Morgunblaðið - 17.09.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.09.1988, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMA m r \ lltotgtiiiÞIafeife 1988 ■ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER BLAÐ 24. Ólympíu- leikamir voru settir ínótt OLYMPIUVEÐRIÐ Góðu veðri spáð til mánaðamóta í Suður Kóreu Spáð hefur verið góðu verði i Seoul á meðan á fyrri hluta Ólympíuleikanna stendur frá 17.-25. september. Hiti mun verða frá 16-27°. Líklega mun rigna tvo daga, 19. og 20. septem- ber, en ekki mjög mikið. Síðari hlutinn verður ekki alveg jafn góður hvað veður varðar og er jafnvel spáð leiðinlegu veðri frá 25. til 30. september. Þó mun líklega verða hlýtt og ekki er búist rigningu. Loft er rakt í Seoul og hiti nokkuð meira en menn eiga að venjast hér á landi, og áttu íslending- ar í nokkrum erfíðleikum með að venjast aðstæð- um. Nú líður öllum eins og best verður á kosið — tilbúnir í slaginn. HEIMURINN beið spenntur eftir opnunarhátíð Oiympíu- leikanna hór í Seoul — sem fór fram í nótt að íslenskum tíma — því menn hafa full- yrt hún sú glæsilegasta sem sést hefur. Opnunarhátíðin í Los Angeles var stórkost- leg og er enn í minnum höfð, en hátíðin sem íslend- ingar gátu séð í beinni út- sendingu sjónvarpsins í nótt átti að verða enn glæsi- legri. Suður Kóreumenn lögðu mikla vinnu í opnunarhátíðina — vinnu sem hefur kostað mörg mannslíf. Við blaðamenn Morgun- blaðsins hér í Seoul urðum vitni að því í fyrradag þegar einn Kóreumaðurinn lét lífið. Það var fall- hlífarstökkvari, en fallhlíf hans opn- aðist ekki og féll hann því til jarðar. Þetta óhapp gerðist er tugir fall- hlífarstökkvara voru á æfíngu, en þeir hafa æft daglega hér yfír Ólympíuleikvangnum, sem er við ána Han-Gang, sem rennur í gegn- um Seoul. Fallhlífarstökkvaramir stukku úr þyrlum og voru stökkvar- amir í litskrúðugum fallhlífum. Rauðum, gulum, bláum og græn- um. Þeir stukku allir út í einu þajin- ig að menn sjá fyrst dökka punkta koma niður, en í vissri hæð opna þeir fallhlífamar. Stórkostleg sjón, sem íslendingar gátu séð í beinni útsendingu sjónvarpsins — og aftur í dag er setningarhátfðin verður endursýnd. Þetta var aðeins eitt af mörgum SigmundurÚ. Steinarsson skrifarfrá Seoul Hodor, merki leikanna í Seoul. glæsilegum atriðum sem bjóða átti upp á. Tónlist og söngur, ' ->mt dansi áttu að setja sterkan svip á opnunarhátíðina sem áður. Þrotlausar æflngar Þeir Suður Kóreumenn sem taka áttu þátt f opnunarhátíðinni hafa iagt geysilega mikla vinnu á sig til þess að allt gangi upp. Þeir hafa verið í þrotlausum æfíngum í marga mánuði. Tvö þúsund stúlkur víðs vegar frá Suður Kóreu, sem ganga áttu inn á völlinn á undan landslið- um þjóðanna, með nafn þeirra á spjaldi, hafa æft göngulag á hveij- um degi síðan í júní. Þama er um að ræða 2.000 fallegustu stúlkur landsins, með fegurðardrottningu Suður Kóreu í fararbroddi. Dúfur á séræflngum Það er ekki aðeins mannfólkið sem hefur æft grimmt. 2.400 hvítar dúfur hafa verið á séræfíngum í nær tvö ár, eða frá því í nóvember 1986. Þær hafa verið þjálfaðar í að fljúga beint upp í 200 metra hæð. SönguroggleAI Bjóða átti upp á marga fallega þjóðsöngva, en söngur leikanna er eftir óskarsverðlaunahafann Gi- orgio Moroder. Söngurinn fallegi „Hand in Hand". Fyrir löngu var uppselt á opnun- arhátfðina og gengu miðamir á svörtum markaði í vikunni. Þeir sem ekki höfðu tryggt sér miða, gátu fengið hann í gær fyrir andvirði 200.000 íslenskra króna! „Ég myndi aldrei borga svo mikla peninga fyr- ir miðann. Frekar myndi ég fara í flugi til New York, leigja mér „svítu" á glæsilegu hóteli og horfa á leikana í sjónvarpi í góðu yfír- læti,“ sagði Kim 42 ára Kóreumað- ur, sem hefur veitt okkur Morgun- blaðsmönnum ómetanlega aðstoð hér. Hveijir myndu þá kaupa miðana? Jú, það er talað um að ríkir japan- skir ferðamenn myndu kaupa þá. Hingað eru komnir 250.000 ferða- menn. Þar af 100.000 Japanir, sem em fjölmennastir. Rúmlega 60 ferðamenn em komnir frá Islandi. Það er óhætt að skora á alla þá íslendinga, sem geta horft á opnun- arhátíðina í dag í sjónvarpinu, er hún verður endursýnd, að koma sér notalega fyrir, við sjónvarpið og njóta þess sem boðið er upp á. Sam- felld gleði og litadýrð. Sjón verður sögu ríkari á hinum glæsilega Ólympíuleikvangi sem tekur 70.000 áhorfendur. Reuter ÓLYMPÍUELDURINN {SEOUL. Á setningarhátfðinni! Seoul í nótt átti að vera mikið um dýrðir. Þessi mynd var tekin í vikunni á æfíngu fyrir setninguna. Sérblað um leikana! MORGUNBLAÐIÐ gefur út sérstakt aukablað alla virka daga meðan á Ólympíuleikun- um stendur. Fyrsta sérstaka blaðið um leik- ana kemur nú fyrir sjónir les- enda, þegar 24. ólympíuleikarnir hafa verið settir. Tveir íþróttafréttamanna Morgunblaðsins em staddir f Seo- ul. Það em þeir Sigmundur Ó. Steinarsson og Steinþór Guð- bjartsson sem munu senda fréttir af gangi mála allt þar til leikunum lýkur, sunnudaginn 2. október næstkomandi. í dag er ýmsa fróðleikspunkta frá Seoul að fínna, einnig dagskrá sjónvarps og útvarps meðan á leikunum stendur. I sunnudags- blaði Morgunblaðsins verður greint frá setningarathöfninni, og á þriðjudag kemur út næsta sér- blað um leikana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.