Morgunblaðið - 10.07.1988, Page 7
MORÖÚNÉLAfiÍÖ, SÚííNÚDAöÚR íí). JÖLf ÍÖ88
Listaverk Gerðar verða
afhent endanlega í haust
Listasafn Kópavogs fokhelt
BYGGING Listasafns Gerðar
Helgadóttur í Kópavogi verður
að sögn Kristjáns Guðmundsson-
ar bæjarsfjóra í Kópavogi fok-
held i haust. Fer þá fram endan-
leg afhending gjafar erfingja
Gerðar Helgadóttur til Lista- og
menningarsjóðs Kópavogs en í
samningi milli erfingjanna og
Kópavogskaupstaðar eru ákvæði
þess efnis að þegar safnið sé
fokhelt fari endanleg afhending
fram.
Erfingjar Gerðar Helgadóttur
gáfu sjóðnum þau listaverk sem í
dánarbúi hennar voru. Gjöfin var
háð þeim skilyrðum meðal annars
að Kópavogskaupstaður byggði
listasafn, sem bæri nafn Gerðar og
geymdi listaverk hennar og sýndi.
Listasafnið skyldi að öðru leyti
sinna hefðbundnum verkefnum.
Listasafnið er á tveimur hæðum
og staðsett fyrir neðan kirkjuna á
Borgarholti en teikninguna gerði
Benjamín Magnússon arkitekt. Á
efri hæðinni verða tveir sýningar-
salir en á þeirri neðri geymslur,
skrifstofur og svokallaður fjölnota-
salur.
Fram til þessa hafa 27 milljónir
verið lagðar í byggingu listasafnins
en heildarkostnaður er áætlaður
140 milljónir.
Framkvæmdir við bygginguna
hófust árið 1986 og að sögn
Kristjáns er stefnt að því að önnur
hæðin verði tilbúin 1992 en lokafrá-
gangi safnsins og lóðarinnar skal
lokið í síðasta lagi árið 1997.
Nýtt námsefni
í skyndihjálp
Kynningarfundur fyrir starfandi
leiðbeinendur í skyndihjálp verður
haldinn miðvikudaginn 13. júlí á
Rauðarárstíg 18 kl. 20.00.
Nánari upplýsingar í síma 26722.
Rauði Krosslslands
Akranes:
Skímir AK
seldur til
Sandgerðis
Akranesi.
ENN fækkar í fiskiskipastól
Akraness því Skírnir AK sem
undanfarin ár hefur verið eini
stóri landróðrabáturinn á staðn-
um hefur nú verið seldur til
Sandgerðis.
Það er útgerðarfélagið Rafn hf.
í Sandgerði sem kaupir Skírni og
mun hann bera nafnið Barðinn GK
175, en útgerðin átti áður skip með
sama nafni sem strandaði við sunn-
anvert Snæfellsnes fyrir rösku ári.
Sturlaugur Sturlaugsson hjá HB
og Co hf. sem áður átti Skími sagði
í samtali við Morgunblaðið, að ekki
væri ætlun þeirra að kaupa skip í
stað Skímis fyrst um sinn, hvað sem
síðar yrði. „Þessi sala er liður í
endurskipulagningu á skipastól
okkar og með því losum við okkur
við ákveðnar skuldir en höldum eft-
ir aflakvóta. Við seljum skipið án
kvótans. Hugmyndin er sú að auka
veiðar annarra skipa okkar, en með
því minnkum við íjárfestingar á bak
við hvert veitt tonn. Við erum að
skoða það þessa dagana hvemig
þvi verður best við komið í samráði
við stjómvöld."
Sturlaugur sagði vissa eftirsjá í
Skími. Þetta skip hefur reynst okk-
ur vel, enda fært mikinn afla að
landi. Við keyptum skipið 1971, en
áður hét það Akurey RE og var í
eigu Einars Sigurðssonar. Miklar
endurbætur hafa verið gerðar á því
á undanfömum árum og í dag er
það vel búið á allan hátt til alhliða
veiða. Nú eru breyttir tímar í út-
gerðarmálum og við því bregðumst
við á þennan hátt, sagði Sturlaugur
að lokum. _ jg
Fram-
færsluvísi-
talahækkar
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Hagstofu íslands hefur vísitala
framfærslu hækkað um tæplega
3,5% frá síðasta útreikningi.
Hækkunin frá byijun júní til byij-
unar júlí er 3,48% og er fram-
færsluvísitalan nú 107 stig. Áhrifa
hækkunar raforkuverðs um síðustu
mánaðamót gætir í vísitölunni. Mun
5% hækkun á gjaldskrám raf-
magnsveitna hafa valdið 0,1%
hækkunar framfærsluvísitölu.
Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
ULTRA OLIAN
FYRIR KRÖFUHART FÓLK
igsa vel um bílana sína krefjast
góðrar olíu. Því hefur ESSO þróað yfirburðaolíu,
Ultra olíuna. Hún eykur afköst, veitir afbragðs-
vernd og stuðlar að betri endingu.
Olíufélagið hf