5!?, 16. Bxg5 - Hhg8, 17.
Bh4??
(Versti afleikurinn í mótinu! segja
norskir blaðasnápar og halda
fram að eftir 17. h4 hafi svartur
engin mótfæri fyrir peðið. Vita-
skuld er slíkt mat rangt, en nú
vinnur svartur þvingað.) 17. —
d3! (Líklegast hefur Norðmannin-
um yfírsést þessi snjalli leikur, og
einungis reiknað með 17. — Hxf3?
18. He8+. Nú væri 18. cxd3 —
Rd4! banvænt hvítum, svo) 18.
c4 - Dxc4, 19. De3 - Hxf3, 20.
He8+ - Kd7, 21. DxfS - Hxe8,
22. Df5+ - De6, 23. Dxh7 -
Kc8, 24. Dxd3 - Del+, 25. Dfl
- De5, 26. g3 - Rd4, 27. Dh3+
— Kb8, 28. Dg4 — Dd5 og hvítur
gafst upp.
V
'Jtiumfih
I NTE RNATIONAL
STORKOSTLEGT URVAL
Triumph náttkjólar, náttföt, sloppar, greiðslusloppar,
sloppasett, trimmgallar, velúrgallar.
lympi
Laugavegi 26, sími 13300 — Glæsibæ, sími 31300.