Morgunblaðið - 24.07.1988, Síða 14
14 B_____________________MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988_
SKÍÐASKÓLINN í KERLINGARFJÖLLUM HEIMSÓTTUR
Svifið niður
brekkur í
glampandi sól
Morgunblaðið/Sverrir
„Besta borgunin að fólk fari ánœgt héðan." Valdimar Örnólfsson
ásamt konu sinni Kristínu Jónasdóttur.
ÞAÐVAR
blíðskaparveður þegar
blaðamaður og
Ijósmyndari
Morgunblaðsins
heimsóttu
Sklðaskólann í
Kerlingarfjöllum. Við
kynntum okkur
starfsemi skólans og
tókum tali nokkra af
þeim fjölmörgu sem
þeystu niður
brekkurnar í
glampandi sól.
Skíðaskólinn hefur
verið starfræktur
síðanárið 1961.
Skólinn er kenndur við
umhverfi sitt,
Kerlingarfjöll, sem eru
á miðhálendi Islands,
milli Langjökuls og
Hofsjökuls. Að sögn
Valdimars
Örnólfssonar hófst
starfsemi
fyrirtækisins
Fannborgar, sertí á
skólann, með tveimur
ferðum í Kerlingarfjöll
sumarið 1961 og var
þá gist í skála
Ferðafélagsins í
Ásgarði. Nú þegar 27
ár eru liðin f rá fyrstu
ferðinni eru aðstæður
aðrarog betri.
Skíðakennarar hressir að vanda, talið frá vinstri: Jónas Valdimarsson, yfirskíðakenn- Af skíðasvæðinu er útsýni fagurt.
ari, Jakobína Guðmundsdóttir, Þorgrímur Kristjánsson og Eyjólfur Kristjánsson.
Nemendur gista
í Fannborgar-
skálanum eða
svokölluðum
nípum sem
eru fimm tals-
ins. Nokkrar
lyftur eru á
skíðasvæðinu og þar má finna
brekkur við flestra hæfi. Skíðaskól-
inn hefur kennt um 20 þúsund
manns á skíðum frá stofnun.
Skólinn nýtur engra styrkja frá
ríkinu en á 25 ára afmælinu færði
ríkið skólanum borholu að gjöf en
vatnið úr henni er ekki nægilega
heitt. Nemendasamband skólans
safnar nú fyrir varmadælu til þess
að hita vatniö úr borholunni. Þegar
hún kemst í gagnið, verða heitir
pottar, sem búið er að setja upp,
teknir í notkun. Valdimar sagði að
vonast væri til þess að þetta gæti
orðiö í næsta mánuði og þá yrði
einnig tilbúið nýtt baðhús.
Að sögn Valdimars er það ekki
nema undanfarin 5 ár, sem aðsókn
hefur veriö nægileg til þess að
standa undir rekstri skólans. Upp-
bygging á svæðinu hefur átt sér
stað smám saman og enn er verið
að bæta aðstöðuna. Starfsfólkið,
sem er um 25 talsins leitast við að
skapa þægilegt andrúmsloft. „Við
leggjum áherslu á að fólki líði vel
hérna hjá okkur og höfum aldrei lit-
ið á þetta sem gróöafyrirtæki. Fyrir
okkur er það besta borgunin að fólk
fari ánægt héðan. Það er einstök
tilfinning að mæta gömlum nem-
endum sínum svífandi niður brekk-
urnar í Bláfjöllum á veturna", sagði
Valdimar að lokum.
Aldrei stigið á skíði áður
„Við höfðum varla séð skíði áður
en við komum hingað, hvað þá stig-
ið á þau,“ sögðu þeir Stefan
Schmidt og Klaus Jeppesen frá
Danmörku. Þeir komu hingað
ásamt hópi evrópskra unglinga á
vegum Lions-hreyfihgarinnar. Klaus
sagðist hafa verið á Djúpavogi en
Stefan bjó á Selfossi. Flópurinn hitt-
ist síðan i lok ferðarinnar í Skíða-
skólanum í Kerlingarfjöllum. Þeir
sögðust hafa ferðast nokkuð en
þegar þeir voru spurðir hvað þeim
hefði líkað best á íslandi, svöruðu
þeir án umhugsunar: „Allar fallegu
stúlkurnar." Um skíðakunnáttu sína
sagði Stefan að hann gæti nú rennt
sér niður brekkurnar án þess að
detta oft á leiöinni. „Það er krafta-
verki næst hversu vel okkur hefur
gengið að læra að skíða," sögðu
þeir félagarnir og renndu sér fim-
lega af stað niður brekkuna.
Æfingar gífurlega
tímafrekar
Næst hittum við að máli meðlimi
A-liðs skíðalandsliðsins, þau Guð-
rúnu H. Kristjánsdóttur, Valdimar
Valdimarsson og Örnólf Valdimars-
son. Með þeim var þjálfari þeirra
Helmut Mayer og tveir aðstoöar-
„íslenskar stúlkur þaft fegursta á landinu, aft landslaginu ólöstuðu."
Félagarnir Klaus Jeppesen og Stefan Schmidt frá Danmörku.
A-lift íslenska skfftalandsliðsins: Örnólfur Valdimarsson, Reykjavík, Guftrún H. Kristjánsdóttir, Akureyri
og Valdimar Valdimarsson, Akureyri.