Morgunblaðið - 04.08.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988
21
Gervitung’l fellur
til jarðar í september
París. Reuter.
NÚ ER talið að sovézkt gervitungl með um 50 kiló af úrani innan-
borðs sem verið hefur stjórnlaust frá því í vor komi inn í gufuhvolf
jarðar í september, að sögn talsmanns evrópsku geimvísindastofnunar-
innar, ESA.
Þegar nær dregur verður hægt
að segja til um með nokkurra daga
fyrirvara hvenær hnötturinn, sem
heitir Cosmos 1900, og hvar hann
fellur til jarðar. Líkur eru taldar á
að hnötturinn brenni ekki upp á leið
sinni í gegnum gufuhvolfíð.
Að sögn talsmanns ESA getur
hnötturinn komið niður hvar sem er
á svæði sem afmarkast af 65 breidd-
argráðu í suðri og sömu gráðu í
norðri. Hnötturinn nálgast nú jörðu
um einn kílómetra á dag og eykst
dagleg nálgun eftir þvi sem nær
dregur jörðu.
Fjarskiptasamband rofnaði við
hnöttinn í apríl og var þá ekki leng-
ur hægt að gangsetja búnað, sem
notaður er til að skjóta kjamaofnin-
um út í óravíddir himinhvolfsins þeg-
ar starfstíma hnattar af þessu tagi
er lokið.
Cosmos 1900 var skotið á loft í
desember sl. til þess að fylgjast með
skipa- og kafbátaferðum. Hann er
þriðji kjamorkuknúni gervihnöttur
Sovétmanna, sem fellur til jarðar.
Árið 1978 féllu leyfar hnattarins
Cosmos-954 til jarðar í Kanada og
fímm árum seinna féll kjamaofn
Cosmos-1402 niður í Indlandshaf.
Samkvæmt upplýsingum ESA eru
7.000 hlutir, sem smíðaðir vom á
jörðu niðri, á sveimi í geimnum. Em
þeir í daglegu tali kallaðir geimmsl.
Hætta er jafnan fyrir hendi á árekstri
geimflauga og þessa geimdrasls.
Vill aftur til Sovétríkjanna
Paruir Airikjan, einn helsti leiðtogi armenskra þjóðernissinna sem
beijast fyrir því að héraðið Nagorno-Karabak verði sameinað
sovétlýðveldinu Armeníu, heilsar frænku sinni á mánudag þegar
hann kom til Parísar frá Róm. í Róm tilkynnti Airikjan frétta-
mönnum að hann vildi fá að snúa aftur heim til Armeníu. Airikj-
an var visað frá Sovétríkjunum til Eþíópíu í síðasta mánuði en
þaðan fór hann til Evrópu þar sem hann mun sækja um leyfi til
að flytjast til Bandarikjanna.
Skýrsla um árás Bandaríkjamanna á íranska farþegaþotu:
Mannlegf mistök en ekki tæknibilun
W nohin irt nn M ibAoln P autúr
Washington, Nikósíu. Reuter.
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin ABC greindi frá því í gær að í skýrslu
bandaríska varnarmálaráðuneytisins væri komist að þeirri niðurstöðu
að mannlegum mistökum mætti kenna um það að skipveijar um borð.
f bandarfska herskipinu Vincennes skutu niður íranska farþegaþotu
með 290 manns innanborðs f byijun júlf. Hið fullkomna ratsjárkerfi
skipsins af gerðinni Aigis starfaði fullkomlega eðlilega, hefur sjón-
varpsstöðin eftir heimildarmönnum innan bandarfska flotans.
Nefnd á vegum bandaríska vam-
armálaráðuneytisins lauk skýrslu-
gerð um atburðinn yfir Persaflóa í
síðustu viku. Skýrslan verður hins
vegar ekki gerð opinber fyrr en í
næstu viku, eftir að Frank Carlucci,
vamarmálaráðherra Bandarfkjanna,
er kominn heim frá Sovétríkjunum
og hefur kynnt sér efni hennar.
ABC segir að í skýrslunni standi
að ratsjárkerfíð hafí réttilega sýnt
að þotan sem nálgaðist var að hækká
flugið og að hún var á minni ferð
en þeim 450 hnútum sem búast
mátti við af F-14 orrustuþotu. Ekki
er vitað hvort tekin er afstaða til
þess í skýrslunni hvort tæknimenn
sem vinna við ratsjána misúlkuðu
upplýsingar frá henni eða hvort skila-
boð þeirra til skipherrans voru óná-
kvæm.
Dagblaðið The New York Times
segir að í skýrslunni standi að mikið
álag á skipveijum hafí valdið þvf að
þeir misskildu_ upplýsingamar sem
ratsjáin gaf. Áhöfnin hafí skömmu
áður átt í bardögum við íranska
byssubáta, allsendis óvön átökum,
auk þess sem leynilegar upplýsingar
um að írönsk árás væri yfírvofandi
hafí sett sálfræðilegan þrýsting á
skipveija.
Iranir tilkynntu í gær að nefnd á
vegum Alþjóðaflugmálastofnunar-
innar, ICAO, væri komin til írönsku
hafnarborgarinnar, Bandar Abbas,
til að rannsaka orsakir árásar Banda-
ríkjamanna á þotuna. Nefndin mun
rannsaka brak úr flugvélinni og ræða
við flugumferðarstjómir á svæðinu. ,
182 lík úr vélinni hafa fundist en
„svarti kassinn" er enn ófundinn, að
sögn írana.
OPEC:
Fundaðum
olíuverð
Lausanne, Sviss. Reuter.
FIMM fulltrúar samtaka olíu-
útflutningsríkja (OPEC)
komu saman til fundar í Sviss
í gær til að ræða lækkandi
verð á olíu. Verð á olíu hefur
að undanförnu lækkað tölu-
vert vegna offramleiðslu
nokkurra OPEC-ríkja en ólík-
legt er talið að komið verði í
veg fyrir hana.
Fulltrúamir fimm em frá
Nígeríu, Alsír, Indónesíu, Saudi
Arabíu og Venesúela. Subroto,
aðframkvæmdastjóri OPEC-sam-
takanna, var einnig viðstaddur
fundinn.
Eftir því sem Reuter-fréttastof-
an hefúr komist næst nemur
heildarolíuframleiðsla OPEC-ríkj-
anna nú tæplega 19 miljónum
tunna á dag miðað við 18,5 miljón-
ir tunna í síðasta mánuði en þá
hafði olíuframleiðsla ríkjanna ekki
verið meiri í 11 mánuði.
Offramboð á olíu hefur verið
rakið til aukinnar olíuframleiðslu
í Saudi Arabíu, Sameinuðu
'arabísku furstadæmunum, Kuwait
og Irak.
Aðspurður í gær sagðist olíu-
málaráðherra Saudi Arabíu hins
vegar ekki kannast við að Saudi
Arabar hefðu farið fram úr um-
sömdum framleiðslukvóta sínum.
Talið er að á fundinum hafi
einnig verið ræddar þær afleiðing-
ar sem hugsanlegur friður í stríði
Iraka og Irana kynni að hafa á
olíumarkaðinn.
BELINDA CARLISLE
JSfigtðalShorlfi
STRANGLERS
SPRpur
breathe
tfrvisfbJc Touch
jfijf FtARGAL
ýuRE CLÚB '^Dh//G]
JÖHHNV
PRINCE
HÖT HQUSE
-P*-OlVeRs
DAVÍDTEERSfR1
ÚTSALAN HGFSTÁ MORGUN!
Á morgun, föstudag, hefst hreint út sagt hrikalega góðplötu-, kas-
settu- og geisladiskaútsala í verslunum Steina Austurstræti, Rauðar-
árstíg, Glæsibæ og Strandgötu í Hafnarfirði.
LP frá kr. 99,- Kassettur frá kr. 199,- Geisladiskar frá kr. 499,-
"jjCHAEUACKSON RORERrpg*^ BRYAN FERRY
«•>
i irn w -
SINÉAD O’ CONNOR
ÓTRÚLEGT URVAL
POSTKROFUÞJONUSTA
Hringið í síma 11620 & 28316.
Ath: Nánari auglýsing birtist í
Morgunblaðinu sunnudag 7.8
og þá með verði.
☆ STEINAR HF ☆
Nýbýlavegi4,200 Kopavogi. Slmi 45800