Morgunblaðið - 17.09.1988, Page 8

Morgunblaðið - 17.09.1988, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, ÓLYMPÍULEIKARNIR QQ<P í SEOUL '88 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1988 ts. KEPPNIS- OG ÆFINGASKÓR ÍSPÖRTU. LAUGAVEGI49 ADIDAS HANDBALL SPECIAL Blátt rúskin. Vinsulastu hand- boltaskórnir. Nr. 36-48'/2. Kr. 3.980,- HANDBALL SPECIAL HÁIR Fyrir þá sem þurfa stuðning við ökkla. Nr. 39-45. Kr. 4.795,- INDORRSUPER Alhliða innanhússskór í hand- bolta, blak, badminton, borð- tennis o.fl. Nr. 35-46. Kr. 1.880,- SQUASH Sérhannaðir í veggjatennis. Einnig volley. Sórhannaðir blakskór. Nr. 38-46. Kr. 3.940,- HANDBALLSPECIAL MARKMANNSSKÓR Sérstaklega hannaðir með rúskinnsbót undir hael. Nr. 40-45. kr. 3.980,- HANDBALLTOP Nýir handboltaskór. Hvítt leð- ur með rauðum röndum. Nr. 38-47. Kr. 4.550,- FRJALSIÞROTTIR Helke Drechsler er fremsta íþróttakona Austur Þýzkalands, af mörgum frábærum. Hún er sigurstrangleg bæði í 200 metra hlaupi og langstökki. Líklega keppir hún einnig í 100 metra hlaupi og í 4x100 metra boðhlaupi, en austur-þýzka sveitin hefur náð bezta tíma heimsins í ár. Sjöberg hafi átt misjöfnu gengi að fagna að undanfömu er hann sigur- stranglegur. Kristiansen hefur verið ósigrandi og sett hvert heimsmetið af öðru í langhlaupum undanfarin ár. í sum- ar hefur hún hins vegar tapað hvað eftir annað fyrir skozku stúlkunni Liz McColgan, en baráttan um sig- ur í 10 km kvenna í Seoul mun standa milli þeirra. Waitz keppir í maraþonhlaupinu en telja verður Rosu Mota frá Portúgal sigur- stranglegasta í þeirri grein. Búlgarir eiga góðar frjálsíþrótta- menn, einkum þó konur, en þeirra líklegastar til gullverðlauna eru heimsmethafamir Jordanka Donkova í 100 metra grindahlaupi og Stefka Kostadinova í hástökki. Þá er Khristo Markov sigurstran- legur í þrístökkinu, en hann varð heimsmeistari í þeirri grein í fyrra. Langhlaup kaiia í langhlaupum karla má búast við að Afríkumenn láti að sér kveða, einkum þó Kenýumenn. Þeir eiga þijá menn sem sigrað geta í hindr- unarhlaupi og John Ngugi er líkleg- ur til að keppa um sigur í 5 eða 10 km hlaupi. Brezki hlauparínn Eamonn Martin á bezta tíma ársins í 10 km eða 27:23,06 mín og Aust- ur-Þjóðverjinn Hansjörg Kunze, sem hefur náð 27:26 í ár, hefur náð \ Florence Qrlfflth Joyner. góðum árangri á stórmótum. ítalir hafa einnig náð glæsilegum árangri á stórmótum undanfarinna ára í 5 og 10 km og munu Salvatore Antibo (27:24,79 í 10 km) og Francesco Panetta, heimsmeistari í 3.000 hindrun í fyrra, halda merki þeirra á lofti. Eþíópíumenn eiga beztu mara- þonhlauparana í ár, en þeir verða ekki meðal keppenda í Seoul, sem ætti að auka möguleika hlaupara á borð við Ibrahim Hussein, Kenýu, Ahmed Salah, Djibouti, Juma Ik- angaa, Tanzaníu, Takeyuki Nakay- ama, Japan og írans John Treacy. íslenzku keppendumir Sjö íslenzkir frjálsíþróttamenn keppa í Seoul; Helga Halldórsdóttir í 400 metra grindahlaupi, fris Grön- feldt, Einar Vilhjálmsson og Sigurð- ur Einarsson í spjótkasti, Vésteinn Hafsteinsson og Eggert Bogason í kringlukasti og Pétur Guðmunds- son í kúluvarpi. Öll hafa þau náð ströngum lág- mörkum og eru hvert um sig í hópi 40-50 beztu í heiminum í sinni grein. Þar er Einar fremstur; hafði náð íjórða bezta árangri í spjót- kasti (84,66) í heiminum fyrir leik- ana. Hlýtur hann að eiga mesta möguleika íslenzku keppfendanna á að komast í úrslit. Því næst koma Vésteinn og íris. Hið virta banda- ríska tímarit Sports Illustrated hef- ur spáð Einari þriðja sæti í Seoul, en hann varð sjötti á Ólympíuleik- unum í Los Angeles, sem er næst- bezti árangur Islendings í frjálsí- þróttakeppni Ólymnpíuleika fyrr og síðar; aðeins faðir Einars, Vilhjálm- ur Einarsson, hefur gert betur. f Los Angeles var Einar reyndar í svipaðri stöðu og nú; með einn bezta árangur í heimi og var spáð verð- launasæti af ýmsum ritum og blöð- um. Aðeins fjórir Norðurlandabúar keppa í kringlukasti. Auk Vésteins og Eggerts eru það Norðmennimir Knut Hjeltnes og Svein Inge Val- vik. Svíar eiga góða kastara; Stefan Femholm hefur kastað 68,24 metra í ár og Göran Svensson um 65 metra, en hvorugur keppir í Seoul. Femholm var valinn en kippt til baka þegar hann viðurkenndi að hafa neytt nýlega deyfilyfja vegna bakverkja, en þau innihalda óleyfi- leg efni. Hdga var heiður Norðurianda Helga Halldórsdóttir mun halda uppi heiðri Norðurlandanna í 400 grind, því hún er eini fulltrúi þeirra í greininni. Helga setti íslandsmet, 56,54 sekúndur, og komst þar með í hóp 30-40 beztu í heiminum í ár, og náði fjórða bezta árangri á Norð- urlöndum frá upphafi. Sænska stúlkan Ann-Louise Skoglund hefur náð glæsilegum árangri í 400 grind. Hún varð Evrópumeistari 1982 og fimmta í Los Angeles, og hefur náð bezt 54,15 sek. (1986). Þá varð finnska stúlkan Tuija Helander- Kuusisto sjöunda í Los Angeles og fimmta á HM í Róm í fyrra á 54,62 sek., sem er hennar bezta. Hvomg keppir í Seoul vegna meiðsla. 2xíviku Nú bjóða Flugleiðir helgarpakkaferðir til Frankfurt á hagstæðu verði, frá kr. 19.019.* Frankfurt hefur ótal margt að bjóða og nú í haust er hún vett- vangur fjölda glæsilegra vörusýninga: Automechanika (bílaiðnaður) 13.09. - 18.09. Frankfurter Gartenbaumesse (garðyrkja) 24.09. - 25.09. BÁKO (fagsýning bakara) 02.10. - 04.10. Frankfurter Buchmesse (bækur) 05.10. - 10.10. IKA/HOGA (matargerðarlist, hótelrekstur) 16.10. - 20.10. Interstoff (fataiðnaður) 25.10. - 27.10. Fáið allar nánari upplýsingar á söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu, Hótel Esju og Kringlunni, og hjá ferðaskrifstof- unum. Upplýsingasími 25100. * 3 nætur í 2ja manna herbergi á Hotel Europa, miðað við gengi 1.9. 1988. FLUGLEIDIR -fyrír þíg- • • • : "

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.