Morgunblaðið - 10.07.1988, Page 34
34
MQRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1988
Nokkrum dögum eftir að ég kom
til Seyðisfjarðar stóð ég yfir mold-
um heiðursmanns er þar var látinn
og enn rigndi þindarlaust, það
drundi í Bjólfínum þegar aurskriður
spruttu fram eða steinkast hrærði
við úalhnu. Úr gröfinni varð að
dæla vatni svo kistan sykki til botns
og er rekunum hafði verið kastað
upphófst þessi fomi hetjuóður til
lífsins sem geymdur er í Sálminum
um blómið er hann sr. Hallgrímur
í Saurbæ orti. A þeirri stundu vissi
ég að ýmislegt fleira en naktir klett-
ar og sandur í fjöru mundi eftir
standa á Seyðisfirði þegar upp
stytti. Og Steinn Stefánsson gekk
til mín og bauð mér heim með sér
upp á kaffíbolla og hressingu. Hann
var skólameistari staðarins og org-
anisti kirkjunnar, mikill ræktunar-
maður og átti sér andlegan urta-
garð sem ég vissi síðar að seint
mundi verða jarðvegfslaus og ekkert
haustregn fengi neinu lífvænlegu
skolað burt úr þeim garði. Hann
hafði óbifanlega trú á æskufólki því
sem hann hafði verið að mennta
allt sitt líf, þessum unga gróðri
staðarins, og ekki bara æskufólki
Seyðisflarðar heldur íslensku æsku-
fólki almennt. Hann bar djúpa virð-
ingu fyrir menningararfi þjóðarinn-
ar og trúði á hlutverk hennar á
komandi tímum í samfélagi þjóð-
anna. I garði Steins vaxa ótal teg-
undir fijórra hugmynda og draum-
sýna, það var gott að koma í þenn-
an garð hans Steins frá kirkjugarð-
inum undir Bjólfi sem var að sökkva
í táraflóði himinsins þennan dimma
haustdag.
Ég kenndi hjá Steini þennan vet-
ur og kynntist honum sem skóla-
stjóra og kennara. Hann átti virð-
ingu allra jafnt kennara sem nem-
enda. Með heilindum sínum og full-
kominni einlægni í öllu sínu starfi
komst enginn hjá því að virða hann
og ekki síður þykja vænt um hann.
Djúpstæður áhugi hans yfir hvetju
einasta bami skólans var honum
jafneðlilegur og andardrátturinn í
vitum hans, þar var engin mæða
eða sjálfsmeðaumkun í för og aldr-
ei talað um þessa frægu starfsað-
stöðu sem alltaf er jafnerfið nú á
tímum og allt raunverulegt starf
virðist kafna undir fargi hennar á
svo mörgum sviðum.
Steinn var ekki sífellt að leita
uppi nýjustu tækni og vísindi í
skólastarfi, ég á við það að hann
hafði enga sérstaka trúa á tækjum
til kennslunnar, hans tæki var and-
inn, allt gaddgett annað mátti sigla
sinn sjó, skolast burt í öllu heimsins
haustregni fyrir honum. Og hann
var svo heppinn að hafa sér við
hlið frábæra kennara, en kannski
var það ekki nein heppni eða tilvilj-
un, menn eins og Steinn laða að
sér góða samstarfsmenn, menn sem
eru sama anda og þeir sjálfir. Vet-
urnir sem ég kenndi hjá Steini verða
mér minnisstæðir og það er gott
að leiða í hugann þær liðnu stundir.
Steinn var organisti við Seyðis-
fjarðarkirkju löngu áður en mig bar
þar að garði og hélt því starfi áfram
meðan hann dvaldist þar eystra.
Hér eins og í skólanum var hann
heilll og óskiptur. Eftir langan og
strangan dag við kennslu og stjóm-
unarstörf við alla staðarins skóla
(því hann var einnig með Iðnskól-
ann auk barna- og gagnfræðaskól-
ans á herðum sér) kom hann reifur
og glaður að ævi kirkjukórinn og
sýndi þar sömu virðingu verki sínu
sem í skólastarfinu. Steinn er að
náttúrufari tónmenntamaður, hefur
tekið það í arf frá feðrunum eins
og systkin hans, og hann hefur
sent frá sér tónsmíðar sem munu
minna á þennan sérstæða mann,
Stein Stefánsson, löngu eftir að
hann er allur.
Hann er upprunninn í Austur-
Skaftafellssýslu eins og svo margir
aðrir snilldarmenn okkar fámennu
þjóðar, af fólki kominn sem geymdi
í genum sínum marga snilligáfu,
náfrændi Svavars Guðnasonar list-
málara og Þórbergs Þórðarsonar
rithöfundar (svo aðeins tveir séu
nefndir) en um forfeður Steins er
hvergi betra að fræðast en í bókum
Þórbergs af uppvexti sínum í Suð-
ursveit.
Við Steinn höfðum verið kunn-
ingjar um árabil áður en okkar
raunverulegu kynni upphófust
haustið 1968 á Seyðisfirði. Það
gerðu sameiginleg hugðarmál og
draumar beggja um samfélagslegt
réttlæti og herlaust land. 0g enn
eigum við Steinn þessa gömlu
drauma um landið og þjóðina, sömu
óskir og vonir og þá, þrátt fyrir
alla þessa dimmu haustdaga sem
runnið hafa yfir óskir okkar og
regnið dapra sem ætlar á stundum
að sópa þeim öllum út í hafsauga.
Þegar við kvöddumst eystra var
það á kyrrum haustdegi uppi í
Fjarðarheiðinni þar sem úðann
leggur jrfír veginn af Gufufossi í
sunnan andvara. Og það var kominn
fölvi í lyngið og himinn og jörð að
draga út pússi sínu dimmrauða liti
haustsins og þennan fjarbláa lit
himinsins sem aðeins er til á himn-
um. Og nú 18 árum síðar heilsa ég
þér á ný, gamli vin, og óska þér
til hamingju með daginn, til ham-
ingju með þín gáfuðu og velgerðu
böm, bæði þau sem þú áttir með
þinni góðu konu Amþrúði Ingólfs-
dóttur frá Vakursstöðum í Vopna-
fírði og hin öll sem þú lést þér jafn-
annt um í skólanum eystra. Guð
blessi þér ævikvöldið, góði vin.
Rögnvaldur Finnbogason, Staðastað.
_________Brids___________
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids
44 pör mættu til leiks sl. þriðju-
dag í Sumarbrids. Spilað var í þrem-
ur riðlum. Úrslit urðu (efstu pör);
A
Dúa Ólafsdóttir —
Véný Viðarsdóttir 243
Hrefna Jónsdóttir —
Sæmundur Björnsson 238
Jón Guðmundsson —
Úlfar Guðmundsson 236
Gullveig Sæmundsdóttir —
Sigríður Jónsdóttir 231
Guðrún Jóhannesdóttir —
Gróa Guðnadóttir 224
Lovísa Eyþórsdóttir —
Ester Valdimarsdóttir 217
B
Guðmundur Eiríksson —
Jón Steinar Gunnlaugsson 190
Bjöm Amarson —
Þórarinn Andrewsson 190
Anton R. Gunnarsson —
ísak Öm Sigurðsson 187
Bemódus Kristinsson —
Ragnar Jónsson 175
Sigrún Jónsdóttir —
Ingólfur Lilliendahl 175
C
Láms Hermannsson —
SteingrímurJónasson 195
María Asmundsdóttir —
Steindór Ingimundarson 177
Guðmundur Baldursson —
Jóhann Stefánsson 166
Hjálmar S. Pálsson —
Sveinn Þorvaldsson 162
Guðmundur Karlsson —
Gunnar Karlsson 158
Spilað var í þremur riðlum sl.
fímmtudag í Sumarbrids og vom
þátttakendur rúmlega 40 pör.
Úrslit urðu þessi (efstu pör);
A-riðill:
Gunnar Þórðarson —
Sigfús Þórðarson 270
Jón Stefánsson —
Sveinn Sigurgeirsson 251
Steingrímur ÞórisSon —
Þórir Leifsson 232
Eiður Guðjohnsen —
GunnarBragiKjartansson 230
Guðjón Jónsson
Óskar Karlsson 224
Ólína Kjartansdóttir —
Ragnheiður Tómasdóttir 220
B-riðill:
Hjálmar S. Pálsson —
Sveinn Þorvaldsson 176
Anton R. Gunnarsson —
Jömndur Þórðarson 172
Alfreð Kristjánsson —
Hörður Jóhannesson 171
Björgvin Víglundsson —
Einar Sigurðsson 166
Dröfn Guðmundsdóttir —
Ásgeir P. Ásbjörnsson 166
Einar Guðmundsson —
Jón Björgvinsson 163
C-riðill:
Ámi Loftsson —
Sveinn Eiríksson 179
Jón Ingi Björnsson —
Ólafur Lámsson 177
Ragnar Jónsson —'
Þröstur Ingimarsson 176
Rúnar Lámsson —
ValdimarElíasson 163
Baldvin Valdimarsson —
Jón Viðar Jónmundsson 162
Kristján Ólafsson —
Rögnvaldur Möller 158
Og eftir 19 spilakvöld í Sum-
arbrids er staða efstu spilara í heild-
arstigakeppninni þessi:
Sveinn Sigurgeirsson 248, Anton
R. Gunnarsson 210, Guðlaugur
Sveinsson/Magnús Sverrisson 189,
Hjálmar S. Pálsson 160, Láms
Hermannsson 154, Jakob Kristins-
son 152, Sveinn Eiríksson 123, Jör-
undur Þórðarson 111, Hermann
Lámsson 108, Guðjón Jónsson 104
og Sveinn Þorvaldsson 102. ..
Sumarbrids verður spilaður alla
þriðjudaga og fimmtudaga út sum-
arið í Sigtúni 9, fram undir miðjan
september þegar búast má við að
félögin á Stór-Reykjavíkursvæðinu
fari að hugsa sér til hreyfings, til
vetrarkeppni.
Sem fyrr opnar húsið kl. 17.30
(heitt á könnunni) og hefst spila-
mennska um leið og hver riðill fyll-
ist. Allt spilaáhugafólk velkomið.
1989 árgerðirnar af MAZDA eru nú væntanlegar innan
skamms og þess vegna lækkum við verðið á síðustu
bílunum af árgerð 1988.
Dæmi um verð:
Júlíverð Tilboðsverð nú
MAZDA 121 L 3 dyra 1.1 I.................... ................... 537.000 464.000
MAZDA 323 LX 3 dyra 1.3 I.......................................... 539.000 499.000
MAZDA 323 LX 5 dyra 1.3 I.......................................... 594.000 543.000
MAZDA 323 GLX 5 dyra 1.5 I ......................................... 636.000 590.000
MAZDA 626 LX 4 dyra/vökvast. 1.8 I ................................ 871.000 731.000
MAZDA 626 GLX 4 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I...................... 1.008.000 889.000
MAZDA 626 LX 5 dyra sj.sk./vökvast. 1.8 I ......................... 937.000 845.000
MAZDA 626 GLX 5 dyra sj.sk./vökvast. 2.0 I...................... 1.026.000 905.000
MAZDA 626 GTI 2 dyra vökvast. álfelgur vinsk. og sóllúga .... 1.225.000 1.088.000
Þetta eru án efa bestu bílakaupin í dag. Tryggið ykkur
bíl strax, því aðeins er um takmarkað magn bíla að
ræða!
BILABORG H.F.
FOSSHÁLS11 ,SÍMI 6812 99