Morgunblaðið - 04.08.1988, Side 36

Morgunblaðið - 04.08.1988, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 1988 Minning: Signrður Sigurgeirs- son - Stykkishólmi Fæddur 27. september 1903 Dáinn 26. júli 1988 Sigurður Sigurgeirsson vélsmið- ur er látinn. Langt og viðburðarikt líf er liðið. Löng veikindi á enda. Þegar gamall maður með langan verkdag að baki fellur frá, þá er það ekki fyrst og fremst sorgin eftir hann, sem þrengir að okkur, heldur allar þær minningar honum tengdar sem sækja að. Sigurður var einn þeirra manna, sem með hljóð- ' látri framkomu sinni skildi eftir sig ótal skemmtilegar minningar. Vegna starfa sinna í Stykkishólmi og raunar á öllu Snæfellsnesi sem varð starfsvettvangur hans, kynnt- ust allir Sigurði og nutu margir verkkunnáttu hans sem var með eindæmum. Ég kom fyrst á vélaverkstæði hans i Hólminum fyrir tæpum 20 árum og hélt ég þá, að ég væri að koma inn á bifreiðaverkstæði eins og nafnið benti til. En þarna inni var greinilega miklu fjölbreyttari starfsemi en nafnið benti til. Þarna var einnig gert við hrærivélar hús- mæðranna í Hólminum, þvottavélar og ekki síst læknaáhöld fyrir St. Fransiskusspítalann. Þegar ég hafði orð á því við Sigurð, að þetta virtist vera meira en bifreiðaverk- stæði, hló hann við, leit í kringum sig og sagði svo sposkun „Nei, það er vist ekkert sjónvarp hér þessa stundina, en þarna er rafmagns- reiknivél og sitthvað fleira, og ein- hver verður að gera við þetta, það borgar sig ekki að henda þessu." Hann smíðaði varahluti í smáar og stórar vélar, sem ekki fengust hjá söluumboðum, hann hélt við vélasamstæðum í miklu lengri tíma en annars hefði orðið með verk- hæftii sinni við rennibekkinn. Sigurður Sigurgeirsson var fæddur í Bjamarhöfn á Snæfells- nesi 27. september 1903. Foreldrar hans voru Sigurgeir Helgason og Sigurborg Sigurðardóttir en þau voru bæði vinnuhjú þar. Sigurður átti eldri bróður, Kristján, og yngri systur, Guðrúnu. Þau eru nú bæði dáin.' Foreldrar þeirra systkina bjuggu við mikla fátækt og af þeim sökum var Sigurður sendur til frændsystkina sinna, Halldóru og Guðmundar Sigurðssonar í Stykkis- hólmi. Var hann þá á fyrsta ári. Sigurður komst í nám á Véla- verkstæði Guðmundar J. Sigurðs- sonar á Þingeyri við DýraQörð. Þar lærði Sigurður vélvirkjun á árunum 1924 til 1928, að hann flutti aftur til Stykkishólms. Þetta verkstæði Guðmundar á Þingeyri var stofnað 1913 og hefur verið mjög stórt á þeirra tíma mælikvarða. Það fer enn í dag miklum sögum af því, hvem- ig Guðmundur og hans fólk smíðuðu þau verkfæri sem nota þurfti og tókust á við verkefni, sem mörgum stærri verkstæðum í dag með nýtískulegar vélar þætti sér of- vaxið. Þessi vinnustaður Sigurðar og það fólk, sem að honum stóð, var upp frá því og alla tíð í sérstök- um dýrðarljóma. Ég átti þess kost fyrir rúmum tveimur vikum ásamt tveim dætrum Sigurðar og tengdas}mi að heim- sækja Vélaverkstæði Guðmundar J. Sigurðssonar á Þingeyri, sem nú er í eigu sonar hans, Matthíasar. Attum við með honum örstutta stund. Þama hafði litlu sem engu verið breytt í áranna rás, skrúf- stykkin 12 eða 14 í snyrtilegri röð og Matthías gat rifjað upp mörg ár aftur á bak nöfn þeirra manna, sem stóðu þama við skrúfstykkin. í loftinu var drifreimafrumskógur- inn, sem dreif áfram heimatilbúin verkfærin. Þetta vora uppfínningar til þess að létta mönnum störfín en á nútímamáli myndi þetta heita: Breytingar til aukinnar arðsemi. Þessar breytingar a verkstæðinu vora hinsvegar gerðar í upphafi aldarinnar til þess að komast yfír öll þau verkefrii, sem verkstæðinu vora falin. Matthías fór með okkur um renniverkstæðið, eldsmiðjuna og málmsteypuna. Þama kom ein skýringin á þvf, hve Sigurður hafði mikla þekkingu á eðli málms og hversu fátt kom honum á óvart í hverskonar viðgerðarþjónustu síðar meir á lífsleiðinni þegar hann rak sjálfur sjálfstætt fyrirtæki. En þetta skýrði líka fyrir okkur þá ótrúlegu breidd á þeirri þjónustu sem rekin var á Bifreiðaverkstæði Sigurðar Sigurgeirssonar. Hann taldi sjálfur alla tíð, að námið hjá Guðmundi á Þingeyri hefði orðið sér til mestrar gæfu á lífsleiðinrii, þar hefði hann kynnst agaðri vinnubrögðum en nú væra algeng og vandvirkni, sem mörgum sögum fer enn af bæði af Vestfjörðum og öðram stöðum á landinu, sem fengu verkstæði Guð- mundar til að vinna fyrir sig. Þegar Sigurður kom útlærður frá Þingeyri 1928 stofnar hann ásamt vini sfnum, Lárasi Rögnvaldssyni, Bifreiðastöð Stykkishólms. Þessir tveir vinir fengu fyrstir útgefín ökuskírteini í Snæfellsnessýslu 15. september 1928. Var skírteini Lár- usar númer 1, en Sigurðar númer 2. Sigurður fékk árið eftir meira- prófsréttindi til mannflutninga. Af öllum þeim sögum, sem sagðar vora af samgöngum milli Stykkishólms og Reykjavíkur á þessum tíma, hefur það ekki verið arðbært fyrir- tæki, að flytja fólk og vörar þama á milli á þessum tíma enda seldu þeir fyrirtækið í hendur öðram fá- einum áram síðar. Vegakerfíð á Snæfellsnesi og umhyggja ráða- manna þjóðarinnar fyrir því, hefur löngum verið vinsælt umræðuefni í Qölskylduboðum á Aðalgötu 14 f Stykkishólmi. Og þótt menn hafí skipst f marga pólitíska flokka, vora allir sammála Sigurði, sem best og lengst hafði þekkt til þessara mála, að samstöðuleysi Snæfellinga sjálfra hafí skapað það ástand í vegamálum, að enginn geti orðið þingmaður í þessu kjördæmi nema að eiga tveggja drifa torfærabíl með læstu drifí. Það væri ekki hægt að gera ráð fyrir, að kosning- ar færa alltaf fram að sumarlagi. Sigurður var alltaf að læra, hann var í eilffu námi. Hann sótti nám- skeið hvenær sem hann gat því við komið frá öðram önnum. Hann hafði réttindi í vélvirkjun frá Þing- eyri en hann bætti síðar við sig með sjálfsnámi bifvélavirkjun og gekkst undir munnleg og verkleg próf í þeirri grein með sveinspróf að launum árið 1937. Síðar fékk hann meistarabréf bæði í þeirri grein og í pípulögnum. Hann hafði áður en yfír lauk þrjú sveinsbréf og jafnmörg meistarabréf auk ýmissa réttinda, sem hann hafði til viðgerða á tækjum svo sem dýptar- mælum og mörgum nákvæmnis- tækjum. Verkstæði hans í Hólmin- um hafði einnig viðurkenningu samgönguráðuneytisins og Brana- varnaeftirlits ríkisins. f dreifðum samfélögum eins og eru á Snæfellsnesi, getur það skipt sköpum um þróun þeirra, að til séu menn á stöðunum sem veita alhliða þjónustu bæði innan sveitar og ekki síst geti sinnt atvinnurekstri í sveit- arfélaginu. Oftast er það forsendan fyrir staðsetningu fyrirtækja og stofnana í landsfjórðungnum, að til séu þróuð þjónustufyrirtæki með vel menntaða og metnaðarfulla iðn- aðarmenn. Það hefur verið mikil gæfa fyrir þróun Stykkishólms, að þar uxu upp og settust að auk Sig- urðar, iðnaðarmenn eins og Rögn- valdur Lárasson, skipasmiður, og bræðumir Láras og Kristján Rögn- valdssynir, vélsmiðir, synir hans, Finnur Sigurðsson, múrari, Kristján Gíslason frá Skógamesi og Láras Kristjánsson frá Straumi á Skógar- strönd, báðir trésmiðir, auk margra annarra, sem mikil þörf væri á að nefna. Allir þessir lögðu grundvöll- inn að hinum mikla kjama iðnaðar- manna sem myndaðist í Stykkis- hólmi um þetta leyti. Sigurður Sig- urgeirsson var einn þeirra 18, sem stofnuðu Iðnaðarmannafélagið í Stykkishólmi 5. september 1937 og starfaði með miklum blóma næstu áratugina. Hátíðir þessa félags- skapar settu mikinn svip á bæjarlíf- ið í Hólminum. Árið 1983 sæmdu iðnaðarmenn í Stykkishólmi Sigurð viðurkenningu fyrir störf hans á umliðnum áram. Fýrir þetta heið- ursskjal var hann þeim afar þakk- látur þótt hann sökum veikinda sinna gæti sjálfur ekki tjáð þeim þakklæti sitt. Sigurður keypti ásamt Magnúsi Sigurðssyni kvikmyndahúsið í Stykkishólmi, þetta er í apríl 1947. Hafði það verið starfrækt um tveggja ára skeið en Sigurður verið sýningarmaður þar og lært meðferð og viðhald sýningarvélanna. Hann var stofnandi Félags sýningar- manna í kvikmyndahúsum og var alla tíð félagsmaður þar. Ráku þeir Magnús kvikmyndahúsið til ársloka 1961, og aðrir tóku við rekstri þess. Engu að síður var Sigurður sýning- armaður þar Iangt fram á áttræðis- aldur. Sigurður var vélgæslumaður hjá frystihúsi KST í Ijölda ára en jafn- framt hafði hann mörg önnur járn í eldinum. Hann átti og rak vöra- bíl, sem annaðist alla keyrslu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, bæði fyr- ir bátaflotann í Stykkishólmi og önnur fyrirtæki, sem þörf hafði fyr- ir þessa þjónustu. Hann hafði alltaf haft verkstæðið í húsinu, sem hann byggði við Aðalgötuna 1936. Hann hafði umsjón með slökkvitækjum bæjarins og hefur verið nokkurs- konar tæknilegur ráðunautur bæj- arins á þessum áram. Hann gegndi þannig mörgum störfum samtímis og verða því aldrei rakin í tímaröð störfin hans Sigurðar. í fjölda ára var leitað eftir betra og heilnæmara vatni fyrir bæjarfé- lagið. 0g þótt vatnið fyndist vora fjármunir ekki miklir í litlu sveitar- félagi. Gömlu vatnsveitunni hafði Sigurður haldið við í mörg ár og var hann einnig með í undirbúningi við gerð nýrrar vatnsveitu þegar að því kæmi. Hann var í mörg ár í vatnsveitunefnd Stykkishólms- hrepps. Hann hafði umsjón af hálfu sveitarfélagsins með lagningu og tengingu nýju vatnsveitunnar þegar hún svo kom. Það var í mörg ár skemmtiefni okkar í miili að halda fram gæðum vatnsins, annarsvegar þess, sem fossar fram undan hraun- inu innfrá hjá Svelgsánni, og ég hinsvegar hélt fram vatninu úr Gvendarbrannum. Hafði hvorugur betur, því ekki var hægt að skera úr um þetta. Hafði Sigurður þetta oft á orði þegar hann heimsótti okkur í Reykjavík, hvað vatnið fyr- ir vestan væri gott, sem ég dró jafn oft í efa. Sigurður lagði pípulagnir í öll stórhýsi, sem byggð vora í Hólmin- um á þessu tímabili, en stærstu verkefni hans vora sjáífsagt Félags- heimilið, Laugagerðisskólinn og svo auðvitað Sjúkrahúsið, sem er sér- stakur kapítuli útaf fyrir sig í störf- um Sigurðar. Hann fór að vinna við sjúkrahúsbygginguna strax í upphafi 1931 og er viðloðandi þessa byggingu og þá starfsemi sem þar fer fram alla tíð síðan, þar til hann verður að hætta að vinna sökum heilsubrests. Sigurður var slík hjálparhella systranna á sjúkrahús- inu, að hann mátti ganga þar um alla ganga og naut fyllsta trúnaðar systranna. Eg fékk einu sinni að koma með honum þama og sjá handarverkin hans og þótti mér sem þar gengi ég með æðsta presti svo mikla virðingu sá ég borna fyrir Sigurði. Hann vann við allar við- gerðir sem til féllu, þótt þær strangt til tekið heyrðu ekki undir hans verksvið. Ef einhverstaðar var eitt- hvað bilað, hljómaði hin eilífa skip- un: „Hringja Sigga". Frá viðgerð á þvottavél í kjallara var hann kallað- ur upp á skurðstofu til að koma biluðu tæki í gang aftur svo hægt væri enn einu sinni að bjarga mannslífí, og með viðkomu í prent- smiðjunni, þar sem gert var við hakann á setjaravélinni, fór hann í eldhúsið og tók með sér eina hræri- vél til að renna í hana nýjar legur. Það gat þannig verið, að hann yrði að stoppa á leiðinni út, til þess að gera við læsingar á einni eða tveim- ur hurðum. Þetta segir svolítið um íjölbreytnina á einum degi. Systumar á sjúkrahúsinu kunnu vel að meta nýtni hans, að henda engu fyrr en fullljóst var, að ekki væri hægt að gera við það. Þær reyndu að sýna þakklæti sitt með allri þeirri virðingu og umhyggju, sem þær veittu honum í hans löngu og erfíðu veikindum. Síðustu vik- umar vöktu þær yfír honum nótt sem dag og reyndu að létta honum viðskilnaðinn. Þeim era færðar með þessum fátæklegu orðum hlýjar þakkir frá aðstandendum og vinum Sigurðar fyrir alla hjálpina. Sigurður kvæntist eftirlifandi konu sinni, Ingveldi Lára Kristjáns- dóttur, í maí 1932. Foreldrar henn- ar vora Kristján Einarsson, bóndi í Hrísakoti f Helgafellssveit, og kona hans, Jóhanna Kristín Lárusdóttir. Þau Inga og Sigurður eignuðust §órar dætur. Þær era: Erla Guðný, fædd 25. ágúst 1932, gift Þórólfí Danielssyni, prentara, Gyða, fædd 29. janúar 1935, gift Jóhannesi Þórðarsyni, vélstjóra, Jóhanna Kristín, fædd 7. febrúar 1945, gift Sigurberg Ámasyni, húsasmíða- meistara, og Gerður Ruth, fædd 25. nóvember 1947, var gift Andrési Kristjánssyni, þau skildu. Auk þess ólu þau upp tvö bamaböm, Sigurð Inga og Ágnesi. Fleiri böm og bamaböm hafa átt sitt annað heim- ili um lengri eða skemmri tíma hjá þeim Ingu og Sigurði. Þegar gamall maður deyr, þá lýkur að segja sögu en önnur saga tekur við, þannig koll af kolli verð- ur saga heils byggðarlags skrifuð, að allir era á einhvem hátt mikil- vægir í sögunni. Saga Sigurðar er hluti af sögu Stykkishólmsbæjar, frá því að vera lítið sjávarþorp í upphafí aldar í stóran og þýðingar- mikinn iðnaðar- og verslunarkjama með nýfengin kaupstaðarréttindi. Hann var þátttakandi í öllum stærstu verkefnunum, en þrátt fyr- ir allar þessar annir tókst þeim Ingu að skapa fallegt heimili, sem langa tíð hefur verið miðpunktur Qöl- skyldunnar og allra vinanna, þar sem rausnarlega er tekið á móti gestkomandi. Ég á margar skemmtilegar minningar frá heim- sóknum í Hólminn og frá þessari föstu skyldu-bílferð, þar sem mér var sýnt það r.ýjasta og markverð- asta, sem var að gerast í bæjarfé- laginu, og hafði breyst frá því ég hafði komið síðast. Þessar minning- ar verða áleitnar nú þegar kemur að kveðjustund. Ég votta Ingu, tengdamóður minni, innilega samúð mína og deili með henni eftirsjánni eftir lífsföranaut í 56 ár, en bæði vorum við sammála um, að nú hefði verið nóg reynt á þrek allra og gott hefði verið, að Sigurður fékk loks lausn frá erfiðum veikindum. Blessuð sé minning hans. Þórólfur + Útför fööur míns, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR ÞORLÁKSSONAR prentara, Njálagötu 96, veröur gerö frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. ágúst kl. 15.00. Guðlaug Guðmundsdóttir, Halldór Hjartarson og synir. t Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og út- för elskulegrar móður okkar, ELÍNAR hallgrímsdóttur frá Grfmsstööum, Mýrasýslu, Álfhólsvegi 12, Kópavogi. Öllu starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Sunnuhliðar, þökkum við fyrir góða umönnun. Áslaug Oddsdóttir, Sigrfður Oddsdóttir. + Þökkum innilega auösýnda samúð, vináttu og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, SIGURÐAR GUNNLAUGSSONAR, Hlfðarhvammi 11, Kópavogl. Ráðhlldur Jónsdóttir, Guðrún V. Sigurðardóttir, Kristinn Sigurðsson, Ruth Alfreðsdóttir og barnabörn. Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.