Morgunblaðið - 15.03.1988, Side 8
8 B
3B«rgimblni»iÍ> /IÞROTTIR ÞRLÐJUDAGUR 15. MARZ 1988
KNATTSPYRNA / VESTUR-ÞÝSKALAND
Stuttgart stödvaði
sigurgöngu Bremen
Bayern vann Gladbach og er tveimur stigum á eftir Bremen
STUTTGART, án Ásgeirs Sigur-
vinssonar, stöövaði sigur-
göngu Werder Bremen í vest-
ur-þýsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á laugardaginn.
Fritz Walter skoraði sigurmark
Stuttgart á 73. mínútu. Bayern
Miinchen vann á sama tíma
Borussia Mönchengladbach
1:0 og jók þar með mögleika
sína á meistaratitlinum. Brem-
en hefur nú aðeins tveggja
stiga forskot á Bayern.
Stuttgart hefur nú hlotið fimm
stig úr síðustu þremur leikjum
sínum í deildinni og er í fimmta
sæti. Miðvallarspilið hjá Stuttgart
var ekki eins gott
og þegar Asgeir,
sem var í leikbanni,
leikur með. Karl
Allgöwer var mað-
urinn á bak við mark Stuttgart.
Hann skaut föstu skoti úr auka-
spymu af 22 metra færi sem mark-
vörður Bremen hélt ekki og Fritz
Walter fylgdi vel á eftir og skoraði
af stuttu færi.
A 75. mínútu var markverði Werder
Bremen, Oliver Reck, vikið af leik-
Frá
Jóhanni Inga
Gunnarssyni
ÍÞýskalandi
velli fyrir að fella Júrgen Klinsmann
gróflega utan vítateigs. Hinn 37
ára gamli Burdenski tók þá stöðu
hans í markinu og stóð sig vel.
Hann verður einnig í markinu
næstu tvo deilarleiki. Þetta var
fyrsti ósigur Bremen í deildinni í
sex mánuði og annað tapið á tíma-
bilinu.
Bayern Múnchen vann Gladbach,
1:0, á heimavelli. Sigurmarkið gerði
Lothar Mattaeus, fyrrum leikmaður
Gladbach, 12 mínútum fyrir leiks-
lok. Leikurinn var ekki í háum
gæðaflokki þar sem Gladbach lék
vamarleik. Völlurinn var mjög
blautur og þungur.
Besti leikur umferðarinnar var leik-
ur Leverkusen og Kölnar á föstu-
daginn. Liðin skildu jöfn, 1:1 og er
Köln nú fimm stigum á eftir Brem-
en. Númberg er í fjórða sæti eftir
l:0-sigur á Waldhof Mannheim.
Kaiserslautern náði jafntefli við
Karlsruhe, 1:1, á heimavelli. Sta-
bel, þjálfari Kaiserslautem, sagði
eftir leikinn: „Ég er mjög þakklátur
áhorfendum fyrir að halda það út
að horfa á leikinn til enda.“ Lárus
lék ekki með Kaiserslautern.
Leik Bayer Uerdinegn og Schalke
var frestað.
ITALIA
Erfið helgi hjá
efstu liðunum
Markalaust hjá Napóli gegn Em-
poli, sem er í neðsta sæti
LEiKIRNIR í 1. deild ítölsku
knattspyrnunnar voru erfiðir
hjá efstu liðunum á sunnudag-
inn. Empoli, sem er í neðsta
sœti, gerði jafntefli við Napóli
og Torínó, sem lék án Polsters,
gerði jafntefli við Mílan AC.
Roma vann Como meðan
Sampdora tapaði fyrir Cesena.
Bertoni skoraði sigurmark
Avellino gegn Juventus á 25.
mínútu. Juve var betra liðið í síðari
hálfleik en tókst ekki að jafna.
Bianchi skoraði
Brynja bæði mörkin gegn
Tomer Sampdoria og átti
skrifar tvö önnur tækifæri,
lrállallu en Cesena lék mjög
ákveðið á sunnudaginn, meðan
Sampdoria virtist sundraðra en oft
áður.
Fyrri hálfleikur Como og Roma var
vægast sagt daufur, aðeins eitt
marktækifæri í fyrri hálfleik er er
Todesco misnotaði gott færi. í síðari
hálfleik átti Roma góðar sóknir.
Poiicano sólaði frá miðju og skoraði
skemmtilegt mark. Roma lék sterk-
an vamarleik og áttu Coma-menn
í miklum erfíðleikum með að kom-
ast í með boltann í gegnum „köng-
ulóavef" Roma.
Napóli hefur átt í erfiðleikum í
siðustu leikjum og er ótrúlegt að
það skuli hafa gert jafntefli við
Empoli sem er í neðsta sæti 1. deild-
ar. Maradona átti ágætan leik, en
vamarmenn gættu hans vel og
komu í veg fyrir að áhorfendur
fengju að njóta til fullnustu hinna
frábæru hæfileika hans.
Gasperini skoraði mark Pescara á
4. mínútu í leiknum við Fiorentina.
í seinni hálfleik fískaði Pagano víta-
spymu sem Landucci varði. Þegar
ein og hálf mínúta var til leiksloka
skoraði Baggio úr vítaspyrnu og
jafnaði stöðuna.
AC Mílanó átti í erfiðleikum með
hið vaxandi lið Tórínó. Fyrri hálf-
leikur var jafn og fá marktæki-
færi. Gullit átti eitt skot í stöng og
Lorieri varði frábærlega langskot
frá Baldini skömmu fyrir leikhlé. í
upphafi seinni hálfleiks fékk AC
Mílanó vítaspyrnu sem Baresi tók
og Lorieri varði á glæsilegan hátt.
Á 78. mínútu komst Gritti fram á
ótrúlegan hátt og skildi vörn Mílanó
eftir og skoraði. En Adam var ekki
lengi í Paradís, því 30 sekúndum
síðar skoraði Ancelotti örugglega.
Leikur Verona og Ascoli var fjörug-
ur. Fyrsta markið gerði Volpeceina
eftir vítaspymu sem dæmd var á
Ascoli. Di Gennaro skaut ekki að
markinu heldur gaf á Volpeccina
sem skoraði. Á 15. mínútu seinni
hálfíeiks skoraði Pacione fyrir Ver-
ona. Casagrande var rekinn út af
á 18. mínútu fyrir að mótmæla
dómarandum. Giovanelli skoraði
síðan úr vítaspymu á 78. mínútu.
Altobelli skoraði strax á 10. mínútu
fyrir Inter gegn Pisa eftir að hafa
fengið boltann frá Mandorlini. Sci-
osa hafnaði fyrir Pisa úr vtaspymu
skömmu fyrir leikslok.
■ Úrslit/B 10.
■ Staöan/B 10.
ípfémR
FOLK
■ RABAH Madjer, fram-
herjinn kunni frá Alsír, leikur
með Inter Mílanó á ítaliu
næstu keppnistímabil, skv. frétt
í Corriere dello Sport um helg-
ina. Leikmaðurinn, sem er 29
ára, er í eigu Portó í Portúg-
al, en er í láni hjá spánska fé-
laginu Valencia. í vetur gerði
hann samning við þýska félagið
Bayem Miinchen um að leika
með iiðinu næsta vetur, en
ítalska blaðið, sem fyrr er vitn-
að til, sagði þann samning ekki
gilda þar sem forráðamenn
Portó ekki hafa samþykkt
hann.
■ PAULO Futre, sóknar-
leikmaðurinn snjalli hjá Atletico
Madrid á Spáni, harðneitaði um
blaðafregnum á Spáni þess efnis
að hann hefði gert samning um
að leika með ítalska félaginu
Roma næsta vetur. „Ég hef
ekki skrifað undir neitt og ákveð
ekkert um framtíð mín fyrr en
þessu keppnistímabili er íokið,"
sagði hann.
■ REALMadrid ogBayem
MUnchen leika síðari leik sinn
í Evrópukeppninni í Madrid á
morgun, miðvikduag. Miklar
öryggisráðstafnir hafa verið
gerðar fyrir ieikinn. 400 lögr-
elgumenn verða á leikvanginum
auk þess verða 70 karatemenn
til taks ef eitthvað fer úrskeiðis
á áhorfendapöllunum. Byggðir
hafa verið átta metra háir vegg-
ir fyrir aftan mörkin til að vama
því að áhorfendur kasti aðskota-
hlutum inn á leikvanginn. Bay-
era vann fyrri leikinn 3:2.
HOLLAND
Fyrstatap
Eindhoven
PSV Eindhoven tapaði loks leik
í hollensku úrvalsdeildinni er
liðið mætti Feyenoord um helgina.
Feyenoord sigraði 2:1 með mörkum
Mario Been, úr víti á 3. mín., og
Andre Hoekstra, sem skoraði eftir
80. mín. Eina mark PSV gerði
Ronald Koeman í lokin.
Þetta var fyrsta tap PSV í vetur,
en liðið hefur nú lokið 26 leikjum.
Þrátt fyrir tapið hefur PSV því ör-
ugga forystu, er átta stigum á und-
an Ajax, sem er svo öðmm átta
stigum á undan Feyenoord.
PSV mætir frönsku meisturunum
Bordeaux í síðari leik liðanna í
Evrópukeppninni á morgun. Tapið
kemur því á slæmum tíma, en þjálf-
ari PSV, Guus Hiddink, var þó ekki
svartsýnn. „Ef Feyenoord hefði tek-
ið okkur í kennslustund hefði mér
ekki staðið á sama. En við höfðum
mikla yfirburði í fyrri hálfleik og
lékum vel þrátt fyrir að lenda marki
undir. Þetta var erfíður leikur og
leikmenn mínir em þreyttir, en það
á ekki að koma að sök á miðviku-
daginn," sagði Hiddink.
■ Úrslit/B 10.
■ Staóan/B 10.
Morgunblaðið/Guðmundur Svansson
Amór Guðjohnsen, sem hér er á æfíngu hjá Anderlecht fyrir skömmu,
skoraði gott mark um helgina.
Amórsetti
mark gegn
Winterslag
ARNÓR Guðhjonsen skoraði
þriðja mark Anderlecht í 4:0-
sigri yfir Winterslag, liði Guð-
mundar Torfasonar, í belgísku
1. deildinni á laugardaginn.
Arnór skoraði á fyrstu mínútu
seinni hálfleiks með þrumu-
skoti af stuttu fœri eftir fyrir-
gjöf. Mechelen er enn efst í
deildinni eftir 2:1-sigurá
Lokeren.
Amór fékk góða dóma fyrir leik
sinn gegn Winterslag. „Þetta
var mikilvægur sigur hjá okkur
fyrir Evrópuleikinn gegn Benfíca.
Völlurinn var erfið-
ur, þungur og blaut-
ur og setti það mark
sitt á leikinn,“ sagði
Amór. Hann var
tekinn útaf þegar 15 mín. vom til
leiksloka og var ástæðan sú að
þjálfarinn vildi spara hann fyrir
Frá
Bjama
Markússyni
i Belgíu
Evrópuleikinn sem fram fer á morg-
un.
Um Evrópuleikinn gegn Benfica
sagði Amór: „Við emm ákveðnir í
því að vinna upp tveggja marka
tapið í Lissabon fyrir hálfum mán-
uði. Bæði liðin léku þá illa en ég
get lofað fjömgum leik á heima-
velli okkar hér í Bmssel.“
Fyrsta mark Andertecht gegn Wint-
erslag var sjálfsmark. Nilis bætti
öðm markinu við á 21. mínútu og
þannig var staðan í hálfleik. Amór
skoraði síðan þegar 40 sek. vom
liðnar af seinni hálfleik. Kmcevic
bætti fjórða markinu við rétt fyrir
leikslok. Guðmundur Torfason lék
ekki með Winterslag vegna meiðsla.
Oll toppliðin unnu um helgina. Den
Boer skoraði bæði mörk Mechelen,
sem er í efsta sæti, gegn Lokeren.
Ursllt/B10
StaAan/B11
SPANN
Stórsigur Real
Ungu strákarnir hans Howard Kend-
all áttu aldrei möguleika
REAL Madrid hitaði upp fyrir
Evrópuleikinn gegn Bayern
Múnchen annað kvöld með því
að sigra Atletico Bilbao 5:0 í
spönsku 1. deildinni á laugar-
daginn.
Real hefur því enn ömgga for-
ystu í 1. deildinni. Það sakaði
ekki þó vamarmanninn Miguel
Chendo og framheijann kunna
Emilio Butragueno vantaði vegna
meiðsla. Carlos Santillana kom inn
í liðið í stað Butragueno, og sýndi
að hann hefur engu gleymt þó hann
sé nú á 36. aldursári. Santillana
skoraði tvívegis, á 10. og 80. mín.
Michel gerði einnig tvö mörk, á 27.
og 33. mín. en það var mexíkanski
sniliingurinn Hugo Sanchez sem
gerði síðasta markið á 87. mín.
Hann hefur þar með gert 23 mörk
í deildinni í vetur.
Hinir ungu leikmenn Bilbao-liðsins,
sem Englendingurinn Howard
Kendall þjálfari, áttu aldrei mögu-
leika að þessu sinni, en liðið er
engu að síður enn nálægt toppnum.
Barcelona náði að sigra Logrones
heima, 2:1. Gestimir, sem em í
næst neðsta sæti deildarinnar, kom-
ust yfír með marki Angel Gonzalez
á 54. m(n. en útlendingamir í liði
Barcelona tryggðu liði sínu sigur-
inn. Englendingurinn Gary Lineker
skoraði á 78. mín. og einni mín.
fyrir leikslok gerði Vestur-Þjóðveij-
inn Bemd Schuster sigurmarkið.
■ Úrslit/B 10.
■ Staöan/B 10.