Morgunblaðið - 24.07.1988, Qupperneq 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
ÚE liEIMI EVlEMyNEANNA
Robert De Niro og Charles Grodin leika saman í nýjustu mynd Martins
Brests sem heitir „Midnight Run“.
Myndin er nokkurskonar hasardrama um bókhaldara (Grodin) sem
flýr undan mafíunni en er eltur uppi af mannaveiðara (DeNiro).„Þetta
er besta hlutverk sem ég hef leikið," lætur Grodin hafa eftir sér.
Hann er örugglega einn fremsti grínleikari Bandaríkjanna, heillandi,
kaldhæðinn og pínulítið kjánalegur. Málið er bara að hann fékk leið á
þeirri ímynd fyrir nokkru.
„Ég hef í rauninni ekki fengið hlutverk hingað til sem krefst alls þess
af mér sem óg get gert — sem hefur þá breidd og næmi sem ég var
þjálfaður fyrir," segir Grodin sem gekk í leiklistarskóla Lee Strasberg
og lék á Broadway á sjöunda áratugnum áður en hann hellti sér útí
kvikmyndirnar (hann hefur leikið í allt frá myndum eins og „Rosemary's
Baby" og „The Heartbreak Kid“ til „King Korig“ og „Ishtar").
„Venjulegast leik ég persónur sem eru vitlausari en ég er, fólk sem
er þröngsýnt og taugaveiklað." Svo hlær hann. „Það er ekki þar með
sagt að ég sé ekki þröngsýnn og taugaveiklaður."
Miðið tekið á metsölumynd; Stallone spennir bogann.
De IMiro og Grodin leika
saman
Demme ger-
ir mafíugrín
Jonathan Demme, sem gerði m.a.
hina óborganlegu „Something
Wild“ hefur lokið við nýju myndina
sína en hún heitir Giftur mafín-
unni(„Married to the Mob“) og er
gamanmynd.
„Þetta eru gæjar sem gera
250.000 dollara eiturlyfjasamning
og seinna um daginn mölva þeir
tyggjókúlusjálfsala — þeir elska að
stela," segiraðalleikari myndarinn-
ar Alec Baldwin (leikur góðviljaðan
draug í „Beetlejuice") þegar hann
talar'um persónur myndarinnar. í
„Married to the Mob“ leikur hann
mafíósa sem á fullt hús af stolnum
munum og er of heimskur til að
skilja ógeð konunnar sinnar, sem
Michelle Pfeiffer leikur, á lífsstíl
þeirra. („Fáðu þér valíum," leggur
hann til.)
Eins óg Demme ólst Baldwin
upp á Lönguströnd „þar sem allir
sem ekki voru í mafíunni vildu láta
aðra halda að þeir væru það. Mað-
ur heyrði kannski einhvern segja:
Frank frændi minn, hann þekkir
fólk. Þeir sem höfðu virkileg sam-
bönd þögðu auðvitað um þau.“
Baldwin hefur á síðustu árum
leikið mest í sápuóperum en er að
færa sig upp á skaftið í kvikmynd-
unum að undanförnu. Næsta
mynd sem hann sést í verður
„Working Girl" eftir Mike Nichols
og svo leikur hann í „Talk Radio"
eftir Oliver Stone.
Alec Baldwin í „Married to the
Mob.“
Rambo III berst
Robert De Niro og Charles Grodin í „Midnight Run“.
„Rambo 111“ er nú sýnd í bæði
Bíóborginni og Bíóhöllinni og gefst
þar íslenskum kvikmyndahúsa-
gestum tækifæri til að kynnast
þriðja æfintýri einfarans þögla,
John Rambos, í þetta sinn í Afgan-
istan.
Þegar myndin hefst er hann í
búddaklaustri í Thailandi þangað
sem hann hefur farið í leit að innri
friði. Vinur hans og leiðbeinandi,
Sam Trautman, sem Richard
Crenna leikur eins og áður, hefur
upp á honum og biður hann að
hjálpa sér í leiðangri til Afganistan
en Rambo, sem Sylvester Stallone
leikur að sjálfsögðu, neitar honum
um greiðann. Trautman fer einn
og sjálfur og Sovétmenn handtaka
hann. Þegar Rambo heyrir af því
heldur hann í sinn persónulega
leiðangur að bjarga vini sínum.
Myndinni, sem kostaði meira
en 60 milljónir dollara, er leik-
stýrt af Peter Macdonald
en hann vann við Rambo
II og kvikmyndaði
Hamborgarahæðina.
Handritið er eftir Stall-
one og Sheldon Lettich
■stan
en að baki þeim standa framleið-
endurnir Mario Kassar og Andrew
Vajna er gert hafa allar þrjár mynd-
irnar. Rambo III var tekin í ísrael,
Thailandi og í Kaliforníueyðimörk-
inni við Yuma í Arizona.
„Rambo er maður sem hefði
átt að lifa fyrir 500 árum," seg-
ir Stallone. „Hann er eins og
Samurai hnepptur í nútímaver-
öld sem hefur ekki pláss fyrir
hann. Hann verður að hafa
málstað, ástæðu til að lifa. ...
Hann er fæddur hermaður og
það líkar mér.“
Kvikmyndagagnrýnandinn
David Ansen skrifaði eitthvað
á þessa leið í blað sitt News-
weeic. „Hefur nokkurntímann
verið uppi jafn óaðlaðandi sú-
perhetja og John Rambo? Jafn
húmorslaus, ofsóknabrjálaður
og áhugalítill um gagnstæða
kynið? Þessi hefndarþyrsta
drápsvél hefði aldrei komist á
hvíta tjaldið nema á níunda ára-
tugnum. Flestir virðast hafa
gleymt því að í upphafi, í myndinn-
i„First Blood", var hann sýndur
sem hálfgeðsjúkur Víetnamher-
maður á heimleið en alltaf hetjan.
í næstu Rambo-mynd var allri
tvíræðni sleppt og hetjudýrkunin
var alger; með smá hjálp vina sinna
sigraði hann sitt persónulega Víet-
namstríð og frelsaði bandaríska
stríðsfanga í Suðaustur-Asíu.
Uppruna Rambos má raunar
rekja lengra aftur en til „First
Blood". Hugmyndin að honum
varð til hjá bandaríska rithöfundin-
um David Morrell þegar hann
horfði einu sinni á fréttir í sjón-
varpi seint á sjöunda áratugnum.
Hann var þá í háskóla. „Sýndar
voru tvær fréttir hvor á eftir ann-
arri," segir hann.„Önnur var um
bardaga í Víetnam og hin um upp-
þot í bandarískri stórborg." Mor-
rell þótti margt sameiginlegt með
fréttunum. „Eg hugsaði, hvað ef
ég skrifaði skáldsögu sem færði
Víetnamstríðið til Bandaríkjanna?
Hvað ef ég sýndi hvernig stríðið
yrði ef það væri háð hér á landi?"
Hollywood var ekki lengi að
kaupa kvikmyndarétt bókarinnar,
sem út kom eitthvað tíu árum
seinna, en það voru að minnsta
kosti þrjú vandamál sem þurfti að
Tvíburahrollvekja eftir
Cronenberg
Myndin sem hrollvekjusmiður-
inn David Crononberg („The Fly“)
vinnur að núna heitir „Twins" eða
Tvíburar og byggir á samnefndri
bók Bari Woods og Jack Geas-
lands.
Cronenberg kafar í þetta sinn
oní hin dularfullu bönd sem
tengja eineggja tvíbura. Þeir
haga sér oft eins, tala eins og
hugsa jafnvel sem einn og virðist
sem annar viti og finni það sem
hinn finnur og hugs'ar.
Cronenberg hefur lengi verið
heillaður af fyrirbærinu og byrjaði
raunar á myndinni árið 1980 þeg-
ar hann bað Norman Snider að
gera uppkast að handriti. Tveim-
ur árum seinna gerðist Marc
Boyman framleiðandi myndar-
innar og kynnti sér viðfangsefnið
Jeremy Irons; galdurinn var að
láta fólk halda að til væru tveir
slíkir.
með því að heimsækja Minne-
sota-háskóla þar sem fram fer
stórtæk rannsókn á tviburum.
„Bókin sá okkur fyrir grunnfrá-
sögninni," segir Snider. „Handri-
tið fjallar um kyndugt afbrigði
hins eilífa þrihyrnings." í marg-'
endurskoðaðri útgáfu Cronen-
bergs, sem kemur i bíóhúsin
vestra í september, taka ein-
eggja tvíburarnir Elliot og Be-
verly Mantle, sem Jeremy Ir-
ons(„The Mission") leikur, mikl-
um og ógnvekjandi breytingum.
Mantle-tviburarnir er heillaðir af
innri gerð kvenlíkamans frá því
þeir eru drengir. „Þeir eru svo
ólíkir okkar,“ segir Beverly. „Við
verðum að kanna þá,“ segir Elli-
ot. „Hvernig förum við að því?“
spyr Beverly. „Með uppskurð-
um.“
Er þetta formáli að enn frekari
slimugum tæknibrellum sem
áhorfendur hafa vanist frá Cron-