Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 46

Morgunblaðið - 04.08.1988, Síða 46
46 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 4. AGUST 1988 Gunnar Valgeirsson skrifar ÍÞR&mR FOLX ■ ENGIN stórviðskipti hafa átt sér stað meðal félaga í NBA-deild- inni eftir háskólavalið fyrir nokkr- um vikum. Ekkert hefur frekar gerst í málum þeirra Charles Barkley, sem vill fara frá Fíladelfíu og Mo- ses Malone , sem nú er með lausan samning hjá Washington. ■ KURT Rambis, Los Angeles Lakers er nú með lausan samning og búist er við því að Lakers sam- þykki að hann fari til Charlotte Homets, sem er annað hinna tveggju nýju félaga sem spila í NBA- deildinni næsta vetur. ■ SCOTTIE Pippen, hinn efni- legi nýliði Chicago síðastliðinn vet- ur, gekkst undir uppskurð við bijósklosi í baki í síðustu viku. Hann mun því missa af fjórum til fímm fyrstu vikunum af keppn- istímabilinu, sem hefst í byijun nóvember. ■ LIÐ Fíladeifíu hefur nú boð- ist til að borga Andrew Toney 2,5 milljónir dala ef hann samþykkir að hætta að spila körfuknattleik. Toney, sem á við erfíð meiðsl að stríða, hefur lítið spilað undanfarin þijú ár með liðinu. Ástæða þess að liðið vill borga Toney þessa upphæð er sú að þá losnar ein staða fyrir nýjan leikmann hjá liðinu, en lækn- ar liðsins telja mjög ólíklegt að Toney geti leikið meira í deildinni vegna þessara meiðsla. ■ JOHN Thompson, þjálfari Kurt Rambls. Fer hann til Charlotte Homets? körfuknattleiksliðs Bandaríkjanna á Olympíuleikunum í Seoul hefur nú minnkað hóp þeirra háskólaleik- manna sem hófu þjálfun í maí úr 40 í 17. Mikil keppni er um sæti í liðinu, en Thompson mun enn þurfa að fækka í þessum hópi áður en hann tilkynnir endanlegt lið sitt. Þess má geta að ólympíuliðið kepp- ir sýningarleik við úrvalslið þann 14. ágúst nk. Meðal leikmanna í úrvalsliðinu verða þeir Charles Barkley, Isiah Thomas og Mic- hael Jordan. ■ NÚ ERU einungis sjö lið eft- ir í MISL innanhússknattspymu- deildinni í Bandaríkjunum. I fyrra vom 12 lið í deildinni, en eigendur St. Louis, Minnesota, Chicago, Tacoma og Cleveland ákváðu að hætta þátttöku í deildinni vegna fjárhagserfiðleika. Lið Cleveland hafði mestan áhorfendafjölda á síðasta keppnistímabili og liðið komst auk þess í lokaúrslit síðastlið- ið vor. Þessi ákvörðun eiganda liðs- ins að hætta þátttöku kom því nokk- uð á óvart. Engin áform eru í Bandarikjunum um að stofna at- vinnudeild utanhúss þó að heims- meistarakeppnin í knattspyrnu fari fram þar í landi árið 1994. Knatt- spyma er mjög vinsæl íþróttagrein meðal bandarískra barna og ungl- inga, auk þess hún hefur átt auk- inni velgengi að fagna í háskólum. Ekki virðist þó enn vera grundvöll- ur fyrir sterkri atvinnudeild í Bandaríkjunum. ■ LISELOTTE Neumann frá Svíþjóð vann opna bandaríska meistaramótið í golfí kvenna. Sigur Neumann kom mjög á óvart, þar sem enginn reiknaði með því að hún myndi blanda sér í toppbaráttuna. Neumann var að vonum ánægð með sigur sinn og sagði að engin ástæða væri fyrir konur úr öðrum löndum að vera með minnimáttar- kennd gagnvart bandarísku at- vinnukonunum. ■ CBS—SJÓNVARPSSTÖÐIN gerði samning við forráðamenn Vetrarólympíuleikana 1992, sem haldnir verða í Albertville í Frakklandi. CBS mun þurfa að borga 243 milljónir dala (tæplega 11,2 milljarða króna) fyrir sjón- varpsréttinn. FRJALSAR IÞROTTIR / SPJOTKAST Einar á 7. bestakast frá upphafi EINAR Vilhjálmsson á sjö- unda lengsta kast frá upp- hafi, með nýja spjótinu svo- kallaða, skv. nýjum afreka- lista — en íslandsmet hans er 84,66 metrar. Tékkinn Jan Zelezny hefur kastað lengst allra með nýja spjótinu — 87,66 m og er það að sjálfsögðu heimsmet. Hann náði þeim árangri 1987. Næstur er Vestur-Þjóðveijinn Klaus Tafel- meier með 86,64 m (1986), þá Bandaríkjamaðurinn Tom Petran- off með 85,38 m (1986), fímmta besta árangurinn á Bretinn Hill, 85,24 m (1987), þá kemur Sovét- maðurinn Ievsiukov með 85,16 m (1987), síðan Finninn Koijus með 85,14 (1988) og loks Einar, með 84,66 sem fyrr segir, en þeim árangri náði hann fyrr á þessu ári. ísiandsmet Einars skipar hon- um í 4. sæti á heimslistanum yfír afrek yfírstandandi árs. Zelezny hefur kastað lengst í ár, 86,88 m, Tafelmeier á 85,96 m ( ár og Koijus 85,14 m. Vésteinn Hafsteinsson er í 16. Elnar Vllhjálmsson. sæti á heimslistanum fyrir afrek í kringlukasti á yfírstandandi ári með 65,60 m. Lengsta kastið f ár á Sovétmaðurinn Ubartas, 70,06 metra. Það fer ekki á milli mála að v-þýsku Montana- og Kalk- hoff- hjólin, sem hlotið hafa sérstaka viðurkenningu í V- Þýskalandi, eru hjól ársins vegna einstaklega fallegs útlits og sérstakra gæða. Við getum nú boðið nokkur hjól á einstöku tilboðsverði vegna hagstæðra samninga. Vandaður 3-gírabúnaður Auka handbremsa Stærð Aldur Verð 20“ án gíra fyrir 6-9 ára kr. 8.650.- 24“ án gíra fyrir 9-12 ára kr. 8.970.- 24“ 3 gírar fyrir 9-12 ára kr. 11.430.- 26“ ángíra fyrir 12ára og eldri kr. 9.320.- 26“ 3 gírar fyrir 12 ára og eldri kr. 11.960,- 28“ 3 gírar fyrir fullorðna kr. 11.970.- HERRA: Stærð Aldur Verð 26“ 3 gírar 12 ára og eldri kr. 11.960.- 28“ 3 gírar fyrir fullorðna kr. 11.970,- 28“ 10girar fyrirfullorðna kr. 12.210.- Afturljós Teinaglit Orugg fótbremsa Sérverslun /»• Reiðhjólaverslunin ímeiraen hatfaold ÖfíN/NN Spítalastíg 8 við Óðinstorg Símar: 14661 og 26888

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.