Morgunblaðið - 27.05.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
B 15
MYIMDBÖIMD
Sæbjörn Valdimarsson
ENNÁNÝ
ÍNAM
STRIÐSMYND
NAM - TOUR OF DUTY^Vz
Leikstjóri: Bill L. Norton.
Handrit: L. Travis Clark og
Steve Duncan. Framleiðandi:
Zew Braun. Aðalleikendur:
Terence Knox, Stephen Caf-
frey, Joshua Maurer, Steve
Akahoshi, Tony Becker. Hi-Fi.
Bandarísk. New World Intern-
ational/ VS dreifing 1988.
Árið er 1967 og Víetnam stríðið
stendur sem hæst. Herdeild undir
stjóm grænhúfunnar Andersons
er send til að eyða víghreiðri Viet
Cong.
Ef Nam væri fyrsta myndin um
þetta hábölvaða stríð fyndist
manni sjálfsagt eitthvað til hennar
koma. Frásagan er tilgerðarlaus
ef undan er skilinn kaflinn sem á
að gera hana svolítið frumlega. í
honum kemur nefnilega til sög-
unnar voða góður Viet Congari,
læknir í þokkabót og bjargar
skinni þeldökkrar grænhúfu. Upp-
fræðir hann ofboðlítið í marxísk-
um fræðum í leiðinni. Hlýtur þessi
hluti myndarinnar að fara fyrir
bijóstið á öllu sæmilega óbijáluðu
fólki. Annars er þetta ekkert verra
né betra innlegg í umræðuna um
hið margtuggða stríð. Klisjumar
allar fyrir hendi; popp frá sjöunda
áratugnum, með gamla brýnið
hann Dylan og „All Along The
Watchtower" í fylkingarbijósti,
vondir menn og góðir, myndrænar
þyrlur á sveimi, innantóm slagorð
á báða bóga. Kostir hennar eru
að ekki er verið að rembast við
að segja neinn stórasannleika,
heldur smásögu úr stríði og upp-
tökustaðimir, (Hawaiieyjar), eru
sannfærandi. Mynd fyrir þá
stríðsóðu.
TINDÁTALEIKUR
STRIÐSMYND
LEIKSVÆÐI DJOFULSINS -
SKELETON COAST^
Leikstjóri: John „Bud“ Cardos.
Handrit: Nadia Caillou. Aðal-
ieikendur: Ernest Borgnaine,
Oliver Reed, Herbert Lom, Pet-
er Vaughan, Leon Isaac
Kennedy. International Film
Entertainment/Bergvík 1988.
98 mín.
Það þarf meira en lítið vankaða
menn til þess að hóa þeim Borgn-
ine, Reed, Lom og Vaughan sam-
an til að vera máttarstoðir heillrar
kvikmyndar. Allt eru þetta út-
bmnnin gamalmenni sem sjálf-
sagt geta eitthvað dugað um sinn
í aukahlutverkum en að ætla þess-
um hóp eitthvað meira er hlægi-
legt. Það er aum sjón að sjá þessa
skarfa ennþá með sama grautinn
í sömu skálinni — með sömu takt-
ana og klisjumar og maður sá þá
fyrst, árið sautjánhundruð og
súrkál. Borgnine með gamla bijál-
æðisglampann í augum, (hann
gerði það þó gott í nokkmm
myndum, einsog Marty, Emperor
of the North, The Wild Bunch,
þó svo að persónusköpun hans sé
ekki fjölskrúðug), Reed, síhrak-
andi msti sem eftir útlitinu að
dæma tekur launin sín milliliða-
laust út í brennivíni, og þeir Lom
og Vaughan hlægilegir, nauða
takmarkaðir leikarar sem alltaf
em að beijast við sömu persónu-
sköpunina . Og ekki nóg með
það, heldur eiga nokkrir, ungir
guðsgeldingar með vélbyssur, þar
af ein hálfvitaleg ljóska, að hressa
uppá samkunduna.
Og það er ekkert lítið sem ætl-
ast er til af þessum gamalmennum
og gervirambóum. Knésetja heil-
an landshluta, bijótast inní óvinn-
andi vígi, leysa úr haldi fanga,
komast úr landi, o.s.frv, o.s.frv.
Ekkert mál. Algjör della.
PRYORÍ TVÍ-
SÝNU
ÁSTANDI
GAMANMYND
CRITICAL CONDITION -
HÆTTUÁSTAND ★ »/2
Leikstjóri Michael Apted.
Handrit Denis Hamill og John
Hamill. Kvikmyndatökustjóri
Ralf D. Bode. Tónlist Alan Silv-
estri. Aðalleikendur Richard
Pryor, Rachel Ticotin, Rubén
Blades, Joe Mantegna, Bob
Dishy, Sylvia Miles, Joe Dalles-
andro, Random “Tex“ Cobb,
Joseph Ragno, Jon Poiito, Garr-
ett Morris. Bandarísk. Paramo-
unt 1986. 94 mín. Hi-Fi.
Sú var tíðin að Richard Pryor
var sá fyndnasti, útsjónarsamasti
og hæstlaunaði þeldökkra
skemmtikrafta í Vesturheimi. Eit-
urlyfjaneysla, sem næstum dró
hann til dauða (og hann lýsir
ágætlega í myndinni Jo, Jo, Danc-
KDMG
Timamót í IjósrHun
acohf
SKIPHOLT117
105 REYKJAVÍK
SlMI: 91 -2 73 33
er), og hlutverkaval sem ber ekki
vott um skarpa dómgreind, hafa
lækkað stjömu þessa ágæta gam-
anleikara sem skemmti okkur svo
prýðisvel í myndum einsog Silver
Streak, Stir Crazy, Superman 3,
o.fl. En það er þó ekki við Pryor
að sakast hér að öðru leyti en því
að hafa tekið þátt í þessum
óskapnaði. Því hann rembist eins
og ijúpan við staurinn við að halda
höfði og vera skemmtilegur en
efnið býður einfaldlega ekki uppá
það.
Að þessu sinni leikur Pryor
braskara sem á í útistöðum við
Mafíuna. Leikur sig vitlausan á
sjúkrahúsi til að bjarga skinninu.
Þá vill svo illa til að óveður geng-
ur yfir fylkið, straumurinn fer af
spítalanum og okkar maður bjarg-
ar öllu heila kraminu fyrir hom.
Hlýtur frelsið að launum og hjarta
kvenhetjunnar.
Það sem fer með Hættuástand
er ófyndið handrit og ófyrirgefan-
legar gælur við alvöruna og sið-
ferðisboðskap sem engan veginn
á heima í heildarmyndinni. Það
skásta við Hættuástand em ágæt-
ir aukaleikarar; Bob Dishy (átti
stórleik í Brighton Beach Memo-
irs), hinn hratt rísandi Joe Mant-
egna (Illur grunur) og Random
“Tex“ Cobb (Raising Arizona)
gera allir hvað þeir geta til að
hressa uppá þennan ólánlega og
ótrúlega samsetning. Pryor má til
með að vanda val sitt betur ef
hann á ekki að missa af lestinni.
Ferill hans er í hættulegu ástandi.
GULL OG
GÆFA
DRAMA
EUREKA ★ ★ ★
Leikstjóri Nicholas Roeg.
Handrit Paul Myersberg, byggt
á skáldsögu Marshalls Houts.
Tónlist Stanley Myers. Fram-
leiðandi Jeremy Thomas. Aðal-
leikendur Gene Hackman,
Theresa Russell, Rutger Hauer,
Mickey Rourke, Joe Pesci, Ed
Lauter, Corin Redgrave, Jane
Merkingar
á glös og postulín
—^feitií'sf—
Bíldshöfða 18-sími 688838
Borðbúnaður
fyrir veitingahús.
Allt á einum stað.
Glös eða postulín.
Merkt eða ómerkt.
Lapotaire. Bandarísk. Wamer
Bros 1983. Steinar 1988. 125
mín.
Eureka, góður kunningi af
síðustu Kvikmyndahátíð þar sem
hún vakti verðskuldaða athygli
og eina mestu aðsókn hátíðarinn-
ar, er að mörgu leyti magnað
listaverk, gert af einum eftirtekt-
arverðasta leikstjóra samtímans,
Bretanum Nicholas Roeg. Vissu-
lega umdeilanlegt verk sem einn
dáir en annar smáir en hefur til
að bera miklu meiri listrænan,
kvikmyndalegan metnað en mað-
ur á að venjast á hinum íslensku-
textaða myndbandamarkaði.
Steinar hf. hafa verið óragir við
að gefa út menningarlegar, eldri
myndir í bland við hið lífsnauðsyn-
lega afþreyingarefni og er það vel.
Euréka fjallar um gullleitar-
manninn Hackman sem finnur
auðugustu gullnámur veraldar
eftir æma leit á norðurslóðum.
En gullið færir honum litla ham-
ingju. Myndin gerist að mestu
leyti tuttugu ámm síðar er Hack-
man er búinn að koma sér fyrir
á paradísareyju í Karíbahafinu.
Og nú em gulleitarmenn af öðmm
toga með hótanir á hælum hans;
glaumgosinn Hauer á eftir auga-
steininum, dóttur hans (Russell),
og Mafían vill koma upp spilavíti
á Edenseyjunni.
Kynngimögnuð skoðun á tálsýn
auðs og valda, drifín áfram af
kraftmiklum leik Hackmans í við-
amiklu aðalhlutverki og hug-
myndaríkri leikstjóm Roegs sem
skapar mörg eftirminnileg og
seiðandi atriði. Aukinheldur hefur
hann ráðið í aukahlutverk einkar
forvitnilegan hóp sterkra skap-
gerðarleikara sem m.a. telur Rut-
ger Hauer og Mickey Rourke í
einum þeirra fyrstu, athyglisverðu
myndum (ef frá em taldar hinar
hollensku myndir Hauers), Ed
Lauter, sem hér sýnir svo ekki
verður um villst, að hann er fær
um önnur hlutverk en illmenna.
Joe Pesci (Raging Bull), Lapotaire
og Redgrave em réttar mann-
gerðir á réttum stöðum og hin
undurfagra og hæfileikaríka frú
Roeg — Theresa Russel — gæðir
þessa fáguðu, framsæknu kvik-
mynd kynferðislegu seiðmagni.
Myndir á borð við Eureku víkka
sjóndeildarhring myndbandaneyt-
enda og gera valið fágaðra og
forvitnilegra.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR j KÓPAVOGUR
Stórholt
Stangarholt
Meðalholt
Óðinsgata
VESTURBÆR
Hraunbraut18-47
Kársnesbraut 7-71
Skjólbraut
BREIÐHOLT
Fornastekkuro.fi.
Nýlendugata