Morgunblaðið - 10.04.1988, Blaðsíða 24
24 «B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10: APRÍL '1988
3-20
" þés fíjrir þessa. qremaryóba.
týéíioga a. kjarn.orkukapphlaupiMtu
Branolur: "
yÍsí er ...
ad fylgja kalli hjartans.
TM Rag. U.S. Pat. Off.-all rights raserved
© 1986 Los Angeles Tlmes Syndlcate
ustunni?
Með
morgiinkaffinu
Hann ætlar að likjast
pabba sínum, virðist
mér ... seinn að átta sig.
HÖGISTI HREKKVÍSI
Bifreiðatryggingarnar og
nýju umferðarlögin
Einar Vilhjálmsson hafði sam-
band:
„Með tilkomu nýju umferðar-
lagana, sem þingmenn hafa sagt
að horfí til stórkostlega aukins
öryggis í umferð og þar með minni
slysahættu, skyldi maður ætla að
bifreiðatryggingar ættu að lækka.
En tryggingafélögin hafa metið
þetta á annan hátt. Þau hafa tvö-
faldað iðgjöld til að mæta stórauk-
inni slysatíðni, þrátt fyrir að fjöldi
tryggingataka hafí stöðugt aukist
og aukið þar með veltu þeirra.
Þetta hefur ásamt bflaskattinum
gert það að verkum að fjöldi efna-
minni manna hefur gefíst upp við
að halda úti bfl.
Þá langar mig til að koma á
framfæri hugmynd við forráða-
menn Ríkissjónvarps. Væri ekki
tilvalið að stjónvarpið sýndi
fræðsluþætti um myndlist en
varðandi hana er auðvelt að koma
við sýnikennslu í sjónvarpi. Þetta
kæmi mörgum að gagni og sér-
staklega fólki sem búsett er í
dreifbýli. Einnig væri það tíma-
bært núna að leiðbeina fólki í ljós-
myndun og kæmi slík kennsla í
sjónvarpi að miklu gagni."
Ekki hægt að skella
skuldinni á kennara
Kristbjörg hringdi:
„Ég er orðin leið á að heyra
að böm og unglingar séu fóm-
arlömb launabaráttu kennara.
Væri ekki nær að skella skuldinni
á viðsemjendur kennara."
Barnaskíði
Bamaskíði og skíðastafír töp-
uðust á Þingvöllum, fyrir neðan
Grafningsafleggjarann, á föstu-
daginn langa. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 24622.
Megrunaruppskriftir á rás
2
7279-0340 hringdi:
„Mig langar til að gera fyrir-
spum til heilbrigðisráðuneytisins.
Nú er ár heilbrigðis og af því til-
efni er barist fyrir ýmsum góðum
málum t.d. gegn reykingum og
er það vel. Hins vegár hefur lítill
gaumur verið gefinn að því hversu
margir verða fyrir heilsutjóni sök-
um ofáts. Hvemig væri að megr-
unaruppskriftir yrðu lesnar upp á
rás 2 milli laga á þeim tímum sem
mikið er hlustað. Ef þetta yrði
gert myndi nást til margra. Rás
2 er ríkisfyrirtæki og þetta er
verðugt verkefni að vinna að. Ef
vel væri að þessu staðið mætti
hugsanlega breyta mataræði
þjóðarinnar til hins betra.“
Úlpur
Tvær úlpur, önnur rauð með
gráum öxlum og hin gallaúlpa
með vattfóðri, töpuðust í Fossvogi
fyrir um það bil mánuði. Ef ein-
hver hefur fundið úlpumar er sá
hinn sami beðinn að hringja í síma
32416.
!
t
t
i
i
Rétt að skjóta bjarndýrið
Til Velvakanda.
Mikið hefur verið skrifað um
bjamdýrið sem kom hér á land með
fsnum í vetur. Það vildu margir ná
því lifandi og flytja það til síns
heimalands. Sumir sögðu að bjam-
dýr væru friðuð og mætti ekki
skjóta þau. En hvað hefði þetta
blessað fólk gert ef það hefði mætt
svöngu bjamdýri. Ætli þá hefði
ekki komið annað hljóð í strokkinn.
Ég er á þeirri skoðun að það eigi
að skjóta öll flækingsdýr sem koma
hingað með ísnum, hvort sem þau
em friðuð eða ekki.
Nú hefur alþingi okkar íslend-
inga slegið met. 96 manns em bún-
ir að sitja þar í vetur, 33 varamenn
en náttúrlega í mismunandi langan
tíma. Og þetta em mennimir sem
predika spamað.
En það er víst almúginn sem á
að spara svo hægt sé að greiða eitt-
hvað í kassann. Ætli það grynnist
ekki í kassanum þegar fjármálaráð-
herrann er búinn að greiða utan-
landsferðakostnað þingmanna og
ráðherra?
Ég hef skrifað um það áður að
það þurfí að breyta stjómarskránni
og gera landið að einu kjördæmi,
þinghúsið að einni málstofu og
fækka þingmönnum. Þá myndi ekki
þurfa að byggja þinghúsið sem á
að rísa nálægt hinu. Það er alltof
lítið hugsað um að spara í okkar
þjóðfélagi.
Ingimundur Sæmundsson
Víkveiji skrifar
Piltungurinn sem var staðinn að
því á dögunum að aka á liðlega
155 kflómetra hraða á Kleppsvegin-
um gaf þá skýringu á tiltækinu að
hann hefði endilega þurft að sýna
bflstjóra nokkmm, sem var þama
líka á ferð, hvemig menn í „alvöru-
bílum“ sprettu úr spori.
Til þessarar sýnikennslu í fá-
fengilegum glannaskap og algeru
skeytingarleysi um líf og limi sam-
borgara sinna, efndi kauði um há-
bjartan dag á götu þar sem um-
ferðarþungi er jafnan mikill og
leyfilegur hámarkshraði einungis
60 kflómetrar. Yfir vegarkaflann
þar sem afrekið var unnið liggur
að auki gangbraut og við hann er
til viðbótar fjölsótt strætisvagna-
stöð.
Hér má því segja að söguhetjan
hafí verið að stytta sér stundir við
eins konar rússneska rúllettu eins
og það heitir en með því fráviki þó
að í stað þess að leggja einungis
sína eigin líftóru undir veðjaði garp-
urinn svona til tilbreytingar líka lífí
allra hinna sem vom svo seinheppn-
ir að vera þama á ferðinni.
Iítarlegri frásögn Morgunblaðsins
af atvikinu, sem hefði vitanlega
getað endað með ósköpum, hjó
Víkveiji meðal annars eftir því að
þótt títtnefndur „ofurhugi" væri svo
til nýbúinn að eignast „alvöru-
bflinn" sinn, þá var hann þegar
búinn að verða sér úti um einn af
þessum radarvömm sem svo em
kallaðir, sem eins og kunnugt er
em gæddir þeim eiginleika að gera
eigendum sínum viðvart með ein-
hvers konar gauli þá lögreglan er
í grenndinni við hraðamælingar.
Tólið dugði að vísu skammt í
þetta skiptið þar sem strákur álpað-
ist beint í fangjð á henni. En allt
um það hefur það auðsjáanlega allt
frá fyrsta degi verið bjargfastur
ásetningur hins unga ökuþórs að
„gefa skít“, eins og þeir svölu segja,
í umferðarreglumar eða að minnsta
kosti þann hvimleiða hluta þeirra
sem fjallar um ökuhraða og þess
konar óþarfa.
XXX
Hér í dálkunum hefur fyrr verið
vikið að þessum tækjum sem
þjóna svo augljóslega þeim aleina
tilgangi að auðvelda mönnum að
hunsa umferðarreglumar, að hjálpa
þeim að iðka kappakstur af því tagi
sem hér hefur verið lýst og vera
þó sæmilega óhultir fyrir lögregl-
unni.
Furðulegt annars að þetta leyni-
vopn harðsvíruðustu umferðarþrjót-
anna skyldi fara fram hjá þing-
mönnum okkar núna í vetur þegar
þeir voru að beija saman nýju um-
ferðarlögin hver um annan þveran
með hjálp fæmstu manna. Það er
ekki eins og aðeins fáeinir afglapar
ráði fyrir þessum tólum. Ef Víkveiji
man rétt vom þau í bflum tveggja
að minnsta kosti sem lögreglan á
Selfossi tók fyrir ofsaakstur nú al-
veg nýverið þótt þau brygðust þeim
að vísu allhrapallega í það skiptið
rétt eins og gandreiðargarpinum á
Kleppsveginum.
Én á meðan það er talið gott og
blessað að búnaður sem beinlfnis
stuðlar að umferðarlagabrotum sé
auglýstur hér til sölu í verslunum,
því í ósköpunum látum við þá þar
við sitja?
Á þá til dæmis innflutningur og
sala hentugra innbrotstækja ekki
alveg eins mikinn rétt á sér?
< 3 . W W C CD < _ Q. CT »4 ffl. 5T _ C . J3V&2 Tg\.