Morgunblaðið - 22.06.1988, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.06.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988 27 Iðnó og Alþýðuhúsið á Hverfisgötu til sölu Reykjavíkurborg kaupir ekki Iðnó Á AÐALFUNDI Alþýðuhússins hf. var endurnýjað umboð nefndar, sem hefur það verkefni að kanna sölumöguleika á Iðnó og Alþýðuhús- inu við Hverfisgötu 8-10. Hluthafar í Alþýðuhúsinu hf. eru Sjómanna- félag Reykjavíkur, Verkakvennafélagið Framsókn, Dagsbrún og Alþýðuflokkurinn auk fjölmargra einstaklinga að sögn Guðmundar Hallvarðssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur. í svari Davíðs Oddssonar borgarstjóra til áhugasamra einstaklinga um rekstur hússins, kemur fram að kostnaðaráætlun við lokaáfanga Borgarleikhússins sé um 250 milljónir króna og því muni borgin ekki hafa hug á að leysa til sin eignina. „Við höfum ekki efni á því, sem verkalýðsfélög að eiga húseignir, sem ekkert gefa af sér en auðvitað ætti ríkið að kaupa Iðnó fyrir Leik- listarskóla ríkisins," sagði Guð- mundur Hallvarðsson en áætlað er að Leikfélag Reykjavíkur flytji úr Iðnó í Borgarleikhúsið að ári. Þrír einstaklingar þau Inga Bjamason, Berglind Jónsdóttir og Atli Heimir Sveinsson hafa leitað til Davíðs Oddssonar borgarstjóra, vegan kaupa á Iðnó og rekstur hússins. í svari borgarstjóra kemur fram að kostnaður við íokaáfanga Borgarleikhússins verði mjög mik- ill. Benda fyrstu áætlanir til að veija þurfi um 250 milljónum króna til leikhússins árið 1989 ef ljúka á verkinu á því ári. „Jafnframt bendir margt til að rekstur á leikhúsinu verði nokkuð dýrari en kostnaður við núverandi rekstur Leikfélags Reykjavíkur. Því má vera ljóst að Reykjavíkurborg mun ekki hafa hug á að festa fé með því að leysa til sín núverandi húsakynni Leikfélags Reykjavíkur á sama tíma. Borgin lítur svo á, að það hljóti því að standa ríkinu nær að leysa til sín þetta hús ef slíkt er talið nausynlegt svo nýting megi vera í þeim dúr, sem bréfritar- ar leggja til. En hugsanlegur kostur hlýtur líka að vera sá, að bréfritar- ar og aðrir aðstandendur þeirra félaga, sem þeir eru fulltrúar fyrir leiti til núverandi eigenda hússins, sem era meðal annars öflug verka- lýðsfélög hér í borginni, um að þau standi við bakið á félögunum varð- andi afnot af húsinu fyrir bærilegt endurgjald. Þrátt fyrir framangreind rök vil ég að fram komi, að ég tel æskilegt að þetta merka hús Iðnó verði í framtíðinn nýtt sem vettvangur fyr- ir menningarstarfsemi ogjafnframt að húsinu verði meiri sómi sýndur en verið hefur hingað til." Hjónin frú Herdís Ásgeirsdóttir og Tryggvi Ófeigsson. Dóttir þeirra, Rannveig Tryggvadóttir, færði björgunarsjóði nemenda Stýrimann- skólans gjöf til minningar um þau nýlega. Stýrimannaskólinn: Minningargjöf um Her- dísi Asgeirsdóttur og Tryggva Ofeigsson RANNVEIG Tryggvadóttir færði nýlega björgunarsjóði, sem nemendur Stýrimannaskólans stofnuðu, hálfa milljón að gjöf til minningar um foreldra sína frú Herdísi Ásgeirsdóttur og Tryggva Ófeigsson, skipstjóra og útgerðarmann, sem rak út- gerðarfélögin h/f Júpiter og h/f Marz um áratugaskeið. Fyrir- tækin, sem höfðu skrifstofur sínar í Aðalstræti 4, gerðu út togarana Júpiter, Neptúnus, Úr- anus og Marz og ráku jafnframt stóra fiskvinnslustöð á Kirkju- sandi. „Að vera bam sjómanns er sér- stök lífsreynsla og oft erfið. Faðir minn var togaraskipstjóri öll bemskuár mín og ég man að í vond- um veðram átti ég oft erfitt með að sofna á kvöldin því ég var svo hrædd um hann á sjónum. í ára- tugi eftir að þetta var klökknaði ég alltaf er sjómenn fórast og enn er það svo, að mér finnst velferð sjómannsins á hafi úti vera velferð mín,“ sagði Rannveig í samtali við Morgunblaðið um ástæður fyrir þessari rausnarlegu gjöf. Foreldrar Rannveigar byrjuðu búskap að Vesturgötu 32 í Reykjavík, í svonefndu Kapteins- húsi, en móðir hennar fæddist í eldra húsi á sömu lóð. Voru bæði faðir hennar, Ásgeir Þorsteinsson, og móðurafi, Sigurður Símonarson, skútuskipstjórar og meðal stofn- enda Skipstjóra- og stýrimannafél- agsins Öldunnar, og Asgeir fyrsti formaður þess. Fósturfaðir móður Rannveigar, Páll Matthíasson, var togaraskipstjóri, þannig að faðir hennar var fjórði skipstjórinn í sömu fjölskyldu, sem þama bjó. „Við fæddumst þar fjögur systkini af fímm og við drakkum í okkur áhrifin af nálægðinni við sjó og sjó- sókn," sagði Rannveig. Þess má einnig geta, að Markús Bjamason, fyrsti skólastjóri Stýrimannaskól- ans, var náfrændi móður Rann- veigar og báðir synir hennar vora einnig á fískiskipum á námsáram sínum. „Mér fannst ég himin höndum hafa tekið er nemendur Stýri- mannaskólans í Reykjavík stofnuðu björgunarsjóð, fannst þeir réttu mennimir til að standa fyrir slíkri söfnun. Tilkynnti ég um rúmlega 100.000 króna gjöf í sjóðinn á kynn- ingardegi Stýrimannaskólans þann 16. apríl síðastliðinn. Síðan hef ég tvisvar bætt við þá upphæð þannig að gjöf mín til sjóðsins er nú orðin rúm hálf milljón króna,“ sagði Rannveig. Meginmarkmið björgunarsjóðs nemenda Stýrimannaskólans er nú að safna fé til að styrkja kaup á fullkominni björgunarþyrlu ti lands- ins, en síðar er ætlunin að taka önnur verkefni fyrir. Sagðist Rann- veig vonast til að stjómvöld og aðr- ir taki af fullum krafti þátt í að efla þennan sjóð. „Sjómenn era af- kastamestu fyrirvinnur þjóðarinnar og eiga það skilið," sagði hún. Að lokum vildi Rannveig óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra velfamaðar um ókomin ár. Eru þeir að fá 'ann Risalaxá Stokkhylsbrotinu... „Það er risalax á Stokkhyls- brotinu, sá stærsti sem ég hef séð og hef ég þó séð ásamt fleir- um lax í Kjarrá sem var örugg- lega 30 punda fiskur. Hann vildi ekki taka, en það koma mikil hörkutól í ána á næstu dögum þannig að sá stóri má vara sig. Það er skemmtilegur bikarlax á sveimi þarna ef ein- hver nær að góma hann,“ sagði Sverrir Kristinsson veiðikló í samtali við Morgunblaðið í gær, en hópur sá sem Sverrir var í var þá að ljúka þriggja daga uthaldi í Norðurá og hafði 52 laxa upp úr krafsinu. Þar af veiddu þeir Sverrir og Birgir Þórisson 14 stykki. Var þetta hörkuveiði miðað við að áin var óveiðandi í rúman sólarhring vegna óveðurs og vatnavaxta. Mikil ganga kom i ána í lok siðustu viku og í flóðunum um helgina og er hún nú byrjuð að skila sér í aflanum. Veiðin er nú komin í 200 laxa og er laxinn ýmist smálax eða 8 til 10 punda fiskar. Þeir stærstu í síðasta holli voru 12 og 13 punda fluguveiddir fiskar, en sá stærsti í sumar vóg 15 pund. „Laxá að verða gull“ „Laxá er að ganga niður núna og hreinsast eftir flóðin og óveð- rið og hún er að verða algert gull. Það era nú að veiðast þetta 20 laxar á dag og er það vænn lax og smár í bland. Um helgina kom smálaxaganga, en núnar virðist 10 til 14 punda fískur vera farinn að ganga aftur og það er óhemjumagn af laxi á neðstu svæðunum," sagði Ólafur H. Ól- afsson veiðivörður í Laxá í Kjós í samtali við Morgunblaðið í gær. Sagði hann alls 110 laxa vera komna á land og físk kominn upp um alla á, meira að segja upp í Þórafoss sem er efsti veiðistaður árinnar. Enn sem komið er, hefur mest veiðst á maðkinn og stærsti laxinn vóg 19 pund. Laxá óvenjugruggug „Áin er nú að hreinsast nokkuð Morgunblaðið/gg. Nýveiddur stórlax úr Kjarrá skolaður eftir atganginn. og þeir era famir að fá lax aftur, en veiðin hefur verið lítil nú í nokkra daga vegna þess hve graggug áin varð vegna moldroks sem hér hefur verið. Segja veiði- menn ána hafa verið óvenjugr- uggug,“ sagði Þórann Alfreðs- dóttir ráðskona í Vökuholti við Laxá í Aðaldal í gærdag. Þrátt fyrir vond skilyrði síðustu daga höfðu veiðst 110 laxar á svæðum Laxárfélagsins og einhver veiði hefur verið á öllum svæðum árinn- ar, Núpum, Nesi og meira að segja á Hrauni, efsta svæðinu. Stærsti laxinn enn er sá mikli bolti sem veiddist fyrsta daginn í Ki- stukvísl, 26 punda hrygna, og hefur enginn lax annar verið yfír 20 pund, en Þórann sagði að dag- lega kæmu menn í hús með einn eða fleiri 17 til 19 punda bolta og lítið hefði enn veiðst af físki undir 10 pundum og þeir minnstu til þessa verið 7 punda. gg- Sýning fimm íslendinga í Svíþjóð fær góða dóma SÝNING á verkum 5 íslenskra myndlistarmanna stendur nú yfir i Röhska safninu í Gautaborg. Ber sýningin heitið „5 Dimensi- oner“ -5 víddir og stendur til 14. ágúst. Þaðan verður hún flutt í Norræna húsið í Færeyjum. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem safnið opnar sýningu á íslenskri myndlist eingöngu. Hef- ur sýningin hlotið ágæta dóma í sænskum blöðum. Að_ sýningunni standa; Borghild- ur Óskarsdóttir, Hulda Hákon, Ragna Róbertsdóttir, Steinunn Þór- arinsdóttir og Sverrir Ólafsson og sýna þau m.a. verk unnin úr leir, tréj jámi, reipi og skinni. I frétt frá fimmmenningunum segir að boð um sýningu hafi borist frá Röhsska safninu fyrir 2 áram en hún var opnuð þann 20. maí síðastliðinn. Er sýningin jafnframt sumarsýning safnsins. Frá Gauta- borg verður sýningin flutt til Norr- æna hússins í Færeyjum þar sem hún mun standa frá 17. október til 4. nóvember. Sýningin hefur hlotið góða dóma Fimmmenningarnir fyrir utan Röhsska-safnið, f.v.: Borghildur Óskarsdóttir, Ragna Róbertsdóttir, Steinunn Þórarinsdóttir, Sverrir Ólafsson og Hulda Hákon. í sænskum blöðum. Crispin Ahlström gagnrýnandi hjá Göte- borgs-posten segir m.a. um sýning- una, að í heild gefi hún til kynna hve lifandi og athyglisverð íslensk list sé á líðandi stund.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.