Morgunblaðið - 22.06.1988, Page 33
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988
33
Útgefandi mfifftfeife Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Askriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 60 kr. eintakið.
Aukin samheldni
Ríkisstjóminni hafa
verið mislagðar hend-
ur að undanfömu. Kjara-
samningar fóru fram með
friðsamlegri hætti en búizt
hafði verið við á sl. vetri
og þess vegna gætti nokk-
urrar bjartsýni í stjómar-
herbúðum u.þ.b. sem þingi
var að ljúka snemma í
maímánuði. Skömmu síðar
hraktist ríkisstjómin hins
vegar út í gengislækkun
og þær deilur, sem urðu
innan hennar um viðbótar-
ráðstafanir og orðahnipp-
ingar milli helztu forystu-
manna hennar á opinberum
vettvangi, gengu nærri að-
ilum þessa stjómarsam-
starfs.
í kjölfarið hafa svo fylgt
deilur um landbúnaðarmál
og afgreiðsla á ýmsum öðr-
um vandamálum, sem orka
tvímælis. Ein af ákvörðun-
um ríkisstjómarinnar í
framhaldi af gengislækk-
uninni var t.d. sú, að heim-
ila erlendar lántökur til
fjárhagslegrar endurskipu-
lagningar fyrirtækja. Út
af fyrir sig var hægt að
rökstyðja erlenda lántöku
í þessu skyni að því til-
skyldu, að þessir fjármunir
gengju til þess að koma
fram nauðsynlegum
grundvallarbreytingum í
undirstöðuatvinnuvegun-
um. Nú bendir hins vegar
margt til þess, að pening-
amir verði notaðir til að
bjarga fyrirtækjum í vand-
ræðum út úr aðkallandi
erfíðleikum. Erlend lán-
taka til slíkra hluta er nátt-
úrlega fáránleg.
Þá vekur það óneitan-
lega ugg, að hin nýja at-
vinnugrein landsmanna,
fískeldið, hefur snúið sér
til opinberra aðila með
beiðni um aðstoð. Vel má
vera, að full rök séu fyrir
því að taka erlend lán til
þess að hjálpa fískeldinu
yfir einhvem þröskuld nú.
En brennt bam forðast eld-
inn. Við höfum reynslu af
því, að þegar atvinnufyrir-
tæki eru einu sinni byijuð
á því að leita aðstoðar opin-
berra aðila, getur það orðið
að vana. Skattgreiðendur
eiga þessa stundina nóg
með að standa undir kostn-
aði við landbúnaðinn og þá
nýju atvinnugrein, loðdýra-
ræktina, sem átti að verða
bjargráð bænda, en sýnist
nú fara sömu leið og aðrar
greinar landbúnaðarins.
Það fer heldur ekkert á
milli mála, að verðbólgan
fer vaxandi. Viðskipta-
bankamir hafa af þeim
sökum verið að hækka
vexti verulega að undan-
fömu. Snemma í vetur voru
spár stjórnvalda um verð-
bólgustigið síðar á þessu
ári uppörvandi. Nú sýnast
þær skyndilega vera út í
hött. Vissulega er það svo,
að lækkandi verðlag á er-
lendum mörkuðum og
lækkandi gengi dollars hef-
ur valdið okkur erfiðleik-
um. En þrátt fyrir það, að
benda má á ýmsar ástæður
fyrir því, að heldur hallar
undan fæti um sinn, er það
pólitísk staðreynd, sem
stjómarflokkarnir og ráð-
herrar verða að horfast í
augu við, að tiltrú fólks til
ríkisstjómarinnar hefur
minnkað.
Jafnljóst er, að enginn
annar kostur er fyrir hendi.
Þess vegna hvílir sú skylda
á forystumönnum ríkis-
stjómarinnar að taka
höndum saman um að tak-
ast á við þau vandamál,
sem við blasa af meiri sam-
heldni en þeir hafa sýnt
um skeið. Almenningur er
áreiðanlega búinn að fá
nóg af orðahnippingum og
rifrildi þeirra í milli á opin-
berum vettvangi. Ef hin
ytri skilyrði þjóðarbúsins
halda áfi*am að versna geta
vandamál atvinnulífsins
orðið mjög erfið viðureign-
ar. Pólitískt fjölmiðlarifrildi
milli ráðherra á ekki við á
slíkum tímum.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988
Kennaraháskóli íslands:
Óvenjulegt stærðfræði-
námskeið fyrir börn
stærðfræðikennslu, með það fyr-
ir augnm, að gera hana fijórri
og áhugaverðari.
Um það bil 50 böm sóttu nám-
skeiðið, og að sögn Önnu Kristjáns-
dóttur komust færri að en vildu.
Bömin unnu margvísleg verkefni,
sem bæði reyndu á rökrétta hugsun
og fólu í sér ýmsar grundvallarregl-
ur stærðfræðinnar. Yfírleitt fóm
þau út, söfnuðu gögnum úr um-
hverfí sínu og unnu seinna úr þeim
undir leiðsögn kennaranna. Til
dæmis töldu þau bíla á Miklubraut-
inni, skráðu hjá sér lit þeirra og
reiknuðu út frá því, hversu margir
bílar af hverjum lit færu um götuna
á ári.
r... ....... ...... . . •"“‘Kuiiuiaoio/c.inarl'alur
Bormn á namskeiðinu fengust við ýmislegt. A myndinni sjást nokkur þeirra kynna sér hugtök úr flatar-
málsfræði.
Anna Kristjánsdóttir sagði, að
markmiðið væri að gera námið fjöl-
breyttara og áhugaverðara. „Það
er alltaf hægt að bæta stærðfræði-
kennsluna, og að mínu mati er hún
nú of bundin við bókina og blýant-
inn. Hér er um nýjungar að ræða
og þetta námskeið gefur okkur tóm
til að vinna með þessar hugmyndir
og þróa þær,“ sagði Anna að lok-
um. Þegar blaðamenn Morgun-
blaðsins heimsóttu námskeiðið var
ekki annað að sjá en hinar nýju
aðferðir féllu í góðan jarðveg hjá
nemendunum.
Sigurlaug Stefánsdóttir sagðist
hafa gaman af námskeiðinu.
„Þetta er svo ólíkt skólanum,"
sagði hún. „Þetta er miklu frekar
eins og að leika sér eða teikna.“
Morgunblaðið/Einar Falur
„Við erum hér, af því við erum svo miklir stærðfræðingar,“ sögðu
þeir Tryggvi Már Ingvarsson, Ólafur Bjöm Ólafsson og Ellert Sva-
varsson.
Endurmenntunardeild Kenn-
araháskólans efndi nýlega til
nýstárlegs námskeiðs fyrir böm
á aldrinum 7-12 ára. Tilgangur
þess var að gefa hópi kennara
kost á að reyna nýjar aðferðir í
Menntaskólinn og
Iðnskólinn á
Isafirði sameinast
MENNTASKÓLINN og Iðnskól-
inn á Isafirði vom í vetur í
fyrsta sinn reknir undir sameig-
inlegri stjórn. Með tilkomu nýju
framhaldsskólalaganna er nú
grundvöllur fyrir formlegri
sameiningu þessara tveggja
skóla í eina skólastofnun, sem
verður með fjölbrautaskipulagi.
í vetur var við nám I skólunum
tveim 261 nemandi, ef með em
taldir 15, sem vora í 30 tonna
skipstjórnarnámi.
Menntaskólanum var slitið
laugardaginn 21. maí. Af skip-
stjómarbraut brautskráðust . 7
nemendur með 200 tonna réttindi
eftir eins árs nám. Hæstu einkunn
þeirra hlaut Þorsteinn Gestsson,
Súðavík. Af 2. stigi vélstjórn-
amáms brautskráðust 4. Þá luku
7 nemendur námi á tveggja ára
viðskiptabraut, og af þeim hlaut
hæsta einkunn Hildur Gylfadóttir,
ísafírði.
Að þessu sinni brautskráðust
27 stúdentar frá skólanum. Hæsta
aðaleinkunn, sem er vegið meðal-
tal allra einkunnáá ferlinum, hlaut
Rögnvaldur Daði Ingþórsson,
ísafírði, af mála- og samfélags-
braut, 8,53. Næsthæst varð
Margrét Vagnsdóttir, Bolung-
arvík, af hagfræðibraut, 7,83. Þrír
stúdentanna voru af eðíisfræði-
braut, átta af hagfræðabraut, níu
af mála- og samfélagsbraut og sjö
af náttúmfræðibraut.
Við skólaslitin minntist skóla-
meistari, Bjöm Teitsson, sérstak-
lega tveggja manna, sem báðir
höfðu lengi haft með höndum for-
ystu á sviði ísfirskra skólamála,
en þeir létust í vetur. Þetta voru
Ragnar H. Ragnar, fyrrum skóla-
stjóri Tónlistarskóla ísafjarðar, og
Símon Helgason, fyrrverandi skip-
stjóri og hejsti kennari í sjómanna-
fræðum á ísafirði í hálfan fimmta
áratug.
Nemendur, sem brautskráðust
af skipstjómarbraut, færðu skó-
lanum við þetta tækifæri að gjöf
málverk af Símoni Helgasyni, gert
af Pétri Guðmundssyni, myndlist-
armanni, og afhenti Gísli Kristj-
ánsson það.
Við athöfnina tók til máls Sig-
urður Einarsson, formaður Skíða-
sambands íslands, í tilefni af því
að nú brautskráðust í fyrsta sinn
nemendur af svonefndu skíðavali,
tveir að tölu. Sigurður afhenti
þessum nemendum verðlaun.
Tíu ára stúdentar færðu skólan-
um fjárhæð, sem skal renna til
kaupa á píanói handa skólanum.
Eftir að skólameistari hafði af-
hent prófskírteini og verðlaun
ávarpaði hann nýstúdenta. Hann
vitnaði meðal annars til orða, sem
höfð em eftir Aristótelesi: „Menn
eiga fremur að reiða sig á athug-
anir en kenningar, og ekki á kenn-
ingar nema þær hafí verið stað-
festar með rannsóknum." Í fram-
haldi af þessum orðum vék hann
að nauðsyn þess að fólk lærði af
mistökum sínum og einnig ann-
arra og hefði reynsluna að leiðar-
Ijósi. Einnig minntist hann á þá
hættu sem jarðarbúum stafar af
margvíslegri mengun umhverfís-
ins.
Við lok athafnarinnar léku tveir
nemendur skólans, Linda Svein-
bjömsdóttir og Marta Hlín Magna-
dóttir, úó^öent á píanó verkið
„Boðið upp í dans" eftir Carl Mar-
ia von Weber.
Nýstúdentar frá Menntaskólanum á Isafirði ásamt skólameistara sínum, Birni Teitssyni
Aætlunarferðir milli Siglu-
fjarðar og Reykjavíkur
Hofgósi.
AÆTLUNARFERÐIR milli Siglu-
fjarðar og Reykjavíkur hófust að
nýju 2. júní og höfðu þá legið niðri
yfir 20 ár. Þá tók ferðin 10-12
tíma, en nú 7*/2 klukkustund.
Það er Jón Sigurðsson sérleyfís-
hafí, Sleitustöðum, Skagafírði.sem
nú tekur upp merki bróður síns, Gísla
Sigurðssonar, sem annaðist í mörg
ár umsvifamikinn rekstur hópferða-
bíla. Aætlun Suðurleiðar, en svo nefn-
ir Jón fyrirtækið, verður frá Siglu-
fírði á þriðjudögum og fímmtudögum
kl. 7.00 að morgni en frá Reykjavík
kl. 13.00 miðvikudaga og föstudaga.
Að sögn Jóns Sigurðssonar tekur
ferðin um 7>/2 kukkustund í dag, en
þegar þessar ferðir voru síðast fam-
ar, fyrir rúmiega 20 árum, tóku þær
10-12 klukkustundir.
Fargjald fyrir fullorðna kostar kr.
2.200 aðra leiðina og veittur er veru-
legur afsláttur ef keypt er far báðar
leiðir. Það er því næstum helmingi
ódýrara að ferðast landleiðina en
fljúga.
SUDURLEIÐ
Morgunblaðið/ófeigur Gestsson
Feðgarnir Reynir Jónsson og Jón Sigurðsson við Mercedes Benz
0303 bifreiðina en þeir munu annast aksturinn.
Til ferðanna er ætluð 40 manna
bifreið af gerðinni Mercedes Benz
0303 með loftpúðafjöðrun og að auki
rekur Suðurleið tvær minni bifreiðir
sömu tegundar.
Viðkomustaðir verða Blönduós og
Staðarskáli, en afgreiðslu annast á
Siglufírði Aðalbúðin en Umferðar-
miðstöðin f Reykjavík.
- Ófeigur
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Er Taiwan að
koma hart niður?
UNDANFARNAR vikur hefur hvað eftir annað dregið til tíðinda
á Taiwan. Menn hafa óspart nýtt sér aukið frjálslyndi og mótmæla-
göngur hvers kyns verið daglegt brauð. Oftast hafa þessar aðgerð-
ir farið fram með sæmilegum friði, þótt þær hafi þótt í frásögur
færandi í ljósi fortíðar. En nú nýlega hefur skipt um. í síðustu
mótmælaaðgerðum í Taipei hefur framkoma lögreglunnar verið
mjög hörkuleg og vakið andúð og nánast komið flatt upp á marga.
Eftir því sem best er vitað hafði ekki verið sýnt harðræði við eða
eftir handtöku af hálfu lögreglu. Þetta þykir því hið alvarlegasta
mál og gæti verið einhver visbending um stefnubreytingpi; margir
furðulostnir sljórnmálafréttaritarar og sérfræðingar um málefni
Taiwans hafa velt fyrir sér, hvort stjórnvöld hafi i bígerð að hræða
folk þannig frá því að leggja út i mótmælagöngur og fundi.
Hljóðnað hefur yfír taiwönsk-
um andófsmönnum og stjóm-
arandstæðingum, að minnsta kosti
um stundarsakir. Eftir þessar
harkalegu aðgerðir gegn þeim
síðustu daga maí virðist sem stjóm-
arandstaðan verði að endurskipu-
leggja sig og leita annarra leiða til
að koma óánægju sinni á fram-
færi. Endanlega sauð upp úr, þegar
bændur fóm um götur Taipei fyrir
nokkmm dögum. I göngu þeirra
bættist svo fjöldi námsmanna og
yfírlýstra stjómarandstæðinga.
Mikil skrílslæti bmtust síðan út og
lögreglan sýndi þvílíka harðneskju,
að mörgum blöskraði. Myndir af
hrottalegum barsmíðum vöktu
skelfíngu margra, og í ljós kom að
lögreglumenn gengu þvílíkan ber-
serksgang að þeir börðu ekki að-
eins göngumenn og óeirðaseggi,
heldur réðust og á nærstadda veg-
farendur, sem höfðu það eitt til
saka unnið að vera í grenndinni.
Einn þekktasti og virtasti and-
ófsmaður og baráttumaður auk-
inna mannréttinda á Taiwan, Step-
hen S. Lee var gripinn fyrir framan
lögreglustöð í höfuðborginni. Fimm
óeinkennisklæddir Iögreglumenn
veittu honum eftirför, lömdu hann
sundur og saman og spörkuðu í
hann.
Fulltrúar frá mannréttindasam-
tökum og nokkrir forsvarsmenn
stjómarandstöðunnar sem fengu
leyfí til að vitja fanga sögðu að
langflestir hefðu borið merki um
að þeir hefðu verið pyndaðir eða
misþyrmt. Þeir sögðu að margir
hefðu verið látnir liggja í klefunum,
stórslasaðir án þess að læknar
fengju að gera að sámm þeirra.
Nú er að verða liðið tæpt ár frá
því ríkisstjóm Taiwans ákvað að
aflétta neyðarlögunum, sem höfðu
gilt frá því ríkið var sett á laggim-
ar árið 1949, eftir að Chiang-kai
Shek flúði frá meginlandinu með
Iiðsmenn sína. Sumir höfðu efa-
semdir um heilindi stjómvalda, en
fljótlega kom á daginn, að þau
höfðu áform á pijónunum um frek-
ari aðgerðir er stefndu í fijálslyndi-
sátt og töldu að væm tímabærar.
Stórlega var dregið út ritskoðun
og má segja, að hún sé nú varla
nokkur. Merkustu tíðindin vom
efalaust þau, að ákveðið var að
leyfa íbúum Taiwan að heimsækja
ættingja sína á meginlandi Kina.
Margir höfðu að sönnu farið slíkar
ferðir og sagt var að þær væm
opinberasta leyndarmál Taiwan.
Flestir fóm um Tókíó, en yfírvöld
í Hong Kong vom löngu farin að
líta í hina áttina, þegar Taiwanar
vildu komast þaðan til Kína. Að
sjálfsögðu vom það hinir efnabetri
sem gátu látið eftir sér þessar
heimsóknir. I fyrstu var tilkynnt,
að þetta væri gert af mannúðará-
staeðum og menn yrðu að sýna
fram á að þeir ættu nákomna ætt-
ingja á meginlandinu, svo að leyfíð
væri veitt. í reynd hefur raunin
orðið sú, að hver sem sækir um
getur komist og síðan þetta var
ákveðið í fyrrasumar hafa tug-
þúsundir streymt í heimsóknir yfír
á meginlandið.
Ýmsar aðrar ráðstafanir stjóm-
valda í lýðræðisátt mæltust ákaf-
lega vel fyrir. Þó var flestum ljóst,
að nauðsynlegt væri að halda skyn-
samlega á málunum, svo að Taiw-
anar fæm ekki of geyst í nýfeng-
inni „frelsisvímunni".
Helzti stjómarandstöðuflokkur-
inn Lýðræðislegi framfaraflokkur-
inn, DPP, var hvattur til að sýna
aðgát í viðkvæmum málum, svo
að síður væri hætta á því að stjóm-
arflokkurinn, KMT-Kuomintang,
dragi í land með umþótahugmyndir
sínar. Þeir sem hvað svartsýnastir
vom sögðu að það gæti meira að
Frá mótmælagöngu í Talpei
Lee forseti Taiwan
segja leitt til að neyðarlögin yrðu
sett í gildi á ný.
Innan stjómarandstöðunnar
hafa heyrst þær raddir, að þessar
harkalegu aðgerðir gegn andófs-
fólki á allra síðustu vikum bendi
hreinlega til að mikil og vaxandi
valdabarátta séð nú háð I forystu-
sveit KMT og reyni gamlir íhalds-
sinnar, sem em fráhverfír öllum
breytingum að ná undirtökunum.
Flokksþing KMT verður haldið í
næsta mánuði og menn telji heppi-
legast að útkljá málið áður en að
þinginu kemur.
Ekki em allir sammála um af-
stöðu Lee Teng-hui forseta. Eftir
að hann tók við að Chiang Ching
Kuo látnum, sagðist hann vilja
stuðla að umbótum sem Chiang
hefði hafíð. Sumir segja að honum
fínnist hafa verið gengið of langt
og óttist um stöðu sína ef svo haldi
fram sem horfí. Það geti sem sagt
vel verið að hann hafí í upphafí
verið fylgjandi fijálslyndisstefn-
unni, en fínnist nú ástæða til að
hægja ferðina, að minnsta kosti í
bili.
í opinbemm málgögnum stjóm-
arinnar er reynt að gera lítið úr
andófínu, en lögð áhersla á vilja
hennar til að finna fleiri leiðir í
breytingaátt. Nú ertil dæmis rædd-
ur sá möguleiki, sem hefði verið
óhugsandi að anda út úr sér fyrir
ári, að Meginlandskínveijum verði
leyft að koma til Taiwan að vitja
ættingja. Sömuleiðis hvort hugsan-
legt sé að taka upp einhver bein
viðskipti við Pekingstjómina.
Samt láta ráðamenn á Taiwan
ekkert tækifæri ónotað til þess að
minna á að styijaldarástand sé í
rauninni nþlli Taiwan og Kína. í
forystugreinum blaða sem stjómin
ræður er fjálglega minnt á hættuna
sem Taiwan hafí alltaf stafað frá
kommúnistunum og menn skuli
ekki láta glepjast af fagurgala
þeirra og yfirlýsingum um breytta
og víðsýnni stefnu.
En hvað sem öðru líður er ótrú-
lega margt sem hefur verið að
gerast á Taiwan á þessu eina ári.
Þegar ég var á Taiwan um þær
mundir í fyrra sem neyðarlögunum
var aflétt, voru ýmsir á því að lítil
alvara fylgdi gerðum stjómarinnar
og sýndarmennska ein. Svo hefur
sem sagt ekki orðið reyndin og þó
að einhveijir aðlögunarörðugleikar
hafí hijáð stjómvöld sem óbreytta
alþýðu, verður varla aftur snúið
úr þessu.