Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 5
jBor8un6laÍ>i& /ÍÞRÓTTÍR ÞRWJUDAGUR 15. MARZ 1988
B 5
Afturdalk
ivar Webster getur nú afturfarið að leika með Haukum. en hefur þó
misst af fimm leikjum.
Meðferð málsins er KKÍ til
skammar og furðulegt að mál
skuli þurfa að fara þrisvar sinn-
um fyrir dóm og taka svo gífur-
legan tíma. Brotið átti sér stað
12. desember, en málinu lauk
ekki fyrr en 11. mars eða tæpum
þremur mánuðum síðar.
Hvað sem sekt og sakleysi varð-
ar er það víst að þetta hefur
verið hræðilegur tlmi fyrir ívar.
í þrjá mánuði hefur hann mátt
bíða í óvissu og ekki vitað hvort
hans biði tveggja mánaða bann
eða hvort hann gæti aftur farið
að leika með Haukum. Hver svo
sem dómsniðurstaðan er þá á
ekki að láta nokkum mann bíða
svo lengi eftir dóm.
Annað sem vekur athygli er að
I öllum þremur stigum dómsins
sambandanna að leysa úr þeim
á réttlátan hátt og á sem
skemmstum tíma. Það þýðir
ekki að skýla sér á bak við það
að reglur aganefndar séu settar
of þröngar skorður. Leikmenn
og aðstandendur körfuknatt-
leiksins eiga skilið að fá sann-
gjama málsmeðferð sama hve
alvarlegt brotið er.
Það má þó þakka fyrir að þessu
leiðindamáli skuli vera lokið og
leikmenn goti aftur snúið sér
að körfuboltanum. Þangað til
að reglum dómstóla innan
íþróttahreyfingarinnar hefur
verið breytt er víst lítið annað
að gera en vonast til að svona
mál komi ekki upp aftur.
Logi Bergmann
Eiðsson
versta auglýsing
fyrir körfuknattleik
og stjóm KKI.
Það er ekki mitt að
leggja dóm á hve
alvarlegt brot ívars
var, né heldur hvað
sé hæfileg refsing.
En meðferð málsins
í dómstólum hefur
vissulega vakið upp
margar spumingar,
enda undarlega að
þessu máli staðið.
Ivar braut af sér í
byrjun desember,
nánar tiltekið þann
12. Vegna þess að
dómarar leiksins sáu
ekki atvikið var
dæmt í málinuí dóm-
stól UMSK. Þó ekki
fyrr en tæpum
tveimur mánuðum
síðar. Þar var Ivar
víttur en ekki
dæmdur í leikbann.
Tæpum mánuði
ívar Webster
Mál hans hefur þrisvar sinnum farið fyrir dóm og
niðurstaðan aldrei verið sú sama.
síðar var málið tekið upp aftur,
af aganefnd KKÍ, eftir að Breið-
blik hafði áfrýjað niðurstöðu
dómastóls UMSK. Málið var tek-
ið fyrir mánuði sfðar og ívar
dæmdur í tveggja mánaða bann.
Þetta bann virtist miðast ná-
kvæmlega við að Ivar missti af
öllum leikjum Hauka fram að
úrslitakeppninni og því ekki út-
lit fyrir að hann yrði meira með
á þessu keppnistímabili.
Loks eftir rúmar þtjár vikur kom
málið fyrir dóm í þriðja og
síðasta sinn, fyrir dómstól ÍSI,
eftir að Haukar höfðu áfrýjað.
Þar var banninu aflétt og Ivar
má því aftur leika með Haukum,
Það er sjaldgæft að mál fari
þrisvar fyrir dóm, jafnt í íþrótt-
um sem almennum málum og
það væri óskandi að dómskerfíð
væri ekki svo þungt í vöfum.
Mál sem koma upp í einstakri
íþróttagrein ættu auðvitað að
fara beint fyrir aganefnd og ef
að þeim væri áfrýjað gætu þau
farið fyrir dómstól ÍSÍ. Þetta
ætti að taka sem skemmstan
tíma. Ég sé ekki hvað héraðs-
dómstólar eru að gera með slík
mál. Markmiðið hlýtur að vera
að halda þessu innan viðkom-
andi sérsambands.
í öllum íþróttagreinum geta
komið upp mál svipuð þessu og
WEBSTER
Mál hans þrisvar sirmum fyrir dómstól
Regiur KKI þurfá að breytast
Slæm augiýsing fyrir körfuknattieik
Það er fátt sem vakið hefur
meiri athygli í umfjöllun
fjölmiðla um körfuknattleik en
mál ívars Webster. Málið hefur
fengið nánast vikulega umfjöll-
unm á hinum ýmsu stigum og
í heild verið hin
er dæmt eftir sömu forsendum,
en þó er svo mikill munur á nið-
urstöðunni. Lokadómur ISI er
einnig mikill hnekkur fyrir aga-
nefnd KKÍ sem hafði dæmt ívar
í tveggja mánaða bann.
■ GUÐMUNDUR Baldurs-
son, knattspymumaður sem lék
með UBK síðasta sumar, leikur nú
með Hibernians á Möltu. Lið hans
er nú í þriðja neðsta sæti 1. deild-
ar. Um síðustu helgi sigraði Hi-
bernians lið Birkirkara, 1:0, og
skoraði Guðmundur sigurmarkið
og fékk góða dóma fyrir leik sinn
í þarlendum ijölmiðlum.
■ SIL VANO Fontolan sem leik-
ur með ítalska knattspyrnuliðinu
Verona varð fyrsti leikmaðurinn til
að falla á lyfjaprófí hjá UEFA í
átta ár. Hann var tekinn í lyfja-
prófi eftir leik Verona og Werder
Bremen í fyrri leik liðanna í Evr-
ópukeppninni í síðustu viku. Var
Silvano dæmdur í árs bann og liði
hans, Verona, gert að borga UEFA
1.4 milljón ísl. kr. í sekt. Talsmaður
ítalska liðsins sagði í gær að leik-
maðurinn hefði tekið umrætt lyf
skv. læknisráði vegna veikinda, og
hefði gert það áður. Lyfíð væri lög-
legt á Italíu, og harðneitaði að um
ólöglega lyfjanotkun væri að ræða.
Samt sem áður tekur bannið strax
gildi og Silvano mun því ekki geta
tekið þátt í seinni leiknum gegn
Werder Bremen á miðvikudaginn.
UEFA hefur nú aukið mjög lyfja-
eftirlit og verða leikmenn teknir í
lyfjapróf eftir alla undanúrslitaleiki
Évrópukeppninnar.
■ MATTI Nykanen, sem vann
þrenn gullverðlaun á Olympíuleik-
unum í Calgary, varð aðeins í þriðja
sæti í heimsmeistarakeppninni í
skíðastökki í Finnlandi um helgina.
Skíðunum hans var stolið aðeins
tveim dögum fyrir keppni, þannig
að Nyakenen varð að keppa á
lánsskíðum. Norðmaðurinn Ole
Gunnar Fidjestolsigraði, en
Primoz Vlagafrá Júgoslavíu varð
annar.
■ BILL Johnson, gullverðlauna-
hafi í bruni á Ólympíuleikunum
1984, sem hefur verið meiddur í
hné og baki, ætlar ekki að gefa
kost á sér i bandaríska skíðalands-
liðið framar. Hann ætlar heldur
snúa sér að atvinnumennskunni.
■ LEIKMENN FC Homburg,
sem leikur í vestur-þýsku úrvals-
deildinni í knattspymu, léku um
helgina með smokkaauglýsingu frá
ensku fyrirtæki á búningum sínum
gegn HSV í deildarkeppninni. Áður
höfðu knattspymuyfirvöld bannað
liðinu að auglýsa smokkana. Aug-
lýsingin er einfaldlega nafn fyrir-
tækisins, sem framleiðir smokkana,
og revndar margt annað: London.
■ ISLANDSMÓT öldunga í
blaki verður haldið í íþróttahöllinni
á Húsavík dagana 21. til 23. apríl.
Þátttökutilkynningar eiga að berast
til formanns mótsstjómar, Hönnu
Sefánsdóttur, fyrir 15. mars.
Keppt verður í sömu flokkum og
síðast, öldunga og öðlingaflokki
karla og kvenna. Nánari upplýsing-
ar veitir Aðalsteinn Aðalsteinsson
í síma 96-42052.
■ DANSKA meistaraliðið
Bröndby hefur nú mikinn áhuga á
að kaupa danska landsliðsmanninn
Per Frimann frá Anderlecht. Eins
og hefur komið fram, þá hefur
Frimann óskað eftir að verða seld-
ur frá féiaginu.
■ BELGÍSK langferðabifreiða-
fyrirtæki hafa neitað að að aka
knattspyrnuunnendum^ til knatt-
spymuvalla í Belgíu. Ástæðan fyr-
ir þessu er að margar langferðabif-
reiðar voru skemmdar eftir leik
Antwerpen og FC Briigge á dög-
unum.
■ ARMIN Eck, hinn 23 ára mið-
vallarspilari hjá Bayern MUnchen,
er talinn einn efnilegast leikmaður-
inn sem hefur komið fram í v-þýsku
knattspymunni að undanfömu.
Eck er líkt við Wolfgang Overath,
fyrrum leikmann v-þýska landsliðs-
ins og Köln.
Mm
FOLK
Reuter
Markvórður þýska úrvalsdeildarliðsins Homburg í leik um helgina, með
smokkaauglýsinguna margumtöluðu á bijóstinu.
GuAmundur Baldursson skoraði
þýðingarmikið mark fyrir Hibemians
á Möltu.
■ NEIL Webb, miðvallarspilar-
inn sterki hjá Nottingham Forest,
er nú undir smásjánni hjá ítalska
félaginu Roma. Einnig hefur félag-
ið áhuga á að tryggja sér portú-
galska landsliðsmanninn Paulo
Futre, sem léikur með Atletico
Madrid á Spáni.
■ MARGT bendir til að
Juventus ætli ekki að endumýja
samninginn við danska landsliðs-
manninn Michael Laudrup, þegar
hann rennur út f vor. Félagið hefur
augastað á öðrum dönskum lands-
liðsmanni, Henrik Nielsen, sem
leikur með AEK Aþena í Grikk-
landi.
■ BANDARÍSKA landsliðið í
handknattleik, sem er nú á keppnis-
ferðalagi um Evrópu, gerði jafn-
tefli, 20:20, við danska 1. deildar-
félagsliðið Brönderslev.
■ TONY Polster hinn sóknar-
harði leikmaður Tórínó (sá sem
borðaði íslenskan fisk kvöldið áður
en hann skoraði sigurmark gegn
IBMB Napóli fyrir
Frá skömmu) er í
Brynju þriggja íeikja banni
og Gigi Radice
þjálfari Tórínó I
fjögurra leikja banni. Þeir sátu sam-
an í áhorfendastúkum Torino-
vallarins á sunnudaginn þegar
Tomer
á ítaliu
Tórínó og Mílan AC léku. Radice
var dæmdur í leikbann eftir að hafa
mótmælt vítaspymu sem dæmd var
á 90. mínútu leiks Fiorentina og
Tórínó fyrir 10 dögum. Tony
Polster var dæmdur í bann af sömu
ástæðu og er hann sagður hafa
slegið leikmann Fiorentina utan
undir eftir leikinn. Báðir neita þeir
þessum ásökunum og fullyrða að
dómarinn hafi ranglega dæmt víta-
spymu í Flórens. Radice lék um
níu ára skeið með Milanó og í sam-
tali við Morgunblaðið sagði hann
um liðin: „Þessi tvö lið eiga bæði
mikið í mér. Þau eiga líka eitt sam-
eiginlegt; þau vita að fótboltinn er
barátta en einnig skemmtun."
I JOHN Charles, gamla fót-
boltahetjan, kom til Tórínó á laug-
ardagskvöld til að heilsa upp á
gamla félaga, en hann lék með
Juventus á gullaldarámm liðsins,
þegar Boniperti núverandi forseti
félagsins var einn leikmannanna.
Charles var góður sóknarmaður og
skoraði ófá mörk fyrir Juve á sínum
tíma. Fyrir skömmu var hann hand-
tekinn vegna ógreiddrar sektar fyr-
ir skattsvik í heimalandi sínu, Wa-
les, en Glenda konan hans og góð-
ir vinir sáu um að greiða sektina
sem nam 60 þúsund krónum. Char-
les var því aðeins í nokkra klukk-
utíma í vörslu lögreglunnar. í
Tórínó var hann gestur Benitos
Boldi sem lék með Juve á sama
tíma og hann. Charles sem nú er
56 ára heimsótti Boniperti í gær
og vom það skemmtilegir endur-
fundir. Hann dvaldist í Tórínó og
nágrenni um helgina, en fór ekki á
völlinn að sjá Tórínó og Mílan_
■ ÞEIR sem fylgjast náið með
kaupum og sölum á knattspymu-
mönnum segja að Inter hafi mikinn
áhuga á að kaupa algeríska leik-
manninn Madjer sem nú leikur með
Valencia á Spáni. Yfirmenn fé-
lagsins hafa ekkert viljað tjá sig
um málið en belgíski leikmaðurinn
Scifo hefur látið í það skína að
Inter-menn séu alvarlega að íhuga
kaup á Madjer fyrir næsta leikár.
„Hann er einn besti leikmaður Evr-
ópu um þessar mundir," segir Scifo
og bætir við: „Ég kynntist honum
fyrir tveimur ámm meðan ég lék
enn með Anderlecht og það væri
stórkostlegt að leika með honum í
liði.“
■ RUUD Gullit og félagar fóm
upp á Superga-hæðina ofan við
Tórínó daginn fyrir leikinn gegn
Tórínó, en árið 1949 hrapaði flug-
vél með leikmönnum liðsins og lét-
ust allir innanborðs. í kapellu sem
er á hæðinni em minnisvarðar um
þá sem fómst í slysinu og lögðu
AC Mílan-leikmenn blóm á minnis-
varðana til að votta hinum látnu
virðingu sfna. Tórinó var eitt sterk-
asta lið 1. deildarinnar þegar þetta
slys átti sér stað og mæltist þessi
hugmynd AC Mílan mjög vel fyrir
hjá mönnum í Tórínó.