Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 1
MÁL ÍVARS WEBSTER/B 5.
V6RZUJNRRBRNKINN
-vitutmmtóftéfi!
Tækifæristékkareikningur
...með alltíeinu hefti!
Hraðlán og
Launalán
Auðveld og hröð lánafyrirgreiðsla
Eigendur TT-reiknings eiga kost á skuldabréfalán, að vissu hámarki.
Hraðláni, að ákveðnu hámarki. Hrað- Launalánið er til allt að átján mánaða
lánið er tveggja mánaða víxill. Þetta lán og er einnig afgreitt í afgreiðslu bank-
fæst afgreitt í afgreiðslu bankans án ans án heimsóknar til bankastjóra.
milligöngu bankastjóra. í þessu tvennu felst jafnt öryggi sem
Ennfremur eiga TT-reikningseig- tímasparnaður.
endur kost á Launaláni, sem er
1988
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ
BLAD
ENGLAND
Nottingham
Forest mætir
Liverpool
í bikamum
Nottingham Forest dróst gegn Liverpool í
undanúrslitum ensku bikarkeppnnnar í
knattspyrnu, er dregið var í gær. í hinni undanúr-
slitaviðureigninni mætast því Luton og Wimble-
don. Leikimir eiga að fara fram 9. apríl. í undan-
úrslitunum er aðeins einn leikur, á hlutlausum
velli, og mætast Forest og Liverpool á Hills-
borough í Sheffield, heimavelli Wednesday, og
leikur Luton gegn Wimbledon verður á White
Hart Lane í Lundúnum, heimavelli Tottenham.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
QPR vill kaupa Sigurð Jónsson frá Wednesday:
Wilkinson vill að Sigurður
verði áfram í Sheffield
„ÉG hef ekkert heyrt frá How-
ard Wilkinson, framkvæmda-
stjóra Sheffield Wednesday,
um að QPR hafi áhuga að fá
mig, en aftur á móti hefur
hann boðið mér nýjan samn-
ing. Það eins sem ég veit um
áhuga QPR, er það sem ég
hef lesið hér í blöðunum,"
sagði Sigurður Jónsson,
landsliðsmaður {knatt-
spyrnu. Blöð í Englandi sögðu
frá þvf á sunnudaginn, að
Lundúnarliðið hafi áhuga á
að fá Sigurð til sín, eftir að
Mike Hazard, miðvallarspilari
Chelsea, tilkynnti QPR að
hann yrði áfram hjá Chelsea.
Wilkinson hefur sagt mér að
fjögur félög hafi spurt um
mig, en hann hefur ekki sagt mér
nöfn þeirra," sagði Sigurður, sem
lék í byijunarliði Sheff. Wed. gegn
Man. Utd. á laugardaginn. Það
var hans fyrsti leikur með aðallið-
inu frá því í september, en Sigurð-
ur hefur átt við meiðsli að stríða.
„Ég hef mikinn hug á að breyta
til að fara frá Englandi. Þess
vegna skrifa ég ekki undir nema
eins árs samning við félagslið
hér, þegar samningur minn renn-
ur út við Sheffield Wednesday í
vor. Ef ég fær tækifæri í næstu
leikjum hjá Wednesday og næ að
festa mig í liðinu, þá gæti ég vel
hugsað mér að vera eitt ár til við-
bótar hér í Sheffíeid. Það myndi
taka mig smá tíma að átta mig á
hlutunum hjá QPR í London,
þannig að það er vafamál hvort
að það borgi sig að skipta um
félag upp á að leika aðeins eitt
ár með því,“ sagði Sigurður. „Það
kemur í Ijós næstu daga hvað
verður upp á teningnum."
Miðvörður Sheff. Wed. Nigel Pearson
ökklabrotnaði t leiknum gegn Man.
Utd. „Wilkinson leitar nú logandi ljós-
um af miðverði fyrir næsta leik.
„Hann hefur augastað á Ian Cranson
hjá Ipswich. Þá vildi Wilkinson kaupa
sóknarleikmanninn Cyrille Regis, en
Coventry tilkynnti honum að hann
væri ekki til sölu.
Það er ljóst að nokkrar breytingar
verða hjá okkur á næstunni. Lee
Chapman hefur hug á að fara til fé-
lags í London. Eiginkona hans, Lesley
Ash, er fræg leikkona. Atvinnumögu-
leikar hennar eru meiri í London er
hér í Sheffield," sagði Sigurður.
Jim Smith, framkvæmdastjóri QPR,
hefur horft á Sigurð leika tvo leiki
með varaliði Sheff. Wed. að undan-
fömu. Þá sá hann Sigurð leika á Old
Trafford á laugardaginn.
Sigurður Jónsson lék að nýju með aðalliði Wednesday, á Old Trafford,
eftir langa fíarveru. Jim Smith, stjóri QPR, var á meðal áhorfenda.