Morgunblaðið - 10.04.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 10.04.1988, Síða 14
14 B B 15 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 foreldra sína, sem koma þreyttir heim seint í kvöldmatinn og hlusta á fréttimar meðan verið er að borða. Þá má enginn segja orð. Síðan horfa þau á fréttimar í sjón- varpinu klukkan hálf átta og siðan aftur klukkan átta. Svo kemur bara eitthvað annað." Ingvi Steinar; „Svo loksins þegar þau hafa tíma fyrir okkur, þá emm við kannski búin að ákveða eitthvað allt annað en verðum samt að fóma okkar tíma, af því að það hentar svo.“ Og þessu em þau öll sammála. En nú fara þau að ókyrrast. Stuð- ið er í hámarki og húsið skelfur engu minna en Glaumbær gamli gerði forðum daga. Hávaðinn er ærandi og maður tekur um eymn og hleypur um skólann í leit að yfirkennaranum til að fá nú hans álit á ungdómnum: Unglingar eins og hljóðfæri Yfírkennari skólans, Daníel Gunnarsson, hefur kennt ungling- um í nær 15 ár og haft umsjón með félagslífí þeirra. — Daníel, em unglingar núna eitthvað öðmvísi en þeir vom þegar þú byijaðir að kenna? „Þau em ósköp svipuð held ég, en þau hafa jákvæðara gildismat núna, til dæmis hvað snertir hrein- læti og umhirðu, þau hugsa betur um heilsuna og bera meiri virðingu fyrir sjálfum sér. Þau virðast líta jákvæðari augum á samfélagið, og það er minni orka sem fer í átök við það. En aftur á móti em þau upptekn- ari af hinu veraldlega, það sló mig dálítið þegar þau vom að undirbúa árshátíðina núna og vildu endilega hafa verð aðgöngumiða hátt því það átti að gera hátíðina eftirsóknar- verðari." — Það er rætt um óvenjumikla ijárþörf? „Það er eftiröpun af heimi for- eldranna. Sú kynslóð er búin að innræta virðingu fyrir öllu því sem kostar nógu mikla peninga. Hef- urðu ekki tekið eftir því hvað það er lítið orðið um að menn geri hver öðmm greiða? Það er alltaf verið að selja vinnu, menn hreyfa sig ekki nema fá borgað fyrir. Og það er okkar kynslóð sem hefur innleitt þennan hugsunarhátt." — Hvað fínnst þér um að þau vinni með skólanum? „Hér er ábyrgð foreldra mikil, en þau láta oft undan bömum sínum þegar þau vilja vinna með skólan- um. Bömin em líka búin að taka þátt í þessu samkeppnisþjóðfélagi iengi. En skólinn á að vera fullt starf, og það þarf líka að vera eitt- hvað þrek eftir fyrir tómstundir og félagsstarf." — Þú lætur þau sjálf bera ábyrgð á árshátíðinni sinni, sjá um að áfengi sé ekki haft um hönd og svo framvegis? „Það er undantekning ef ungl- ingur bregst ábyrgð. Annars er umfjöllun um' unglinga eingöngu tvenns konar. í fyrsta lagi ef um er að ræða einhver íþróttaafrek, og í öðm lagi ef um er að ræða af- brota- eða ólánsunglinga. Aðrir unglingar eiga ekki aðgang að fjöl- MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1988 miðlum. Um hinn venjulega ungling er aldrei talað, heilbrigðan ungling sem ræktar manninn í sjálfum sér.“ — Hafa þau meiri metnað núna? „Það er ég ekki viss um. Kannski meiri ró yfír þeim, þau em opnari og að mörgu leyti réttlátari þótt þau geti auðvitað verið dómhörð." — Em þau frek ogyfírgangssöm? „Ef þau em það þá er það vegna þess að foreldrar þora ekki að segja nei, þeim fínnst auðveldara að gefa þeim ábyrgðarlaust frelsi. Þeir rétt- læta afskiptaleysi sitt með þessu tali um frelsi unglinganna, en það er ódýr lausn, því með því em þeir að varpa ábyrgðinni frá sér og þetta frelsi sem þeir kalla, er ekkert ann- að en byrði sem unglingar em að kikna undan. Það er sorglegt hversu gegnsæj- ar persónur unglingar em, því bæði má sjá í gegnum þá erfíðleika sem em heima fyrir, og svo ef þeir em undir áhrifum frá öðmm hópnum, þá þora þeir ekki að vera þeir sjálf- ir.“ Hvemig á að koma fram við unglinga Daníel? „Þú færð það viðmót til baka sem þú sýnir. Unglingar em eins og hljóðfæri, ef þú spilar falska nótu þá verður útkoman eftir því. Það á að tala við ungling sem einstakling og mann, tala aldrei niður til þeirra. Bera virðingu fyrir þeim og virða þeirra skoðanir. Vera samt óhrædd að segja nei ef þess gerist þörf, ef umræða dugir ekki, þá gildir for- eldravaldið. Svo á maður ekki að vera að skipta sér af því sem manni kemur ekki við. Vera ekki að nöldra yfír smámunum í fari þeirra. Það er víst ýmislegt í fari okkar sem hægt væri að nöldra yfír. Texti: Kristín Maija Myndir: Bjarni Eiríksson Fótaaðgerðarstofa Guðrúnar Laugavegi 91,2. hæð. Tímapantanir í síma 14192. Guðrún Ruth, fótasérfræóingur. omRon AFGREIÐSLUKASSAR Börn eru viðkvæmari fyrirþví að vera án réttrar næringar en fullorðið fólk. Skorturá næringarefnum hamlarþroska þeirra. 3 S Kalk er algengasta steinefnið í líkamanum. Kalk er nauðsynlegt til þess að tennur ojg bein nái fullri stærð, þéttleika og styrk. An mjólkurmatar er nær ógerlegt að fullnægja kalkþörfinni og tryggja jafnframt önnur næringarefni í nægilegum mæli. Til þess að beinabygging verði eðlileg þarf hlutfall hinna ýmsu steinefna að vera rétt. í mjólk eru þessi hlutföll mjög hagstæð. 2glös afnýmjólk gefa 1 -3ja ára börnum um 50% af RDS A-vítamíns. Það vítamín er stundum nefntslímhúðarvítamínið, því að það endurnýjarslímhúðina og verokkur þannig gegn utanaðkomandi sjúkdómum. Prótein eraðalbyggingarefni líkamans. Próteinið í mjólk er hágæðaprótein og eitt það besta sem völ er á. Lýsi og mjólk vinna mjög velsaman. D-vítamínið ílýsinu hjálpar til við að nýta kalkið úrmjólkinni. Börn með eðlilegan vöxt þurfa á hitaeiningum og fitu úrnýmjólk að halda. Neyslafituskertrarmjólkurgetursviptsum börn nauðsynlegri orku. Orkuþörf 1 -3ja ára bams er allt að þreföld orkuþörf fullorðinna miðað viðþyngd. í mjólkinnieru B vítamín sem eru nauðsynleg fyrirþá sem eru í örum vexti til þess að geta myndað erfðaefni fyrirnýjar frumur. Hún á allt það besta skilið Fyrstu árin í lífi barns geta skipt sköpum um framtíð þess. Sú undirstaða sem þá er lögð þarf að vera það traust að á henni sé hægt að byggja allt lífið. Þennan mikilvæga tíma er þessi litla vera hins vegar algerlega háð umönnun annarra. Vöxtur hennar og þroski er á þeirra ábyrgð. Þegar brjóstagjöf hættir skiptir rétt fæðuval miklu máli. Mjólk er einn mikilvægasti þátturinn í fjölbreyttu fæðuvali barna. Auk þess að vera langmikil- vægasti kalkgjafi okkar inniheldur hún í ein- hverjum mæli öll mikilvægustu vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast og verulegan hluta snefilsteinefna. Hæfilegur skammtur af nýmjólk fyrir 1 -3ja ára barn er 2-3 glös á dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.