Morgunblaðið - 17.09.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARWIR Q§&) í SEOUL ’88 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988
B 3
KOSTNAÐUR
Peningamaskfnan
Það hefur kostað 132 milljarða íslenskra króna
að undirbúa Ólympíuleikana í Seoul
ÓLYMPÍULERIKARNIR eru
meira en aðeins íþróttir.
Þeir eru vettvangur pening-
anna, stjórmálamanna,
ríkisstjórna og þjóðarstolts.
Miklir peningar hafa farið í
allan undirbúning fyrlr
Ólympíuleikana hér f Seoul,
talað er um upphæðina 132
milljarða íslenskra króna.
Það vakti mikla athygli þegar
Suður Kóreumenn fengu
leikana hingað, því hér er mikil
fátækt og fólk þarf að vinna mik-
ið og leggja hart
að sér í lífsbarátt-
unni.
Þrátt fyrir mik-
inn kostnað vita
Suður Kóreumenn að þeir fá alla
þessa peninga til baka, því undan-
farin ár hafa Ólympíuleikamir
skilað góðum arði. Bandaríkja-
menn högnuðust geysilega mikið
á Ólympíuleikunum í Los Angeles
SigmundurÓ.
Sleinarsson
skrifarfrá
Seoul
1984 þannig að þeir gátu leyft
sér að senda öllum þjóðum sem
tóku þátt í leikunum hluta af gróð-
anum.
Hringlmir
Ólympíumerkið, hringimir
fímm, er orðið söluvara og borga
fyrirtæki eins og Coca Cola og
Visa miklar upphæðir til að fá að
hafa hringina á vöram sínum.
Hagnaður
Hver þjóð sem heldur Ólympíu-
leikana hagnast mikið á sölu á
heilladýri leikanna, en eins og all-
ir hafa séð er kötturinn tákn
Ólympíuleikanna í Seoul. Út um
allan heim er verið að selja heiila-
dýrið í öllum stærðum og stelling-
um. Boli með kettinum káta á,
sælgæti og á öllum ótrúlegustu
hlutum.
Sjónvarpsróttur
Sjónvarpsréttur hefur verið
seldur og er það bandaríska sjón-
varpsstöðin NBC sem keypti rétt-
inn dýram dómi. Hér era 1.240
starfsmenn á vegum sjónvarps-
stöðvarinnar.
Þá era hér 350 kvikmyndar-
gerðarmenn sem gera sérstaka
heimildarmynd um leikana og
þjóðlífið. Myndin verður síðan sett
á myndbandsspólur og þær seldar
um allan heim.
Söluvara
Margir hafa deilt á þá þróun
sem orðið hefur á Ólympíuleikun-
um. Að þeir séu aðeins söluvara.
Menn viðurkenna þó að ef þessi
háttur væri ekki hafður á, þá
væra Ólympíuleikamir ekki leng-
ur til. Kostnaðurinn er orðinn svo
mikill, að enginn myndi treysta
sér að halda Ölympíuleika lengur.
Þess vegna halda Olympíuleikam-
ir áfram að verða stærsta sölu-
vara heims. Sannkölluð peninga-
maskína.
KYHNIWG
[ dag laugardag kynnum viö í verslun
okkar, Kringlunni PHILIPS VR-6448
myndbandstækið, árgerðina 1989.
Það hefur fengið frábærar móttökur
hér á landi.
Komið í Kringluria og kynnið ykkur
nánar PHILIPS myndbandstækið -
ólympíumeistarann í ár.
PHILIPS VR-6448 MYNDBANDSTÆKIÐ - ÓLYMPlUMEISTARINN í ÁR
Viö vorum aö fá til landsins stóra sendingu af
hágæðamyndbandstækjum frá Philips árgerð 1989 og
getum því boðiö þessi frábæru tæki á einstaklega lágu
verði vegna hagstæðra samninga.
Philipstæki voru valin á Ólympíuleikana í Seoul
HQ kerfi tryggir fullkomin myndgæði
Hljóðlaus kyrrmynd
Hægur hraði
Leitarhnappur
Fullkomin sjálfvirkni í gangsetningu,
endurspólun og útkasti snældu
Sjálfvirk endurstilling á teljara
Fjarstýring á upptökuminni
365 daga upptökuminni
Upptökuskráning í minni samtímis
fyrir 8 dagskrárliði
Sextán stöðva geymslurými
20 mínútna öryggisminni
Ótal fleiri möguleikar sem aðeins
Philips kann tökin á
Verðið kemur þér á óvart.
Láttu Philips myndbandstækið sjá
um Ólympíuleikana meðan þú sefur
— þú horfir svo þegar þér hentar.
Heimilistæki hf
Sætúni8 • Hafnarstræti 3 • Kringlunni
SÍMI: 69 15 15 SÍMI:6915 25 SÍMI:6915 20
Zti&tuMsSveúyatéegib í samtú^xm