Morgunblaðið - 10.07.1988, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.07.1988, Blaðsíða 7
MORÖÚNÉLAfiÍÖ, SÚííNÚDAöÚR íí). JÖLf ÍÖ88 Listaverk Gerðar verða afhent endanlega í haust Listasafn Kópavogs fokhelt BYGGING Listasafns Gerðar Helgadóttur í Kópavogi verður að sögn Kristjáns Guðmundsson- ar bæjarsfjóra í Kópavogi fok- held i haust. Fer þá fram endan- leg afhending gjafar erfingja Gerðar Helgadóttur til Lista- og menningarsjóðs Kópavogs en í samningi milli erfingjanna og Kópavogskaupstaðar eru ákvæði þess efnis að þegar safnið sé fokhelt fari endanleg afhending fram. Erfingjar Gerðar Helgadóttur gáfu sjóðnum þau listaverk sem í dánarbúi hennar voru. Gjöfin var háð þeim skilyrðum meðal annars að Kópavogskaupstaður byggði listasafn, sem bæri nafn Gerðar og geymdi listaverk hennar og sýndi. Listasafnið skyldi að öðru leyti sinna hefðbundnum verkefnum. Listasafnið er á tveimur hæðum og staðsett fyrir neðan kirkjuna á Borgarholti en teikninguna gerði Benjamín Magnússon arkitekt. Á efri hæðinni verða tveir sýningar- salir en á þeirri neðri geymslur, skrifstofur og svokallaður fjölnota- salur. Fram til þessa hafa 27 milljónir verið lagðar í byggingu listasafnins en heildarkostnaður er áætlaður 140 milljónir. Framkvæmdir við bygginguna hófust árið 1986 og að sögn Kristjáns er stefnt að því að önnur hæðin verði tilbúin 1992 en lokafrá- gangi safnsins og lóðarinnar skal lokið í síðasta lagi árið 1997. Nýtt námsefni í skyndihjálp Kynningarfundur fyrir starfandi leiðbeinendur í skyndihjálp verður haldinn miðvikudaginn 13. júlí á Rauðarárstíg 18 kl. 20.00. Nánari upplýsingar í síma 26722. Rauði Krosslslands Akranes: Skímir AK seldur til Sandgerðis Akranesi. ENN fækkar í fiskiskipastól Akraness því Skírnir AK sem undanfarin ár hefur verið eini stóri landróðrabáturinn á staðn- um hefur nú verið seldur til Sandgerðis. Það er útgerðarfélagið Rafn hf. í Sandgerði sem kaupir Skírni og mun hann bera nafnið Barðinn GK 175, en útgerðin átti áður skip með sama nafni sem strandaði við sunn- anvert Snæfellsnes fyrir rösku ári. Sturlaugur Sturlaugsson hjá HB og Co hf. sem áður átti Skími sagði í samtali við Morgunblaðið, að ekki væri ætlun þeirra að kaupa skip í stað Skímis fyrst um sinn, hvað sem síðar yrði. „Þessi sala er liður í endurskipulagningu á skipastól okkar og með því losum við okkur við ákveðnar skuldir en höldum eft- ir aflakvóta. Við seljum skipið án kvótans. Hugmyndin er sú að auka veiðar annarra skipa okkar, en með því minnkum við íjárfestingar á bak við hvert veitt tonn. Við erum að skoða það þessa dagana hvemig þvi verður best við komið í samráði við stjómvöld." Sturlaugur sagði vissa eftirsjá í Skími. Þetta skip hefur reynst okk- ur vel, enda fært mikinn afla að landi. Við keyptum skipið 1971, en áður hét það Akurey RE og var í eigu Einars Sigurðssonar. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á því á undanfömum árum og í dag er það vel búið á allan hátt til alhliða veiða. Nú eru breyttir tímar í út- gerðarmálum og við því bregðumst við á þennan hátt, sagði Sturlaugur að lokum. _ jg Fram- færsluvísi- talahækkar SAMKVÆMT upplýsingum frá Hagstofu íslands hefur vísitala framfærslu hækkað um tæplega 3,5% frá síðasta útreikningi. Hækkunin frá byijun júní til byij- unar júlí er 3,48% og er fram- færsluvísitalan nú 107 stig. Áhrifa hækkunar raforkuverðs um síðustu mánaðamót gætir í vísitölunni. Mun 5% hækkun á gjaldskrám raf- magnsveitna hafa valdið 0,1% hækkunar framfærsluvísitölu. Auglýsinga- síminn er 2 24 80 ULTRA OLIAN FYRIR KRÖFUHART FÓLK igsa vel um bílana sína krefjast góðrar olíu. Því hefur ESSO þróað yfirburðaolíu, Ultra olíuna. Hún eykur afköst, veitir afbragðs- vernd og stuðlar að betri endingu. Olíufélagið hf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.