Morgunblaðið - 22.01.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.01.1988, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 1988 MYIMDBÖND Á MARKAÐNUM Sæþjöm Valdimarsson Tonuny eftir Ken Russel Söngvaog dansmyndir II ALL THAT JAZZ ★ ★ ★ Leikstj.: Bob Fosse. All That Jazz er kannske ekki söngva- og dansmynd í algengustu merkingu þess orðs, hinsvegar ger- ist hún að mestu leyti á fjölum Broadway-leikhúsa. Við fylgjumst með Gideon (Scheider), einum fær- asta leikstjóranum vestra, keyra sig áfram á dópi og brennivíni uns hann nær toppnum. Myndin er sjálfsævisöguleg, flallar um snill- inginn Fosse, skrautlegt lífemi hans og geysilegan árangur á listasviðinu sem hann þurfti að greiða fullu verði. All That Jazz hefur oftar en einu sinni verið líkt við 8 V2, meist- ara Fellinis, ekki að ástæðulausu. Roy Scheider, Ann Reinking, Jessica Lang 1979. 123 mín. BEAT STREET ★ Leikstj.: Stan Lathan. Innantómur samsetningur, snið- inn utan um hið einstaka tískufyrir- brigði, rykkdans (breakdans). Söguþráðurinn fjallar um krakka sem em að reyna að hanga í skólan- um og er ósköp klénn. Hinsvegar em ungmennin með eindæmum flinkir dansarar og er bæði gaman og spaugilegt að fylgjast með ómennsku sprikli þeirra á gólfínu. Rae Dawn Chong, Guy Davis, Rob- ert Taylor, Jon Chardiet 1984. 106 mín. A CHORUS LINE ★ ★ V2 Leikstj.: Richard Attenborough. Byggð á einum vinsælasta Broadway-söngleik allra tíma. Kvikmyndagerðin hefur ekki tekist sem skyldi, er tæpast meira en svip- ur hjá sjón. Við fylgjumst með hópi dansara 1 hæfnisprófunum fyrir hlutverk í nýjum söngleik og fáum innsýn í bakgmnn þeirra. Leikstjóm Attenboroughs er losaraleg og svo er að sjá sem honum sé margt bet- ur lagið en að kvikmynda leik- húsverk (þó svo að Oh, What a Lovely War hafí tekist með ágæt- um). Michael Douglas, Alyson Reed, Terence Mann, Audrey Land- ers, Vicki Frederick, Nicole Fosse 1985. 120 mín. FOOTLOOSE ★ ★ Leikstj.: Herbert Ross. Hér er það rokkið sem hafíð er til skýjanna í líflegri mynd um stór- borgarstrák sem flytur útá lands- byggðina. Efnið ristir ekki djúpt en myndin er oftast skemmtileg fyrir eyru og áugu, einkum bráðhressi- legt og fyndið upphafsatriðið. Kevin Beacon, Lori Singer, John Lithgow, Christopher Penn, Dianne Wiest 1984. 107 mín. COAL MINER’S DAUGHTER ★ ★ ★ V2 Leikstj.: Michael Apted. Spacek hefur ekki í aðra tíð ver- ið betri en í hlutverki Lorettu Lynn í sjálfsævisögulegri kvikmynd um lygilegan feril hennar. Lynn braust úr bláfátækt og ómegð Appalachi- an-§ölskyldu í að verða vinsælasta sveitasöngkona N-Ameríku um langt árabil. Myndin er unnin af vandvirkni og trúnaði, myndir um þetta efni gerast ekki betri. Sissy Spacek, Tommy Lee Jones, Levon Helm, Beverly D’Angelo 1980. 122 mín. BEST LITTLE WHOREHOUSE IN TEXAS ★ ★ 1/2 Leikstj.: Colin Higgins. í þessari kvikmyndagerð vel þekkts Broadway-söngleiks er á gamansaman hátt fjallað um árekstra lögreglunnar og mellu- mömmu og pútna hennar í stofn- unni sem höfðað er til í titlinum Söngur og dans í léttavigt. Parton og Reynolds eru þó alls ekki án sjarma en Charles Duming stelur senunni í stuttu en drepfyndnu at- riði. Burt Reynolds, Dolly Parton, Dom De Luise, Charle Duming, Jim Nabors, Louis Nettleton 1982. 110 mín. CAN’T STOP THE MUSIC V2 Leikstj.: Nancy Walker. Látið ekki freistast til að taka þessa, þó svo að Perrine sé hin rennilegasta á kápunni! Ekki nóg með að fólk forðaðist myndina eins og heitan eldinn þá virðist hún og hafa gengið af hinum vinsæla söng- flokki The Village People, sem allt snýst um hér, steindauðum. Hvíl þú í friði. The Village People, Val- erie Perrine, Steve Guttenberg. LA BAMBA ★ ★ ★ (Væntanleg) Leikstj.: Luis Valdez. Lífleg og hröð hljómleikamynd um hina mexíkönskættuðu rokk- stjömu sjötta áratugarins, Richie Valens, sem, ef af móttökum mynd- arinnar má ráða, höfðar ekki síður til unglinganna í dag. Við fylgjumst með Valens síðustu mánuðina, eða frá því hann slær í gegn með titil- Iaginu og fleiri góðum, uns hann ferst, komungur í flugslysi. Dæmi- saga um að annað er gæfa en gjörvuleiki. Hljóðupptakan og tón- listin, sem er í höndum Los Löbos, er þmmugóð, sömuleiðis Philips í aðalhlutverkinu. Lou Diamond Philips, Esai Morales, Rosana De Soto, Elizabeth Pena 1987. 104 mín. WOODSTOCK ★ ★ ★ ‘/2 Leikstj.: Michael Wadleigh. Sígild hljómleikamynd sem á sinn fasta sess í bijóstum flestra sem „voru uppá sitt besta“ á sjöunda áratugnum. Er að auki stórmerkileg heimild um hegðun og klæðnað ungmenna þessa umbrotatima er gamlar hefðir og gildi hmndu eins og spilaborgir. En fyrst og fremst er það tónlistin sem myndin fjallar um. Hér em samankomnar fjöl- margar eftirsóttustu hljómsveitir og tónlistarmenn tímabilsins og ná þær sér vægast sagt misvel á strik. En sjón er sögu ríkari! Crosby, Stills, Nash and Young, Joan Baez, Ten Years After, Richie Havens, Jefferson Airplane, Joe Cocker, Sly and the Family Stone, Santana, Jimi Hendrix, ofl 1970. 180 mín. THE ROSE ★ ★ ★ Mark Rydell. Átakanleg mynd, byggð á skömmu lífshlaupi söngkonunnar Janis Joplin, sem lést af ofneyslu eiturlyfja langt um aldur fram. Reynt er að sýna í myndinni þau ljón sem em í veginum til frægðar- innar, gjaldið sem greiða þarf til að fanga hana og vágestir kynntir sem bíða ef á toppinn næst. Tónlist- in er feykigóð og sömuleiðis kvikmyndataka Vilmos Zsigmonds. Þá er myndin vel leikin í öllum þrem aðalhlutverkunum. Bette Midler, Alan Bates, Frederic Forrest 1979. 131 mín. TOMMY ★ ★ Leikstj.: Ken Russel. Að þessu sinni snýr hinn hálfóði kvikmyndagerðarmaður, Russel, sér að rokkinu. Ifyrir valinu varð poppóperan góðkunna eftir Pete Townshend og The Who um dreng- inn daufdumba sem síðar varð frelsari! Takmarkalaust hugmyndaflug og siðleg sem ósiðleg uppátæki koma við sögu og gera annaðhvort að hrekja áhorfandann frá tækinu eða líma hann við það. En leik- hópurinn er ekki af verri endanum! Ann Margret, Roger Daltrey, Jack Nicholson, Oliver Reed, Tina Tum- er, Elton John 1975. 110 mín. XANADU ★ J/2 Leikstj.: Robert Greenwald. Hér var treyst á nýja töfrafor- múlu: Dolby Xanadu var fyrsta dans- og söngvamyndin sem naut góðs af hinni byltingarkenndu hljóðtækni. En hvorki hún né New- ton-John (án Travolta) dugði til að koma gestum inní kvikmyndahúsin. Heldur vemmileg mynd í flesta staði, ævintýraglamor a la MGM á fjórða og fimmta áratugnum, en ekki nándar nærri eins vel ma- treiddur 1980. 88 mín. THANK GOD IT’S FRIDAY ★ Leikstj.: Robert Klane. Þær gerast vart þynnri en þetta, músíkmyndimar. Myndin segir frá einu kvöldi á diskótekinu og er það kvöldi of mikið! Leikhópurinn er þó ári forvitnilegur: Donna Summers, The Commodores, (með Lionel Ritc- hie), Debra Winger, Jeff Goldblum 1978. 80 mín. LITLA HRYLLINGSBÚÐIN ★ ★ ★ Leikstj.: Frank Oz. Bæði stórskemmtileg og vel unn- in kvikmyndagerð á söngleiknum samnefnda, sem hvarvetna gerði stormandi lukku. Hollywood-galdr- ar og hressilegur leikur, þar sem enginn sér við Steve Martin 1' hlut- verki „tanna“. Þó að Greene ofleiki nokkuð er myndin borðleggjandi stundargaman. Rick Moranis, Ellen Greene, Vincent Gardenia, Steve Martin, Jim Belushi, John Candy, Bill Murray, Christopher Guest. 1986. 90 mín. FAST FORWARD ★ 1/2 Leikstj.: Sidney Poitier. Níðþreytt og úr sér gengin for- múlumynd fyrir unglinga — semsé geram betur en allir aðrir og kom- umst á Broadway. Tónlistin er á köflum þokkaleg en annað ekki. John Scott Clough, Don Franklin, Tamara Mark 1985. 98 mín. Af öðram dans og söngvamynd- um sem til era á markaðnum en fjallað hefur verið um áður, má nefna: GIVE MY REGARDS TO BROAD STREET AV2 HAIR ★ ★ ★ JESUS CHRIST SUPERSTAR ★ ★ PURPLE RAIN ★ ★ ★ SATURDAY NIGHT FEVER ★ ★ V2 THE SOUND OF MUSIC ★ ★ ★ MARY POPPINS ★ ★ ★ STAYING ALIVE ★ WHITE CHRISTMAS ★ ★ V2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.