Morgunblaðið - 01.11.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
Rúm 60% á móti hundahaldi í skoðanakönnun:
Nýjar reglur um bann við
hundahaldi fyrir áramót
seg-ir Davíð Oddsson borgarsfcjóri
SAMKVÆMT niðurstöðum
skoðanakönnunar borgarinuar
um hundahald hafnar meirihluti
borg’arbúa því í núverandi
mynd. Kjörsókn í könnunini var
dræm, aðeins 12,8% greiddu at-
kvæði eða 8.770 af 68.525 sem
voru á kjörskrá.
Atkvæði féllu þannig að já sögðu
3.459 eða 39,4%. Nei sögðu 5.279
eða 60,2%. Auðir seðlar voru 14
og ógildir 23. Málið mun verða
tekið til umræðu á borgarráðsfundi
í dag.
Davíð Oddsson borgarstjóri seg-
ir að málið verði kynnt og rætt í
borgarráði og borgarstjórn. Hann
segir að þrátt fyrir litla þátttöku
í kosningunni verði að taka tillit
til niðurstöðu hennar og þar með
banna hundahald í borginni. Þeir
sem eiga hunda fyrir og hafa skráð
þá með iögformlegum hætti munu
samt áfram fá að halda þeim á
heimilum sínum svo lengi sem dýr-
in eru á lífí.
Davíð segir að það taki nokkurn
tíma að breyta reglugerðinni um
Svar frá Banda-
ríkjamönnum í dag?
ENGIN viðbrögð hafa enn borist
við mótmælum sem Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, hefúr komið á framfæri
við bandarisk stjórnvöld vegna
meintra afskipta Bandaríkja-
manna á sölu islensks hvalkjöts
til Japans. Talsmaður banda-
riska utanríkisráðuneytisins
vildi ekkert um málið segja ann-
að en að ráðuneytinu hefðu bor-
ist mótmælin og viðbragða við
þeim væri hugsanlega að vænta
i dag.
Utanríkisráðherra kom mót-
mælunum á framfæri við,
Ridgeway aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandarílcjanna og Nicholas
Ruwe, sendiherra Bandaríkjanna á
Wörner í
heimsókn
Aðalframkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins, Manfred
Wömer, kemur ásamt fylgdarliði
í tveggja daga opinbera heim-
sókn til Islands á morgun í boði
utanríkisráðherra.
Auk þess að eiga viðræður við
utanríkisráðherra mun aðalfram-
kvæmdastjórinn ganga á fund for-
seta íslands og hitta að máli forsæt-
isráðherra. Einnig heimsækir Mar -
í red Wömt • Keflavíkurflugvöll.
íslandi. Síðdegis í gær höfðu engin
svör borist Jóni Baldvini og upplýs-
ingafulltrúi bandaríska sendiráðs-
ins sagðist ekki vita hvort eða
hvenær sendiherrann myndi ganga
á fund utanríkisráðherra.
hundahald í borginni. Tvær um-
ræður þurfi í borgarstjórn og síðan
þurfí staðfestingu dómsmálaráðu-
neytisins. Hann á þó von á að tak-
ist að afgreiða það fyrir áramótin.
Guðrún Guðjohnsen formaður
Hundaræktarfélagsins segir að
hún geti ekki túlkað niðurstöður
kosningarinnar á neikvæðan hátt.
Úrslitin hafi ekki komið henni á
óvart þar sem vitað var að hópur
hundaeigenda er lítill og jafnframt
er til staðar lítill hópur harðra
andstæðinga hundahalds. Þessir
tveir hópar hafi svo íjölmennt í
kosningamar. „Hin litia kosninga-
þátttaka sýnir að stórum meiri-
hluta borgarbúa finnst hundahald
ekki athugavert," segir Guðrún.
Hvað framhaldið varðar segir
Guðrún að gera verði betur í að
herða reglur um hundahald en
ekki megi til þess koma að það
verði bannað. Þá kæmi upp sami
vítahringur og var fyrir 4 árum.
Félagið hafi til staðar fjölda af til-
lögum um hvemig bæta megi
ástandið og þá sérstaklega eftirlit
með hundahaldi.
1 mmm ,
Morgunblaðið/Bjami
Starfsmaður ríkisprentsmiðjunnar Gutenberg vinnur við prentun
fjárlagafrumvarpsins í gær.
Fjárlagafrumvarp-
ið lagt fram í dag
Fjárlagafrumvarpið verður
lagt fram á Alþingi i dag. Þá
verður væntanlega einnig lagt
fram frumvarp til lánsljárlaga,
en frá því frumvarpi verður
endanlega gengið á fúndi ríkis-
stjórnarinnar í dag.
Stefnt var að því að leggja fjár-
lagafrumvarpið fram í gær, en
það tókst ekki. Prentun frum-
varpsins lauk ekki fyrr en í nótt.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Varaflugvöllur á vegum NATO
yrði ekki hemaðarmannvirki
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, segir að þótt
varaflugvöllur fyrir stórar flug-
vélar yrði kostaður af Mann-
virkjasjóði Atlantshafsbanda-
lagsins að einhverju leyti yrði
ekki um hernaðarmannvirki að
ræða. Jón Baldvin segir að enn
eigi eftir að ræða það til hlítar
hvort NATO taki þátt í gerð
flugvailarins, þrátt fyrir að sam-
gönguráðherra hafi dregið fúll-
trúa sína út úr nefnd sem ræða
átti gerð varaflugvallar við
Bandaríkjamenn. Þá segir ráð-
herra að áfiram verði unnið við
þær framkvæmdir í þágu land-
varna, sem þegar hefúr verið
samið um, þrátt fyrir ákvæði í
stjórnarsáttmála um að ekki
verði ráðist í nýjar meiriháttar
framkvæmdir á vegum varnar-
liðsins og að samskipti við það
verði endurskipulögð.
„Það er staðreynd að því er varð-
ar millilandavélar íslensku flugfé-
laganna að þær hafa engan vara-
flugvöll hér á landi. Þær verða því
að flytja eldsneyti sem nægir þeim
til að komast til Skotlands, sem
er næsta land með nægilega stóran
varaflugvöll fyrir þær. Þetta er
auðvitað óviðunandi flugöryggi,"
sagði utanríkisráðherra í svari við
fyrirspurn á fundi Samtaka um
vestræna samvinnu og Varðbergs
á laugardag.
Jón Baldvin sagðist fyrst og
fremst leggja áherslu á það að það
væri áhugi af hálfu Atlantshafs-
bandalagsins á að slíkur varaflug-
völlur yrði gerður. „Það er áhugi
og fordæmi fyrir því að Mann-
virkjasjóður NATO taki þátt í
kostnaðinum við slíkan völl. Marg-
ir hafa lýst sig andvíga því og tal-
ið að þetta ætti að verða algerlega
íslenskt mannvirki, kostað af
íslensku fé. Við erum hér að tala
um flugvöll, sem gæti kostað 9-10
milljarða íslenskra króna,“ sagði
ráðherra. „Ég vil láta það koma
fram að jafnvel þótt um væri að
ræða flugvöll, sem væri að hluta
til kostaður af Mannvirkjasjóði
NATO, þyrfti hann ekki að full-
nægja öðrum skilyrðum en þeim
að brautarlengd væri 3 kílómetrar,
að stæði væru fyrir ákveðna stærð
Átök um ritstjórastóla á Þjóðvilja
Fundi í útgáfufélag’i frestað að beiðni formanns Alþýðubandalagsins
STJÓRNARFUNDI í Útgáfúfélagi Þjóðviljans var frestað í gær,
að ósk Ólafs Ragnars Grimssonar formanns Alþýðubandalagsins
en á útgáfúfélagsfúndinum átti m.a. að taka ákvörðun um hvort
ráðningarsamningur við Mörð Arnason, einn þriggja ritstjóra
blaðsins, yrði endurnýjaður. Óttar Proppé hafði áður sagt upp
störfúm sem ritstjóri Þjóðviljans en hann hefúr gegnt því starfi
frá 1. desember sl. eins og Mörður. Rætt hefúr verið um að Silja
Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur verði ráðin ritstjóri blaðs-
ins i stað Óttars.
Óttar Proppé og Mörður Áma-
son voru ráðnir ritstjórar Þjóðvilj-
ans. í desember sl. til eins árs.
Mörður var stuðningsmaður Ólafs
Ragnars Grímssonar við form-
annskjör í flokknum skömmu áður
og var ráðinn ritstjóri m.a. með
það í huga. Óttar Proppé var frek-
ar talinn fulltrúi þeirrar fylkingar
innan flokksins sem fylgdi Sva-
vari Gestssyni fráfarandi form-
anni að málum og studdi Sigríði
Stefánsdóttur við formannskjörið.
Fyrir hefur legið í nokkrar vik-
ur að Óttar vildi ekki endumýja
sinn ráðningarsamning. Mörður
hefur hins vegar óskað eftir end-
urráðningu, og í bréfí, sem Mörð-
ur sendi stjóm útgáfufélagins fyr-
ir skömmu, sagði hann að ef svar
við ósk um endurráðningu hefði
ekki borist fyrir 1. nóvember liti
hann svo á að ráðningarsamning-
ur sinn endumýjaðist sjálfkrafa.
Úlfar Þormóðsson formaður
Útgáfufélags Þjóðviljans, sagði
við Morgunblaðið, að engar tillög-
ur hefðu verið komnar fram í út-
gáfústjóminni varðandi ritstjóra-
mál Þjóðviljans. Hins vegar hefði
Merði Ámasyni verið gerð grein
fyrir því hver staða málsins virtist
vera. Úlfar vildi ekki tjá sig frek-
ar um þetta, en samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins hefur
hann talað fyrir því að ráðningar-
samningur Marðar yrði ekki end-
umýjaður og haft stuðning innan
útgáfufélagsstjómarinnar, þótt
hann hafi ekki verið einróma.
Stjóm útgáfúfélagsins ætlaði
að fjalla um málið á fundi í gær
en Olafur Ragnar Grímsson ósk-
aði eftir fundi með stjóm útgáfu-
félagsins I gærdag. Á fundinum
var meðal annars kynnt samþykkt
starfsmanna Þjóðviljans þar sem
lýst var yfir stuðningi við Mörð
Ámason og óskað eftir því að
hann yrði endurráðinn sem rit-
stjóri. Að fundinum loknum sendi
Mörður stjóm félagsins annað
bréf, að tilmælum Ólafs Ragnars,
þar sem hann sagðist geta sætt
sig við að svar við ósk um ráðn-
ingu bærist ekki fyrr en í næstu
viku og var stjómarfundi í útgáfu-
félaginu frestaðtil 10. nóvember.
Úlfar Þormóðsson sagði við
Morgunblaðið að formaður flokks-
ins ætti næsta leik í stöðunni en
vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Aðspurður um þann leik, sagði
Ólafíir Ragnar Grímsson við
Morgunblaðið að hann hefði ekki
haft mikinn tíma til að huga að
því vegna anna, en sagði að
ákvörðun yrði tekin á næstu dög-
Úlfar sagði aðspurður að marg-
ir blaðstjómarmenn hefðu nefnt
Silju Aðalsteinsdóttur sem hugs-
anlegan ritstjóra Þjóðviljans.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er talið líklegt að ef
Mörður verður ekki endurráðinn
og Silja Aðalsteinsdóttir verður
ritstjóri við hlið Árna Bergmanns
sem fyrir er, verði þriðji ritstjórinn
ráðinn strax eftir áramót til að
móta pólitísk skrif blaðsins.
af þotum, að öryggisbúnaður væri
í lagi og loks að eldsneytisgeymar
væm fyrir hendi með nægilegu
magni og öryggi. Undir öllum
kringumstæðum þyrfti þessi vara-
flugvöllur að uppfylla þessi skil-
yrði. Að Öðm leyti er munurinn
enginn nema á styijaldartímum ef
til kæmi. Völlurinn yrði ekki hern-
aðarmannvirki nema hvað hann
yrði notaður í þágu varna landsins
ef til átaka kæmi. Þarna yrði ekk-
ert varalið, engir hermenn og völl-
urinn yrði mannaður og rekinn af
fslendingum," sagði utanríkisráð-
herra.
Ekki áhyggjur af því að
varnarsamstarfið skaðist
Utanríkisráðherra segist ekki
hafa áhyggjur af því að vamarsam-
starf Islands og Bandaríkjanna
skaðist þótt skorist hafí í odda með
þjóðunum végna tilraunar Banda-
ríkjamanna að beita íslendinga við-
skiptaþvingunum í gegnum Japani.
„Við munum ekki una því að
vera hafðir að ginningarfíflum í
viðræðum milli réttkjörinna stjóm-
valda landa. Allra síst áttum við
von á þessari tvöfeldni frá vinum
okkar. Það fer ekkert á milli mála
að við lítum á Bandaríkin sem vina-
þjóð og höfum ekki ástæðu til ann-
ars. Samstarfið við Bandaríkin hef-
ur alla tíð verið mjög gott,“ sagði
utanríkisráðherra.
Hann rifjaði upp að það hefðu
verið Bandaríkin sem urðu fyrst til
þess að veita viðurkenningu hinu
unga íslenska lýðveldi og í kjölfarið
á þeirri viðurkenningu hefðu önnur
ríki gert slíkt hið sama. „Þetta mál
hefur valdið okkur vonbrigðum en
ég leyfi mér að vona að þetta sem
gerst hefur hafí stafað af misskiln-
ingi og að fyrir það verði bætt hið
fyrsta," sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson.
Sjá ennfremur á miðopnu