Morgunblaðið - 27.05.1988, Page 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
Edward Woodward og lan Char-
leson leika njósnara í smáþátta-
röft sem nýlega var frumsýnd í
Bandaríkjunum.
Guðað á
skjáinn
Á milli
ogBoi
Hinn hvasseygi og kubbslegi
Edward Woodward, sem leikur
Bjargvættinn Robert McCall af
stakri prýði á Stöð 2, kastar
stundum af sór gerfi bjargvætt-
arins og leikur i öðrum sjónvarps-
þáttum eða myndum.
Þannig fór hann til dæmis með
aðalhlutverkið í nýjum tveggja
þátta njósnaþriller sem sýndur
var í sjónvarpi í Bandaríkjunum
fyrir skemmstu sem heitir „Cod-
ename: Kyril" eða Dulnefni: Kyr-
il. Mótleikari hans er landi Ed-
wards, lan Charleson, frægur
fyrir leik í jafnólikum myndum og
„The Chariots of Fire“ og „Mast-
er of the Game".
Smáþáttaröðin er byggð á
skáldsögu eftir John Trenhaile
og er svona blanda af John Le
Carré og James Bond. Sögusvið-
ið teygist frá Kremlarmúrum í
Moskvu til MI6 í London með
eltingarleikjum og James Bond-
líkum brellum. Það er kannski
engin furða þó menn beri smá-
þáttaröðina saman við bæði
Carré og Bond því handritshöf-
undurinn er John Hopkins en
hann skrifaði hina margfrægu
sjónvarpsþætti „Smiley’s Pe-
ople” og einnig handritið að
Bondmyndinni „Thunderball".
Sovéski súpersnjósnarinn Kyr-
il (lan Charleson) er sendur í
súperleyniför til London að frelsa
nýhandtekinn sovéskan njósnara
sem heitir Loshkevoi en hann
veit um háttsetta „moldvörpu"
innan KGB í Moskvu (takið eftir:
efsti parturinn á öðrum þumli
moldvörpunnar er af. Hafa mold-
vörpur þumla?). í London hefur
breski súpernjósnarinn Royston
(Edward Woodward eða Bjarg-
vætturinn) sett frístundanjósnar-
ann Sculby (Richard E. Grant) í
það að veiða allt sem hægt er
uppúr Loshkevoi.
Og það kemur auðvitað fljót-
lega i Ijós að það er líka háttsett
moldvarpa innan njósnamið-
stöðvarinnar í London. Heima í
„dachanu" sinu nálægt Moskvu
situr svo hershöfðinginn Povin
(Denholm Elliott) og sýnir nótum
fyrir gitartónlist óeðlilegan áhuga
(við vitum að við erum i Moskvu
vegna Leninstyttanna. Einnig eru
rússarnir liklegri til að segja eitt-
hvað eins og: „Þú veist hverjar
afleiðingar það hefur i þessum
bransa að gera mistök."
Smáþáttaröðin mun vera hin
ágætasta skemmtun enda fara
stórgóðir leikarar með helstu
hlutverk. En sum æfintýrin eru
kannski full-einfeldingsleg. Einu
sinni þegar Kyril hefur verið um-
kringdur af breskum njósnurum
í húsi dregur hann uppúr pússi
sínu mjög handhægt dulargerfi,
gengur út og þykist vera blindur
maður. Njósnararnir, sem eiga
ekki að vera blindir en hefðu
gott af svolitlum heilasellum með
talstöðvunum sinum, láta hann
sigla.
-ai.
MYNDBÖND Á MARKAÐNUM
Sæbjöm Valdimarsson
Þessum nýja þætti er ætlað að
birtast vikulega og spanna yfir
helstu og vinsælustu myndbönd-
in á leigum borgarinnar. Stuttri
umsögn fylgir stjörnugjöf og
verftur listinn endurskoðaftur og
bættur hverju sinni. -SV.
DIRTY DANCING
★ ★★
Ég spái að þessi óvænti afþrey-
ingarsmellur síðasta árs eigi eftir
að tröllríða myndbandstækjum
landsmanna næstu mánuðina.
Eldhress tónlist og dansinn stiginn
af nautn. Swayze fremstur í flokki
ágætra leikara.
NO MERCY^^
Engin náð í New Orleans þar
sem þessi spennandi og grófi þrill-
er gerist að mestu leiti. Gere
kemst þokkalega frá hlutverki
Chicago-löggu sem heldur til borg-
arinnar í hefndarhug og lendir í ill-
um útistöðum við litríkan undir-
heimalýð, Akadíumenn, kuklara.
En Jeroen Krabbe stelur senunni
sem mikilúðlegur höfuðpaur morð-
varga hinnar seiðandi Suðurríkja-
borgar.
RENT-A-COP ★★
Löggumynd sem líður fyrir hall-
ærislegan ofleik Minelli og ves-
ældarlegan Reynolds. „Öðru vísi
mér áður brá ..."
JUMPIN JACK
FLASH ★★
Hér er Goldberg komin á háska-
lega braut, lætur misvitra framleið-
endur ata sér útí farsaleik sem
byggður er á einkar ófyndnu hand-
riti.
ROXANNE ★★★
Cyrano de Bergerac á léttu nót-
unum, eða einsog Steve Martin
getur einn afgreitt hann. Vel skrif-
að, hnyttið handrit, Martin fer á
kostum, eins Rossovich í hlutverki
þöngulhaussins og Hannah er hin
æsilegasta. Ánægjuleg afþreying.
BEVERLY HILLS
COP II ★★
Nánast endurgerð fyrri myndar-
innar, aðeins örlitlar breytingar á
leikurum í aukahlutverkum, tæpast
mælanlegar á handriti né töku-
stöðum. En áhorfendur eru greini-
lega ekki búnir að fá nóg af Alex
Foley. Fyrir aðdáendur Eddie
Murphy.
CRITICAL
CONDITION ★
Titillinn á ekki síður við stöðu
leikferils Pryors sem vonandi hrap-
ar ekki neðar. Innantóm og fárán-
lega alvörublönduð erkiþvæla. Pry-
or og fleiri góðir menn reyna björg-
unaraðgerðir án árangurs.
RAISING ARIZONA
★ ★ ★
Cohen-bræður (Blood Simple)
fara óhikað ótroðnar leiðir og út-
koman er frumleg, bráðfyndin
uppákoma um lánleysingja í þjóð-
félaginu sem taka það til bragðs
að ræna kornabarni þegar önnur
úrræði bresta! Hunter (Broadcast
News) og Cage eru óborganleg í
aðalhlutverkum. Ósvikin skemmt-
un.
AMAZING STORIES
III ★★1/2
Þessi þriðja spóla af sjónvarps-
þáttunum gefur þeim fyrri ekkert
eftir. Óvenju haldgott skemmtiefni
um atburði á mörkum draums og
veruleika.
RADIO DAYS ★ ★ ★
Angurværar minningar Allens
frá uppvaxtarárunum í Brooklyn,
einkum þeim gífurlegu áhrifum
sem útvarpið hafði á líf og drauma
almennings á þessum blómatíma
þess (í lok fjórða áratugarins). Al-
len hefur oft gert betur en skiss-
urnar eru flestar bráðfyndnar og
áleitnar, kvikmyndatakan og end-
ursköpun tíðaranda og umhverfis
með miklum ágætum.
NUMBER ONE
WITH A BULLET ★
Bang og aftur bang. Annars
flokks kvikmyndagerðarmenn
bjástra við útjaskaða formúlu.
Þreytulegt.
SKELETON COAST
★
Allt að því dýrðlega lélegur
óskapnaður um aflóga gamal-
menni í hetjuhlutverkum.
MALONE ★★
Þokkaleg afþreying, byggð á
sígildum söguþræði. Reynolds
nokkuð líflegur en góður hópur
leikara í aukahlutverkum mun
betri. Nokkuð hröð atburðarás og
vel unnin átakaatriði.
ISHTAR ★★Va
Ein kunnari mistök síðari ára í
sögu kvikmyndanna. Heildarmynd-
in gengur alls ekki upp, en með
jákvæðu hugarfari má hafa gaman
að mörgum, einstökum köflum
myndarinnar; New York-þættin-
um, Hoffman í túlkshlutverkinu og
Grodin og blinda kameldýrið eru
bráðfyndin.
SECRET OF MY
SUCCESS ★★Vz
Ungur sveitastrákur á uppleið -
með öllum ráðum — í stórborg-
inni. Þunnur þrettándi en Michael
J. Fox er einstaklega aðlaðandi
leikari og bjargar myndinni fyrir
horn.
ONE FLEW OVER
THE CUCKOO’S
NEST ★★★★
Hef verið oftar spurður um þetta
sígilda meistaraverk en nokkuð
annað myndband. Hélt það vera
horfið af markaðnum, en það er
a.m.k. eitt eintak til hjá Mynd-
bandaleigu kvikmyndahúsanna,
Skipholti. En það á ekki langt eftir!
BURGLAR ★★
Goldberg og Goldwaith ofleika
af kappi í heldur klénni gaman-
mynd um ólánlega innbrotsþjófa.
BLIND DATE ★★★
Edwards stýrir þeim Willis og
Basinger af gamalkunnu öryggi
framhjá blindskerjum farsans. Will-
is virðist hafa alla burði til þess
að slá í gegn á tjaldinu sem á skján-
um.
52 PICK-UP ★ ★V2
Dæmigerð mynd sem nýtur mun
meiri vinsælda á leigum en í kvik-
myndahúsum. Harðsoðinn þriller
um náunga (Scheider), sem grípur
til sinna ráða er hann verður fórn-
arlamb fjárkúgara. Vel mönnuð,
einkum skúrkahlutverkin.
LETHAL WEAPON
★ ★ ★
Lífsseig, enda fyrsta flokks
löggu-og bófamynd, prýdd stjörnu-
leik Glovers og Gibsons sem skapa
einkar athyglisvert tvíeyki.
HAUNTED
HONEYMOON ★★
Þreytt og klisjukennd hryllingss-
kopmynd sem á þó sín augnablik.
Gene Wilder ræður tæpast við að
vera bæði bíll og bílstjóri, en hann
leikstýrir, skrifar handrit og leikur
aðalhlutverkið án umtalsverðra til-
þrifa.