Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 17

Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987 B 17 Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjan að Kletti: Litlar skemmdir þegar ofn ofhitnaði „ÞAÐ urðu ekki miklar skemmd- ir hjá okkur þegar ofninn of- hitnaði. Nokkurt magn af nyöli eyðilagðist, en ofninn sjálfur er óskemmdur," sagði Aðalsteinn Þórðarson, verkstjóri hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni að Kletti. Bræðsluofninn ofhitnaði skömmu eftir miðnætti aðfara- nótt fimmtudags og varð af mikill reykur og megn fnykur. Aðalsteinn sagði að lega í blás- ara, sem dregur mjölið út úr þurrkaranum, hefði brotnað. „Þeg- ar blásarinn stöðvaðist þá valt mjölið á sama stað og ofhitnaði á mjög skömmum tíma. Okkur tókst hins vegar fljótlega að slökkva f ofninum með því að hleypa inn í hann gufu. Þetta var alls ekki eins alvarlegt og mönnum virtist, en það myndaðist mjög mikill reykur af mjölinu. Skemmdir urðu litlar og oftiinn sjálfur óskemmdur með öllu,“ sagði Aðalsteinn Þórðarson, verkstjóri. Skáldsaga utnKassöndru KASSANDRA nefnist skáldsaga eftir Christu Wolf sem bókafor- lag Máls og menningar hefur sent frá sér. í kynningu útgefanda segir m.a. um efni bókarinnar: „Kassandra er persóna úr fomgrískum sögum sem heillað hefur sagnaskáld og harm- leikjahöfunda síðan á dögum Hómers. Hún var dóttir Príamosar konungs í Tróju og guðimir höfðu gefíð henni spádómsgáfu, en jafn- framt lagt á hana að enginn skyldi trúa spásögnum hennar. Það gekk eftir. Hún sagði fyrir um herför Grikkja og eyðingu Tróju en enginn lagði trúnað á orð hennar. Trója féll og Agamemnon, foringi Grikkja, flutti Kassöndru með sér í herfanginu til heimaslóða. Sú för varð þeim báðum afdrifarík. Christa Wolf fer með þetta efni á frumlegan hátt. Hún segir söguna frá sjónarhóli Kassöndm sjálfrar og tekst um leið að færa hinn foma heim nær nútíma lesendum." Kassandra er þýdd af Jómnni Sigurðardóttur sem einnig ritar eft- irmála. Bókin er 154 bls. að stærð, prentuð í Prentstofu G. Benedikts- sonar. Sigurborg Stefánsdóttir sá um hönnun kápu. flD PIOIMEER ÚTVÖRP NIPPARTS Það er sama hverrar þjóðar bíllinn er. Við eigum varahlutina. EIGUMÁ LAGER: kúplingar,kveikjuhluti;bremsuhluti, STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS, BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl. KREDITKORTA ÞJÓNUSTA Úrvals varahlutir BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 NÝ BÓK! NÝTT LISTAVERK! ú bætist sjöunda verkið viö bókaflokkinn íslensk myndlist. Bókin fjallar um Tryggva Ólafsson listmálara. Thor Vilhjálmsson rekur saman líf hans og list með þeirri orðkynngi sem honum er lagin og Halldór B. Runólfsson skilgreinir listferil Tryggva. m ryggvi Ólafsson er úr hópi þekktustu, núlif- andi myndlistarmanna íslenskra. í myndum hans speglast lífsreynsla og skoðanir íslend- ingsins sem dvalist hefur langdvölum erlendis og orðið fyrir þroskandi áhrifum utan úr hin- unt stóra heimi. w ri bókinni eru litprentanir 46 málverka eftir Tryggva auk teikninga, klippimynda og fjöl- margra ljósmynda úr lífi hans og starfi. Bókin um Tryggva Ólafsson er sannkallaður hvalreki á fjörur listunnenda enda ættu þeir að bæta henni'sem fyrst við bókasafnið. Rat Eir Jóh. Jóha Ásgrímur í Sr Sm Brk Gcir Jónsson LÖGBERG LISTASAFN ASÍ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.