Morgunblaðið - 01.11.1988, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988
5
KLÁRIR
ÍL0FT1Ð!“
Hannes Jóhannsson framkvæmdastjóri tæknisviðs
með valinn mann í hverju rúmi.
Myndatökuvélar og hljóðnemar á ferð og flugi innan um kapla,
snúrur og skjái. Allir eru á þönum, lóðbyssur á lofti og allt að verða klárt.
Við erum stödd í myndverinu, ríki tæknimannanna, síðustu
mínúturnarfyrirútsendingu Stöðvar2. Þótt lítiðfarifyrirtæknimönnunum
á skjánum má nefna sem dæmi um mikilvægi þeirra, að frétt sem unnin
er af einum fréttamanni, útheimtir störf 20 tæknimanna.
Meginhlutverk tæknisviðs Stöðvar 2 er að hafa auga með og gera við
hinn margbrotna tæknibúnað, sem fleytir stórgóðri dagskrá Stöðvar 2
inná heimili landsmanna, fylgjast með í framþróun tækninnar, klippa
efni og setja texta og tal inná myndir, svo fátt eitt sé talið.
Hannes Jóhannsson leiðir starf 58 tæknimanna Stöðvar 2. Hann
er rafeindavirki að mennt og hefur aflað sér víðtækrar reynslu á sviði
sjónvarps. Starfaði m.a. hjá norska sjónvarpinu og ríkissjónvarpinu.
Um árabil vann hann hjá ísmynd, sem síðar varð ísfilm, við að ryðja
braut í gerð íslenskra myndbanda.
„ Tæknimönnum íslenska myndversins hefur fjölgað úr20 í 60 á
tveimurárum og ersúaukning talandi dæmi um vaxandi umsvif
deildarinnar, sem enn sér ekki fyrir endann á. Áður en ég hófstörfhér
hafðiégkynnstbestu tæknimönnum landsins. Hafi ég afrekað einhverju
á Stöð 2 erþað að fá þá hingað til starfa “.
Tæknimennn Stöðvar 2 sjá um, að hinn margbrotni
tæknibúnaður Stöðvar 2 skili dagskránni heilli í höfn, á
flókinni leið um öldur Ijósvakans.