Morgunblaðið - 22.01.1988, Blaðsíða 3
fiópf ffp ft{/ /ií. ŒdAAPWKWOT/
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988
cr C*
B 3
Bylgjan: Meðöðrum morðum ■■■■ í dag verður endurfluttur 1. þáttur svakamálaleikritsins -| H 00 Með öðrum morðum sem er í ótal þáttum en fyrsti þáttur- A ■ inn heitir Morð eru til alls vís. í þættinum er fylgst með einkspæjaranum Harry Röggvalds og hinum hundtrygga aðstoðar- manni hans Heimi Schnitzel er þeir leysa hvert svakamálaleikritið af öðru. Þeir Öm Ámason, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigutjóns- son semja leikritið, en þættir þess em frumfluttir á sunnudögum og endurfluttir næsta laugardag á eftir.
Rás2: Djassdagar Ríkisútvarpsins ■■■■ I kvöld verður leikið efni frá djassdögum Ríkisútvarpsins ■j rj 00 °g verður leikið efni sem ekki var sent út á djassdögunum -*- • á sínum tíma. Fram koma Djasskvintett Sifóníunnar, Jazz- band Kópavogs, Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri og gítarleikar- amir Jón Páll Bjamason, Friðrik Karlsson og Hilmar Jensen, bassaleikaranir Birgir Bragason og Tómas R. Einarsson og Pétur Grétarsson trommuleikari.
•
| I
Atríði úr Brúnni yfir Kwaifljótið. Sjónvarpið: Brúin yfir Kwaifljótið Á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld er breska óskarsverðlauna- Q "1 50 myndin Brúin yfír Kwaifljótið. Myndin, sem gerð var 1957, ^ A “” segir frá yfirmanni í breska hemum sem lendir í fangabúð- um Japana í heimsstyijöldinni siðari. Honum er falið að smíða brú yfir fjót eitt ásamt öðmm herföngum til að auðvelda Japönum her- flutninga í frumskóginum. Hann lætur skylduræknina villa sér sýn og leggur sig allan fram um að gera brúna eins vel úr garði og unnt er. Aðalahlutverk leika Alec Guinness, William Holden, Jack Haw- kins og Sessue Hayakawa.
Stöð2: Þögn hafsins ■HBB I Fjalakettinum á Stöð 2 í dag verður sýnd franska kvik- 1 A 00 niyndin Þögn hafsins (La Silence de la Mer) sem Jean Pierre Melville gerði 1949 eftir bók andspymuhöfundarins Vercors sem náði miklum vinsældum. Myndin þykir meða annars merkileg fyrir að hafa markað þáttaskil í myndgerð skáldsagna. Með aðalhlutverk í myndinni fara Howard Vemon og Nicole Stéphane.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST í
Söfn
Arbæjarsafn
(vetur verður safnið opið eftir samkomu-
lagi.
Ámagarður
(vetur geta hópar fengið að skoða hand-
ritasýninguna i Árnagaröi ef haft er
samband við safnið með fyrirvara. Þar
má meðal annars sjá Eddukvaaði, Flateyj-
arbók og eitt af el$tu handritum Njálu.
Ásgrímssafn
Ásgrímssafn við Bergstaðastræti er opið
þri. fim. og sun. frá klukkan 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Um þessar mundir stendur yfir í Ásmund-
arsafni sýningin Abstraktlist Ásmundar
Sveinssonar. Þar gefur að líta 26 högg-
myndir og 10 vatnslitamyndir og teikning-
ar. Sýnihgin spannar 30 ára tímabil af
ferliÁsmundar, þanntíma sem listamað-
urinn vann að óhlutlægri myndgerð. (
Ásmundarsafni erennfremurtil sýnis
myndband sem fjallar um konuna í list
ÁsmundarSveinssonar. Þá eru til sölu
bækur, kort, litskyggnur, myndbönd og
afsteypurafverkum listamannsins. Safn-
ið er opiö daglega frá kl. 10 til 16.
Skólafólk og aðrir hópar geta fengið aö
skoða safnið eftir umtali.
Hafrannsóknarstofnun
Sjóker með algengustu fjörulífverunum
og veggspjöld með upplýsingum um lifið
í sjónum hefur verið komið fyrir í and-
dyri Hafrannsóknarstofnunar, Skúlagötu
4. Hægt erað fá að skoða kerið á virkum
dögum frá kl. 9.00—17.00. Barnaheimil-
um og skólum sem hafa áhuga skal
bent á að láta vita með dags fyrirvara í
síma 20240.
Listasafn Einars
Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonarerlokað í
janúar. Höggmyndagarðurinn eropinn
daglega frá kl. 11.00—17.00.
Myntsafnið
Myntsafn SeðlabankaJÞjóðminjasafns er
í Einholti 4. Þar er kynnt saga íslenskrar
peningaútgáfu. Vöruseðlarog brauð-
peningarfrá síðustu öld eru sýndir þar
svo og oröur og heiðurspeningar. Líka
er þar ýmis forn mynt, þæöi grisk og
rómversk. Safniö er opiö á sunnudögum
millikl. 14og 16.
Náttúrugripasafnið
Náttúrugripasafnið ertil húsa að Hverfis-
götu 116, 3. hæð. Þar má sjá sýnishorn
af íslenskum og erlendum steintegund-
um og íslenskum bergtegundum. Úr
lifríkinu eru krabbadýr, lindýr, skrápdýr,
spendýr og fuglar, þ. á m. geirfuglinn
og risaskjaldbaka. Þá eru elnnig þurrkuð
sýni af flestum íslenskum blómaplöntum
og algengustu lágplöntum s.s mosum,
fléttum og þörungum.
Safnið er opið virka daga frá kl. 9.00—
17.00.
Náttúrufræðistofa
Kópavogs
Náttúrfræðistofa Kópavogs er við Digra-
nesveg 56,jarðhæö. Þarstenduryfir
sýning á lifríki Kársnessfjöru. Á sýning-
unni gefur að líta margar tegundir
botnlægra þörunga sem finnast í fjörum
og hryggleysingja. (skeljasafni Náttúru-
fræðistofunnar er að finna flestar tegund-
ir lindýra meö skel sem finnast við ísland.
Safnið er opið á laugardögum frá kl.
13.30-16.30.
Póst-og
símaminjasafnið
(gömlu símstöðinni í Hafnarfirði er núna
póst- og slmaminjasafn. Þar má sjá fjöl-
breytilega muni úr gömlum póst- og
símstöðvum og gömul símtæki úr einka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safnið á öðrum timum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð í síma 54321
Sjóminjasafnið
í sjóminjasafninu stenduryfirsýning um
árabátaöldina. Hún byggir á bókum
Lúðviks Kristjánssonar „íslenskum sjáv-
arháttum". Sýnd eru kort og myndir úr
bókinni, veiðarfæri, líkön og fleira. Sjó-
minjasafnið er að Vesturgötu 6 i Hafnar-
firöi. Það er opið í vetur um helgar
klukkan 14-18 og eftir samkomulagi.
Siminner 52502.
Þjóðminjasafnið
16. janúar var opnuð i anddyri Þjóðminja-
safnsins sýnlng á fornleifum sem fundust
við uppgröft á Bessastöðum sl. sumar.
Þjóðminjasafnið er opið þriðjudaga,
fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga
frá 13.30-16. Þarerumeöalannarssýnd-
ir munir frá fyrstu árum (slandsbyggðar
og islenskalþýðulistfrá miðöldum. Einn-
ig er sérstök sjóminjadeild og land-
búnaðardeild.
Leiklist
Leikfélag Reykjavíkur
Bandaríski gamanleikurinn „Algjört rugl"
er sýnt í iðnó föstudaginn 22. janúar kl.
20.30.
„Algjört rugl" er eftir ungan bandarikja-
mann, Christopher Durang. Verk hans
hafa hlotiö athygli og unnið til verölauna,
en þau eru öll flokkuö sem gamanleikir,
nánartiltekið „svartarkómedíur". Leik-
stjóri er Bríet Héðinsdóttir, en meðal
leikenda eru Kjartan Bjargmundsson,
Valgerður Dan, Guðrún S. Gisladóttir,
Harald G. Haraldsson, Jakob Þór Einars-
son og Þröstur Leó Gunnarsson.
Leikmynd gerir Karl Aspelund.
„Hremming" eftir Barrie Keefe verður
sýnt laugardaginn 23. janúar kl. 20.30 í
Iðnó.
Söngleikurinn „Síldin er komin" eftir Ið-
unni og Kristínu Steinsdæturverður
sýndur í Leikskemmu L.R. við Meistara-
velli föstudaginn 22. janúar og laugar-
daginn 23., báða dagan kl. 20.00.
Söngleikurinn er að stofni til hið sama
og verk þeirra systra „Síldin kemur, síldin
fer" sem Leikfélag Húsavíkur sýndi sl.
vetur. Veigamiklar breytingar hafa þó
verið gerðar á texta leikritins auk þess
sem Valgeir Guðjónsson samdi við það
tónlist og söngtexta. Hlíf Svavarsdóttir
og Auður Bjarnadóttir dansarar og dans-
höfundar stýra dansi og hreyfingum (
leikritinu. Hljómsveit undir stjórn Jóhanns
G. Jóhannssonarflyturtónlistina.
(„Síldinni" segirfrá lífinu i litlum síldarbæ
eina sumarstund á síldarárunum þegar
allir kepptust við að safna silfri og lifa
hátt. Brugðið er upp myndum af síldar-
stúlkum, kjaftakellingum, bílstjórum,
bændum, leynivínsölum, lögregluþjón-
SJÁ NÆSTU OPNU.
SKEMIVmSTADIR
ABRACADABRA
Laugavegur 116
Skemmtistaðurinn Abracadabra er op-
inn daglega frá hádegi til kl. 01.00.
Austurlenskur matur er framreiddur í
veitingasal á jaröhæöinni til kl. 22.30.
( kjallaranum er opið frá kl. 18.00 til
kl. 03.00 um helgpr og er diskótek frá
kl. 22.00. Enginn aðgangseyrir er á
fimmtudögum og sunnudögum. Síminn
er 10312.
ÁRTÚN
Vagnhöfði 11
I Ártúni leikur hljómsveitin Danssporið,
ásamt þeim Grétari og Örnu Þorsteins
á föstudagskvöldum, þegar gömlu
dansarnir eru og á laugardagskvöldum,
þegar bæði er um að ræða gömlu og
nýju dansana. Síminn er 685090.
BROADWAY
Álfabakki 8
Rokksýning „Allt vitlaust“ verður í Bro-
adway á og laugardagskvöld, auk þess
sem hljómsveitin Sveitin milli sanda,
leikur fyrir gesti. Síminn í Broadway
er 77500.
CASABLANCA
Skúlagata 30
Diskótek er í Casablanca á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 22.00 til
kl. 03.00. Á fimmtudagskvöldum eru
oft rokktónleikar.
wwmmwA
EVRÓPA
Borgartún 32
Hljómsveit hússins, Saga-Class, leikur
í Evrópu á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Síminn i Evrópu er 35355.
GLÆSIBÆR
Álfheimar 74
Hljómsveit hússins leikur í Glæsibæ á
■ föstudags-og laugardagskvöldum frá
kl. 23.00 til kl. 03.00. Siminn er 686220.
HOLLYWOOD
Ármúli 5
Leitinni að týndu kynslóöinni er hreint
ekki lokiö í Hollywood, þar sem bæði
hljómsveit af þeirri kynslóð sem og
diskótek týndu kynslóðarinnar er f
gangi á föstudags- og laugardags-
kvöld. Borðapantanir eru í síma
641441.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
skemmtir í Súlnasal á laugardagskvöld
frá kl. 22.00 til kl. 03.00.
Á Mímisbar er opið föstudags- og laug-
ardagskvöld frá kl. 19.00. Tríó Árna
Scheving skemmtir. Síminn er 20221.
HÓTEL BORG
Pósthússtrœti 10
Diskótek er á Hótel Borg á föstudags-
og laugardagskvöldum frá kl. 21.00 til
kl. 03.00 og á sunnudagskvöldum eru
gömlu dansarnir á sínum stað, frá kl.
21.00 til kl. 01.00. Síminn er 11440.
HÓTEL ÍSLAND
Ármúla
Söngleikurinn „Gullárin" er sýndur
laugardagskvöld á Hótel islandi. Dans-
leikur föstudags- og laugardagskvöld
til kl. 03.00.
SKÁLAFELL
Suðurlandsbraut 2
Á skemmtistaðnum Skálafelli á Hótel
Esju er leikin lifandi tónlist öll kvöld
vikunnar, nema á þriðjudagskvöldum.
Hljómsveitir leika um helgar. Skálafell
er opið alla daga vikunnar frá kl. 19.00
til kl.01.00. Siminn er 82200.
LENNON
Austurvöllur 0
Diskótek er í skemmtistaðnum Lennon
á föstudags- og laugardagskvöldumfrá
kl. 20.00 til kl. 03.00 og er þá enginn
aðgangseyrir til kl. 23.00. Aðra daga
er diskótek frá kl. 20.00 til 01.00.
Síminn er 11322.
UTOPIA
Suðurlandsbraut 26
Skemmtistaðurinn Utopia er til húsa
við Suðurlandsbrautina. Þar er 20 ára
aldurstakmark.
ÞÓRSCAFÉ
Brautarholt 20
í Þórscafé er skemmtidagskrá m.a.
með Lúdósextettnum og Stefáni fram
til miðnættis, en þá leikur hljómsveit
Stefáns P. fyrir dansi. Að auki eru
stundum gestahljómsveitir og diskótek
er í gangi á neöri hæðinni frá kl. 22.00
til kl. 03.00. Síminn er 23333.