Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988
Barnsrán á Ítalíu:
Sleppt eftir 17 mán-
uði í höndum ræningja
Tórínó. Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunblaðsins.
Reuter
Marco kominn heim til pabba og mömmu eftir 17 mánuði í haldi
mannræningja.
MARCO Fiora var ekki nema
fimm ára þegar honum var rænt
sofandi úr höndum móður sinnar,
að morgni 2. mars 1987. Rænin-
gjamir fóru fram á um 100 millj-
ón króna lausnargjald, sem er
engan veginn í samræmi við lágar
tekjur foreldranna. Fjölskyldan
býr í Tórínó, en Marco var sleppt
úr haldi á Suður-Ítalíu, um 1.000
kilómetra frá heimUi sínu. Þetta
er lengsta mannrán á Italíu, og
sennilega það sem snert hefur
almenning mest, enda heyrðust
hróp á götum Tórinó á þriðjudag
eftir að ljóst var að 17 mánaða
angist var á enda. „Marco hefur
verið sleppt!“ hrópaði fólk.
Marco litli hitti föður sinn á
þriðjudagsmorgun en endurfundim-
ir voru ekki eins og faðir hans hefði
helst óskað. „Af hveiju léstu mig
var gjalddagi húsnæðislána
ÞU HAGNAST
Á EIGIN SKILVÍSI
Það er þér í hag að greiða af lánum á réttum tíma og forðast óþarfa aukakostnað
af dráttarvöxtum, svo ekki sé minnst á innheimtukostnað.
Þú getur notað peningana þína til
mun gagnlegri hluta, til dæmis í að:
Fiísaleggja
baðherbergið
kaupa nýtt
veggfóður á
bamaherbergið
eða eignast nýjan
borðbúnað.
15.
ágúst
Eindagi lána með lánskjatavísitölu.
M31.
ágúst|
.MMMMTrtMM|HMMMMMH»l
Eindagi lánameð byggingarvisitölu.
Gjalddagar húsnæðislána eru 1. ágúst, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. maí (sum
lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn). Merktu gjalddaga þíns láns
inn á dagatalið þitt, þá gleymir þú síður að gera tímanlega ráð fyrir næstu greiðslu.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFAIJTGJÖLD AF DRÁTTARVÓXTUM
Greiðsluseðlar fyrir 1. ágúst hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna
af hendi í öllum bönkum og sparisjóðurn landsins.
[=§□ Húsnæðisstofnun ríkisiits
vera svona lengi þama?“ spurði
bamið og grét. „Af hveiju borgað-
irðu mönnunum ekki fyrr?“ Ljóst
er að ræningjamir hafa heiláþvegið
bamið á þessum 17 mánuðum.
Marco, sem var fáorður við frétta-
menn, sagði þó að ræningjamir
hefðu haft hann í handjámum, hann
hefði ekki séð nein börn á þessum
tíma, og aldrei fengið leikfang í
hendur. Marco sagði einnig að ræn-
ingjamir hefðu sagt honum að þeir
yrðu að hafa hann í haldi, því að
pabba hans„þætti ekki nógu vænt
um hann. Hann vildi ekki borga
þeim svolitla peninga til að fá hann
aftur“. Sálfræðingar em sannfærðir
um að þetta sé ein grimmilegasta
meðferð á barni sem hægt er að
hugsa sér og það geti orðið erfitt
fyrir Marco að gera sér ljóst hvað
gerðist í ráun og vem.
Marco er einkasonur Gianfrancos
og Piem Fiora. Gianfranco er bif-
vélavirki, en Piera vinnur í bakaríi.
Frá upphafí höfðu þau sagt að kröf-
ur ræningjanna um tæplega 100
milljóna króna lausnargjald væm
út í hött. Ræningjarnir létu vita af
sér með nokkurra'mánaða millibili
og sendu sannanir um að Marco
væri á lífí. Ekkert hafði heyrst frá
ræningjunum í marga mánuði, fyrr
en í síðustu viku er þeir sendu nýja
mynd af Marco. Fyrir skömmu var
handtekinn vinur og fyrmm sam-
starfsmaður Gianfrancos, Agazio
Garzaniti, sem reyndist vera einn
ræningjanna. Hann gaf til kynna á
hvaða svæði drengurinn væri í haldi
og var mikil leit hafin.
Snemma á þriðjudagsmorgun var
Marco síðan látinn laus í skógi og
sagt að ganga eftir þröngum stig
þar til hann kæmist í mannabyggð-
ir. Hann hitti skógarhöggsmenn að
störfum og sagði þeim hver hann
væri. Marco er afar horaður, hár
hans náði niður á bak og hann var
klæddur skítugum tötmm, með
snæri í beltisstað og plastskó á fót-
um.
Gianfranco Fiora, faðir Marcos,
gerði það sem í hans valdi stóð til
að greiða lausnargjald. í nóvember
1987, átta mánuðum eftir að Marco
var rænt, fór hann til Suður-Ítalíu,
á fund við ræningjana með um tíu
milljónir króna sem hann hafði safn-
að saman. Peningamir vom teknir
af honum, honum var misþyrmt
hrottalega, og sagt: „Farðu aftur
til Tórínó og náðu í meiri peninga
ef þú vilt fá strákinn aftur."
Mikillar óánægju gætir á Ítalíu
vegna frammistöðu lögreglunnar.
Þá fínnst fólki það óhugnanleg til-
hugsun að barni skuli vera rænt frá
lágstéttarfólki og að gerðar skuli
vera eins ijarstæðukenndar kröfur
um lausnargjald og raun ber vitni
í þessu máli.
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVíK S: 696900
Bretland:
Elsti borgar-
inn 111 ára
Lundúnum, Reuter.
ELSTI núlifandi Bretinn, Charl-
otte Hughes, hélt upp á 111 ára
afmæli sitt á mánudaginn.
Frú Hughes, sem fædd er árið sem
Viktoría drottning var lýst keisar-
ynja yfír Indlandi og fyrsti almenn-
ingssíminn var tekinn í notkun í
Bandaríkjunum, er við ágæta heilsu.
Að þessu sinni eyddi Charlotte
afmælisdeginum í rólegheitum með
fjölskyldu sinni. Fyrirhuguðu ferða-
lagi til Rómar frestaði hún um sinn
vegna þess að hún taldi að það kynni
að verða sér ofviða. Á síðasta ári fór
hún til New York og þegar hún varð
109 ára fór Charlotte í sína fyrstu
flugferð, með Concorde-þotu.