Morgunblaðið - 22.01.1988, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.01.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988 B 5 Stöð2: IMærmyndaf Hermanni Pálssyni ■■■■I Á dagskrá Stöðvar 2 9040 í kvöld er nærmynd a£ Hermanni Páls- syni. Jón Óttar heimsækir Hermann í Edinborg og ræðir við hann um líf hans og störf. Hermann er Húnvetningur að uppruna en fór ungur til náms erlendis og hefur unnið mikið starf í þágu íslenskra fræða, einkum með rannsóknum sínum á fombókmenntum. Kenningar hans um íslendingasögur eru umdeildar og einatt á skjön við ríkjandi viðhorf og oft hefur staðið styrr um bækur hans og skrif, t.a.m. skrif um siðfræði Hrafkelssögu Freysgoða. Hann hefur og orðið til að vekja ýms- ar spumingar um sagnaarf íslendinga sem ekki er auðsvar- að. Hermann Pálsson Tónlistarkrossgátan ■■■■ Tónlistarkrossgátan er á sínum stað og nú í 96. skipti. 1 K 00 Umsjónarmaður hennar er sem fyrr Jón Gröndal og lausn- ir á að senda til Ríkisútvarpsins, rásar 2, Efstaleiti 1, 108 Reykjavík með árituninni Tónlistarkrossgátan. Sjónvarpið: 700. Stundin okkar ■■■■ Stundin okkar verður á dagskrá á sunnudag í 700. sinn 1 ö 00 frá 1966. Flestir þeir sem horfðu á Stundina okkar 1966 10“" eiga líklegast böm sem horfa munu á stundina í dag. Til hátíðarbrigða verða sýnd atriði úr gömlum stundum, en einnig kem- ur fram trúður sem sýnir töfrabrögð og syngjandi brúður. Umsjónar- menn þáttarins eru Helga Steffensen og Andrés Guðmundsson. Sjónvarpið: Úr Ijóðabókinni ■HH Bandaríska ljóðskáldið Thomas Steams Eliot var eitt 00 50 áhrifamesta ljóðskáld og bókmenntagagnrýnandi sinnar CíLj~~~ samtíðar og ljóðabálkur hans Eyðilandið, eða The Waste Land, olli straumhvörfum í engilsaxneskri ljóðagerð. Áhrif Eyðilands- ins bámst víða og þ. á m. til Islands eins og sjá má í ljóðum margra íslenskra atómskálda. í kvöld kl. 22.50 mun Sverrir Hólmarsson lesa þýðingu sína á fyrsta hluta Eyðilandsins og fjalla um ljóðið og höfund- inn í Sjónvarpinu. HVAÐ ER AÐO GERAST! Úr leikritinu Síldin kemur sem sýnt er f L.R. skemm- unni við Meistaravelli. um, sjómönnum, skipstjórum, sildar- kóngum, drykkjumönnum, dyggðugum sveitastúlkum og léttlyndum borgarpíum. Leikstjóri er Þórunn Siguröardóttir. Leik- arar eru Alda Arnardóttir, Andri Örn Clausen, Bryndís Petra Bragadóttir, Eg- gert Þorleifsson, Guðrún Marinósdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Hanna Maria Kartsdóttir, Hinrik Ólafsson, Hjálmar Hjálmarsson, Ingólfur Stefánsson, Jón Hjartarson, Jón Sigurbjömsson, Karl Guðmundsson, Kari Ágúst Úlfsson, Kjart- an Ragnarsson, Margrét HelgaJóhanns- dóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Pálína Jónsdóttir, Sigrún Edda Bjömsdóttir-t Soffía Jakobsdóttir, Valdimar Öm Flyg- enring.og Þór H. Túliníus. Hljómsveitina skipa Ámi Scheving, Birgir Bragason, Björgin Gíslason, Jóhann G. Jóhannsson, Pétur Grétarsson o.fl. Leikurinn „Þar sem Djöflaeyjan rís“ í leik- gerð Kjartans Ragnarssonar verður sýndur í Leikskemmu LR við Meistara- velli sunnudaginn 24. janúar. Dagur vonar eftir Birgi Sigurðsson verður sýndur sunnudaginn 24. janúar, en sýn- ingum á því verki fer óðum faekkandi. Þjóðleikhúsið Þjóðleikhúsið sýnir „Vesalingana", söngleik byggðan á samnefndri skáld- sögu eftir Victor Hugo, föstudaginn 22., laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. janúar kl. 20.00. Leikstjóri er Benedikt Ámason. LeikarareruÁðalsteinn Bergd- al, Anna Kristin Amgrimsdóttir, Ása Svavarsdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Egill ÓLafsson, Edda Heiðrún Backman, Ell- ert A. Ingimundarson, Erla B. Skúladóttir, Guðjón P. Pedersen, Helga E. Jósdóttir, Jóhann Sigurðarson, Símon Gunnarsson, Lilja Guörún Þorvaldsdóttir, Lilja Þóris- dóttir, Magnús Stein Loftsson, Ólöf Sverrisdóttir Pálmi Gestsson, Ragnheið- ur Steindórsdóttir, Randver Þorláksson, Sigrún Waage, Siguröur Sigurjónsson, Sigurður Skúlason, Sverrir Guöjónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Valgeir Skag- fjörð, Þórarinn Eyfjörð, ÞórhallurSigurðs- son og Öm Amason. Kari Aspelund gerði leikmynd og búninga. Uppselt er á sýningar af „Bílaverkstæði Badda" íjanúar. SJÁ NÆSTU OPNU. Líkamsrækt þarf ekki að kosta ARSKORT veíta aðgang að öllum sundstöðum Reykjavikur hvenær sem er, allt áríð. Kortin eru til sölu á sundstöðum og á skrifstofu íþrótta- og tómstundaráðs, Fríkirkjuvegi 11. Sækið um kort í afgreiðslunni, skilið mynd og greiðið gjaldið. Kortið verður afhent næsta dag á eftir gegn framvísun kvittunar. Verð á korti : Fullorð. Börn Janúar kr. 8.000,- kr. 3.000,- Febrúar kr. 7.300,- kr. 2.750,- Mars kr. 6.600,- kr. 2.500,- Apríl kr. 6.000,- kr. 2.250,- Maí kr. 5.300,- kr. 2.000,- Júní kr. 4.600,- kr. 1.700,- Júlí kr. 4.000,- kr. 1.450,- ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ Eítt kort hvar sem er!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.