Morgunblaðið - 01.11.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
37
* ___
ÞINGBREF STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Hægt og hikandi þing
Þingflokkar í „nýjum“ hlutverkum
Alþingi íslendinga, 111. lög-
gjafarþing, fór hægt og hikandi
af stað. Fundir aðeins tvo, þrjá
daga í viku. Þó var einhver
óvissa blandin ýmis konar
væntingum í loftinu.
A bak við tjöldin unnu
frammámenn stjórnarflokk-
anna baki brotnu við að ná sam-
stöðu um meginmál, einkum
frjárlagagerð og aukna skatt-
heimtu á fólk og fyrirtæki upp
í margra milljarða króna ríkis-
sjóðseyðslu umfram ríkissjóðs-
tekjur.
I
í efri deild Alþingis hafa þing-
menn helzt deilt um bráðabirgða-
lög nýrrar ríkisstjómar og frum-
vörp hennar um efnahagsaðgerð-
ir. Það er ekki sízt frysting launa
fram í miðjan febrúar, sem á
stundum var kölluð „afnám samn-
ingsréttar", „matarskattur" og
fleiri meint almenn kjaraatriði, er
settu og setja svip á umræðuna.
Dæmið hefur hinsvegar snúizt
við að því leyti, að nú eru fyrrum
gagnrýnendur, þingmenn Alþýðu-
bandalags, í vöminni, en fyrrum
veijendur, þingmenn Sjálfstæðis-
flokks, í hlutverkum „saksókn-
ara“.
Þannig gengur það á stundum
í þjóðmálunum. Eðli vandamál-
anna, orsakir og úrræði, taka
engum stökkbreytingum, ef
grannt er gáð, en stjómarþing-
menn verða að stjómarandstæð-
ingum og öfugt.
Þeir sem harðast gagnrýndu
meinta kjaraskerðingu, standa að
áframhaldandi „frystingu launa",
framlengdum „matarskatti"
o.s.frv., og undirbúa, að sögn,
nokkurra milljarða króna nýja
skattheimtu, sem sækja á bæði
um hærri tekjuskatt og hærra
verð vöra og þjónustu, það er í
auknum neyzlusköttum.
Laun, frekar skattskert en nú
er, auka vart kaupmáttinn.
II
Neðri deild þingsins var á hinn
bóginn verklítil fyrstu tvær vik-
umar. Ráðherrar lögðu flest
stjómarframvörp fram í efri deild,
þar sem stjórnin hefur meirihluta.
Þar er tekizt á um málin, enn sem
komið er, þótt þau gangi að sjálf-
sögðu til neðri deildar einnig, þeg-
ar þar að kemur. En „frestur er
á illu beztur"!
Hreggviður Jónsson og Aðal-
heiður Bjamfreðsdóttir, þing-
menn Borgaraflokks, sáu þó þing-
deildinni fyrir átakamáli. Þau
fluttu framvarp til laga um hval-
veiðibann. Samkvæmt framvarp-
inu skulu hvalveiðar, þar með
taldar vísindaveiðar, óheimilar í
fiskveiðilögsögu íslands til ársins
1993.
Þar með var höggvið að þeirri
hvalveiðistefnu og rannsóknará-
ætlun, sem Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra, og raunar
ríkisstjómir og þingið sjálft, hafa
fylgt átakalítið um margra ára
skeið. Meginröksemd flutnings-
manna er sú að óbreytt afstaða
að þessu leyti stefni stóram við-
skiptahagsmunum þjóðarinnar
(sölu sjávarvöra) í hættu, bæði
austan hafs og vestan, og þar
með Stöðu undirstöðugreinar þjóð-
arbúskaparins og atvinnu- og af-
komuöryggi fjölda fólks vítt og
breitt um landið.
Ámi Gunnarsson, þingmaður
Alþýðuflokks, flytur og tillögu til
þingsályktunar um sama efni, þ.e.
endurskoðun á hvalveiðstefnunni
„með það fyrir augum að stöðva
vísindahvalveiðar um a.m.k.
þriggja ára skeið“. Ámi telur lög-
bundið hvalveiðibann of bindandi
fyrir stjómvöld og hyggilegra að
afgreiða málið með viljayflrlýs-
ingu Alþingis í fomii þingsálykt-
unar.
Þetta er stærsta átakamálið í
neðri deild það sem af er þingi.
III
Það horfír ekkert of vel í efna-
hagsmálum okkar. Minnkandi
stofnstærð þorsks, samdráttur í
sjávarafla, lækkandi söluverð
fískafurða og versnandi markaðs-
horfur vekja ugg hjá fiestum um
framtíðina.
Þessi staða mála hefur áhrif á
þá „kjaraumræðu", sem okkur er
svo töm. Ekki síður afstaða fólks,
vantrú eða tiltrú, til ríkjandi
stjómarstefnu. Atlt mótar þetta
hið almenna framtíðarviðhorf.
Þær umræður, sem fram hafa
farið á Alþingi í haust, spegla á
sinn hátt hina almennu umræðu
í samfélaginu. Ekki sízt umræðan
um bráðabirgðalögin og fyrir-
hugaðar efnahagsaðgerðir, svo
sem aukna skattheimtu. Það sama
gildir raunar um hvalveiðar og
söluhorfur sjávarvöra, sem vekja
ekki sízt atvinnu- og afkomu-
spumingar í hugum fólks.
Lífskjör verða ekki til í samn-
ingum heldur í verðmætasköpun
í þjóðarbúskapnum. Það er merg-
urinn málsins. Þessvegna er meg-
inmál að atvinnustarfsemin hafí
aðsöðu til að skila vaxandi þjóðar-
tekjum, auknum skiptahlut.
Áfram vefður þó deilt um skipt-
ingu þjóðarteknanna. En þrátt
fyrir þær deilur - og stundum
harðvítug átök - hafa allir viðkom-
andi aðilar, stjómvöld, vinnuveit-
endur og samtök launþega, skirrst
við að móta launastefnu í
landinu; það er, hvem veg skuli
meta störf til launa - og þar með
ákvarða launamismun - með hlið-
sjón af þeirri menntun, sem við-
komandi störf krefjast, þeirri
ábyrgð, er þeim fylgja, sem og
arðsemi þeirra fyrir samfélagið.
Þar ofan í kaupið skortir tölu-
vert á að kjararannsóknir hafí
verið nægilega áreiðanlegar. Þar
er ekki við þá að sakast, sem að
hafa unnið, heldur hefur á skort
upplýsingar í úrvinnslugögnum.
Það er því af hinu góða að þing-
menn úr öllum þingflokkum
(fyrsti flutningsmaður Kristín
Einarsdóttir) hafa lagt fram til-
lögu til þingsályktunar um að efla
kjararannsóknir.
Þingmálið um eflingu kjarar-
annsókna lætur lítið yfir sér og
fær, ef að líkum lætur, ekki mikla
Qölmiðlaathygli. Það vantar sum
sé í það „hasarinn“. Það vegur
þó þyngra, ef grannt er gáð, en
margur innantómur hávaðinn,
sem gengur greiðlega gegnum
fjölmiðlafarvegi inn í stofur og
hugi fólks.
Þetta mál er þó eitt dæmi þess,
sem betur fer ásamt ýmsum fleir-
um, að þrátt fyrir leikhússtílinn á
störfum þingsins, rýna menn þar
enn sem fyrr, a.m.k. af og til,
ofan í þjóðmálakjamann.
Sú handaupprétting, sem hér sést, er táknræn fyrir samábyrgð á stjórnarstefiau tveggja síðustu
ríkisstjórna, frá 26. mai 1983 til 28. september 1988. Ekki er víst að þessar uppréttu hendur eigi
jafii oft samleið í atkvæðagreiðslum á Alþingi í vetur sem næst liðinn vetur.
- ■ .... ..................................—---------------. .. .....
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
□ EDDA 59881117 = 2
O Helgafell 59881117 VI -2
I.O.O.F. 8 =1701128'/2= 9 II
I.O.O.F. Rb.4=1381118-872. II.
□ FJÖLNIR 59881117 -Ffl.Atk.
ÚtÍVÍSt, Giolmm 1
Helgarferð 4.-6. nóv.
Haustblót á Snæfellsnesl
Góð gisting í herbergjum í
Laugageröisskóla. Fjölbreyttar
skoðunar- og gönguferöir.
Ströndin .Undir Jökli“ eða Bló-
feldarskarð eftir vali. Ekið fyrir
Jökul um norðanvert nesiö.
Hítardalur skoðaður á sunnud.
Ein máltíð innifalin. Upplýsingar
og farm. á skrifst., Grófinni 1,
simar: 14606 og 23732.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
AD-KFUK
I Fundur í kvöld kl. 20.30 á Amt-
imannsstíg 2b. Styrk þú verk
Ihanda vorra. Fundur í umsjá
I basarnef ndar.
I Munið bænastundina kl. 20.00.
- Allar konur velkomnar.
Lærið vélritun
Ný námskeið byrja 3. nóvember.
Athugið! VR styrkir félaga sína til
þátttöku á námskeiðum skólans.
Vélrítunarskólinn, simi 28040.
Pfpulagningarvinna e: 676421.
Áskriftarsitninn er83033
~~--
raðauglýsingar
bátar — skip
Fiskiskip
Höfum til sölu vélskipið Guðrúnu GK-37.
Skriflegum tilboðum skal skilað til L.Í.Ú. fyrir
20. nóvember nk
SKIPASAIA-SKIPALEIGA,
JÓNAS HARALDSSON/LÖGFR. SÍML 29500
veiði
titboö — útboö
Kvótakaup
Óskum eftir að kaupa botnfiskkvóta og/eða
grálúðukvóta.
Seljendur, hafið samband í símum
95-3203/3209.
Meiriháttartilboð
Stillum öllu permanent-verði í hóf.
Dæmí: Permanent í stutt hár kr. 2.500,
klipping innifalin.
Strípur í stutt hár kr. 1.500, klipping innifalin.
Hólmadrangur hf.,
Hólmavík.
Hársnyrtistofan Dandý,
Eddufel/i 2,
sími 79262.