Morgunblaðið - 22.06.1988, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1988
Norðurlandamót í brids á íslandi í 3. skipti:
Norðmenn hrepptu Norður-
landatítilinn í fyni skiptín
_________Brids______________
GuðmundurSv. Hermannsson
Norðurlandamótið í brids,
sem hefst á Hótel Loftleiðum
26. júní, er nú haldið í þriðja
skipti hér á landi; áður var
mótið haldið hér 1966 og 1978.
I bæði skiptin þótti mótið tals-
verður viðburður í bridslífinu
enda hafa Norðurlöndin lengi
verið í hópi sterkustu brids-
þjóða Evrópu. í þessari grein
ætla ég að rifja lauslega upp
það helsta sem gerðist á þessum
tveimur mótum.
Norðurlandamót í brids var
fyrst haldið árið 1946. Þá hafði
Evrópumót fallið niður í nokkur
ár vegna heimsstyijaldarinnar og
Norðurlandaþjóðunum þótti tími
til kominn að reyna með sér við
við spilaborðið. Islendingar voru
ekki með til að byija með en upp
úr 1950 fóru þeir að senda lið á
Norðurlandamót.
Mótið á íslandi 1966 var það
11. í röðinni og þá höfðu Svíar
sigrað sjö_ sinnum en Norðmenn
þrisvar. Á þessum tíma sendu
þjóðimar tvö lið til keppni í opinn
flokk og samanlagður árangur
réði lokaröðinni.
íslenska A-liðið var skipað Ás-
Morgunblaðio/Arnor
Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson spila við Finnana Sakari Stubb og Jukka Peesonen á
Norðurlandamótinu 1978. Guðlaugur hefur í kringum sig einvala lið áhorfenda en við hliðar hans sitja
Jón Hjaltason, sem var fyrirliði íslenska liðsins, og Hanz Gutwert, kunnur finnskur bridsblaðamaður.
Fyrir aftan standa Þórhallur Þorsteinsson, Einar Þorfinnsson, Tryggvi Gislason og Ragnar Halldórs-
son. Einnig sjást á myndinni Jóhannes Sigurðsson, Einar Jónsson og Einar Guðjohnsen, svo nokkrir
séu nefndir.
I Á öllum stærri Shellstöðvum, Shell-gas fyrir:
- allar gerðir prímusa og gasljósa,
- fyrir grill,
- sumarbústaði,
- alla tjald- og tjaldhýsaútgerð.
1 ( Reykjavík eru þessir staðir auk þess
sérútbúnir til gasafgreiðslu:
- Þjónustustöðin Skerjafirði, sími 91-11425,
- Þvottastöðin Laugavegi 180, sími 91-623016,
þar eru seld áfyllt hylki fyrir amerísk gasgrill
og auk þess minni hylki 2,5 - 5 kg,
- Skeljungsbúðin Síðumúla 33, sími 91-621722.
I í Skeljungsbúðinni fæst
ennfremur fittings, mælar,
þrýstijafnarar slöngur og
fleira.
Skeljungur hf.
mundi Pálssyni og Hjalta Elías-
syni, Einari Þorfinnssyni og Gunn-
ari Gunnarssyni og Símoni Símon:
arsyni og Þorgeiri Sigurðssyni. I
B-liðinu voru Agnar Jörgensson,
Ingólfur Isebam, Benedikt Jó-
hannsson, Jóhann Jónsson, Jón
Arason og Sveinn Ingvarsson. ís-
lenska kvennaliðið var skipað
Kristjönu Steingrímsdóttir,
Magneu Kjartansdóttur, Margréti
Jónsdóttur, Ósk Kristjánsdóttur,
Ástu Flygering og Guðrúnu Bergs-
dóttur.
Svíar voru þá, sem nú, ein besta
bridsþjóð heims og flestir bjuggust
við sigri þeirra í Reykjavík. Norð-
menn áttu einnig góða spilara en
í liðum Dana voru ungir og efnileg-
ir spilarar að taka þátt í sínum
fyrstu alþjóðamótum. Þar má
nefna Steen nokkum Möller, sem
íslenskir bridsspilarar kannast vel
við. Hann spilaði sína fyrstu lands-
leiki á íslandi en er nú landsleikja-
hæstur danskra íþróttamanna með
tæplega 400 landsleiki.
Finnskt spútnikpar
Fyrir mótið birtist viðtal í Morg-
unblaðinu við fyrirliða Finna, Ro-
man Skoroupo, þar sem hann
sagðist gera sér góðar vonir um
að Finnar næðu efsta sætinu.
Finnar áttu þá „spútnikpar",
bræðuma Kaveli og Keijo Sorri,
sem vakið höfðu mikla athygli
fyrir sagnkerfí sitt. Það var eins-
konar passkerfí sem kallað var
Sorri-Sorri, og bræðumir vom því
talsvert á undan sinni samtíð.
Gamansaga frá þessum ámm er
eitthvað á þá leið að Sorribræðum-
ir vom að spila við Breta á Evrópu-
móti. Bretamir spurðu annan
bróðurinn hvaða kerfí þeir spiluðu
og hann svaraði samviskusamlegá
Sorri-Sorri. (afsakið, afsakið á
ensku). Bretanum varð Jiverft við
og sagði á móti: I beg your pardon
(fyrirgefíð)? Sorri-Sorri var svarið
aftur og svona gekk þetta lengi.
Besti árangur
íslendinga
Skoroupo spáði íslenska liðinu
3. sæti í viðtalinu en það hafði
yfirleitt vermt botnsætið á Norður-
landamótum. íslendingar hafa líka
sjálfsagt gert sér góðar vonir.
Ásmundur og Hjalti vom þá þegar
að tryggja sér sess sem eitt besta
bridspar íslendinga fyrr og síðar.
Einar og Gunnar vom leikreynd-
ustu spilarar landsins enda þeir
einu sem spilað hafa fyrir ísland
í heimsmeistaramótinu í sveita-
keppni. Einar veiktist að vísu í
miðju mótinu og Láms Karlsson
kom í stað hans. Þorgeir og Símon
höfðu safnað allmörgum Islands-
meistaratitlum, þrátt fyrir ungan
aldur og höfðu áður spilað á Norð-
urlandamóti. B-liðið var síðan
skipað þéttum spilurum sem allir
höfðu verið sigursælir í íslenskum
mótum.
Geir Hallgrímsson þáverandi
borgarstjóri setti mótið, sem hald-
ið var á Hótel Sögu. Norðmenn
tóku forystu í opnum flokki, strax
í upphafí. íslendingar fóm hægt
af stað en vom þó komnir í 3.
sæti eftir 5 umferðir. Kvennaliðið
kom á óvart með því að vinna
Dani 6-0 í 3. umferð og var þá í
2. sæti.
I 6. umferð unnu íslensku sveit-
imar í opnum flokki stórsigur á
báðum finnsku sveitunum og ís-
land var þá komið í 2. sæti. I
næstsíðustu umferð unnu báðar
íslensku sveitimar 6-0 en í síðustu
umferðinni töpuðu þær báðar 5-1
og Svíar náðu öðm sætinu. Norð-
menn vom ömggir sigurvegarar
en Islendingar enduðu í 3. sæti
sem var besti árangur þeirra á
Norðurlandamóti fram að því og
sem var ekki jafnaður fyrr en árið
1982. Og þrátt fyrir sigurvissu
Skoroupos urðu Finnar neðstir á
mótinu.
B-lið Svíþjóðar náði bestum
árangri einstakra sveita en
íslensku liðin vom í 4. og 6. sæti
af 10. í kvennaflokki sigmðu Svíar
ömgglega en íslenska liðið endaði
í 4. sæti.
Norsku Norðurlandameistar-
amir hétu Erik Höie, Louis Ström,
Hans Bie, Sven Andreasen, Henn-
ing Riise, Leif Salteröd, Tore Jen-
sem. Willy Vamás, Gunnar Jo-
hansen og Andreas Nielsen. Þetta
vom allt kunnir kappar á sínum
tíma og Höie og Ström em eitt
þekktasta par Norðmanna fyrr og
síðar, spiluðu m.a. á heimsmeist-
aramótinu 1969 þar sem þeir
vöktu athygli fyrir að segja og
vinna fullt af næfurþunnum
slemmum.
Hér er eitt spil frá mótinu þar
sem Hjalti og Ásmundur þóttu
sýna afburða góða sagntækni:
Norður
4ÁG74
¥ 10974
♦ Á873
♦ 2
Vestur
4986 llllll
¥G86
♦ 4
♦ ÁG10765
Suður
Austur
410532
¥KD3
♦ 652
4KD9
4 KD
TÁ52
♦ KDG109
4843
Ásmundur og Hjalti sátu NS
gegn Finnum og sögðu þannig á
spilið:
Vestur Norður Austur Suður
— pass pass 1 tígull
pass 1 hjarta pass 2 tíglar
pass 3 tíglar pass 3 hjörtu
pass 3 spaðar pass 5 tíglar
Ásmundur í norður lýsti spilun-
um sínum vel og Hjalti stökk í 5
tígla þegar hann þóttist viss um
stuttlit í laufi í norður. Við hitt
borðið komust Finnamir aðeins í
2 tígla og ísland græddi vel á
spilinu.
Góð skipulagning
Þegar Norðurlandamót var
haldið hér aftur 1978 hafði fyrir-
komulaginu verið breytt og þjóð-
imar sendu aðeins eitt lið í opinn
flokk og spiluð var tvöföld umferð
í öllum flokkum. Þá hafði ungl-
ingaflokki verið bætt við, en Norð-
urlöndin áttu þá sterkustu ungl-
ingalið í Evrópu. Samt sendu að-
eins Norðmenn og Svíar unglinga-
lið til íslands. íslendingar undir-
bjuggu mótið af kostgæfni undir
stjóm Hjalta Elíassonar þáverandi
forseta Bridgesambands íslands
o g var aðstaða öll til fyrirmyndar.
Allar þjóðir, nema Svíar, sendu
sín sterkustu lið á mótið. Svíar
höfðu orðið Evrópumeistarar árið
áður og því olli það nokkrum von-
brigðum að þeir sendu B-landslið
sitt til keppni. Það var þó ekki
skipað neinum aukvisum og m.a.
var Tommy Gullberg í liðinu en
hann er nú einn sterkasti spilari
Svía. Þá spilaði Hans Olof Hallén
í liðinu en hann er nú yfirkeppnis-
stjóri Norðurlandamótsins.
Búist var við að slagurinn stæði
milli Norðmanna og Dana. í
norska liðinu voru Per Breck og
Reidar Lien, eitt sterkasta par
Evrópu á þessum tíma, og með
þeim vom Harald Nordby og Roy
Kristiansen. Nordby var þá begar
gamalreyndur stríðshestur en
Kristiansen var minna þekktur.
Steen Möller leiddi nú danska liðið
en hann spilaði við Stig Werdelin
og með þeim voru frændumir Pet-
er Schaltz og Knud-Aage Boes-
gaard.
Islenska liðið var þétt, skipað
Guðlaugi R. Jóhannssyni, Erni
Arnþórssyni, Guðmundi Péturs-
syni, Karli Sigurhjartarsyni, Jóni
Ásbjömssyni og Símoni Símonar-
syni. Þessir spilarar höfðu allir
talsverða reynslu af alþjóðamótum
og sennilega var ekki hægt að
mynda sterkara lið á þessum tíma
ef Hjalti, Ásmundur og Einar Þor-
fínnsson voru undanskyldir. Hjalti
gaf ekki kost á sér í liðið vegna
stjómunarstarfa en Ásmundur og
Einar voru ekki valdir.
Kvennaliðið var skipað Höllu
Bergþórsdóttur, Kristjönu Stein-
grímsdóttur, Esther Jakobsdóttur,
Rögnu Ólafsdóttur, Kristínu Þórð-
ardóttur og Guðríði Guðmunds-
dóttur. Unglingaliðið var skipað
Guðmundi Páli Amarsyni, Ágli
Guðjohnsen, Sigurði Sverrissyni,
Skúla Einarssyni, Þorláki Jónssyni
og Hauki Ingasyni.
Mótið var sett á Hótel Loftleið-
um af Einari Ágústssyni þáver-
andi utanríkisráðherra. Tuttugu