Morgunblaðið - 04.08.1988, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988
Islenskt kynningarrit vegna HM í handknattleik 1993:
Verulegar líkur á að keppn-
in verði haldin hér á landi
son forseti HSÍ afhentu forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrsta eintak kynningarrits
um ísland sem keppnisstað HM ’93. Vigdís hefur veitt þvi málefni stuðning og ritar ávarp í bækl-
- segirJónH.
Magnússon
formaður HSÍ
Jón Hjaltalín Magnússon
formaður HSÍ segir verulegar
líkur á að heimsmeistara-
keppnin í handknattleik árið
1993 verði haldin hér á landi.
Aðeins íslendingar og Svíar
hafa sótt um að halda keppn-
ina. Jón sagði þetta á blaða-
mannafundi í vikunni þar sem
kynnt var sérstakt kynningar-
rit, sem gefið er út til þess að
vinna því stuðning, að keppnin
verði haldin hér á landi. For-
seta íslands, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur, var afhent fyrsta
eintakið af ritinu en hún ritar
ávarpsorð í ritið. Þar fagnar
Vigdís því, ef keppnin getur
verið haldin hér. „Allir íslend-
ingar verða stoltir, ef keppnin
verður haldin hér,“ segir hún.
Matthías Á. Mathiesen form-
aður undirbúningsnefndar
fyrir keppnina fylgdi ritinu
úr hlaði og lýsti kynningu
þeirri, sem fram fer nú til
þess að vinna íslandi fylgi sem
keppnisstað.
„Á fímmtíu ára afmæli lýð-
veldisins hyggjumst við hafa sem
einn lið í hátíðarhöldunum, að
heimsmeistarakeppnin verði
haldin á íslandi," sagði Matt-
hías. Hann lýsti því síðan ítarlega
hvemig staðið er að kynningu
málsins. Forseta íslands var af-
hent fyrsta eintak kynningarrits-
ins og þakkaði Matthías Vigdísi
þann stuðning sem hún hefur
veitt þessu málefni. í ritinu er
vitnað til leiðtogafundarins þar
sem þeir Reagan Bandaríkjafor-
seti og Gorbatsjov aðalritari sov-
éska kommúnistaflokksins hitt-
ust hér í Reykjavík. Minnt er á
að hér sé góð aðstaða fyrir fjöl-
miðla og kynnt er sérstaklega
fyrirhuguð íþróttahöll, sem mun
rísa í Laugardal. Matthías sagði
það styrk Islands, að mjög stutt
mginn.
er á milli þeirra íþróttahúsa sem
keppt yrði í.
í kynningarritið skrifa ávörp,
auk forseta, Matthías Á. Matthi-
esen samgönguráðherra, Birgir
Isleifur Gunnarsson mennta-
málaráðherra, Davíð Oddsson
borgarstjóri, Jón Hjaltalín Magn-
ússon forseti HSÍ og loks Petre
Ivanescu þjálfari vesturþýska
landsliðsins í handknattleik.
Hann mælir þar með því að
heimsmeistarakppnin 1993 verði
haldin hér.
Matthías greindi frá því, að
landslið íslands í handknattleik,
sem hélt utan á laugardag tií
æfíngakeppni fyrir Ólympíuleik-
ana, myndi afhenda öllum keppi-
nautum sínum eintök af bækl-
ingnum. Ennfremur verður ritið
afhent öllum þátttakendum á
Flugleiðamótinu, sem haldið
verður hér innan tíðar. Það er
eitt sterkasta handknattleiksmót
sem hér hefur verið haldið. Þar
munu keppa A og B lið íslands
og landslið Sovétmanna, Tékka,
Spánveija og Svisslendinga. Auk
þessa verður kynningarritið sent
á næstu dögum „...út um allan
heim til allra.þeirra sem við get-
um látið okkur detta í hug að
geti haft áhrif," sagði Matthías
Á. Mathiesen.
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra sagði frá
þeirri ákvörðun ríkisstjómarinn-
ar, að tryggja það, að fyrirhuguð
róttahöll geti risið tímanlega.
máli hans kom fram, að slík
mannvirki nýtast á fleiri sviðum
en til íþróttaleikja og æfínga,
einkum til ráðstefnu- sýninga-
halds. Hann greindi frá því, að
um sömu mundir og ríkisstjómin
tók þessa ákvörðun, hafí borist
bréf frá aðstandendum sjávarút-
vegssýningarinnar, sem hér hef-
ur verið haldin. í bréfínu er sagt,
að ekki sé grundvöllur fyrir
slíkum sýningum hér á landi í
framtíðinni vegna húsnæðiss-
korts og taldi Birgir ísleifur því
réttlætanlegt að ráðast í slíka
byggingu, jafnvel þótt.svo fari
að heimsmeistarakeppnin 1993
verði ekki haldin hér á landi.
Jón Hjaltalín Magnússon
sagði að gríðarlega mikla undir-
búnings- og skipulagsvinnu
þyrfti til að halda þessa keppni.
Hann var spurður um hvaða skil-
yrði, önnur en um mannvirki,
þyrfti að uppfylla og hvað íslend-
ingar þyrftu að gera til þess að
geta fengið keppnina. Hann
sagði að fullvissa væri fengin frá
Pósti og síma, Ríkisútvarpinu og
Stöð 2 um að hægt væri að sjón-
varpa héðan, hótelrými er fyrir
hendi, mikill áhugi áhorfenda,
„...þannig að við erum fullvissir
Sceiand
u'ntr.it p<tmt tH'Uv*uui cantun’nty
iAr/«vc /i.iluHf.itl i\ n*i I
Handknattleikssambandið hef-
ur gefið út kynningarbækling
þar sem kynnt er aðstaða til
að halda heimsmeistarakeppn-
ina í handknattleik 1993 hér á
landi. Bæklingnum verður
dreift til allra aðila, sem hugs-
anlega geta veitt stuðning i
málinu á þingi Alþjóðahand-
knattleikssambandsins í Seoul
í september. Bæklingurinn er á
ensku, frönsku og þýsku.
um að við getum haldið þessa
keppni og einnig þær þjóðir sem
styðja okkur“ sagði hann.
Jón sagði ennfremur að búist
væri við um 3.000 keppendum
og áhorfendum á keppnina. Gert
er ráð fyrir að hver og einn noti
um það bil 100.000 krónur í
ferðakostnað, hótel, mat og vör-
ur, þannig að heildartekjur af
komu þessara gesta gætu numið
um 300 milljónum króna. HSÍ
fær síðan helming tekna af sjón-
varpssendingum á móti Alþjóða-
handknattleikssambandinu.
Ákvörðun um keppnisstað
verður tekin á þingi Alþjóða-
handknattleikssambandsins sem
haldið verður fyrir Ólympíuleik-
ana í Seoul, dagana 13. - 15.
september næstkomandi.
í undirbúningsnefnd HM ’93,
sem skipuð er af HSÍ, eiga sæti
Matthías Á. Mathiesen formað-
ur, Alfreð Þorsteinsson, Birgir
Þorgilsson, Gils Guðmundsson,
Gísli Halldórsson, Gylfí Þ. Gísla-
son, Júlíus Hafstein, Kristján
Oddsson, Ólafur B. Thors, Sig-
urður Helgason, Sveinn Bjöms-
son og Þráinn Þorvaldsson. Sér-
staka starfsnefnd skipa Jón Hjal-
talín Magnússon formaður,
Steinar J. Lúðvíksson, Gunnar
Kjartansson, Friðrik Guðmunds-
son og Gunnar Torfason.
1.176 nýskráðir bflai’ í júlí
2.728 í júlí 1987. Innflutningur í samræmi við spá Bílgreinasambandsins
1.176 bilar voru nýskráðir hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins í júlímánuði.
Þá hafa alls verið nýskráðir 10.674 bílar fyrstu sjö mánuði ársins.
Bílgreinasambandið hafði f byijun ársins spáð innflutningi um 16
þúsund bíla á árinu. Það sem af er árinu hafa verið nýskráðir fleíri
bilar en nokkru sinni á heilu ári, ef árin 1987 og 1986 eru undan skilin.
Heildarfjöldi bíla á skrá var í júlí-
lok 139.290 og hefur íjölgað um
6.750 frá áramótum. Það er um
5,05% fjölgun. Af þessum fjölda eru
126.295 fólksbílar og hefur fjölgað
um 4.599 frá áramótum. Það er um
3,78% fjölgun. Bílgreinasambandið
hafði spáð innflutningi um 16 þús-
und bíla á árinu. Jónas Þór Steinars-
son framkvæmdastjóri sambandsins
sagði að sú spá virtist ætla að stand-
ast. Hann sagði að þó að nýskráning-
ar nú væru færri en í fyrra, þá
væru fyrstu sjö mánuðir þessa árs
þó þriðja hæsta tala seldra bíla sem
sést hefði á einu ári, jafnvel þótt við
heil ár væri miðað. Bestu árin fram
til 1986 voru 1974 með 10.633 bíla,
1981 með 10.366 bíia og 1982 með
10.480 selda bíla. 1986 seldust síðan
15.626 bílar og í fyrra var metár,
þá seldust 23.459 bílar.
791 bifreið var afskráð í júlí
síðastliðnum og endurskráð var 61.
Bílum á skrá fjölgaði því um 446 í
þessum eina mánuði.
Miklar birgðir eru til af óseldum
bílum í landinu. Að sögn Hauks Ingi-
bergssonar hjá Bifreiðaeftirlitinu eru
um fímm þúsund bílar ótollafgreidd-
AÐSTAÐA fyrir fatlaða f skrúð-
garðinum í Laugardal verður
bætt á næstunni. Borgarráð hefur
samþykkt tillögu Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, um að komið
verði upp sérstökum salernum
fyrir fatlaða i garðinum og hellu-
lagður verði stígur frá Engja-
ir. Bifreiðaeftirlitið skráir alla inn-
flutta bfla á svokallaða hliðarskrá
um leið og innflytjendur fá reikninga
yfír þá, jafnvel þótt bflamir séu enn
í hafí. Jónas Þór Steinarsson telur
að ekki séu svo margir bílar hér.
Hann segir einfaldlega ekki vera
pláss fyrir svo marga bíla á geymslu-
svæðunum. Haukur Ingibergsson
telur hins vegar að þeir séu nær
allir komnir á land. Samkvæmt spá
Bílgreinasambandsins ætti að vera
vegi, sem auðveldi fötluðum að
komast ferðar sinnar. Samstaða
var í borgarráði um aukafjárveit-
ingu til þessara framkvæmda, 510
þúsund krónur.
„Laugardalurinn er eitt helsta
útivistarsvæði Reykvíkinga, en þar
hefur ekki verið nein aðstaða fyrir
hægt að selja alla þessa bíla á ár-
inu, en Jónas Þór taldi þó að erfítt
yrði um vik fyrir þau umboð sem
eiga mikið af 1988 árgerðinni. Bú-
ast má við að allmörg umboð fái á
næstu vikum bíla af 1989 árgerð.
Þegar hafa fjögur umboð fengið bíla
af nýju árgerðinni. Að sögn Jónasar
Þórs er gert ráð fyrir svipuðum inn-
flutningstölum næsta ár, að þá verði
14 - 16 þúsund bflar seldir hér á
landi.
fatlaða," sagði Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, flutningsmaður tillög-
unnar. „Þetta er í fyrsta sinn sem
sérstök aðstaða er sett upp í almenn-
ingsgarði í borginni fyrir fatlaða og
það þykir mér merkilegur áfangi."
Embætti garðyrkjustjóra hefur
verið falin framkvæmd verksins og
verður fljótlega byrjað á því.
Skrúðgarðurinn í Laugardal:
Aðstaða fyrir fatlaða bætt