Morgunblaðið - 22.06.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988
7
Meimtamálaráðiineyt-
ið gefur út fréttabréf
FYRSTA tölublað Fréttabréfs
menntamálaráðuneytisins er
komið út og er áformað að hefja
reglulega útgáfu þess í haust.
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, segir í ávarpi
til lesenda' fréttabréfsins, að hug-
myndin sé sú að nota þennan vett-
vang til að miðla margvíslegum
upplýsingum um störf og stefnu
menntamálaráðuneytisins til þeirra
aðila sem ráðuneytið hefur mest
samskipti við.
„Fréttir af mennta- og menning-
armálum eru ekki alltaf fyrirferðar-
miklar í fjölmiðlum, en það er von
mín að fréttabréfið geti einnig vak-
ið athygli þeirra á málefnum sem
lítt er sinnt, en eru engu að síður
þýðingarmikil,“ segir ráðherrann.
í Fréttabréfi menntamálaráðu-
neytisins er sagt frá nýjum lögum
um skólamál sem Alþingi hefur
samþykkt, frá útgáfu nýrrar aðal-
námskrár grunnskóla, frá könnun
á högum og viðhorfum kennara,
fjallað um vísindastefnu, fræðslu-
varp, skiptingu útgjalda mennta-
málaráðuneytisins o.fl.
Ritstjóri fréttabréfsins er Guð-
mundur Magnússon, aðstoðarmað-
ur ráðherra. Umsjón með útgáfunni
hefur fýrirtækið Kynning og mark-
aður hf.
• •
Kennarar við Olduselsskóla:
Akveðið að ganga
á fund ráðherra
KENNARAR við Ölduselsskóla
hafa ákveðið að ganga á fund
menntamálaráðherra og skora á
hann að breyta afstöðu sinni varð-
andi ráðningu Sjafnar Sigur-
björnsdóttur i stöðu skólastjóra
við skólann. Þá hafa þeir einnig
ákveðið að að ganga á fund Sjafn-
ar og freista þess að fá hana til
þess að taka ekki við stöðunni.
Starfsfólk Ölduselsskóla sat á
mánudaginn á rökstólum um aðgerð-
ir vegna ráðningar Sjafnar. Mikill
urgur er í kennurum og foreldrum
og sagði viðmælandi Morgunblaðs-
ins, Jósefína Friðriksdóttir, kennari
að sér væri óskiljanlegt hvemig Sjöfn
yrði stætt á því að starfa sem skóla-
stjóri gegn vilja starfsfólksins.
Kennarar fjölmenntu á síðasta
fund borgarstjómar og vonuðust til
að fá skýringar á ráðningu Sjafnar.
í kjölfar þess héldu þeir fund þar sem
skipað var í nefndir sem fjalla eiga
um næstu aðgerðir. Þá var samþykkt
að ganga á fund menntamálaráð-
herra og skora á hann að endurskoða
afstöðu sína.
Að sögn Jósefínu Friðriksdóttur
kennara í Ölduselsskóla hefur Sjöfn
Sigurbjömsdóttir ekki haft samband
við yfirstjóm skólans. Hún sagði
ennfremur að kennarar íhuguðu
ýmsar aðgerðir en vildi ekki láta
uppi í hverju þær væru fólgnar. Hún
útilokaði ekki að til fjöldauppsagna
kennara kæmi.
Hólmarar kom-
ast ekki í grá-
sleppunetin
Stykkishólmi.
HÚN ER seig vestanáttin og suð-
vestanáttin sem undanfarna daga
hefir verið að ergja Hólmara eða
réttara sagt Breiðfirðinga. Grá-
sleppubændur hafa kennt á henni
og ekki getað komist í netin í
marga daga, sem þýðir að þau
fyllast af þara og allskyns
óþverra, grásleppan eyðileggst og
marga daga tekur að hreinsa net-
in og sum geta verið svo langt
komin að það hreint út borgi sig
ekki.
Ekki hefir heldur gefið á sjó fyrir
stærri báta, því þetta er ekki góð tíð
til að stunda veiðiskap. Um eyjabú-
skap er það að segja að í svona tíð
þýðir lítið að huga að fuglinum.
— Arni
Úrval 1. flokks notaðra bíla í okkar eigu. Allir skoðaðir og yfirfarnir.
Sýnishorn úr söluskrá:
LANCIA THEMA
Árg. ’87. Blásans. Ek. 14 þús.
MAZDA 323 1,3
Árg. ’83. Gullsans. Ek. 71 þús.
FIAT UNO 46
Árg. ’85. Brúnsans. Ek. 25 þús.
MAZDA 820 2,0 QLX
Árg. ’86. Hvítur. Ek. 48 þús.
MAZDA 323 1,3
Árg. ’85. Brúnsans. Ek. 38 þús.
PEUQOT BOB
Árg. ’83. Sllfurblér. Ek. 47 þús.
NI88AN PUL8AR
Árg. ’86. Hvítur. Ek. 32 þús.
MAZDA 323 1,3 LX
Árg. ’87. Blásans. Ek. 18 þús.
TOYOTA COROLLA
Árg. ’88. Hvítur. Nýr - óekinn
SUBARU E-16
Árg. '87. Blár. Ek. 57 þús.
FIAT UNO BOS
Árg. ’87.-Grér. Ek. 57 þús.
MAZDA 828 2,0
Arg. ’82. Blágrár. Ek. 78 þús.
Munið okkar
hagstæðu
verð og
greiðslukjör!
LANCIA PRISMA
Árg. ’86. Silfurgrár. Ek. 34 þús.
VOLVO 340 QL
Árg. '86. Grásans. Ek. 41 þús.
< MAZDA 323 1,3
Árg. ’83. Vínrauöur. Ek. 64 þús.
MAZDA 828
Árg. '82. Grænsans. Ek. 64 þús.
LADA 1200
Árg. ’87. RauÖur. Ek. 14 þús.
MAZDA 323 1,B QLX STATION
Árg. ’87. Hvltur. Ek. 42 þús.
MAZDA 828 2,0 QLX
Árg. '87. Blásans. Ek. 24 þús.
MMC COLT TURBO
Árg. '84. Grásans. Ek. 47 þús.
MAZDA 323 1,B
Árg. ’84. Vínrauöur. Ek. 65 þús.
MAZDA 323 1,B
Árg. ’83. Sllfurgrár. Ék. 89 þús.
MAZDA 828 HARDTOP
Árg. ’83. Rauösans. Ek. 67 þús.
LANCER THEMA
Árg. ’87. Dökkblár. Ek. 15 þús.
MMC QALANT
Árg. ’82. Ljósgraenn.
TOYOTA COROLLA
Árg. '87. Blár. Ek. 16 þús.
MAZDA 323 1,3 LX
Árg. ’86. Blásans. Ek. 47 þús.
MAZDA 828 1,8
Árg. ’85. Graansans. Ek. 45 þús.
MAZDA 828 2,0 LX
Árg. ’84. Ðrúnsans.
LANCIA 8-10 SKUTLA
Árg. '86. Brúnsans. Ek. 34 þús.
FORD ESCORT 1,3 LX
Árg. ’86. Beige. Ek. 27 þús.
SAAB 800
Arg. ’83. Grár. Ek. 73 þús.
Fjöldi annarra bíla
á staðnum.
Opiö laugardaga
frá kl. 1—5
mazDa
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLS11 ,SÍMI 6812 99
„Já, vertu nú með upp í
Vatnaskóg..."
Almenna mótið í Vatnaskógi
24.-26. júní
— Kristilegar samkomur alla dagana:
Föstudagur:
kl. 21.00 Upphafssamkoma
Laugardagur:
Kl. 10.30 Biblíulestur*
Kl. 14.00 Fjölskyldusamkoma
Kl. 17.00 Samkoma*
Kl. 20.30 Vitnisburðasamkoma
Kl. 23.45 Miðnætursamvera
Sunnudagur:
Kl. 10.15Guðsþjónusta*
Kl. 14.00 Kristniboðssamkoma*
Kl. 17.00 Lokasamkoma
*Barnasamkoma á sama tíma
Þjónið drottni með gleði
- Einstakt tækifæri til útivistar í fögru umhverfi (göngu-
ferðir, íþróttir, bátsferðiro.fl).
- Kaffitería, sælgætisverslun og matsala á staðnum. Stak-
ar máltíðir til sölu. Þeir sem vilja geta haft með sér nesti.
- Biblían og kristilegar bækur til sölu.
- Mótsgjald, 400 kr. fyrir 12 ára og eldri (200 kr. fyrir
heimsókn einn dag), er innheimt við komu á staðinn.
Tjaldstæði og önnur notkun á staðnum innifalin.
- Hafið viðlegubúnað og skjólgóðan fatnað meðferðis.
Allir eru hjartanlega
velkomnir á mótið
Samband íslenskra kristniboðsfélaga