Morgunblaðið - 15.03.1988, Page 4
4 B
jHatBQnMatta /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
SKÍÐI / HEIMSBIKARINN í ALPAGREINUM
Michela Figlni vann bæði brun og risastórsvig um helgina og er nú efst í
stigakeppninni samanlagt. Á myndinni lætur hún fara vel um sig enda stendur
hún vel að vígi.
Miiller varð brunkóngur
Piccard sannaði getu sína í risastórsvigi
BRUNKÓNGURINN Peter Mull-
er frá Sviss tryggði sér sigur í
brunkeppni heimsbikarsins í
annað sinn er hann varð hlut-
skarpastur í síðustu brun-
keppni vetrarins sem fram fór
í Beaver Creek í Bandaríkjun-
um á laugardaginn. Ólympíu-
meistarinn Franck Piccard frá
Frakklandi sigraði í risastór-
svigi á sama stað á sunnudag-
inn. Zurbriggen hefur 12 stiga
forskot á Tomba eftir heims-
bikarmót helgarinnar.
Miiller sagði eftir sigurinn í
bruninu: „Sigurinn var mikil-
vægur og gefur mér eitthvað til að
hlakka til næsta vetur. Ég sá það
eftir stökkin af hengjunum í braut-
inni að ég lenti framar en þeir sem
á undan mér fóru og vissi þá að
ferðin á mér var meiri en hjá hin-
um.“ Muller, sem er þrítugur, fór
brautina á 2:25.26 mínútum og var
hálfri sekúndu á undan Donald Ste-
vens frá Kanada sem varð óvænt í
öðru sæti. Marc Girardelli frá Lux-
emborg varð þriðji.
Ólympíumeistarinn í risastórsvigi,
Franck Piccard, sannaði það á
sunnudaginn að sigurinn í Calgary
var engin tilviljun. Piccard fór
brautina á 1:45.97 mínútum og var
24/100 á undan Markus Wasmeier
frá Vestur-Þýskalandi, Marc Girar-
delli varð þriðji, Pirmin Zurbriggen
varð fjórði og Alberto Tomba í
fímmta sæti.
Pirmin Zurbriggen heldur enn
forystu sinni í heimsbikamum sam-
anlagt. Hann hefur nú'12 stiga
forskot á Alberto Tomba sem hefur
224 stig. Þeir koma til með að berj-
ast um sigurinn því 100 stig eru í
næsta mann sem er Markus Was-
meier. Nú halda kappamir til Evr-
ópu og keppa næst í Aare í Svíþjóð
19. og 20. mars og þar gætu úrslit-
in ráðist.
Tvöfalt hjá Figini
- tryggði sér sigur í bruni og risasstórsvigi
Peter MUIIer frá Sviss varð brunkóngur heimsbikarsins á þessu keppnistíma-
bili.
„Brautin var ekki erfið tæknilega
séð. Þetta var góður sigur fyrir
mig því ég hef verið hálf slöpp að
undanfömu," sagði Figini. Þetta
var næst síðasta brunmót vetrarins
og getur Oertli ekki náð Figini að
stigum í bruninu.
í risastórsviginu á sarpa stað á
sunnudaginn fór Figini brautina á
1:16.43 mínútum og var tæplega
hálfri sekúndu á undan austurrísku
stúlkunni, Ulriku Maier. Anita Wac-
her, einnig frá Austurríki, varð
þriðja og Regine Mösenlechner frá
Vestur-Þýskalandi fjórða. Brigdtte
Oertli hafnaði aðeins í 12. sæti.
Figini hefur þar með tryggt sér sig-
ur í bæði bmni og risastórsvigi og
á góða möguleika á að vinna keppn-
ina samalagt.
MICHELA Figini frá Sviss vann
tvöfalt í heimsbikarnum í alpa-
greinum kvenna í Rossland í
Bandaríkjunum um helgina. Á
laugardaginn sigraði hún í
bruni og á sunnudaginn í risa-
stórsvigi. Húntryggði sér jafn-
framt sigur í báðum þessum
greinum samanlagt. Hún fór
einnig upp fyrir Brigitte Oertli
í heiidar stigakeppninni.
Figini og Brigitte Oertli, sem
beijast um sigurinn í heims-
bikamum samanlagt, urðu í tveim-
ur efstu sætunum í bmninu sem
fram fór á laugardaginn. Figini var
tæplega sekúndu á undan Oertli og
vann þar með þriðju gullverðlaun
sín í bmni á þessu keppnistímabili.
Veronika Wallinger frá Austurríki
varð þriðja og Karen Percy frá
Kanada íjórða.
Figini hefur nú hlotið alls 247 stig,
Oertli er í öðm sæti með 222 stig
og er sú eina sem getur náð Figini
að stigum. Vreni Schneider frá
Sviss er í þriðja sæti með 185 stig
en hún á við meiðsli að stríða og
hefur ekki getað keppt að undan-
fömu.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Fram íslandsmeistari!
Morgunblaðið/Sverrir
GuArún Kristjánsdóttlr, stórskytta úr Val, skorar hér eitt af 6 mörkum
sínum í leiknum gegn KR á laugardaginn. Til vamar em KR-ingamir
Bryndís Harðardóttir og Birthe Bitch.
EIN umferð var spiluð f
1 .deild kvenna um helgina.
Framstúlkur tryggðu sér ís-
landsmeistaratitilinn 5.árið í
röð með sigri á Haukum
22:16. Þá vann Valur KR
28:11, FH sigraði Þrótt 27:14
og Víkingur vann nauman sig-
ur á Stjörnunni 15:14.
Framliðið naði fljótlega yfir-
höndinni í leiknum. Þegar um
10 mínútur vom eftir af fyrri
hálfleik náðu Haukar að jafna í
fyrsta og eina
Katrín skipti í leiknum.
Fríöríksen Staðan í leikhléi
skrífar Var 10;7 fyrjr
Fram.
Seinni hálfleikur var jafnari fram-
an af. Lengst af var munurinn
eitt mark Fram í vil, en þegar líða
tók jókst munurinn ogendaði leik-
urinn með ömggum sigri Fram
22:16.
Hjá Haukum var Margrét Theó-
dórsdóttir atkvæðamest að vanda,
en gerði þó sín mistök líkt og
aðrar í liðinu. Þá varði Sólveig
markmaður vel frá sínum gömlu
félögum í Fram.
Guðríður var góð hjá Fram þrátt
fyrir að hittni hennar hafi oft
verið betri. Þá áttu þær Ama
Steinsen og Ingunn Bemótus-
dóttir báðar góðan dag.
Mörk Hauka: Margfet Theódórsdóttir
8/4, Halldóra Mathiesen 3, Steinunn Þor-
steinsdóttir og Hrafnhildur Pálsdóttir 2
mörk hvor, Björk Hauksdóttir eitt mark.
Mörk Fram: Guðríður Guðjónsdóttir 8/2,
Ingunn Bemótusdóttir 4, Ama Steinsen
og Jóhanna Halldórsdóttir 3 mörk hvor,
Hafdís Guðjónsdóttir 2, Margrét Blöndal
og Ósk Vfðisdóttir eitt mark hvor.
KR-V«lur 11:28
Strax fra fyrstu mínútu var ljóst
að hveiju stefndi. Valsstúlkur
spiluðu sterka vöm og skomðu
mikið úr hraðaupphlaupum. Sókn-
arleikur liðsins var hins vegar
ekki upp á marga fiska frekar en
hjá KR. Staðan í leikhléi var 14:3
fyrir Val og leikurinn endaði sem
fyrr segir með stórsigri Vals
28:11.
Mörk KR: Karólfna Jónsdóttir 6/4, Nellý
Pálsdóttir 3, Bryndfs Harðardóttir og
Snjólaug Benjamfnsdóttir eitt mark hvor.
Mörk Vals: Guðrún Kristjánsdóttir 6,
Ema Lúðvíksdóttir 6/3, Kristín Amþórs-
dóttir 5, Guðný Guðjónsdóttir og Katrín
Friðríksen 3 hvor, Diane Harwood 2,
Steinunn Einarsdóttir, Lilja Sturludóttir
og Magnea Friðriksdóttir eitt mark hver.
Stjaman-Vlklngur 14:16
Leikurinn var frekar jafn út í
gegn en Víkingsliðið þó ávallt
fyrri til að skora. Staðan í leikhléi
var 8:6 fyrir Viking.
Eftir mikinn baming síðustu
mínútur leiksins, þar sem nokkur
víti og önnur dauðafæri fóm for-
görðum a'báða bóga, endaði leik-
urinn með sigri Vikings 15:14.
Mörk Stjömunnar: Hmnd Grétarsdóttir
6, Herdís Sigurbergsdóttir 5, Guðný
Gunnsteinsdóttir, Helga Sigmundsdóttir
og Ásta Kristjánsdóttir eitt mark hver.
Mörk Víkings: Eiríka Ásgrímsdóttir 5,
Jóna Bjamadóttir og Inga Lára Þóris-
dóttir 3 mörk hvor, Svava Baldvinsdóttir
2, Valdís Birgisdóttir og Sigurrós Bjama-
dóttir eitt mark hvor.
Þróttur-FH 14:27
Stúlkurnar í Þrótti börðust vel
framan af og FH-liðið var að sama
skapi mistækt í leik sínum. Staðan
var jöfn lengi framan af, og í leik-
hléi höfðu FH-stúlkur skorað 11
mörk á móti 7 mörkum Þróttar.
FH-liðið keyrði upp hraðann í
seinni hálfleik og endaði leikurinn
með ömggum sigri þeirra 27:14.
Mörk Þróttar: Sigurlfn Óskarsdóttir,
Ema Reynisdóttir, Kristfn Pétursdóttir
og Ágústa Stefánsdóttir 3 mörk hver,
Drífa Helgadóttir og María Sigmunds-
dóttir eitt mark hvor.
Mörk FH: Rut Baldursdóttir 10/6, Eva
Baldursdóttir og Kristfn Pétursdóttir 5
mörk hvor, Helga Sigurðardóttir 3, Heiða
Einarsdóttir 2, Inga Einarsdóttir og Berg-
lind Pétursdóttir eitt mark hver.
■ Staðan B/10