Morgunblaðið - 18.02.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1988
23
Morgunblaðið/Kristófer Már Kristinsson
íslensku gæðingamir við lokaathöfn landbúnaðarsýningarinnar
í Belgiu.
Islenskir hestar á
sýningu í Belgíu
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
UM síðustu helgi lauk árlegri
iandbúnaðarsýningu hér í
Brussel. Þetta var í 55. sinn sem
sýningin er haldin en að henni
standa auk bændasamtaka
framleiðendur búvéla og garð-
yrkjumenn.
Eigendum íslenskra hesta í
Belgíu var boðið að sýna gæðinga
sína við lokaathöfn sýningarinnar
á sunnudag, en það er í fyrsta
skipti sem íslenskir hestar eru
sýndir við það tækifæri sem hluti
af bústofni landsmanna. Mikil
áhersla var lögð á gangfimi
íslenska hestsins og greinilegt að
áhorfendum þótti hann ekki ónýt-
ur reiðskjóti þegar knaparnir svifu
hringinn á bullandi tölti með full-
ar ölkrúsir án þess að dropi færi
til spillis.
Um þessar mundir eru rúmlega
250 íslenskir hestar í Belgíu. Fé-
lag eigenda íslenskra hesta hér
átti tíu ára afmæli á síðasta ári
en innan j)ess starfa tæplega 100
manns. I tilefni afmælisins af-
henti íslenska landbúnaðarráðu-
neytið þeim íslenska fána til að
nota við tilefni sem þetta. Það var
skynsamleg ráðstöfun því það er
gkki á hveijum degi sem Belgar
eru minntir á ísland hvað þá með
svo skemmtilegum hætti sem
þessum. Látríkur fáninn fór vel
við tilþrif gæðinganna.
Samstarfsráðherrar Norðurlanda:
Betur verði fylgst
með starfi EFTA og EB
Á raðherrafundi norrænu sam-
starfsráðherranna, sem haldinn
var í Kaupmannahöfn 19. f.m.
voru ráðherramir sammála um
að á öllum sviðum norræns sam-
starfs yrðu menn að fylgjast bet-
ur með því sem væri að gerast á
sambærilegum sviðum innan
EFTA og Evrópubandalagsins.
Af þvi tilefni var samþykkt að
beina eftirfarandi tilmælum til
allra ráðherra í ríkisstjórnum
Norðurlanda:
„Að fulltrúar ráðherranna í hin-
um einstöku embættismannanefnd-
um á vegum ráðherranefndarinnar:
— skiptist á upplýsingum, eftir því
sem þörf krefur, og veiti upplýs-
ingar um afstöðuna til þróunar-
innar í EB og EFTA og milli
EB og EFTA,
— veki athygli á tilögum varðandi
innri markað EB, sem þykja fela
í sér sérstaka, sameiginlega
hagsmuni með tilliti til afleið-
inga viðkomandi tillagna fyrir
samstarfið milli EB og EFTA
og fyrir norrænt samstarf, til
dæmis, tillögur á sviði umhverf-
ismála, vinnuumhverfís, neyt-
endavemdar og fijálsrar um-
ferðar fólks og fjármagns,
— athugi á hvaða sviðum árangur
norræns samstarfs megi helst
nýta til þess að hafa áhrif á
þróunina í EB og hvemig best
verði að því staðið,
— geri sér grein fyrir árangri þeim,
sem náðst hefur í evrópsku sam-
starfí og meti á hvem hátt vinna
beri úr og nýta þann árangur í
norrænu samstarfi,
— gefi samstarfsráðherrunum
reglulega skýrslur og berist
fyrsta áfangaskýrslan fyrir
apríllok 1988.“
Bréf þessa efnis hefur Matthías
Á. Mathiesen ritað til ráðherra
ríkisstjómar íslands, en í lok bréfs-
ins segir:
„í norrænu samstarfi er málum
þessum sinnt af miklum þrótti og
hraða og búast má við því að af-
staða Norðurlanda til málsins verði
höfuð umræðuefnið á næsta Norð-
urlandaráðsþingi, og framvinda
mála í þessum efnum muni hafa
varanleg áhrif á samstarf þjóða
Norðurlandanna í framtíðinni."
FRÁ BÆR
HERRAFATNAÐUR
-+- smáhlutirnir sem
setja punktinn
yfir iiiiið!
KARAKTER
v/Bankastræti
SUMARBÚÐIRIENGLANDI
-íþróttir og enskunám-
Undanfarin ár hafa fjölmargir íslenskir krakkar
dvalið við leiki og nám í Beaumont sumarbúðunum
hluta úr sumri.
Beaumont sumarbúðirnar, sem eru víðs vegar
um England, eru fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-17
ára. Þangað koma krakkar úr öllum heimshornum og
dvelja í 1-4 vikur.
í Beaumont er krökkunum séð fyrir óþrjótandi
verkefnum við leiki og nám undir umsjón og öruggri
leiðsögh þrautþjálfaðra leiðbeinenda. Mikil áhersla er
lögð á íþróttaiðkanir.
í Beaumont þjálfast krakkarnir í að tala ensku í
daglegu lífi. Hluta hvers dags er auk þess varið í skipu-
legt enskunám.
KYNNIHGARFUNDUR Á HÓTEL SÖGU
Laugardaginn 20. febrúar kl. 14 verður sumar-
starf Beaumont í ár kynnt á Hótel Sögu, 2. hæð. Richard
Ryde deildarstjóri Beaumont segir frá starfinu, sýnir
myndbönd og svarar fyrirspurnum.
Einnig dreifum við nýjum Beaumont bæklingi á
íslensku og ferðabæklingi Úrvals ’88. Kaffi og kökur á
boðstólum fyrir 200 krónur á mann.
Beaumontfarar fyrri ára! Hittumst á kynningar-
fundinum og höfum myndirnar með okkur.
Gæti ekki verið tilvalið fyrir alla fjölskylduna að
slá saman og gefa dvöl í Beaumont sumarbúðum í
fermingargjöf?
YDDA F12.17/SIA