Morgunblaðið - 17.09.1988, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR QQ9 í SEOUL '88
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988
B 5
ÓLYMPÍULEIKAR
Hver er þyngstur, minnstur, yngstur...?
UM ÞAÐ BIL 10.000 íþrótta-
menn taka þátt í Ólympíuleik-
unum í Seoul. Þeir koma frá
160 rflcjum og eru svo sannar-
lega ekki allireins.
Jirí Zubricky, Tékkóslóvakíu,
er þyngsti þátttakandinn á
Ólympíuleikunum. Hann vegur
166 kg., er 24 ára og keppir í
lyftingum. Hann fæddist í tékk-
neska bænum Most. „Most“ á
ensku þýðir mestur á íslenzku og
hafa menn haft á orði að nafnið
á fæðingarbæ hans eigi vel við í
þessu tilviki.
Evrópumeistarinn í dýfingum,
Elena Mirochina frá Sovétríkjun-
um og japanski fímleikamaðurinn
Kyoko Seo eru léttustu keppend-
umir á Ólympíuleikunum. Þau
vega aðeins 32 kg og eru meira
en fímm sinnum léttari en
Zubricky.
Seo er jafnframt minnstur þatt-
takenda en hann er aðeins 1,38
m á hæð. Hæstur er hins vegar
sovézki körfuknattleiksmaðurinn
Arvidas-Romas Sabonis en hann
er 2,23 m á hæð.
Meðalaldur keppenda á
Ólympíuleikunum er 24,9 ár. Dur-
ward Knowles, siglingamaður frá
Bahamaeyjum gæti þvi verið afí
þeirra flestra. Hann verður 71 árs
síðar í haust og er elzti keppand-
inn. Yngsti keppandinn er sund-
konan Nádia Cruz frá Angóla.
Hún er nýorðin 13 ára. Engin
aldurstakmörk eru á Ólympíuleik-
unum.
Keppendur frá Bhutan eru að
meðaltali elztir allra á leikunum
en keppendur frá Maldíveyjum
yngstir. Mið-afrísku íþróttamenn-
imir eru hávaxnastir allra að
meðaltali en þeir lágvöxnustu
koma ffa Dominikanska lýðveld-
inu.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifarfrá
Seoul
íuém
FOLK
H 26.000 sjálfboðaliðar vinna
við Ólympíuleikana. Það em færri
en komust að, því rúmlega 120.000
sjálfboðaliðar gáfu sig fram til
starfa.
■ ALLS verða
1.850 verðlauna-
peningar afhentir á
Ólympíuleikunum
hér í Seoul. Það em 600 gullpen-
ingar, 600 silfurpeningar og 650
bronspeningar. Peningarnir em 60
millimetarar að flatarmáli og
þriggja millimetra þykkir. Gullpen-
ingamir em 146 grömm að þyngd
og em 6,4 grömm af hreinu gull í
þeim.
■ ALLIR íþróttamennimir,
fréttamennimir og þeir sem komu
hingað til að starfa við ÓL fengu
tösku fulla af minjagripum þegar
þeir komu til Seoul. í töskunum
mátti fínna glæsilegan verðlauna-
pening sem er úr kopar. Alls vom
170.000 peningar gerðir, en þeir
em 6,5 sentimetrar að flatarmáli
og 172 grömm að þyngd. Á pening-
unum er mynd af olympíuleikvang-
inum og á þeim má fínna eigin-
handaráritun Juan Antonio Sam-
arach, forseta alþjóða ólympíusam-
bandsins og Park Seh-jik, forseta
undirbúningsnefnar ÓL í Seoul.
■ YFIR 300 Suður-Kóreumenn
sem búa í Bandaríkjunum og um
1.000 Kóreumenn sem em búsett-
ir víðsvegar um heim, komu hingað
til Seoul til að aðstoða landa sína
við ÓL. Hlutverk þeirra er að túlka
og veita íþróttamönnum, frétta-
mönnum og þeim 250.000 ferð-
mönnum, sem em hér, ýmsar upp-
lýsingar. „Það er okkar hjartans
mál að leikamir heppnist vel. Það
var mikill heiður fyrir mig að vera
kallaður heim til þess að aðstoða
við leikana," sagði einn starfsmað-
urinn Jon Mee-ryond, 22 ára sem
starfar við ólympíuþorpið.
I SEOUL verður og hefur held-
ur betur verið í heimspressunni.
6.093 blaðamenn em hér frá 1.439
blöðum og tímaritum í 100 löndum.
Flestir blaðamenn em að sjálfsögðu
frá Suður-Kóreu, eða 845. Frá
Bandaríkjunum komu 405 blaða-
menn og 370 frá Japan. Frá Aust-
antjaldsríkjunum komu flestir frá
Kina eða 116, 83 frá Sovétríkjun-
um og 55 frá A-Þýskalandi. Þrír
blaðamenn em frá Islandi. í þess-
um tölum em ekki sjónvarps- og
útvarpsmenn, en þeir em fjölmarg-
ir, m.a. tveir frá íslandi.
■ GÍFURLEGUR fjöldi leigu-
bifreiða er hér í Seoul. Flestir
bflstjóramir aka með hvíta hanska.
Til hvers? Jú, til þess að hendur
þeirra renni ekki til á stýrinu og
þegar þeir svitna og einnig til þess
að vera með hendur sínar tandur-
hreinar þegar þeir taka við greiðsl-
um frá viðskiptavinum sínum.
Flestir leigubílstjórarnir, sem era
margir hveijir snillingar í að vill-
ast, kunna lítið í ensku þrátt fyrir
að hafa sótt enskunámskeið fyrir
leikana. Einn sagði t.d. við blaða-
mann Morgunblaðsins: „Ég tala
ensku,“ en svo kom í ljós að það
var það eina sem hann kunni. Afrek
hans var að fara í klukkustundar
skoðunarferð á leið sem átti aðeins
að.taka fímm mínútur að aka!
Nú bregðum við á betri leik
með fleiri og fjölbreyttari möguleikum Lottó 5/38
Það er nýjung sem segir sex.
í hverjum útdrætti verður dregin
út sjötta talan, svokölluð bónus-
tala. Þeir sem hafa hana og að
auki fjórar réttar tölur fá
sérstakan bónusvinning.
Þú velur eins og áðnr 5 tölur, en nú
af 38 mögulegum. Eðli leiksins er
hið sama og áður og vinningamir
ganga allir til þátttakenda.
Ekki bara milljónir heldur líka
hundruðþúsunda íLottóbónus!
Leikandi og létt!