Morgunblaðið - 24.07.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1988
Með Richard Crenna i
stríði við sovéska herinn
í Afganistan.
leysa áður en ráðist yrði í gerð
myndarinnar: Það var mikið ofbeldi
í Rambo, eins og við þekkjum,
Hollywood var að bakka útúr Víet-
nam-myridunum á þessum árum
(rétt um '80) og í sögulok lést
Rambo en hamingjusöm endalok
eru Hollywood og áhorfendum
meira að skapi. Þess vegna gekk
rétturinn manna á milli í langan
tíma þar til Mario Kassar og
Andrew Vajna höndluðu hann fyrir
nýja kvikmyndafyrirtækið sitt, Car-
olco, og „First Blood“ varð fyrsta
mynd þess. Vajna breytti aðalper-
sónunni úr geðsjúklingi í fórnar-
lamb aðstæðna og leitin að rétta
leikaranum hófst.
En hún stóð stutt. „Stallone var
efstur á lista hjá okkur," segir Vaj-
na. Hann var tiltækur og skrifaði
sjálfur sjö uppköst að handriti á
næstu fjórum mánuðum. Myndin
naut mikilla vinsælda þegar hún
var frumsýnd og ekki síður fram-
haldsmyndin sem tók inn 270 nrtillj-
ón dollara um heiminn.
Og núna er númer þrjú á leið í
bíó. Hvort það er síðasta myndin
í flokknum er ekki gott að segja
um. Stallone ræður því sjálfsagt.
IMikíta litli: Njósnaþriller
með Poitier
Jeff N. Grant er ósköp venjulegur, bandarískur skólastrákur sem dreymir um að fá inngöngu í Flugliðs-
foringjáskóla bandaríska hersins. Foreldrar hans reka gróðrastöð í úthverfi San Diego í Kaliforníu og Jeff er
vinamargur og vinsæll. Fjölskyldulífið er eins og best verður á kosið. Roy Parmenter er starfsmaður banda-
rísku alríkislögreglunnar, FBI, en eitt af hlutverkum hans er að fara yfir allar umsóknir um skólavist við liðs-
foringjaskólann. Þegar hann fer yfir umsókn Jeffs kemur ýmislegt furðulegt í Ijós; svo virðist sem foreldrar
hans hafi verið uppi á 19. öld og látist skömmu fyrir síðustu aldamót. Það er eitthvað sem ekki passar og
við nánari athugun koma fram í dagsljósið upplýsingar um foreldra Jeffs sem eiga eftir að umturna tilveru
hans og sambandi hans við foreldra og félaga. Þetta er partur af söguþræðinum í njósnaþrillernum „Little
IMikita", sem Stjörnubíó sýnir á
næstunni. Myndin er með Sidney
Poitier í aðalhlutverki FBI-manns-
ins en River Phoenix leikur strákinn
Jeff.Leikstjóri er Richard Benjamin.
Poitier leikur nú í hverri mynd-
inni á fætur annarri eftir að hann
rauf tíu ára kvikmyndabindindi
með þrillernum „Shoot To Kill“.
Hann varfyrsti svarti leikarinn sem
varð súperstjarna í Hollywood,
Óskarsverðlaunahafi og fyrirmynd
margra listamanna sem reyndu að
feta í fótspor hans. Foreldrar hans
voru bændur og hann ólst upp,
yngstur sjö systkina, á Bahamaeyj-
um. Sextán ára fluttist hann til
Florída og ári síðar til New York
þar sem hann segist hafa orðið
fyrir „menningaráfalli". Hann gekk
í bandaríska herinn en eftir stríð sótti hann af tilviljun um aðild að „American Negro Theatre". Árið 1950
fékk hann fyrsta hlutverkið í kvikmynd á móti Richard Widmark í „No Way Out“. Hann var útnefndur til
Óskarsins árið 1958 og hreppti hann sex árum seinna fyrir Liljur vallarins. Hann hefur leikið í yfir 40 kvik-
myndum og hann hefur líka fengist við leikstjórn en hann leikstýrði m.a. gamanmyndinni „Stir Crazy“ með
Gene Wilder og Richard Pryor. Við gerð Nikíta litla var skálað fyrir þessum merka leikara í tilefni sextugsaf-
mælis hans. Afmæliskveðjan var svohljóðandi: Til hamingju með afmælið, Parmenter. Frá vinum þínum í
F.B.I. Þótt River Phoenix sé ekki nema 17 ára er kvikmyndaferill hans hinn athyglisverðasti. Myndirnar sem
hann leikur í eru ekki dæmigerðar bandarískar unglingamyndir og léttmeti heldur myndir af alvarlegri tegund
eins og „Stand By Me" og Moskítóströndin þar sem hann lék á móti Harrison Ford.
Sidney Poitier handsamar einn grimmilegan f Nikfta litli.
enberg? Nei, alls ekki. Drengirnir
verða læknar þegar þeir vaxa úr
grasi og vinna viö fræga sjúkra-
stofnun þar sem þeir sérhæfa
sig í lækningum á ófrjósemi
kvenna.
„Ég held að Tvíburar sé ól(k
þeirri mynd sem ég fókkst víð
síðast," segir Cronenberg. „I
„The Fly“ lá listin í því að gera
fantasíuna að raunveruleika. í
Tvíburum er því öfugt farið — í
henni sný óg raunveruleikanum
upp í fantasíu."
I fyrstunni Kta tvíburarnir út
eins og hverjir aðrir bræður sem
búa og vinna saman, nema þeir
hafa sórstaka skurðlæknahæfi-
leika og eru svolitlir sérvitringar.
Þeir vinna saman að verkefnun-
um sínum, skipta með sér viður-
kenningum og jafnvel stundum
konum. Þá kemur til sögunnar
Claire Niveau (sem Genevieve
Bujold leikur) er leitar til bræð-
ranna vegna ófrjósemi sinnar.
Skömmu seinna fara smávægi-
legir andlegir gallar að gera vart
við sig i bræðrunum sem aukast
og versna í eymd og eyðileggingu
þar til þeir mæta grimmum örlög-
um sínum.
Helsta vandamálið við tækni-
brellurnar f þessari Cronenberg-
mynd var ekki að t.d. léta flugu
breytast í mann heldur láta svo
líta út að til væru tveir nákvæm-
lega eins leikarar að nafni Jeremy
Irons en bræðurnir eru saman í
alls 35 atriðum myndarinnar.
Þykir það hafa tekist mjög vel.
Framleiðsla myndarinnar
stöðvaðist um tima fyrir um ári
síðan þegar De Laurentis kvik-
myndafyrirtækiö, sem ætlaði að
fjármagna myndina, þurfti að
draga saman seglin og dró sig
úr fyrirtækinu.
laugardaga
8QP-I8QP
sunnudaga
IIQPLI8QP