Morgunblaðið - 19.12.1987, Síða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
MIKIÐ ÚRVAL
LOÐSKINNSHÚFGR
fyrir herra
ÁHEIT
TIL HJÁLPAR
Gírónúmer
6210 05
KRÝSUVfKURSAMTÖKIN
PVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVlK
S 62 10 05 OG 62 35 50
RAMMAGERÐ1N
HAFNARSTRÆTI 19 & KRINGLUNNI
Sendum í póstkröfu - símar 16277 og 17910
flö PIOIMEER
HUÓMTÆKI
s&M®*
róðravélarnar veita möguteiks a
TUNTURI æ''n9ah'0l,'?köldustu manublna
W^nhe,ma^^09^^te'ð"'
^narlyraSa^^^^na^llanlrW
Lejtið upplísina3’ lelö°e
Heimilistæki hf
SÆTUNI8 - SÍMI8915 00
f/cd t/uutvsvei^/cuéegi/o i s/muuftíjw*
Elísabet Benediktsdóttir verk-
efnisstjóri.
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Framsögumenn á borgarafundinum á Seyðisfirði.
Nýjar leiðir í byggða-
þróun á Seyðis-
firði og Egilsstöðum
Um 100 íbúar beinir þátttakendur
Enlsstöðum.
ÍBUAR Egilsstaða og Seyðis-
fjarðar hafa tekið höndum
saman um nýjar leiðir í byggða-
þróun með það að markmiði að
efla þessi byggðarlög i atvinnu-
legu og félagslegu tilliti og draga
úr ósjálfstæði þeirra á sem flest-
um sviðum. Aðferð þessi byggir
á að virkja íbúa þessara bæja til
þátttöku í starfshópum sem
vinna munu að þróun og úr-
vinnslu mismunandi hugmynda
og munu allt að 100 manns úr
þessum bæjum verða beinir þátt-
takendur £ þessu þróunarverk-
efni. Starfshópamir munu síðan
skila áliti sinu á sérstakri leitar-
ráðstefnu sem haldin verður í
hvora bæjarfélagi fyrir sig um
mánaðamót janúar/febrúar.
Átakaverkefni þetta á að standa
yfir i tvö ár og hefur Elísabet
Benediktsdóttir rekstrarhag-
fræðingur verið ráðin verkefnis-
stjóri þann tíma. Þróunarverk-
efni þetta hefur gengið undir
heitinu Átaksverkefnið Seyðis-
fjörður — Egilsstaðir og er
kostað að hálfu af Byggðastofn-
un á móti bæjarféiögunum sem
taka þátt í því. Átaksverkefnið
var kynnt á borgarafundum á
báðum stöðunum helgina 12.—13.
desember. Þar gerðu framsögu-
menn úr röðum bæjarfulltrúa
ásamt iðnfulltrúanum á Austur-
landi og verkefnisstjóra grein
fyrir framkvæmd verkefnisins
og væntingum sínum til þess. Að
loknum framsöguerindum tóku
íbúar bæjanna virkan þátt í um-
ræðum um þetta samstarf og
atvinnu- og félagsmál.
Axel A. Beck iðnráðgjafi Austur-
lands útskýrði á fundunum af
hveiju þetta ákveðna form hefði
verið valið en hann dvaldist um tíma
í Noregi og kynnti sér mismunandi
aðferðir byggðaþróunar þar í landi
en þessi aðferð hefur gefist vel þar
og íbúamir tekið virkan þátt í þess-
um verkefnum. Og þó margt sé
ólíkt í Noregi og á íslandi, m.a.
langur vinnutími hér á landi, er það
álrt manna að þessi aðferð muni
henta vel við þær aðstæður sem
ríkja á Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Verkefni þessu má skipta upp í
þrjú stig þar sem fyrsta stigið er
fylgisöflunarstig og beinist að und-
irbúningi, kynningu og hvatningu.
Annað stigið má kalla hugmynda-
stig og nær það hápunkti sínum
með leitarráðstefnu sem haldin
verður á báðum stöðunum í janúar
eða febrúar n.k. Þriðja og síðasta
stigið beinist að starfí að þeim verk-
efnum sem út úr leitarráðstefounni
koma. Fyrsta skrefið í þessu Átaks-
verkefoi var stigið með borgara-
fundunum þar sem auk kynningar
á verkefoinu var valinn vinnuhópur
einn á hvorum stað, sem í samvinnu
við verkefaisstjórann mun velja
þátttakendur til starfa við þetta
verkefai. Þátttakendur verða valdir
f nokkra aðalhópa sem flestir eiga
að tengjast atvinnulífinu á þessum
stöðum. Einnig verða valdir hópar
sem ekki tengjast atvinnulífínu
beint. Þannig er t.d. gert ráð fyrir
sérstökum hóp er §alli um málefai
kvenna og öðrum unglingahópi.
Gert er ráð fyrir að myndaðir verði
a.m.k. 6 starfshópar með 5—7 þátt-
takendum í hveijum. Alls má þvf
gera ráð fyrir að allt að eitthundrað
íbúar þessara bæja taki beinan þátt
í þessu þróunarverkefai.
Starfshópar þessir munu starfa
saman að ákveðnu verkefai og hitt-
ast tvisvar til þrisvar sinnum fyrir
leitarráðstefauna en á henni mun
hver starfshópur leggja fram niður-
stöður sínar tíl umræðu og ákvörð-
unar.
Markmiðið er að hópamir reyni
að mynda sér skoðun á því hvemig
þróunin verði í framtíðinni og hvaða
vonir em bundnar við framtíð þess-
ara byggðarlaga og vinna út frá
því að þessar vonir rætist. Þannig
eiga þessir hópar möguleika á að
láta eigin ákvarðanir koma í stað
ákvarðana sem teknar era annars-
staðar.
Að loknum síðari borgarafundin-
um sem haldinn var á Seyðisfirði
hitti fréttaritari Elísabetu Bene-
diktsdóttur verkefaisstjóra og
kvaðst nú full bjartsýni eftir þessa
kynningarfundi. Mæting hefði verið
allgóð og fólk verið fullt áhuga.
Ibúamir gerðu sér grein fyrir að
með þessu Átaksverkefni gæfist
þeim tækifæri tíl að nálgast verk-
efain og leysa þau út frá sínum
sjónarmiðum og með sínum að-
ferðum. Þetta væri nýtt fyrir fólki
en það væri greinilega tilbúið til
að takast á við þetta og hvatti Elísa-
bet að lokum alla sem vildu verða
þátttakendur í þessu verkefai til að
skrá sig hjá undirbúningsnefadun-
um, hver á sínum stað.
— Björa