Morgunblaðið - 15.03.1988, Blaðsíða 2
2 B
HtorflnnMiiMft /lÞROTTm ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Fólskubragð?
GuðmundurGuðmundssosn sakarValdimarGrfmsson um
að hafa beitt „júgóslavneska bragðinu"
GUÐMUNDUR Guömundsson
hefur sakað Valdimar
Grímsson um að hafa beitt
hinu svokailaða „júgóslav-
neska bragði“ í leik Vals og
Víkings í íþróttahúsi Vals í
gær. Þetta bragð er þannig
að varnarmaður setur hönd
undir ilina á sóknarleikmanni
sem missir við það jafnvægið.
Þetta er mjög hættulegt brot.
Valdimar hefur neitað þessu
og segist aðeins hafa ýtt við
Guðmundi.
að er alveg á hreinu að Valdi-
mar notaði .júgóslavneska
bragðið" og það oftar en einu
sinni. Þetta er óþokkabragð sem
á ekkert skylt við íþróttir og ég
skil ekki í nokkrum manni að
beita þessu bragði," sagði Guð-
mundur í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Þegar þessu bragði
er beitt þá missir maður alla stjóm
á sér og getur lent hvemig sem
er. Þetta er stór hættulegt.
Valdimar gerði þetta oft í leiknum
og ég benti dómurunum á þetta
en þeir géu ekkert. Í fyrsta skip-
tið sem hann gerði þetta skaut
ég beint í andlitið á Einari Þor-
varðarsyni og það sýnir kannski
best hvemig þetta er. Maður verð-
ur að koma frá sér boltanum sem
fyrst til að koma höndunum fyrir
sig.“
Stöð 2 sýndi leikinn beint, en á
upptökunni er erfítt að sjá hvað
gerist. Þó sést að Guðmundur
missir tvfvegis jafnvægið og í
bæði skiptin hleypur hann beint
til dómara og segir að Valdimar
hafí beitt þessu bragði.
„Fallandi stjama"
„Þetta er tóm vitleysa hjá Guð-
mundi. Ég hef ekki notað þetta
bragð og gríp alls ekki undir ilina
á honum heldur í mjöðmina,"
sagði Valdimar Grímsson í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Það
er algengt þegar menn koma inn
úr homunum að maður reyni að
setja hönd á mjöðm eða læri. En
ég kom aldrei nálægt ristinni á
honum.
Guðmundur er bara fallandi
stjama sem reynir að fela slakan
leik sinn með slíkum ásökunum.
Og annað sem mér fínnst undar-
legt er að ef þetta brot er svo
hættulegt, af hveiju hefur þá eng-
inn slasast? Annars hefur Guð-
mundur ekkert að gera með að
væla um þetta. Hann er sjálfur
grófur leikmaður og mikill leikari
og sem fyrirliði eins sterkasta
félags íslands á hann að sýna
meira stolt."
Morgunblaöið/Sverrir
Valdlmar Qrfmsson og Guðmundur Guðmundsson háðu harða
glímu að Hllðarenda I gærkvöldi.
Morgunblaöið/Sverrir
Júllus Jónasson sést hér vera búinn að senda knöttinn fram hjá Guðmundi
Guðmundssyni, fyrirliða Víkings. Knöttumn hafnaði í netinu hjá Víkingum.
Gffurleg spenna
á Hlíðarenda
Valsmenn sigruðu Víkinga í hörðum leik, 25:24
VALSMENN sýndu að þeir ætla
ekki að gefa neitt eftir í barátt-
unni fyrir íslandsmeistaratitlin-
um og f gær sigruðu þeir
Víkinga, 25:24, í skemmtilegum
og spennandi leik, sem var þó
ótrúlega harður. Lokamínút-
urnar voru ótrúlega spennandi,
en það var Júlíus Jónasson sem
tryggði Valsmönnum sigur
með marki 15 sekúndum fyrir
leikslok.
Valsmenn náðu forystunni strax
í upphafí, en Víkingar vom
alltaf skammt undan. Munurinn
varð aldrei meiri en tvö mörk í fýrri
hálfleik og í leikhléi
LogiB. var staðan 12:11,
EiSsson Valsmönnum í vil.
skriter Valsmenn byijuðu
-vel í síðari hálfleik
og náðu þriggja marka forskoti.
Víkingum tókst þó að jafna um
miðjan síðari hálfleik. Þegar ein og
hálf mínúta var til leiksloka var
staðan 24:22, Valsmönnum í vil.
Víkingum tókst að jafna þegar 40
sekúndur voru til leiksloka, en
síðasta orðið átti Júlíus Jonasson
er hann skoraði sigurmark Vals úr
þröngu færi, 15 sekúndum fyrir
íeikslok.
Leikurínn í gær var tvímælalaust
með betri leikjum íslandsmótsins.
Sóknarleikur beggja liða var mjög
góður, en vamarleikurinn þó heldur
slakarí. Það var greinilegt að þama
áttust við gamlir erkiféndur og bar-
áttan og harkan settu svip á leikinn.
„Ég er mjög ánægður með þennan
sigur og þetta var gífurlega erfiður
leikur," sagði Geir Sveinsson, fyrir-
liði Vals í samtali við Morgunblaðið
eftir leikinn. „Þetta var skemmti-
legur leikur með góðum sóknarleik
sem bitnaði að vísu á varnarleik
liðanna og ég held að sigur okkar
hafí verið sanngjam.
Valur-Víkingur
25 : 24
íþróttahús Vals, íslandsmótið í hand-
knattleik 1. deild, mánudaginn 14.
febrúar 1988.
Gangur leiksins: 2:0, 3:3, 5:3, 6:6,
9:9, 12:11, 14:12, 16:14, 20:17, 20:19,
21:21, 23:21, 24:22, 24:24, 25:24.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 8,
Júlfus Jónasson 6/1, Jakob Sigurðsson
5, Geir Sveinsson 3, Jón Kristjánsson
2 og Þórður Sigurðsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 7/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Víkings: Sigurður Gunnareson
8/1, Ámi FViðleifsson 6, Guðmundur
Guðmundsson 4, Bjarki Sigurðsson 2,
Karl Þráinsson 1, Siggeir Magnússon
1, Hilmar Sigurgfslason 1 og Einar
Jóhannesson 1.
Varin skot: Kristján Sigmundsson 4
og Sigurður Jensson 3/1.
Utan vallar: 6 mínútur og Ámi FVið-
leifsson rautt spjald.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Óli
Olsen, höfðu engin tök á leiknum og
dæmdu illa.
Áhorfendun 400.
Ég er sannfærður um að við verðum
meistarar og það skiptir okkur engu
máli hvort Víkingur vinnur FH. Við
ætlum bara að vinna þessa tvo leiki
sem eftir eru."
„Þetta var góður leikur en við fórum
illa með opin færi,“ sagði Guðmund-
ur Guðmundsson, fyrirliði Víkings
í samtali við Morgunblaðið eftir
leikinn. „Sóknin var góð hjá okkur,
en við gáfum of mikið eftir í vörn-
inni."
Valdimar Grímsson og Júlíus Jónas-
son voru bestu menn í liði Vals.
Valdimar eldsnöggur í sókninni og
Júlíus nýtti færi sín mjög vel. Jakob
Sigurðsson og Geir Sveinsson áttu
einnig góðan leik.
Sigurður Gunnarsson átti mjög góð-
an leik í liði Víkings og Guðmundur
Guðmundsson og Hilmar Sigur-
gíslason stóðu sig einnig vel.
Leikinn dæmdu þeir Gunnar Kjart-
ansson og Óli Olsen. Þeir eru ekki
vanir að dæma saman og höfðu
engin tök á þessum leik. Þeir leyfðu
alltof mikla hörku og mjög gróf
brot, en ráku menn útaf fyrir að
mótmæla. í heildina má segja að
dómgæsla þeirra hafí frekar bitnað
á Víkingum.
Valsmenn eru því aðeins einu stigi
á eftir FH-ingum og stefnir í upp-
gjör þessara liða I síðustu umferð,
en þá mætast liðin í íþróttahúsi
Vals að Hlíðarenda.
■ Úrsllt B/11
■ Staöan B/11
SKOTLAND
Celtic
mætir Hearts
eeltic leikur gegn Edinborgar-
liðinu Hearts í undanúrslitum
skosku bikarkeppninnar. Leikurinn
verður á Hampden Park í Glasgow
9. apríl.
Aberdeen mætir annað hvort
Dundee United eða Dundee í hinum
undanúrslitaleiknum. Dundee-liðin
mætast í kvöld.
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Bjami heldur hreinu hjá Brann
Brann-Iiðið, undir stjóm Teits
Þórðarsonar, heftir ekki
fengið á sig mark f þeim sex
leikjum sem liðið hefur Ieikið að
undanfömu. Brann vann tvo góða
sigra í vetrarmótinu í Noregi um
helgina. Fyrst Bryne, 3:0, og þá
Start, 1:0.
Það hefur gengið vel hjá okkur.
Bjami Sigurðsson hefur staðið sig
mjög vel f markinu," sagði Teitur
Þórðarson. Brann á að fara í æf-
ingabúðir til V-Þýskalands 10.
apríl. „Ef við komumst í úrslit í
vetrarmótinu - vinnum okkar
riðil, þá breytast dagsetningar á
æfíngaferðinni til Numberg.
Úrslitin í mótinu fara fram 9. og
10. apríl,“ sagði Teitur.